Morgunblaðið - 13.07.2002, Qupperneq 22
ÚR VESTURHEIMI
22 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
84. ÁRSÞING Þjóðræknisfélags Ís-
lendinga í Vesturheimi verður í Ed-
monton 1. til 4. maí 2003 og verður
Jerry Kristjanson forseti þingsins.
Íslendingafélagið Norðurljós undir
forystu Bobs Rennies sér um skipu-
lagninguna og fram-
kvæmdina, en Walter
Sopher er ötull liðsmað-
ur félagsins og er með
fjármögnunina á sinni
könnu. „Það er allt á
fullu hjá okkur í undir-
búningnum og við
stefnum að því að þingið
verði eins glæsilegt og
það var í Minneapolis í
vor,“ segir hann.
Fjáröflun fyrir
allt samfélagið
Á ársþinginu fyrir
tveimur árum var svo-
nefnt menningarkvöld
og segir Walter að
vegna fjölda áskorana verði það end-
urvakið með þátttöku listamanna.
„Við viljum ná til sem flestra, jafnt í
Kanada, Bandaríkjunum og á Ís-
landi, og liður í kynningu á þinginu
verður útgáfa á um 60 blaðsíðna riti,
sem verður dreift til allra okkar um
400 félaga, allra deilda Þjóðræknis-
félagsins, allra sem taka þátt í
þinginu á einn eða annan hátt og víð-
ar. Með öðrum orðum fer þetta rit
víða og ég hef meðal annars hug á að
safna efni og auglýsingum á Íslandi,
en kjörorð okkar er sameining og
það að komast af í norðri.“
Að sögn Walters kemur vöru- og
fyrirtækjakynning til með að tengj-
ast þinginu og hefur hann áhuga á að
fá íslensk fyrirtæki til að kynna sig
og það sem þau hafa upp á að bjóða.
„Það eru ótal mögu-
leikar fyrir hendi og
þetta er kjörið tækifæri
til að koma íslenskri
vöru á framfæri,“ segir
hann.
Walter segir að mikill
uppgangur hafi verið hjá
Íslendingafélögunum í
Alberta á undanförnum
árum og virkir meðlimir
séu yfir 700, en útlitið
hafi ekki verið bjart fyr-
ir fimm árum. Hann hafi
þá tekið að sér fjáröflun
og hún hafi strax gengið
vel. Í kjölfarið hafi hann
farið í að fá fólk í félagið
og á skömmum tíma hafi
virkum félagsmönnum fjölgað úr 164
í 374. „Þetta byggðist fyrst og fremst
á persónulegum samskiptum og
stundum hef ég ekið meira en 200
kílómetra til að hitta fólk og fá það í
félagið,“ segir hann og bætir við að
hann standi ekki einn í þessu. „Ég er
kannski í hlutverki leikstjórnandans
en margir félagsmenn vinna gott
starf, meðal annars við það að fá fleiri
meðlimi. En starfið snýst ekki aðeins
um að efla Norðurljós og Þjóðrækn-
isfélagið í heild heldur skiptir miklu
máli fyrir okkur að blaðið Lögberg-
Heimskringla komi út og því tek ég
líka þátt í að safna áskrifendum. Ís-
lenska ríkisstjórnin hefur stutt vel
við bakið á blaðinu en það þarf fleiri
áskrifendur rétt eins og íslensku fé-
lögin þurfa meiri stuðning til að
halda starfinu gangandi. Þetta er það
sem ég legg krafta mína í og fjár-
öflun fyrir íslenska samfélagið í Vest-
urheimi í heild sinni er mitt hjartans
mál.“
Kynning á Íslandi mikilvæg
Ekki alls fyrir löngu voru 26 Kan-
adamenn á ferð um Ísland og fór
Walter fyrir hópnum. Hann fór með-
al annars á Vesturfarasetrið á Hofs-
ósi, sem hann segir að sé helsta að-
dráttarafl Kanadamanna og
Bandaríkjamanna af íslenskum ætt-
um, og kynnti landið fyrir ferðalöng-
unum. „Ég og konan heimsóttum Ís-
land í fyrrahaust og í kjölfarið var ég
fenginn til að skipuleggja Íslandsferð
fyrir áhugasamt fólk af íslenskum
ættum. Um 40 manns vildu fara en
þeim snarfækkaði í ársbyrjun og þá
varð ég að hringja út um allt og
hvetja fólk til að standa við gefin lof-
orð með þessum árangri, en í hópn-
um voru fjórir frá Quebec, fjórir frá
Winnipeg, fjórir frá Bresku Kólumb-
íu og afgangurinn frá Edmonton.
Viðbrögðin við ferðinni voru ólýsan-
leg og ljóst að það er markaður fyrir
svona ferðir frá Kanada. Valgerður
Hauksdóttir var leiðsögumaður okk-
ar og hún er sú besta sem ég hef
kynnst og Ólafur Karlsson, bílstjóri,
ók betur en nokkur annar. Það fóru
allir ánægðir frá Íslandi og ég er viss
um að landið togar áfram í hópinn. Af
nógu er að taka en Vesturfarasetrið
er einstakt og það er staður fyrir alla
af íslenskum ættum og aðra sem
áhuga hafa á landi og þjóð.“
Um 700.000 manns á
„Gullgrafarahátíð“
Á hverju sumri er haldin „gullgraf-
arahátíð“ í Edmonton, The Klondyke
Days, þar sem skemmtun, viðskipti,
menning, saga, ferðamál og matur
ráða ríkjum, en árlega er lögð
áhersla á að kynna tiltekna þjóð eða
tilteknar þjóðir. Á næsta ári verða
Norðurlöndin í sviðsljósinu og felst
það í því að þau kynna útflutnings-
vörur sínar, mat og fleira, og ferða-
möguleika auk þess sem þjóðirnar
leggja fram skemmtikrafta.
Klondikehátíðin, sem fram fer í lok
júlí, er mest sótta sumarhátíðin í Ed-
monton og fjórða stærsta hátíð Kan-
ada, en undanfarin ár hafa um
200.000 manns fylgst með skrúð-
göngunni á fyrsta degi og um 700.000
manns tekið þátt í 10 daga dag-
skránni. Í fyrra var hún helguð
Indónesíu og Filippseyjum 18. til 27.
júlí í ár, en Norðurlöndunum 17. til
26. júlí að ári. Walter segir tilvalið að
slá tvær flugur í einu höggi, mæta
fyrst í Edmonton og fara þaðan á Ís-
lendingadaginn í Gimli. „Þetta á jafnt
við um viðskiptamenn, skemmti-
krafta og aðra gesti og við vonum að
viðbrögðin verði góð frá Íslandi.“
Í þessu samskiptastarfi er í mörg
horn að líta en Walter lætur það ekki
á sig fá. „Ég trúi á það sem ég geri og
lærði snemma að mikilvægt væri að
vanda til verka hverju sinni. Þessu
fylgir mikil ögrun en hún er heillandi
og mér finnst gaman að takast á við
þetta viðfangsefni.“
Í fyrrahaust byrjaði Walter að
flytja inn íslenskar vörur til Edmon-
ton með póstverslun í huga. Hann
segir að verslunin gangi vel en mest
sé keypt af lopavörum, peysum og
teppum, og einnig sé ágæt sala í
myndum og bókum, en auk þess sel-
ur hann t.d. lýsi og hljómdiska. „Hús-
ið er fullt af íslenskum vörum og það
er mikill áhugi á þeim.“
Mikilvægt þing
Walter leggur áherslu á að fá sem
flesta gesti frá Íslandi á þingið í Ed-
monton að ári og segir að frásagnir af
þinginu í Minneapolis hljóti að höfða
til margra sem heima sátu. „Fólk
skilur ekki fyrr en það mætir hvað
þetta þing skiptir miklu máli. Við er-
um ekki að þessu aðeins fyrir okkur
heldur fyrir Ísland. Þetta er sameig-
inlegt átaksverkefni okkar allra.“
Ársþing Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi haldið í Edmonton að ári
„Sameiginlegt
átaksverkefni
okkar allra“
Íslendingafélagið Norðurljós í Edmonton
í Kanada stendur í ströngu um þessar
mundir. Steinþór Guðbjartsson hitti
Walter Sopher, sem vinnur að fjáröflun
fyrir félagið, og fékk að heyra að hann
er með mörg járn í eldinum.
Morgunblaðið/Kristján
Walter Sopher skipulagði ferð um Ísland fyrir 26 Kanadamenn fyrir skömmu. Hópurinn kom m.a. við á Ak-
ureyri og er hér við Akureyrarkirkju. Valgerður Hauksdóttir leiðsögumaður er lengst t.h. í fremri röð og Ólaf-
ur Karlsson, bílstjóri hjá SBA-Norðurleið, lengst t.h. í efri röð.
Walter Sopher
TENGLAR
.....................................................
Walter Sopher" <sopher@teluspl-
anet.net>
http://www.icelandicsocietyofed-
monton.ab.ca/
www.klondikedays.com
steg@mbl.is
ÍSLENSKA djasstríóið Guitar Is-
lancio fékk mjög góða dóma vegna
frammistöðu sinnar á nokkrum
djasshátíðum í Kanada á dögunum
og er Björn Thoroddsen, gítarleik-
ari, bjartsýnn á framhaldið.
Guitar Islancio kom fram í þriðja
sinn á djasshátíðunum í Saskatoon,
Battleford og Regina en að þessu
sinni bættist hátíðin í Toronto við.
Björn Thoroddsen, sem er bæj-
arlistamaður Garðabæjar í ár, segir
að tríóið hafi byrjað smátt með það
að markmiði að komast á stærri og
fjölmennari hátíðir og það hafi tek-
ist. „Það er ánægjulegt að fá tæki-
færi til að spila á stærra sviði fyrir
fleiri áhorfendur því möguleikarnir
á einhverju meira aukast við það,“
segir hann. „Þegar við byrjuðum
vorum við að spila fyrir 30 til 50
manns og þótti það gott en það kom
skemmtilega á óvart að koma nú
fram í troðfullum 500 manna sal í
Saskatoon.“
Í fyrra kom út í Winnipeg diskur
með bandinu og segir Björn að sal-
an hafi gengið vel í Manitoba en eft-
ir sjónvarpsþátt hafi honum verið
dreift víðar í Kanada og hafi við-
tökur verið góðar. Í Guitar Islancio
vestra voru Björn og Jón Rafnsson,
kontrabassaleikari, ásamt Kan-
adamanninum og trompetleik-
aranum Richard Gillis. Sá síðast-
nefndi verður væntanlega á Íslandi
í tvo mánuði í byrjun næsta árs, en
Björn segir að margt sé á döfinni
hjá sér. Í mjög vinsamlegri gagn-
rýni um Guitar Islancio í júní/júlí
blaði Jazz Special segir Thorbjørn
Sjøgren m.a. að áhugavert væri að
sjá Björn og Jacob Fischer, helsta
djassgítarleikara Dana, leika saman
og Björn segir að verkefni með hon-
um og danska djassfiðluleikaranum
Kristian Jörgensen, nýjustu stjörnu
Dana í fiðluleik, sé einmitt á dag-
skrá. Kanadamálin séu í góðum far-
vegi en hafa beri í huga að sýna
þurfi þolinmæði varðandi gang
mála vestra. Fjarlægðirnar geri það
að verkum að kostnaður sé mikill og
tíma taki að vinna sig upp. Hjálmar
W. Hannesson, sendiherra í Ottawa,
hafi verið eins og umboðsmaður
fyrir tríóið og og komið því til Tor-
onto auk þess sem hann hafi skoðað
málið í Alberta þar sem væri mikill
uppgangur í djassinum. „Þetta
þarfnast allt mikillar vinnu og góðr-
ar skipulagningar og gerist ekki á
einni nóttu, en með þolinmæðinni
má komast langt,“ segir Björn, sem
er nú á tónleikaferðalagi með hol-
lenska píanóleikaranum Hans
Kwakkernaat og verða þeir með
tónleika á Akureyri á morgun.
Guitar
Islancio
á beinni
braut vestra
Ljósmynd/Jón Einarsson Gústafsson
Trompetleikarinn Richard Gillis, Jón Rafnsson kontrabassaleikari og
Björn Thoroddsen gítarleikari slógu á létta strengi í Toronto í Kanada.
ÍSLENSKU
dagarnir voru á
dagskrá í Span-
ish Fork í Utah í
Bandaríkjunum
fyrir skömmu og
stóðu vel undir
nafni, en fjöl-
menni sótti há-
tíðarhöldin báða
dagana.
Richard J.
Johnson var
kjörinn formað-
ur Íslendinga-
félagsins í Utah
til næstu
tveggja ára og
tekur hann við
af John K. John-
son, sem var formaður nýliðin tvö
ár. Fráfarandi formaður þakkaði
góða mætingu og nýkjörinn for-
maður hvatti viðstadda til að gera
enn betur og taka með sér gesti að
ári.
Íslendingafélagið fékk að gjöf ís-
lenska fánann, sem var saumaður á
Íslandi og prýddi Tomax-bygg-
inguna, höfuðstöðvar íslenska ól-
ympíuliðsins, í Salt Lake City með-
an á Vetrarólympíuleikunum stóð
snemma árs, og minnti hann íbúa
Spanish Fork svo sannarlega á há-
David A. Ashby og J. Brent Haymond voru sérstak-
lega heiðraðir fyrir framlag sitt til félagsins.
tíðarhöldin. Margt var sér til gam-
ans gert, sagðar sögur, sungið og
borðað Íslandi til heiðurs.
David A. Ashby, formaður Ís-
lendingafélagsins 1994 og 1995 og
aftur 1999 og 2000, og J. Brent
Haymond voru sérstaklega heiðr-
aðir fyrir framlag sitt til félagsins
en þeir áttu stóran þátt í því að
minnismerki um landnemana í Ut-
ah var reist í Vestmannaeyjum og
lögðu sitt af mörkum vegna sýn-
ingarinnar um landnemana, sem er
í Vesturfarasetrinu á Hofsósi.
Fjölbreytt dagskrá
í Spanish Fork