Morgunblaðið - 13.07.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 13.07.2002, Blaðsíða 48
GUS gus-flokkurinn rís upp við dogg á næstunni með nýja breiðskífu. Nú er „hópurinn“ orðinn kvartett og er skipaður þeim Bigga Veiru, Buckmaster, Presid- ent Bongo og söngkonunni Urði Hákonardóttur, sem kallar sig Earth. Platan nýja kallast Att- ention og mun innihalda tíu lög, m.a. ábreiðu yfir lag eftir fönkaða Finnann Jimi Tenor. Hún verður gefin út í Bandaríkjunum og Kan- ada á Moonshine-merkinu og Underwater-merkinu í Bretlandi í haust. Nýtt frá Gus Gus Gus Gus í sinni nýjustu mynd. TENGLAR ...................................... www.gusgus.com 48 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 10. B.i. 14. Vit 393. Sýnd kl. 2, 3, 4, 5, 6, 7 og 8. Vit 398Sýnd kl. 5.30, 8, 9.30 og 10.30. B.i. 16 ára Vit 400 1/2 Kvikmyndir.is Freddie Prinze Jr, Sarah Michelle Gellar, Mathew Lillardog, Rowan Atkinson (MrBean) lenda í spennandi ævintýrum ásamt sætustu og skemmtilegustu hetju sumarsins Scooby-Doo. Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. Sýn d á klu kku tím afr est iFRUMSÝNING Sandra Bullock í spennumynd sem tekur þig heljartaki! Þeir búa til leik sem hún þarf að leysa.. takmarkið er hinn fullkomni glæpur. HETJA MUN RÍSA UPP... ...Á AFTURLAPPIRNAR. SÍMI 588-0800 KRINGLAN www.sambioin.is Sýnd kl. 2 og 3.45. Ísl tal. Vit nr. 370. ATH! AKASÝNING KL. 9.30.  kvikmyndir.com  ÓHT Rás 2  Strik.is Ástin stingur.  HL Mbl  HL Mbl Frábær gamanmynd fyrir bæði kynin. Hugh Grant hefur aldrei verið betri. S ag a u m s tr ák 1/2 SV Mbl 1/2 Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com  ÓHT Rás 2  SG DV Sýnd kl. 2, 4 og 6. Íslenskt tal. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. 18 þúsund áhorfendur 1/2 Kvikmyndir.is www.sambioin.is Sýnd kl. 6. DV Kvikmyndir.is  Mbl Kvikmyndir.com Sýnd kl. 8. B. i. 16. V Kvik yndir.is bl Kvik yndir.co Sýnd kl. 2, 4, 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Með hinum frábæra Frankie Muniz úr „Malcolm in the Middle“ i i i l l i i l Nú fær Hollywood fyrir ferðina. Frábær og hressileg gamanmynd fyrir alla. Sýnd kl. 8 og 10.20. Bi. 14. FRUMSÝNING Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal. Vit nr. 370. Í VIRÐULEGU listasafni við Traf- algar-torg í Lundúnum verður á mánudag opnuð sýning þar sem markmiðið er að votta poppdrottn- ingum síðustu fjögurra áratuga virð- ingu. Einungis 20 söngkonur hafa verið valdar til þess að prýða veggi National Portrait Gallery og í þeim hópi er Björk Guðmundsdóttir. Aðstandendur safnsins segjast hafa vandað valið mjög enda ætíð álitamál hverjir eiga heima á öðrum eins virðingarstalli. Reynt var að velja dívurnar frá ólíkum tímaskeið- um, þær sem sagan hefur skorið úr um að beri af öðrum og hafi haft rík- ust áhrif á samtíma sinn og þróun dægurtónlistar. Hann er ekki ama- legur félagsskapurinn sem Björk er í því auk hennar munu prýða veggi gallerísins Sandie Shaw, Siouxie Sioux, Pj Harvey, Marianne Faith- full, Debbie Harry, Chrissie Hynde, Joan Armatrading, Sade, Annie Lennox, Dusty Springfield og vit- anlega Madonna, svo einhverjar séu nefndar. Allar eru ljósmyndirnar eftir heimsfræga ljósmyndara á borð við Van Wilmer, Caroline Coon og Ge- red Mankovitz og samhliða sýning- unni mun koma út bókin She Bop II: The Definitive History of Women in Rock, Pop and Soul. Sýningin stendur til 3. nóvember og er ekki úr vegi fyrir hina fjöl- mörgu Íslendinga, sem vappa um götur Lundúna, að skella sér á hana, þó ekki væri nema til að berja hana Björk „okkar“ augum. Björk hefur löngum verið í uppáhaldi hjá ljósmyndurum enda ávallt fús til þess að reyna eitthvað nýtt og öðruvísi. Ný ljósmyndasýning opnuð í National Portrait Gallery í Lundúnum Björk meðal helstu popp- drottninga ÞAÐ sem eftir lifir sumars verður boðið upp á rokktónleika með ís- lenskum sveitum á Grandrokk ann- an hvern laugardag. Það eru Magga Stína ásamt Hringjum og Úlpa sem ríða á vaðið nú á laugar- daginn. Forsvarsmenn tónleikaraðarinn- ar eru þeir Örlygur Eyþórsson at- hafnamaður og Freyr Eyjólfsson, nemi og tónlistarmaður. „Já, já. Við erum búnir að fá fullt af hljómsveitum og takmarkið er að sem flestar og fjölbreyttastar sveit- ir spili,“ segir Örlygur. Hann segir að megintilgangur tónleikaraðarinnar sé bara að hafa gaman af þessu. „Svo hef ég líka tekið eftir því, að sumartúristarnir spyrja oft um hvar sé hægt að nálgast lifandi tónlist í Reykja- vík. Við erum því að anna ákveð- inni eftirspurn um leið og við kynnum íslenska tónlist fyrir hinum stóra heimi. Einnig sáum við að best væri að hafa þetta um helgar þar sem ferðamenn koma oft hing- að í helgarferðir, auk þess sem þá er betra færi á að sletta aðeins úr klaufunum. Að síðustu vil ég nefna að þetta er ákveðin tilraun til þess að koma á tónlistarmenningu eins og tíðkast erlendis. Það er að fólk geti nálgast lifandi tónlist um helg- ar og þá eftir miðnætti.“ Örlygur nefnir að þegar sé búið að bóka Klink, Stjörnukisa, Vínyl og lista- menn sem koma fram á hinum vin- sæla Rímnamíndiski til að spila næstu helgar. Nánari auglýsingar verða síðar. Hljómleikarnir hefjast kl. 00.30 og er aðgangseyrir 500 kr. Tónleikamenn- ingin útvíkkuð Magga Stína og Hringir. Rokk á Grandrokk HÚN verður ekki mikið svalari tónlistin en þetta. Dj Shadow er meistari í að finna réttan takt og smala saman yfir hann smellnum lagabútum sem einhvern veginn áttu alltaf að enda sam- an í dilk. Það hefur hann margsýnt með vinnu sinni fyrir aðra á borð við útgáfustjórann sinn James Lavelle hjá Mo’Wax og Depeche Mode. Allra best hefur þó snilli hans komið í ljós í hans eigin verkum sem hann var far- inn að gefa út fyrir áratug eða svo, fyrst á fágætum snældum (sem nú ku verðmætari en gull) og síðan á fyrstu breiðskífu sinni, Entroducing … Sagt hefur verið í skilgreiningar- skyni um listamenn á borð við Dj Shadow að þeir skapi danstónlist sem höfðar sérstaklega til þeirra sem, að eigin sögn, kæra sig ekki um að dansa (aðallega vegna þess að þeir hvorki kunna það né hafa limaburð- inn til þess). Ég get persónulega vottað að The Private Press gerir það svo sannarlega en ég er ekki heldur í vafa um að hún innihaldi kafla sem eru með því dansvænna sem fyrirfinnst í dag. En þannig er þessi plata einfaldlega í hnotskurn, svo margbrotin að hrein unun er á að hlýða, tala nú ekki um hátt og yfir- gnæfandi. Ein af plötum árs- ins. Tónlist Í svölum skugga Dj Shadow The Private Press Island Önnur eiginleg sólóskífa einhvers al- frjóasta plötusnúðar sem um getur. Skarphéðinn Guðmundsson Lykillög: „Blood on the Motorway“, „Walkie Talkie“, „Mongrel … / … Meets His Maker“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.