Morgunblaðið - 13.07.2002, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 9
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Útsala
Frábær alhliða sumarfatnaður
Stærðir 36-52
Útsala - Útsala
mikið af stórum stærðum
frábær verðlækkun
Sumarútsala
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið laugardag kl. 10-14
frá stærð 34
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
Útsalan
í fullum
gangi
Opið til kl. 16 í dag
Satín brúðarskór
og töskur
Laugavegi 58 — Smáralind,
sími 551 3311 — 528 8800
Gott verð
Líttu í gluggana
Útilegustóll
með örmum, glasahaldara
og skemil
2.590 kr.ALLS taka 35 erlendir nemendur;18 konur og 17 karlar, þátt í fjögurravikna alþjóðlegu sumarnámskeiði í
íslensku við Háskóla Íslands. Stofn-
un Sigurðar Nordals gengst fyrir
námskeiðinu í samvinnu við heim-
spekideild HÍ. Þetta er í sextánda
sinn sem slíkt námskeið er haldið við
Háskólann á jafn mörgum árum en í
fjórtánda sinn sem Stofnun Sigurðar
Nordals sér um námskeiðið. Þetta er
jafnframt þriðja námskeiðið fyrir er-
lenda námsmenn sem stofnunin
skipuleggur á þessu sumri.
Þátttakendur á námskeiðinu eru
frá tíu löndum; flestir frá Bandaríkj-
unum, Bretlandi og Þýskalandi.
Þeim er skipt í tvo hópa í íslensku-
náminu eftir kunnáttu en margir
þeirra hafa þegar lagt stund á ís-
lensku heima fyrir, m.a. hjá sendi-
kennurum í íslensku. Auk þess að
nema íslensku gefst stúdentunum
tækifæri til að hlýða á fyrirlestra um
náttúru Íslands, sögu Íslendinga og
menningu, heimsækja Alþingi og
menningarstofnanir og skoða sig um
á sögustöðum. Námskeiðið hófst 1.
júlí og stendur yfir út mánuðinn.
Í frétt frá Stofnun Sigurðar Nor-
dals segir að mikill áhugi sé á því að
læra íslensku víða um lönd ekki síst í
Norður-Evrópu og Norður-Amer-
íku. „Með ári hverju berast fleiri um-
sóknir um hvers konar íslenskunám
fyrir útlendinga hér á landi. Miklu
fleiri stúdentar sækja um alþjóðlegt
sumarnámskeið í íslensku en unnt er
að sinna. Nútímaíslenska er einnig
kennd á mörgum stöðum erlendis.
Minna má á að nú starfa með styrk
íslenskra stjórnvalda 13 íslensku-
lektorar í 8 Evrópulöndum og einn í
Kanada. Stofnun Sigurðar Nordals
annast þjónustu við þá,“ segir í frétt-
inni.
Tungumál og menning nátengd
Morgunblaðið ræddi við þrjá nem-
endur á alþjóðlega sumarnámskeið-
inu þau Katrina Burge, frá Ástralíu,
Isaac Juan Tomás, frá Spáni og Kyle
Korynta, frá Bandaríkjunum. Katr-
ina var að ljúka doktorsgráðu í ís-
lensku fornsögunum, Isaac er að
nema indóevrópska samanburðar-
málfræði og Kyle stundar nám í nor-
rænum tungumálum.
Öll höfðu þau lagt stund á íslensku
heima fyrir áður en þau komu á nám-
skeiðið. Þau ákváðu hins vegar að
koma hingað til lands til að læra mál-
ið betur. Kyle hefur jafnframt lært
norsku í mörg ár en hann á ættir að
rekja til Noregs. Katrina og Kyle
eru á styrkjum frá sínum háskólum
en Isaac kemur á eigin vegum. „Það
er svo mikil menning í tungumálinu.
Ef þú þekkir ekki menninguna þá
þekkir þú ekki tungumálið, “ útskýr-
ir Kyle, þegar hann er spurður að því
hvers vegna hann hafi ákveðið að
koma hingað til lands. Hin tvö taka
undir þessi orð hans. „Hérna finnur
maður líka íslenskar bækur í bóka-
búðum sem ég gat ekki einu sinni
pantað frá Ástralíu,“ bætir Katrina
við. Hún segir ennfremur að til að
skilja íslensku fornsögurnar betur sé
nauðsynlegt að hafa komið til Ís-
lands og hafa upplifað það umhverfi
sem sögurnar gerast í. „Fornsögurn-
ar eru svo tengdar landinu.“ Isaac
samsinnir þessu og skýrir frá því að
þau hafi m.a. ferðast um Njáluslóðir.
Í samtali við þau Katrina, Kyle og
Isaac, kemur glögglega í ljós að þau
hafa mikinn áhuga á Íslandi, ís-
lenskri menningu og sögu. Þau hafa
heldur ekki orðið fyrir vonbrigðum
með dvölina. „Góða veðrið hefur
heldur ekki spillt fyrir,“ segir Katr-
ina. Öll segjast þau munu halda heim
á leið síðar í sumar; Katrina og Isaac
til að kenna, m.a. norræna sögu í há-
skólum í heimalandi sínu en Kyle til
að halda áfram að stunda nám í nor-
rænum tungumálum.
Alls 35 þátttakendur á alþjóðlegu sumarnámskeiði í íslensku
Mikill áhugi
á íslensku
víða um lönd
Morgunblaðið/Arnaldur
Nemendur í alþjóðlegu sumarnámskeiði í íslensku. Þau Katrina Burge,
Kyle Korynta og Isaac Juan Tomás.