Morgunblaðið - 13.07.2002, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 13.07.2002, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 43 Skráningarlýsing fyrir víkjandi verðtryggð skuldabréf Kaupþings banka hf. 1. flokkur 2000 Kauphöll Íslands hf. hefur ákveðið að taka eftirfarandi skuldabréf á skrá Kauphallarinnar þann 18. júlí nk. enda uppfylli þau skilyrði skráningar. Bréfin eru vaxtagreiðslubréf til 12 ára. Höfuðstóll greið- ist með einni afborgun þann 28. apríl 2012. Nafnvextir bréfanna eru 7,00%. Bréfin eru verðtryggð. Krafa skv. skuldabréfi í 1. flokki 2000 víkur fyrir öllum öðrum kröfum á hendur útgefanda og við gjaldþrot eða slit endurgreiðist hún á eftir öllum kröfum öðrum en endur- greiðslu hlutafjár. Um er að ræða stækkun á flokknum um kr. 510.000.000 að nafnverði, úr kr. 1.200.000.000 að nafnverði í kr. 1.710.000.000 að nafnverði. Skráningarlýsingu og þau gögn sem vitnað er til í henni er hægt að nálgast hjá umsjónaraðila skráningarinnar, Kaupþingi banka hf. Ármúla 13, 108 Reykjavík Sími 515-1500, fax 515-1509 FRÉTTIR DAGANA 15.–19. júlí heldur Suzuki- sambandið á Íslandi námskeið fyrir fiðlu- og sellónemendur á Laugar- vatni. „Tónlistarnám með suzukiað- ferðinni er þannig að nemendur læra á hljóðfæri líkt og þau læra móður- málið. Það er með því að hlusta á tón- list og líkja eftir því sem þau heyra. Foreldrar mæta alltaf í tónlistartíma og taka virkan þátt í námi barna sinna. Það verður því margt um manninn á Laugarvatni þessa viku og sönn fjölskyldustemmning. Þátt- takendur eru um 200, nemendur, kennarar, foreldrar og systkini. Þetta fólk kemur alls staðar að af landinu og einnig margir erlendis frá. Alla námskeiðsdagana, nema fyrsta daginn, verða tónleikar í Íþróttahúsi KHÍ kl. 13.30. Þessir tónleikar eru öllum opnir og er að- gangur ókeypis. Þar munu nemend- ur spila ýmsa tónlist, einir sér eða nokkrir saman. Þá eru allir íbúar Bláskógabyggðar og sumardvalar- gestir boðnir velkomnir á lokatón- leika sem haldnir verða í íþróttahúsi KHÍ föstudaginn 19. júlí kl. 13.30,“ segir í fréttatilkynningu. Námskeið hjá Suzukisambandinu MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing: „Við undirrituð lýsum yfir hneykslun okkar á þeirri neikvæðu umræðu er farið hefur fram í fjöl- miðlum undanfarna mánuði varðandi málefni Sólheima í Grímsnesi. Enginn er fullkominn, og allra síst þeir er geysast fram í fjölmiðlum og ata stjórn Sólheima sem og starfsfólk auri með órökstuddum fullyrðingum. Það er von okkar að þeir sem telja sig þurfa að tjá skoðanir sínar opin- berlega geri það af þekkingu og smekkvísi. Á sama hátt og við leysum okkar daglegu störf af hendi með þarfir skjólstæðinga okkar í huga fyrst og fremst, þá treystum við því að ráða- menn Sólheima sem og ráðamenn fé- lagsmálaráðuneytis fái að leysa ágreiningsefni sín í friði og mistækir ritskríbentar hætti skítkasti í okkar garð. Virðingarfyllst, Kr. Rúnar Hartmannsson, for- stöðum. kertagerðar, Lárus Sigurðs- son, hljóðfærasmiður/verkstjóri, Ingibjörg Eyfells forstöðum. Brekkukots, Ólafur Már Guðmunds- son, myndlistamaður/verkstjóri, Sig- ríður Sigurðardóttir, verkstjóri vef- stofu, Þórný Björk Jakobsdóttir, forstöðum. jurtastofu, Kjartan Geir Kristinsson þjónustustjóri, Rósa Björg Ómarsdóttir stuðningsfulltrúi, Aðalheiður Jóhanna Ólafsdóttir, verslunarstjóri Völu, Valdimar Reynisson, forstöðum. umhverfis- mála, Hörður Harðarson trésmiður, Halldór Sævar Guðbergsson, íþrótta- og tómstundafulltr., Elvar B. Sigurðsson, yfirmaður viðhalds- deildar, Helma Hreinsdóttir hús- móðir, Jónas Vignir Grétarsson, for- stöðum. Ölurs, Sigurlaug A. Grétarsdóttir, forstöðum. atvinnu- sviðs, Gissur Þórhallsson stuðnings- fulltrúi, Einar Páll Bjarnason skrif- stofustjóri, Sigurdís Sigurðardóttir verkstjóri.“ Yfirlýsing frá starfsfólki á Sólheimum UM ÞESSA helgi eins og allar aðrar helgar í sumar verður líf og fjör á Sólheimum. Klukkan 16 á laugardag og sunnudag verður leikþátturinn um ævi Sesselju sýndur í íþróttaleikhúsinu og er aðgang- ur ókeypis. Allir eru velkomnir í listhús- ið, Sesseljuhús, listasýninguna í Ingustofu, listhúsið Völu og kaffihúsið Grænu könnuna sem er opnað klukkan 14 laugar- daga og sunnudaga. Opið á Sólheimum um helgar HINN 11. júlí fyrir 30 árum sett- ust þeir Boris Spassky og Bobby Fischer að tafli í Laugardalshöllinni. Þar með hófst eftirminnilegasta heimsmeistaraeinvígi skáksögunnar. Augu heimsbyggðarinnar beindust að Íslandi það sumar og aldrei áður höfðu jafnmargir erlendir frétta- menn komið hingað til lands til að fylgjast með einum atburði. Gífurleg umfjöllun var um einvígið í fjölmiðl- um út um allan heim. Óteljandi tíma- ritsgreinar voru skrifaðar um það og fjöldi þeirra bóka sem fjalla um ein- vígið hleypur á mörgum tugum. Meira að segja rataði nafn Reykja- víkur í kjölfarið inn í söngleik og dægurlagatexta. Á síðari árum hafa svo margvíslegar upplýsingar um einvígið birst á Netinu. Ein afleiðing einvígisins var skáksprenging hér á landi sem fæddi af sér fjölda stór- meistara og leiddi til þess að Ísland var um árabil í hópi fremstu skák- þjóða heims. Í tilefni af því að þrjátíu ár eru lið- in frá því einvígið fór fram hefur Skáksamband Íslands ákveðið að minnast þessa viðburðar með ýms- um hætti. Fyrsta skrefið var stigið í upphafi ársins þegar efnt var til sýn- ingar í Ráðhúsi Reykjavíkur sam- hliða einvígi Hannesar Hlífars Stef- ánssonar og Nigels Shorts, sem Taflfélagið Hellir stóð fyrir. Hinn 14. júlí, á alþjóðlegum safna- degi, verður opnuð sýning í Þjóð- menningarhúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík undir yfirskriftinni „Skákarfur Íslendinga og Einvígi aldarinnar“. Skákarfur Íslendinga er viðamikill og athyglisverður. Ýmsar minjar honum tengdar hafa verið til varðveislu m.a. í Þjóðminjasafni og Þjóðarbókhlöðu, sem geymir hið ómetanlega Fiske-safn. Ýmsir gripir úr skáksögunni verða dregnir fram í dagsljósið, auk þess sem gripir tengdir Einvígi aldarinnar verða sýndir. Í tilefni af afmælishaldinu mun Boris Spassky koma til landsins og taka þátt í alþjóðlegu málþingi um einvígið við Bobby Fischer. Málþing- ið verður haldið í Þjóðmenningar- húsinu í tengslum við sýninguna og fer fram 10. ágúst. Auk Spasskys munu þar ýmsir valinkunnir menn taka til máls, m.a. Friðrik Ólafsson fyrrverandi forseti FIDE, Guð- mundur G. Þórarinsson fyrrverandi forseti Skáksambandsins, Lothar Schmid yfirdómari einvíg- isins og forseti Íslands, Ólafur Ragn- ar Grímsson. Undanúrslit á Dortmund Sparkassen að hefjast Þeir Veselin Topalov (Búlgaría), Alexei Shirov (Spánn), Evgeny Bar- eev (Rússland) og Peter Leko (Ung- verjaland) unnu sér rétt til að tefla í undanúrslitum Dortmund Sparkas- sen-mótsins í Þýskalandi. Lokastaðan í flokki I: 1.–2. Topalov, Shirov 4 v. 3. Boris Gelfand 2½ v. 4. Christopher Lutz 1½ v. Í flokki II varð lokastaðan þessi: 1. Bareev 4 v. 2. Leko 3½ v. 3. Michael Adams 2½ v. 4. Alexander Morozevich 2 v. Sigurvegarinn í flokki I teflir við Leko og Bareev teflir við þann sem hafnar í öðru sæti í flokki I. Þar sem þeir Topalov og Shirov urðu efstir og jafnir í flokki I eiga þeir að tefla til úrslita um efsta sætið. Þeir eru ekki sáttir við það aukaálag sem því fylgir og vilja því frekar að peningi verði kastað um það. Undanúrslit mótsins hefjast í dag, laugardag. Hannes Hlífar með 2½ v. af 7 Hannes Hlífar Stefánsson teflir um þessar mundir á lokuðu skákmóti í Esbjerg í Danmörku. Sjö umferð- um er lokið á mótinu og eftir slæman kafla náði Hannes sínum fyrsta sigri í sjöundu umferð. Staðan er þessi þegar tvær umferðir eru eftir: 1. Sune Berg Hansen 5 v. 2.–4. Lazaro Bruzon, Andrei Volo- kitin, Leinier Dominguez 4½ v. 5. Peter Heine Nielsen 3½ v. 6.–7. Sergey Tiviakov, Igor Glek 3 v. 8.–9. Curt Hansen, Hannes Hlífar 2½ v. 10. Alisa Galliamova 2 v. Sigurbjörn og Magnús Örn enduðu í 2.–5. sæti Alþjóðlega skákmótinu í Kécske- met er lokið, en meðal þátttakenda voru þeir Sigurbjörn Björnsson og Magnús Örn Úlfarsson. Þeir hlutu 5 vinninga af 9 og enduðu í 2.–5. sæti. Páll Þórarinsson tók einnig þátt í mótinu og fékk 3½ vinning. Það var 17 ára ungverskur FIDE-meistari, Tibor Reiss (2.347), sem sigraði á mótinu. Hann hlaut 6½ vinning. Ís- lensku þátttakendunum gekk reynd- ar vel á mót Reiss og fengu samtals 2 vinninga í þremur skákum gegn hon- um. Bragi, Halldór Brynjar og Stefán í Búdapest Þeir Bragi Þorfinnsson, Halldór Brynjar Halldórsson og Stefán Kristjánsson taka nú þátt í svoköll- uðu „First Saturday“ skákmóti í Búdapest. Stefán og Bragi tefla í stórmeistaraflokki á mótinu, en Hall- dór Brynjar teflir í FM-flokki. Halldór Brynjar hefur verið efstur í FM-flokki, en í sjöttu umferð tapaði hann fyrir stigahæsta þátttakandan- um, heimamanninum Eduard Szirmai (2.177). Þeir deila nú 2.–3. sæti með 4½ vinning, en efstur er Þjóðverjinn Martin Kraemer (2.127) með 5½ vinning. Tefldar verða 11 umferðir. Bragi Þorfinnsson gerði jafntefli við pólska kvennastórmeistarann Iweta Radziewics (2.407) í sjöttu um- ferð í stórmeistaraflokknum, en Stefán Kristjánsson tapaði fyrir danska alþjóðlega meistaranum Ni- colai Pedersen (2.458). Stefán er nú í 7.–10. sæti með 2½ vinning, en Bragi er með 2 vinninga í 11.–13. sæti. Tefldar verða 13 umferðir. Junior og Shredder heimsmeistar- ar skákforrita Skákforritin Junior og Shredder háðu harða baráttu um heimsmeist- aratitil skákforrita, en heimsmeist- aramótinu lauk í Maastricht á fimmtudag. Forritin voru jöfn að mótinu loknu og tefldu tvær skákir til úrslita um titilinn. Junior sigraði örugglega í fyrri skákinni, en þeirri seinni lauk með jafntefli eftir að Shredder hafði misst af skemmti- legri vinningsleið. Junior er því heimsmeistari skákforrita árið 2002. Þessi tvö forrit hafa unnið átta heimsmeistaratitla frá 1996. Einnig var keppt um heimsmeist- aratitil skákforrita í hraðskák og þar sigraði Shredder. Sigurinn kom mörgum á óvart þar sem Shredder hefur ávallt haft það orð á sér að vera slakara en mörg önnur forrit í skák- um með stuttan umhugsunartíma. Einvígi aldarinnar og skákarfur Íslendinga Boris Spassky og Bobby Fischer. SKÁK Reykjavík 30 ÁRA AFMÆLISHÁTÍÐ EINVÍGIS ALDARINNAR 2002 Daði Örn Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.