Morgunblaðið - 13.07.2002, Síða 18
ERLENT
18 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EVO Morales, leiðtogi kókabænda
sem eru andvígir stefnu Bandaríkja-
manna í Bólivíu, náði óvænt umtals-
verðum árangri í framboði sínu til for-
setaembættisins í landinu, þótt ekki
líti út fyrir að hann nái kjöri. Aldrei
fyrr hefur jafn mjótt verið á munun-
um þegar Bólivíumenn hafa kosið sér
forseta. Morales hefur varið kókar-
unnarækt og með því aukið áhyggjur
manna í Washington, en hann nýtur
mikils stuðnings meðal indíána, sem
eru meirihluti landsmanna.
Eftir að talning í kosningunum, er
fram fóru 30. júní sl., hafði tafist
vegna hríðarbylja í afskekktum hér-
uðum tilkynnti yfirkjörstjórnin loks-
ins á þriðjudaginn að Sanchez de Lo-
zada, sem er fyrrverandi forseti, hefði
opinberlega sigrað í kosningunum,
með 22,46% atkvæða. Morales fékk
hvorki meira né minna en 20,94%, og
varð í öðru sæti. Frambjóðandinn í
þriðja sæti, Manfred Reyes Villa,
fyrrverandi hershöfðingi, fékk aðeins
714 atkvæðum minna en Morales.
Ólíklegt að Morales
verði hlutskarpastur
Bólivíska þingið kemur saman
þriðja ágúst til þess að velja annan
tveggja efstu mannanna í embætti
forseta, þar sem hvorki de Lozada né
Morales fékk hreinan meirihluta at-
kvæða. Á miðvikudaginn leit út fyrir
að de Lozada, miðjumanni sem var
forseti 1993–97, væri að takast að
tryggja sér nægilegan stuðning á
þinginu, þar sem flokkur hans, Þjóð-
arbyltingarhreyfingin, hefur um 50
sæti af 157. De Lozada hafði einnig
tryggt sér stuðning annarra stjórn-
málaflokka sem eru andvígir Morales.
Þótt Morales viðurkenni að ólíklegt
sé að hann beri sigur úr býtum nýtur
hann þeirrar aðstöðu sem hann er í og
segir hana hjálpa sér við að halda
uppi vörnum fyrir ræktun kókarunna,
sem kókaín er unnið úr, og verjast til-
raunum Bandaríkjamanna til að út-
rýma kókaræktarsvæðum í Bólivíu.
„Já, við viljum rækta kókalauf af
menningarlegum og efnahagslegum
ástæðum,“ sagði Morales við frétta-
menn nú í vikunni, og viðurkenndi að
sumir bændur notuðu uppskeruna til
að búa til kókaín. „En ég get ekki
fórnað öllum félögum mínum fyrir
þessa fáu sem gera það,“ sagði Mor-
ales.
Í kosningabaráttunni gagnrýndi
Morales þá frjálsu markaðsstefnu
sem mörg S-Ameríkuríki hafa undan-
farið tekið upp. Hann hvatti í staðinn
til þjóðnýtingar sumra iðnfyrirtækja
og lagði til að Bólivía myndi hætta að
greiða af erlendum skuldum sínum.
Morales er 42 ára, hann er sonur
aymaraindíánahirðingja og fæddist í
fátæku þorpi í Andesfjöllum. Hann
fluttist síðan til héraðshöfuðborgar-
innar Oruro, þar sem hann vann fyrir
námskostnaði sínum með því að selja
rjómaís. Með því að koma kókabænd-
um til varnar fékk hann sendiherra
Bandaríkjanna í Bólivíu, Manuel
Rocha, upp á móti sér. Rocha ráðlagði
bólivískum kjósendum að greiða Mor-
ales ekki atkvæði.
„Ég vil minna bólivíska kjósendur
á, að ef þeir greiða atkvæði þeim sem
vilja aftur hefja útflutning á kókaíni
teflir það í tvísýnu allri aðstoð sem
Bólivía gæti fengið framvegis frá
Bandaríkjunum,“ sagði Rocha. Mor-
ales fullyrðir að bandaríski sendiherr-
ann hafi gefið framboði sínu byr undir
báða vængi með því að vekja athygli á
því.
Enginn hlaut meirihluta í forsetakosningum og Bólivíuþing ákveður því hver taki við embættinu
Leiðtogi kóka-
bænda varð
næstefstur
AP
Evo Morales ræðir við fjölmiðla í La Paz fyrr í vikunni.
La Paz. AP.
’ Við viljum ræktakókalauf af menn-
ingarlegum og efna-
hagslegum ástæð-
um ‘
SPÆNSK stjórnvöld kröfðust þess í
gær að marokkóskir hermenn, sem
sendir voru á eyjuna Perejil í Mið-
jarðarhafi á fimmtudag, verði kall-
aðir til baka. Eyjan, sem Marokkó-
menn kalla Leilu, er aðeins um 200
metra frá strönd meginlands Mar-
okkós og hafa ríkin tvö deilt um
eignarhald á henni frá árinu 1956.
Segja Spánverjar að eyjan hafi ver-
ið í þeirra eigu allt frá árinu 1580 og
telja þeir hana sambærilega við
Ceuta, landskika á meginlandi Mar-
okkós sem er undir stjórn Spán-
verja og því ekki óeðlilegt að hún sé
undir spænskri stjórn. Rúmlega
70.000 manns búa í borginni Ceuta
sem lýtur spænskri stjórn.
Stjórnvöld í Marokkó segjast hafa
flutt hermenn á eyjuna, sem þeir
telja hluta af sínu ríki, til að setja
upp eftirlitsstöð sem á að fylgjast
með ólöglegum ferðum fólks milli
landanna tveggja. Segja þau einnig
að um sé að ræða lið í baráttu mar-
okkóskra stjórnvalda gegn hryðju-
verkamönnum. Hermennirnir, sem
eru tólf talsins, hafast nú við í
tveimur tjöldum á eyjunni sem er 14
hektarar að stærð og hafa þeir reist
tvo marokkóska fána þar. Spænskur
strandgæslubátur sigldi upp að eyj-
unni í gær og skipaði hermönnunum
að fara en þeir neituðu því.
Deilan á viðkvæmu stigi
Stjórnvöld í Madríd tilkynntu
jafnframt í gær að þau myndu
senda fleiri hermenn til nokkurra
eyja sem liggja nærri Marokkó en
teljast til Spánar. Talsmaður Chris
Pattens, sem fer með utanríkismál í
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, sagði að Marokkó hefði
með hertökunni brotið gegn Spáni
og að málið væri nú á mjög við-
kvæmu stigi. Lagði hann áherslu að
deilan yrði leyst eftir diplómatískum
leiðum.
Andað hefur köldu milli ríkjanna
tveggja undanfarin misseri. Í októ-
ber síðastliðnum var sendiherra
Marokkó á Spáni kallaður heim og
hefur hann ekki verið sendur til
baka. Deilurnar eru margvíslegar
en helstu deilumál eru fjöldi ólög-
legra innflytjenda frá Marokkó til
Spánar, deilur um yfirráð í Vestur-
Saharaeyðimörkinni, olíuleit undan
ströndum Kanaríeyja og fiskveiði-
deilur ESB og Marokkó.
Ráðuneytisstjóri spænska utan-
ríkisráðuneytisins, Miguel Nadal,
sagði atvikið mjög alvarlegt og að
það ylli sér miklum áhyggjum. For-
sætisráðherra Spánar, Jose Maria
Aznar, hélt í gær fund með Nadal
og varnarmálaráðherranum, Fe-
derico Tillo, en nýskipaður utanrík-
isráðherra landsins, Ana De Palacio,
var á leið heim frá Brussel þegar
fundurinn var haldinn.
Marokkómenn hertaka umdeilt sker í Miðjarðarhafi
Spánn krefst brott-
flutnings liðsins
Madríd. AP, AFP.
! "#$
#%
& $#"
'"( #
")
*+
"
,-$
!"!#$#
%!&%'
(
)&*
!#$'
$"+
$,+)
%
%'
-&
.(&
/
0&#
ZORAN Lilic, fyrrverandi for-
seti Júgóslavíu, hélt til Haag
frá Belgrad á fimmtudag og
mun bera
vitni fyrir
stríðsglæpa-
dómstól
Sameinuðu
þjóðanna.
Lilic var for-
seti áður en
Slobodan
Milosevic
tók við emb-
ættinu 1997.
Lilic sagði í skriflegri yfirlýs-
ingu að dómari í Belgrad hefði
tjáð sér að hann gæti fengið
kvaðningu í Haag en hann hefði
ákveðið að verða aðeins við
þeirri ósk ef Júgóslavíustjórn
bæði hann um það. Er Milosev-
ic hóf baráttu sína gegn Kos-
ovo-Albönum lagðist Lilic gegn
þeirri stefnu þótt hann hefði áð-
ur verið talinn dyggur stuðn-
ingsmaður Milosevic. Lilic hef-
ur áður sagt að hann muni
hvorki reyna að styðja Milosev-
ic né valda honum tjóni með
vitnisburði sínum.
Lilic ber
vitni
Haag. AFP.
Zoran Lilic (t.h.)
ásamt Slo-
bodan Milosevic.
STEINGERÐ beinagrind af risa-
eðlu af tegundinni torvosuarus sem
fannst á sínum tíma í Bandaríkju-
unum og var greinilega vel tennt.
Verið er að setja steingervinginn
upp í sýningarsal í borginni Makuh-
ari, skammt norðan við Tókýó í
Japan. Um 20 steingervingar af
risaeðlum verða þar til sýnis á
stærstu risaeðlusýningunni 2002
sem verður opnuð 19. júlí og stend-
ur í tvo mánuði.
Reuters
Heillandi torvosaurus
BILL Clinton, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna og Nelson Mandela,
fyrrverandi forseti Suður-Afríku,
ávörpuðu 14. alþjóðlegu alnæmisráð-
stefnuna á lokadeginum í Barcelona í
gær og hvöttu til þess að leiðtogar
heimsins viðurkenndu að faraldurinn
væri ógnun við frið og stöðugleika.
„Þetta er stríð þar sem kalla verður
út allar þjóðir heims,“ sagði Mandela.
Hann sagði að tryggja yrði að allir
fengju lyf gegn HIV-veirunni „hvar í
heiminum sem þeir eru, hvort sem
þeir hafa efni á því eða ekki“.
Clinton sagði að aukin útbreiðsla
sjúkdómsins myndi valda því að
hryðjuverkum fjölgaði, meira yrði um
„málaliða, stríð og eyðileggingu auk
þess sem veikburða lýðræði gæti
hrunið“. Talið er að kosta muni um 10
milljarða dollara, um 860 milljarða
króna, að fjármagna hnattrænt átak
gegn veikinni og sagði Clinton að auð-
ugar þjóðir yrðu að auka framlög sín.
Ekki var heitið miklum framlögum
til baráttunnar en Þjóðverjar hyggj-
ast þó leggja fram 50 milljónir doll-
ara, um 4,2 milljarða króna aukalega
til baráttu gegn alnæmi, malaríu og
berklum. Bandaríkjastjórn hefur
einnig hækkað mjög fjárveitingar sín-
ar til átaks gegn alnæmi í heiminum.
Um 15.000 manns, læknar og aðrir
sérfræðingar, fulltrúar þrýstihópa og
fréttamenn voru á ráðstefnunni en
hún stóð í sex daga. Er heilbrigðisráð-
herra Bandaríkjanna, Tommy
Thompson, ávarpaði fundargesti í
vikunni efndu nokkrir tugir manna til
háværra mótmæla og fór svo að ráð-
herrann gat ekki lokið við ávarpið.
Fólkið sagði að Bandaríkjamenn
væru að bregðast þriðja heiminum
með því að útvega ekki ódýr lyf gegn
alnæmi.
Alnæmis-
faraldri líkt
við stríð
Barcelona. AP.
Nelson Mandela, fyrrveandi forseti
Suður-Afríku, ávarpar alnæm-
isráðstefnuna í Barcelona í gær.
Reuters