Morgunblaðið - 13.07.2002, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 13.07.2002, Qupperneq 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 19 LEOPOLDO Galtieri, fyrrverandi einræðisherra Argentínu, var hand- tekinn í fyrradag vegna ákæru sem tengist mannránum, pyntingum og aftökum á árunum 1976-1983 þegar herinn var við völd í landinu. Galtieri, sem er 72 ára, var handtekinn á heimili sínu í grennd við Buenos Aires að fyrirmælum dómarans Claudius Bonadio sem rannsakar mannrétt- indabrot á valdatíma herforingjastjórnar- innar. Bonadio fyrirskipaði einnig handtöku 42 annarra fyrrverandi herforingja og emb- ættismanna, þeirra á meðal Carlos Guiller- mos Suarez Mason hershöfðingja og Cristinos Nicolaides, fyrrverandi yf- irhershöfðingja. Báðir stjórnuðu þeir hersveitum sem sakaðar eru um grimmdarverk á valdatíma hersins. Samkvæmt opinberum gögnum voru allt að 9.000 vinstrisinnaðir andófsmenn drepnir en allt að 30.000 að mati mannréttindahreyf- inga. Þetta er í fyrsta sinn sem Galtieri er handtekinn fyrir aðild að alvar- legum mannréttindabrotum. Hann var hins vegar sakfelldur árið 1986 fyrir vanhæfni vegna framgöngu sinnar í Falklandseyjastríðinu árið 1982, en var leystur úr haldi þremur árum síðar þegar Car- los Menem, þáverandi forseti, náðaði hann. Nokkrir fyrrverandi yfirmenn í hernum, sem höfðu verið dæmdir í lífstíðarfang- elsi fyrir grimmdar- verk hersins, voru einnig náðaðir. Á árunum 1986-87 voru sett lög sem hlífa fyrrverandi yfirmönn- um hersins við ákæru – en með einni mik- ilvægri undantekn- ingu. Hægt er að lög- sækja þá fyrir ólöglega ættleiðingu barna andófsmanna sem „hurfu“ á valdatíma herfor- ingjastjórnarinnar. Margir af fyrr- verandi yfirmönnum hersins eru í stofufangelsi vegna slíkra mála. Bonadio telur að lögin, sem vernda herforingjana, samræmist ekki stjórnarskránni. Hann er einn- ig að rannsaka mál sona tveggja vinstrisinnaðra andófsmanna, leik- arans Marcos Zucker og rithöfund- arins Davids Vinas. Drengjunum var rænt í Brasilíu. Galtieri varð leiðtogi herforingja- stjórnarinnar í nóvember 1981, fimm árum eftir að herinn steypti Isabel Peron af stóli. Galtieri fyr- irskipaði innrás hersins í Falklands- eyjar árið 1982 og hún leiddi til stríðs við Breta sem kostaði yfir 700 argentínska hermenn lífið og 255 breska. Lögsóknir vegna mannréttindabrota hersins í Argentínu Leopoldo Galtieri Fyrrverandi einræð- isherra handtekinn Buenos Aires. AP, AFP. STÆRSTU verkalýðssamtök Venesúela hafa hótað allsherjar- verkfalli til að koma forseta lands- ins, Hugo Chavez, frá völdum. Áætlað var að um 600.000 manns hefðu gengið um götur höfuðborg- arinnar, Caracas, í fyrradag til að krefjast þess að forsetinn segði af sér. Carlos Ortega, formaður Verkalýðssambands Venesúela, sagði að þessi mikla þátttaka í kröfugöngunum sýndi að Vene- súelabúar vildu að Chavez léti af embætti. Ortega sagði við þús- undir mótmælenda fyrir utan her- stöð í Caracas að verkalýðssam- tökin hefðu í hyggju að boða til verkfalls, en sagði ekkert um hve- nær það hæfist. Átján manns biðu bana í kröfu- göngu í tengslum við allsherjar- verkfall sem efnt var til í apríl. Margir telja að vopnaðir stuðn- ingsmenn Chavez hafi orðið fólk- inu að bana. Hóta verkfalli til að steypa Chavez Caracas. AP. LÖGFRÆÐINGAR á vegum belg- íska bruggfyrirtækisins Interbrew heimsóttu í gær skrifstofur fjög- urra breskra dagblaða til að fá úr því skorið hver hefði lekið upplýs- ingum um yfirtökuáform brugg- risans í nóvember síðastliðnum. Kemur þetta m.a. fram á fréttavef BBC. Dagblöðin fjögur, The Times, Independent, Guardian og The Fin- ancial Times, neituðu að afhenda upplýsingarnar, en áfrýjunardóm- stóll í Bretlandi hefur þegar úr- skurðað sem svo að þeim beri að upplýsa hver heimildarmaðurinn var. Ritstjórar blaðanna fjögurra báru fyrir sig prentfrelsi og sögðu að afhentu þau upplýsingarnar gæti það dregið kjark úr öðrum heimildarmönnum. Í nóvember árið 2001 birtu blöð- in, ásamt Reuters-fréttastofunni, frétt þess efnis að Interbrew hefði áform uppi um að taka yfir suður- afrísku bruggverksmiðjuna SAB. Þegar fréttin birtist féllu hlutabréf Interbrew í verði en hlutabréf SAB hækkuðu. Fullyrða talsmenn Int- erbrew að átt hafi verið við skjölin sem fjölmiðlarnir fengu í hendur og því hafi fréttin ekki verið rétt í nokkrum meginatriðum. Vilja þeir vita hver lak upplýsingunum í fjöl- miðla svo hægt sé að ganga úr skugga um hvort heimildarmann- inum hafi gengið það til að hafa áhrif á markaðinn til að græða á því sjálfur. Þá er hugsanlegt að til- gangur uppljóstrarans hafi verið að reyna að koma í veg fyrir yfirtök- una. Æðsti dómstóll Bretlands, lá- varðadeildin, hefur neitað að taka málið upp og sagði í úrskurði hans að þeir almannahagsmunir sem fel- ast í nafnleysi heimildarmanna vægju minna en þeir hagsmunir Interbrews að fá úrlausn sinna mála. Er málinu því lokið fyrir breskum dómstólum, en blöðin hafa hins vegar ákveðið að höfða mál fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu til að fá úr rétti sínum skorið. Talsmenn fjölmiðlasamtaka í Bretlandi segja málið grafalvarlegt og geti það haft víðtækar afleið- ingar fyrir fjölmiðla í landinu. Löng hefð sé fyrir því að blaðamenn þurfi ekki að gefa upp nöfn heimildar- manna sinna og verði breyting á því geti það orðið til þess að hugs- anlegir uppljóstrarar í óheið- arlegum fyrirtækjum hugsi sig tvisvar um áður en þeir veiti fjöl- miðlum upplýsingar. Sé það sér- staklega varhugavert nú þegar hvert bókhaldshneykslið rekur annað í Bandaríkjunum. Ritstjóri The Times, Robert Thomson, sagði að heimildarmenn þyrftu á vernd að halda þótt ástæð- ur þeirra fyrir uppljóstrunum væru ekki ljósar. „Uppljóstrarar hafa alltaf gegnt mikilvægu hlutverki,“ sagði hann. „Hverjar þær aðgerðir, sem gera heiðvirðum borgurum erfiðara fyrir að koma upp um brot stórfyrirtækja, geta ekki þjónað al- mannahagsmunum.“ Prentfrelsi í Bretlandi Standa vörð um heimildar- menn sína Þumalína engu lík, örugg og traust Skólavörðustíg 41, s. 551 2136

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.