Morgunblaðið - 13.07.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Tvöfaldur hraði – lægra verð
H Á H R A Ð A S Í T E N G I N G V I Ð N E T I Ð
Lágmarkshraði 512 Kb/s.
Þú þolir enga bið: Hringdu strax í síma 800 1111.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IS
S
18
24
1
06
/2
00
2
„ÉG OG kunningi minn keyptum
okkur hjól saman fyrir fjórum ár-
um og ræddum um að það væri
gaman að fara hringinn og þetta
blundaði alltaf í mér og ég ákvað
síðan að drífa bara í þessu,“ segir
Bjarni Guðmundsson, hjólreiða-
kappi og túpuleikari í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands, en hann kom til
Reykjavíkur í gær eftir að hafa
hjólað hringinn í kringum landið.
Og hjólað er rétta orðið því Bjarni
segist ekki leiða hjólið, hvorki móti
vindi né upp brekkur. Bjarni lagði
upp frá Reykjavík 25. júní, fór um
Hvalfjörðinn og þaðan áfram norð-
ur- og austurfyrir og kom aftur í
bæinn eftir átján daga ferðalag.
Var farinn að sjá
sjúkrabílinn á rósrauðu skýi
Bjarni segir erfiðasta hlutann
hafa verið að hjóla frá Borgarnesi
og inn Norðurárdalinn, hann hafi
fengið mjög sterkan norðanvind
beint í fangið. „Ég hamaðist allan
daginn og komst upp í Forna-
hvamm um kvöldið og fann þar
blett til að tjalda á. Gersamlega ör-
magna. Ég var orðinn svo slæmur í
hnjánum að ég var farinn að hugsa
um að láta bara sækja mig í
sjúkrabíl. En þegar ég vaknaði
morguninn eftir var þetta horfið
og ég fann lítið fyrir þessu síðan.
Það var í eina skiptið í ferðinni
sem ég hugsaði um að kannski
kæmist ég þetta aldrei.“
Bjarni segist hafa verið þokka-
lega heppinn með veður: „Ég lenti
ekki í neinni rigningu að ráði.
Raunar lenti ég í rigningu á leið-
inni út Hrútafjörðinn en þegar ég
kom á Blönduós sá ég í sjónvarp-
inu að þetta var nákvæmlega eini
staðurinn á landinu þar sem hafði
rignt.
Að öðru leyti,“ heldur Bjarni
áfram, „fannst mér erfiðasti hluti
leiðarinnar vera yfir Vaðlaheiðina,
hún er mjög brött og mjög löng,
mér mældist hún vera sjö kíló-
metrar upp í mót. Í ofanálag var
mjög heitt þennan dag og malbikið
bráðnaði og festist í dekkjunum og
síðan límdust litlir steinar við
dekkin þannig að þau voru farin
að skrapa gaffalinn að framan.
Þetta var lengi hangandi á dekkj-
unum en tíndist síðan af svona
smám saman.“
Allt önnur upplifun
Bjarni segist oft hafa farið
hringinn keyrandi en það sé allt
önnur upplifun að hjóla hann. Mað-
ur sé meira svona inni í landslag-
inu, í náttúrinni sjálfri.
„Ég hafði til að mynda mjög
gaman af fuglunum, þeir voru oft
með hreiður og unga rétt við veg-
inn og voru alltaf að lokka mig frá
þeim. Ég átti mér orðið uppáhalds-
fugl sem er jaðrakan. Hann er
stórskemmtilegur. Þetta er vað-
fugl, ekki ólíkur spóa í sjón nema
miklu fallegri og alveg ryðrauður
framan á bringunni. Svona verður
maður ekki var við í bíl.“
Aftur? Nei, þetta geri ég aldrei
aftur, það er á hreinu. Ég er bæði
feginn og ánægður að hafa lokið
við þetta, Þetta er mjög erfitt og
jafnvel þjáningarfullt stundum.
Maður bara hjólar og hjólar, hvílir
sig og heldur síðan áfram að
hjóla.“
Á átján dögum
umhverfis landið
Morgunblaðið/ArnaldurBjarni Guðmundsson hjólar um landið.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær Orkuveitu Reykjavík-
ur til að greiða fyrrum starfsmanni
sínum rúmar 15 milljónir króna í
skaðabætur vegna slyss sem mað-
urinn varð fyrir árið 1998 þegar
hann klifraði upp í rafmagnsstaur
og fékk gífurlegt rafmagnslost, féll
til jarðar, brotnaði víða í líkaman-
um og brenndist mjög alvarlega.
Maðurinn missti m.a. báðar hend-
urnar og er 100% öryrki og hlaut
90% varanlegan miska.
Slysið varð þegar maðurinn var
ásamt fleirum að vinna við að festa
háspennuvíra við einangrunarkúl-
ur á staurum svokallaðrar Graf-
arholtslínu, sem liggur að hluta til
meðfram Vesturlandsvegi. Hafði
maðurinn ásamt öðrum verið að
vinna við að lagfæra bilun í Graf-
arholtslínu. Maðurinn fór fyrir
mistök upp í staur í Úlfarsfellslínu
sem á var spenna en línan liggur
við hlið Grafarholtslínu að hluta.
Þar fékk hann í sig 11.000 volta
spennu og féll við það til jarðar.
Fram kemur í dómi héraðsdóms
að afleiðingar slyssins urðu miklar
fyrir manninn. Hann þarf hjálp við
fjölmargar athafnir daglegs lífs,
svo sem að klæða sig og hátta,
komast á baðherbergi og athafna
sig þar og við að borða. Hann er oft
slæmur í bakinu og brjóstkassan-
um en handaleysið háir honum
mest. Í kjölfar lyfjameðferðar
vegna slyssins varð maðurinn fyrir
lifrarskemmdum sem kom fram
sem viðvarandi kláði um allan lík-
amann og þarf hann að gangast
undir lifrarskipti. Langvarandi
veikindi hafa sett mark á líkamlega
líðan hans og er úthald verulega
skert. Einnig hefur verið mikið
andlegt álag á manninn og nánustu
aðstandendur og slitu hann og
barnsmóðir hans samvistir í kjölfar
slyssins.
Hinn slasaði ekki talinn hafa
borið neina ábyrgð á slysinu
Maðurinn hafði áður fengið
greiddar rúmar 15 milljónir í bæt-
ur frá tryggingafélagi Orkuveit-
unnar sem voru óumdeildar, en í
málinu sem rekið var fyrir héraðs-
dómi var fyrst og fremst deilt um
hvort maðurinn ætti að bera hluta
tjóns síns sjálfur vegna eigin sak-
ar.
Héraðsdómur komst að þeirri
niðurstöðu að ljóst væri að mað-
urinn hefði farið upp í rafmagns-
staurinn án þess að hafa hugmynd
um að hann væri í spennuhafalínu.
Yrði að telja í ljós leitt að mað-
urinn hefði ekki farið upp í staur-
inn ef hann hefði verið merktur
sérstaklega eða öryggisvörður
fylgt honum eftir.
Því væri orsök slyssins sú að
ákvæðum reglugerðar og orðsend-
ingar um merkingar, skipunar ör-
yggisvarðar og fullnægjandi upp-
lýsingar og fyrirmæli hafi ekki
verið framfylgt.
Því bæri maðurinn sjálfur enga
sök á slysinu heldur bæri Orku-
veitan fulla ábyrgð.
Greta Baldursdóttir héraðsdóm-
ari kvað upp dóminn ásamt með-
dómsmönnunum Jóni Halldórssyni
rafmagnsverkfræðingi og Trausta
Gylfasyni rafmagnstæknifræðingi.
Lögmaður stefnanda var Eyvindur
Sólnes hdl. og lögmaður stefnda
Jakob R. Möller hrl.
Dæmdar rúmar 15
milljónir í bætur
Brotnaði víða og
brenndist mikið
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef-
ur dæmt karlmann á fertugsaldri í
sex mánaða skilorðsbundið fangelsi
og til greiðslu 16,9 milljóna króna
sektar fyrir skattsvik og bókhalds-
brot.
Ákærði, sem var með sjálfstæða
atvinnustarfsemi, var sakfelldur fyr-
ir brot á lögum um virðisaukaskatt
sem stóðu yfir frá 1995 til 1998, fyrir
brot á lögum um tekjuskatt og eign-
arskatt og lögum um tekjustofna
sveitarfélaga. Þá var ákærði sak-
felldur fyrir bókhaldsbrot. Með brot-
um sínum komst ákærði hjá greiðslu
um 8,4 milljóna króna vegna virðis-
aukaskatts og opinberra gjalda.
Dómurinn taldi brot ákærða meiri-
háttar og framin vísvitandi með
skipulögðum hætti. Við ákvörðun
refsingar var m.a. tekið tillit til
hreinskilnislegrar játningar ákærða.
Ingveldur Einarsdóttir héraðs-
dómari kvað upp dóminn. Helgi
Magnús Gunnarsson fulltrúi efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra
sótti málið en Hilmar Ingimundar-
son hrl. var verjandi ákærða.
Sex mánaða
fangelsi og 16,9
milljóna sekt
ALLT tiltækt lið Brunavarna Suð-
urnesja var kallað út í gærkvöldi
þegar tilkynnt var um eld í húsi við
Hafnargötu 25. Í húsinu er starf-
rækt fyrirtækið Gallery förðun og
barnafata- og raftækjaverslun.
Mikinn reyk lagði frá Gallery förð-
un þegar lögreglu- og slökkvilið
bar að en greiðlega gekk að
slökkva eldinn og var slökkvistörf-
um lokið kl. 21, eða um hálfri ann-
arri klukkustund eftir útkall. Mikl-
ar skemmdir urðu í Gallery förðun
og nokkrar reykskemmdir urðu í
hinum fyrirtækjunum. Engan sak-
aði í eldsvoðanum. Eldsupptök eru
ókunn og er málið í rannsókn hjá
lögreglunni í Keflavík.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Miklar skemmdir í
eldsvoða í Keflavík