Morgunblaðið - 13.07.2002, Síða 15
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 15
Reykjavík sími 580 0500 • Selfossi sími 480 0800
www.blomaval.is
Sumarblóm, tré og runnar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
BL
O
18
24
6
07
/2
00
2
ÚTSALA
Garðplöntu-
20-50%
afsláttur
Rósabúnt
599 kr.
Afskornar rósir
50% afsláttur
UNGMENNAFÉLAG Íslands, í
samvinnu við heilbrigðisráðuneytið,
hefur hleypt af stokkunum verkefn-
inu „Göngum um Ísland.“ Markmið
þess er að hvetja fólk til göngu-
ferða og að efla þannig heilsu sína
og njóta náttúru landsins. Í þessu
skyni hafa verið valdar 144 að-
gengilegar og fremur stuttar
gönguleiðir vítt og breitt um landið
og gefið út kort og stutt leiðarlýs-
ing yfir þær.
„Göngum um Ísland“ hófst form-
lega við aðsetur Ungmenna- og
íþróttasambands Austurlands á Eg-
ilsstöðum, en þar er jafnframt
svæðisskrifstofa UMFÍ og hefur
hún haft yfirumsjón með fram-
kvæmd verkefnisins. Þetta er í
fyrsta sinn sem landsverkefni hjá
UMFÍ af þessari gerð er stýrt utan
Reykjavíkur.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra ávarpaði göngumenn og
hvatti til hreyfingar og hollra lífs-
hátta áður en hann klippti á borð-
ann sem opnaði mönnum fyrstu
gönguleið verkefnisins að þessu
sinni. Áætlað er að gefa árlega út
nýja leiðarbók með hentugum
gönguleiðum fyrir alla fjölskylduna.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hvatti til hreyfingar og hollra lífs-
hátta áður en hann klippti á borðann sem opnaði göngumönnum fyrstu
leið verkefnisins „Göngum um Ísland”.
Göngum um Ísland
Egilsstaðir
Samvinnuverkefni svæðisskrifstofu UMFÍ á Egilsstöðum
og heilbrigðisráðuneytis hleypt af stokkunum
SÓLIN lét loksins sjá sig á Húsavík
á dögunum og létti mönnum lund,
það gerðu einnig þeir félagar Bald-
ur Ragnarsson og Þórir Georg
Jónsson. Þeir voru á horninu við
Bókaverslun Þórarins Stef-
ánssonar þar sem þeir sungu og
spiluðu á gítar fyrir þá sem áttu
leið hjá.
Þeir buðu einnig upp á skó-
burstun en ekki fara sögur af þeim
viðskiptum hér, gítartaska var opin
við fætur þeirra og gátu þeir sem
vildu létt á klinkinu hjá sér. Að-
spurðir sögðust þeir bara vera að
lífga aðeins upp á bæjarlífið, þeir
væru annars í vinnu en miðað við
það sem komið var í gítartöskuna
væri álitlegra að snúa sér að götu-
spilinu. Mikið var um ferðamenn í
bænum m.a. af skemmtiferðaskip-
inu Hanseatic sem lá við bryggju
frá hádegi og fram á kvöld en með
því voru um 200 farþegar.
Þeir félagar Baldur og Þórir
Georg eru annars áberandi í yngri
hljómsveitum bæjarins þar sem
spilað er kraftmikið rokk og ról
sem er í nokkurri andstöðu við það
sem þeir fluttu þarna á horninu við
bókabúðina.
Skemmtu
vegfarend-
um í mið-
bænum
Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Þeir Baldur Ragnarsson og Þór-
ir Georg Jónsson lífguðu upp á
bæjarlífið á Húsavík á dögunum
með gítarspili og söng.