Morgunblaðið - 13.07.2002, Side 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 17
KASPAR Villiger, forseti Sviss, hef-
ur hætt við að fara til Rússlands til
að vera viðstaddur útför barna sem
fórust í árekstri tveggja flugvéla yfir
Suður-Þýskalandi 1. júlí. Svisslend-
ingar segja ástæðuna þá að rússnesk
yfirvöld hefðu sagt að þau gætu ekki
ábyrgst öryggi forsetans og föru-
neytis hans vegna reiði ættingja
barnanna, en þeir kenna svissnesku
flugumferðarstjórninni um slysið.
Háttsettur embættismaður í hér-
aðinu, sem börnin komu frá, sagði
hins vegar að forsetinn væri ekki vel-
kominn til útfararinnar.
Villiger hafði ætlað að fara til
Moskvu í gær og vera síðan viðstadd-
ur útför barnanna í dag í borginni
Úfa í Úralfjöllum. Ferðinni var aflýst
seint í fyrrakvöld eftir að rússnesk
yfirvöld tilkynntu að þau gætu ekki
ábyrgst öryggi forsetans, að sögn
Felix Baumanns, stjórnmálafulltrúa
svissneska sendiráðsins í Moskvu.
Baumann sagði að rússnesku emb-
ættismennirnir hefðu skírskotað til
mikillar geðshræringar ættingja
fórnarlamba slyssins, meðal annars
45 barna frá Úfa. Fjórir fylgdar-
menn þeirra, átta aðrir farþegar og
tólf manna áhöfn rússnesku flugvél-
arinnar fórust einnig, auk tveggja
flugmanna hinnar vélarinnar.
Talsmaður rússneska utanríkis-
ráðuneytisins, Alexander Jako-
venko, neitaði því að ferðinni hefði
verið aflýst af öryggisástæðum.
Hann sagði að yfirvöld í Bashkor-
tostan, héraði barnanna, byggjust
við „miklu tilfinningagosi“ við at-
höfnina og að það gæti haft „neikvæð
áhrif“ á heimsókn forsetans.
Khaljaf Ishmúratov, aðstoðarfor-
sætisráðherra Bashkortostan, sagði
að leiðtogar héraðsins hefðu beðið
rússnesku stjórnina að ráðleggja
Villiger að vera ekki viðstaddur at-
höfnina. „Forsetinn og aðrir emb-
ættismenn í Sviss eru velkomnir hve-
nær sem er, en ekki daginn sem
útförin fer fram,“ sagði hann og neit-
aði því einnig að ekki hefði verið
hægt að ábyrgjast öryggi Villigers.
Stjórn Sviss
viðurkennir mistök
Margir ættingjar barnanna kenna
svissnesku flugumferðarstjórninni
um flugslysið. Stjórn Sviss var sökuð
um að hafa sýnt fjölskyldum fórnar-
lambanna of litla samúð í fyrstu og
heimsókn forsetans átti að bæta úr
því.
„Fyrsta daginn eftir slysið sökuðu
svissnesk yfirvöld rússnesku flug-
mennina um vanhæfni og höfðu þá til
blóra,“ sagði Ishmúratov. Hann
bætti við að svissneska stjórnin hefði
ekki vottað fjölskyldum fórnarlamb-
anna samúð fyrstu dagana eftir slys-
ið.
Moritz Leuenberger, samgöngu-
ráðherra Sviss, viðurkenndi í gær að
svissneska flugumferðarstjórnin
ætti að minnsta kosti að hluta sök á
flugslysinu og hefði ekki brugðist
rétt við því í fyrstu. „Sú óbærilega
tilhugsun að við hefðum að hluta átt
sök á dauða 71 manns leiddi til ósjálf-
ráðra viðbragða, til ruglingslegra
upplýsinga, til mistaka,“ sagði ráð-
herrann. „Við fundum ekki réttu orð-
in.“ Svissneska stjórnin hyggst bjóða
fjölskyldum fórnarlambanna bætur.
Forseti Sviss fer ekki til Rússlands
Reuters
Háskólanemi í Überlingen, sem tók þátt í minningarathöfn í vikunni,
festir rós við nafn eins fórnarlambsins í flugslysinu yfir Þýskalandi.
Óttast reiði
ættingjanna
Moskvu. AP.
Rússar neita því að þeir hefðu ekki
getað ábyrgst öryggi forsetans