Morgunblaðið - 13.07.2002, Síða 23
HEILSA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 23
Þ
AÐ er freistandi að leyfa
börnum að vera lengur úti
á kvöldin yfir sumartím-
ann. Veðrið er oft gott og
nóttin björt. En hafa for-
eldrar gert sér grein fyrir því að barn-
ið er kannski búið að vera að leika sér
úti allan liðlangan daginn án hvíldar?
Þreyta er oft orsök þess að börn eru að
lenda í slysum. Börnin eru orðin úr-
vinda af þreytu og þá eru þau ekki eins
vel á varðbergi gagnvart hættum í
nánasta umhverfi þeirra. Á sumrin
fara börn oftar lengra frá heimilinu en
þau myndu ella gera og skoða ým-
islegt nýtt sem á vegi þeirra verður.
Oft eru það hættulegustu staðirnir
sem hafa mesta aðdráttaraflið.
Nýbyggingar
Þeir sem búa í hverfum sem eru í byggingu ættu að athuga það að gengið sé
kirfilega frá grunnum og byggingum þannig að börn komist ekki óhindrað inn
á þessi svæði. Alvarleg slys hafa orðið þegar að börn hafa klifrað á vinnupöll-
um, dottið niður og fengið steypustyrktarjárn í gegnum líkamann. Ekki má
heldur gleyma tækjum sem skilin eru eftir í sambandi með þeim afleiðingum
að börn hafa t.d. sagað af sér fingur.
Sundferðir
Foreldrar verða að kynna sér sundkunnáttu barna sinna ef senda á þau ein í
sund. Í reglum um öryggi á sundstöðum segir að börn sem náð hafa 8 ára aldri
megi fara ein í sund. Þetta á þó einungis við um þau börn sem eru orðin synd.
Það er á ábyrgð foreldranna að senda barnið sitt ekki eitt í sund. Samkvæmt
upplýsingum frá sundkennurum eru einungis um 25% barna synd á þessum
aldri.
Setlaugar
Þeir sem leyfa börnum að leika sér í setlaugum ættu aldrei að láta börnin
leika sér án eftirlits. Ekki er nægjanlegt að tæma vatn úr setlaug því þar getur
líka safnast regnvatn. Þeir sem eru með setlaug í garðinum ættu alltaf að
ganga frá þeim með læstu loki, þannig að óviðkomandi komist ekki í hana.
Reiðhjól
Því fylgir mikil ábyrgð að kaupa reiðhjól fyrir barn undir 12 ára aldri. Mik-
ilvægt er að velja hjól með fótbremsum; börn ráða betur við slík hjól, og kaupa
ekki of flókin hjól með mörgum gírum því slíkur búnaður krefst mikillar leikni.
Þá er mikilvægt að foreldrar kenni börnum sínum umferðarreglur hjólreiða-
manna og setji barninu skilyrði um hvar þau megi hjóla. Öll börn 15 ára og
yngri eiga lögum samkvæmt að nota reiðhjólahjálm. Börn yngri en 5–6 ára eru
ekki tilbúin að hjóla á tvíhjólum með hjálpardekkjum án eftirlits foreldra.
Línuskautar, hjólabretti og hlaupahjól
Mikilvægt er að börn séu einungis á þessum farartækjum á öruggum stöð-
um þar sem ekki eru bílar. Hafa þarf í huga hversu auðvelt er að detta á þess-
um búnaði og því er nauðsynlegt að vera með olnboga-, úlnliðs- og hnjáhlífar
og að sjálfsögðu með hjálm.
Útigrillin
Ef börn komast í að fikta í gasgrillum getur það haft alvarlegar afleiðingar.
Kolagrill eru oft skilin sjóðheit án eftirlits og hefur það valdið mörgum bruna-
slysum. Athugið að kveikilögur fyrir grillkol er mjög hættulegt efni sem getur
valdið varanlegum skaða á lungum ef barnið sýpur á honum. Hér á undan hafa
einungis nokkrir þættir verið taldir upp sem tengjast sumrinu. Það er mik-
ilvægt fyrir foreldra að kynna sér hvar börnin eru að leika sér og að fylgst með
þeim allan tímann. Börn yngri en 10 ára hafa hvorki líkamlegan né andlegan
þroska til að geta forðast þær hættur sem eru auðsýnilegar okkur fullorðna
fólkinu. Það er því á ábyrgð okkar að sjá til þess að börn verði ekki fyrir slys-
um.
Herdís L. Storgaard, framkvæmdastjóri Árvekni.
Landlæknisembættið
Ítarlegri upplýsingar er að finna á http://www.arvekni.is
Heilsan í brennidepli
Börn og sumarleikir
– aukin slysahætta
Þreyta er oft orsök þess að
börn lenda í slysum. Á sumrin
leika börn sér úti allan daginn
án hvíldar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Kæri læknir.
Ég er 28 ára og hef verið með
frjókornaofnæmi síðan ég man eft-
ir mér. Ofnæmið hefur ekki þjáð
mig mikið gegnum tíðina heldur
komið upp einstaka sinnum á
sumrin. Þá hef ég bara tekið ein-
hverjar ofnæmispillur sem ég hef
keypt í apóteki og það gengið vel.
Undanfarin tvö sumur hefur of-
næmið þó farið versnandi. Ég hef
fengið meiri einkenni og oftar og
stundum hafa pillurnar ekki dug-
að, jafnvel þó ég taki 3–4 í einu
(þó ég viti vel að það megi ekki). Í
vor lét heimilislæknir minn mig
kaupa einhvern úða fyrir nefið sem
heitir Flixonase og á ég að taka
það á hverjum degi yfir sumarið.
Það hefur reyndað virkað vel held
ég. Mig langar bara að spyrja,
hvernig virkar svona úði og er
hann miklu betri en pillurnar? Síð-
an væri nú líka gott að vita hvort
ég þarf að úða á mér nefið öll sum-
ur í framtíðinni.
Ein með ofnæmisnef.
SVAR Kæri spyrjandi.Mikil aukning hefur
verið á tíðni ofnæmis og má ætla
að fimmtungur einstaklinga milli
20 og 30 ára séu með ofnæmiskvef.
Þú ert þannig ekki aldeilis einsöm-
ul með þitt ofnæmisnef.
Magn grasfrjókorna í loftinu er
mest seinni part júlí og fyrri hluta
ágúst en það er sá tími sem nú fer
í hönd. Ef það blíðviðri sem við
höfum fengið að njóta hingað til í
sumar helst áfram má búast við
miklu magni grasfrjókorna. Upp-
lýsingar um frjótölur birtast á
textavarpinu, á Netinu og í fjöl-
miðlum og er fróðlegt að fylgjast
með þeim og bera saman við of-
næmiseinkennin.
Besta meðferðin við frjóofnæmi
eins og öðru ofnæmi er að forðast
ofnæmisvakann. Þó slíkt sé varla
raunhæfur kostur þar sem gras er
alls staðar í kringum okkur er rétt
að benda sjúklingum á að vera
ekki að velta sér í grasinu að
óþörfu eða að taka þátt í heyskap.
Lyfjameðferð við ofnæmi gengur
út á að draga úr einkennum og
bæla ofnæmisbólguna. Einkenni
frá augum og nefi eru meðhöndluð
bæði með staðbundnum lyfjum og
með lyfjum til inntöku.
Ofnæmið er bólguviðbragð sem
einkennist af því að einstakling-
urinn hefur myndað ofnæmismót-
efni (IgE) gegn skaðlausum efnum
svo sem eggjahvítuefnum í gras-
frjókornum. Bólgan er flókið sam-
spil bólgufruma sem hafa tjáskipti
sín á milli með boðefnum. Aðalboð-
efnið í ofnæmisviðbragðinu er his-
tamín sem veldur kláða, hnerrum,
aukinni slímmyndun og æðaútvíkk-
un þannig að slímhúðin þykknar
og nefið stíflast að sama skapi.
Andhistamínlyf hindra áhrif his-
tamíns og virka fljótt og vel á
kláða og hnerra, draga úr nef-
rennsli en hafa minni áhrif á nef-
stíflur. Andhistamíntöflur fást í
apótekum án lyfseðils. Ef ofnæmið
kemur bara einstaka sinnum og
köstin eru frekar væg er alveg nóg
að taka inn „ofnæmispillur“ eða
andhistamíntöflur eftir þörfum.
Það virðist ekki duga þér lengur.
Ef ofnæmið er viðvarandi ein-
hverja daga, vikur eða lengur er
mælt með að nota bólgueyðandi
barksteralyf í nefúðaformi. Bark-
sterarnir dempa öll viðbrögð í
ónæmiskerfinu og ef þeir eru not-
aðir staðbundið á nefslímhúð
minnka þeir magn allra bólgu-
fruma og einkenna þar með. Þann-
ig dempa þeir kláðann, fækka
hnerrum, minnka nefrennslið og
koma í veg fyrir æðaútvíkkun sem
veldur nefstíflunni. Nauðsynlegt er
að nota nefstera reglubundið og í
nokkurn tíma til að fá full not af
meðferðinni. Þú ert með einn slík-
an og þarft væntanlega að nota
nefstera meira og minna næstu
sumur.
Við augneinkennum eru annars
vegar til augndropar sem hindra
losun histamíns úr bólgufrum-
unum. Það gefur oft góða raun og
augn-kláðinn og tárarennslið
hverfur. Hins vegar eru seldir án
lyfseðlis augndropar sem innihalda
andhistamín og fæst þannig hærri
þéttni lyfsins á bólgustaðnum.
Sumir sjúklingar vilja það frekar
en að taka þessi lyf inn í töflu-
formi.
Við vægu ofnæmi dugar eitt lyf
en oftast þarf að blanda nokkrum
lyfjum saman. Það á að vera hægt
að meðhöndla sjúklinginn þannig
að ofnæmið hefti hann hvorki í
starfi né leik.
Ég vona að þú verðir nokkurs
vísari af lestri þessum.
Kveðjur.
Frjókornaofnæmi
eftir Sigurð Júlíusson
Besta meðferðin við
frjóofnæmi eins og
öðru ofnæmi er að
forðast ofnæmisvak-
ann. Er rétt að benda
sjúklingum á að vera
ekki að velta sér í
grasinu að óþörfu eða
að taka þátt í hey-
skap.
.............................................
persona@persona.is
Höfundur er háls-, nef-
og eyrnalæknir.
Lesendur
Morg-
unblaðs-
ins geta
komið
spurn-
ingum varðandi sál-
fræði-, félagsleg og
vinnutengd málefni til
sérfræðinga á vegum
persona.is. Senda skal
tölvupóst á persona-
@persona.is og verður
svarið jafnframt birt á
persona.is.
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Barnafatnaður
í úrvali, skoðaðu verðið
Þumalína, Skólavörðustíg 41
Ótrúlegur
árangur!
www.heilsubrunnur. is