Morgunblaðið - 13.07.2002, Page 7

Morgunblaðið - 13.07.2002, Page 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 7 BRJÓSTMYND af Þorsteini Ein- arssyni, fyrrverandi íþróttafulltrúa ríkisins og heiðursfélaga Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, var afhjúpuð við hátíðlega athöfn í Grasagarðinum í Laugardal í gær. Vel á annað hundrað manns var viðstatt, þar á meðal fjöldi niðja Þorsteins, en hann átti tíu börn. Á eftir athöfninni var haldið kaffi- samsæti í íþróttamiðstöð ÍSÍ. Stefán Konráðsson, fram- kvæmdastjóri ÍSÍ, segir að Gísli Halldórsson, heiðursforseti ÍSÍ, hafi haft forgöngu um brjóstmynd- ina en síðan hafi ÍSÍ og fleiri aðilar komið að málinu og meðal annars staðið fyrir athöfninni í gær. Að sögn Stefáns sá Ragnhildur Stefánsdóttir listamaður um gerð brjóstmyndarinnar, bronsun ann- aðist Pétur Bjarnason og Stein- smiðja S. Helgasonar útbjó stöp- ulinn og sá um uppsetningu hans. Myndin stendur við tjörnina í Grasagarðinum og Þorsteinn horf- ir til austurs í birtuna. Aðspurður hvers vegna brjóstmyndinni var fenginn þessi staður, segir Stefán að Þorsteinn hafi komið í garðinn daglega og gefið fuglunum. „Fyrir utan að vera gríðarlega mik- ilhæfur forystumaður og íþrótta- fulltrúi ríkisins í fjörutíu ár þá var hann mikill fuglavinur og fugla- skoðunarmaður og eftir hann ligg- ur bók á því sviði,“ bendir hann á. Morgunblaðið/Jim SmartHluti niðja Þorsteins samankomnir við brjóstmyndina.Brjóstmyndinni var fenginn staður við tjörnina í Grasagarð- inum í Laugardal. Brjóstmynd af Þorsteini Einarssyni afhjúpuð 337 FLEIRI einstaklingar fluttu til landsins en frá því fyrstu sex mánuði þessa árs. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu frá Hagstofu Íslands um búferlaflutninga á tímabilinu janúar til júní 2002. Hagstofan skráði 26.355 breytingar á lögheimili einstaklinga í þjóðskrá á tímabilinu. Þar af fluttu 14.753 innan sama sveitarfélags, 8.253 milli sveitarfélaga, 1.843 til landsins og 1.506 frá því. Brottfluttir Íslendingar voru 179 fleiri en aðfluttir, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar 516 fleiri en brottflutt- ir. Aðfluttir umfram brottflutta voru talsvert fleiri á árinu 2001, eða 881. Til höfuðborgarsvæðisins fluttu 529 umfram brottflutta. Af þeim fluttu 354 af landsbyggðinni og 173 frá útlöndum. Í öðrum landshlutum, nema Vesturlandi, voru brottfluttir fleiri en aðfluttir. Flestir fluttust frá Norðurlandi vestra og Vestfjörðum, eða 64 frá hvorum landshluta fyrir sig. Af einstökum sveitarfélögum fluttust flestir til Kópavogs, 273, og Hafnarfjarðar, 184. Búferlaflutningar fyrstu sex mánuði ársins Fleiri fluttu til landsins en frá því ERIK Clapton, sem nú unir sér í friði og ró fjarri heimsins glaumi við veiðar í Laxá á Ásum, gerði það gott í gærmorgun en samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum veiddi hann 7 laxa. Lax- veiðar í húnvetnskum ám hafa verið heldur daprar það sem af er sumri en glöggir menn sáu ós Blöndu nánast krauma af fiski í fyrrakvöld og veit það á góðar laxagöngur enda færðist líf í Laxá á Ásum í gærmorgun. Clapton landaði sjö löxum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.