Morgunblaðið - 13.07.2002, Qupperneq 24
LISTIR
24 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GIL Harris (DJ Quails), ofurvinsæll
táningspiltur í skólanum East High-
land High, hefur komist að því að
leiðin á toppinn er enginn dans á
rósum. Allavega ekki í hans tilfelli.
Gil er nefnilega ekki allur þar sem
hann er séður og á tvöfalt líf að
baki. Áður var hann aumastur allra
aumra, bekkjarauli og aðhlátursfífl
skólasyskina sinna í Rocky Creek
skólanum, sem er í hinum enda
borgarinnar. Þar gekk hann undir
sínu rétta nafni, Diz Harrison, og
þótti einstaklega ömurlegt ung-
menni. Var í úrkastinu en sá að við
slíkt varð ekki unað öllu lengur ef
hann ætlaði séreitthvað áleiðis í líf-
inu.
Fyrst af öllu verður hann að
skipta um skóla, en til þess verða að
liggja gildar og góðar ástæður sem
voru ekki fyrir hendi. Diz lætur því
reka sig úr gamla skólanum sínum,
sem getur reynst erfiðara en flesta
nemendur grunar – ef menn ætla
sér það!
Brottreksturinn lukkast ekki fyrr
en tilraunir Diz eru orðnar það vafa-
samar að piltur lendir í fangelsi fyr-
ir vikið. Þar er lífið jafnvel enn
hroðalegra fyrir nördinn en innan
skólalóðarinnar. En Diz kemst í
réttu samböndin og forframast með-
al harðsoðinna glæpamanna sem
kenna drengstúfnum sitt af hverju
um hvernig á að komast af – hvar
sem er.
Með þessa langsóttu reynslu að
baki er Diz/Gil orðinn sá allra vin-
sælasti í nýja skólanum. Í slíkri
stöðu er auðvelt að eignast öfund-
armenn – sem geta tekið uppá þeim
fjára að rannsaka bakgrunn óvina
sinna...
Leikhópurinn er skipaður ungu
og efnilegu fólki með DJ Quails í að-
alhlutverkinu. Hann á mörg hlut-
verk að baki í svipuðum myndum,
líkt og Eliza Dushku og Zooey
Deschanel. Lyle Lovett, sem leikur
föður Gil, er hinsvegar þekktur sem
fyrrverandi eiginmaður Juliu Ro-
berts – í reyndar skammvinnu
hjónabandi. Ferill hans sem leikari
og enn frekar kántrísöngvari, hefur
staðið mun lengur.
Leikarar: D.J. Quails (Road Trip, Cherry
Falls); Eliza Dushku (Bring It On, Race
the Sun, Bye Bye Love); Zooey
Deschanel (Big Trouble, Mumford, Al-
most Famous); Lyle Lovett (Cokkie’s
Fortune, Fear and Loathing in Las
Vegas, Short Cuts, The Player). Leik-
stjóri: Ed Decter (frumraun).
Leið bekkjar-
bjálfans á toppinn
Smárabíó, Laugarásbíó og Borgarbíó
Akureyri frumsýna The New Guy með
D.J. Quails, Elizu Dushku, Zooey
Debschanel og Lyle Lovett. Leikstjóri er
Ed Decter.
Nýi strákurinn (DJ Quails), umvafinn bekkjarsystrum í myndinni The New Guy.
Lindin, Laug-
arvatni: Lista-
konan Lóa Guð-
jónsdóttir sýnir
um þessar mund-
ir vatnslita- og
pastelmyndir sín-
ar í veitingahús-
inu Lindinni að
Laugarvatni.
Karl Guðmunds-
son mun einnig vera með lestur í
Lindinni, en hann mun lesa ljóð í
dag, laugardag, fyrir gesti og gang-
andi.
Í DAG
Lóa
Guðjónsdóttir
BJÖRG Þorsteinsdóttir opnar sýn-
ingu á vatnslitamyndum sínum í
Grafarvogskirkju á morgun eftir
sunnudagsmessu.
Viðfangsefni myndanna eru krist-
in trúartákn sem Björg vinnur með á
frjálslegan hátt.
Sýningin ber heitið „Spunnið úr
trúartáknum“ en verkin voru flest
máluð árið 1999 og hafa aldrei verið
sýnd fyrr.
Björg stundaði myndlistarnám í
Reykjavík, Stuttgart og París og
hefur bæði málað og unnið í grafík.
Hún hefur haldið um 30 einkasýn-
ingar frá árinu 1971 og tekið þátt í
fjölda samsýninga hérlendis og er-
lendis. Síðustu einkasýningar Bjarg-
ar voru í Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar, árið
1998, í Gallerí Íslandi í Osló 1998 og
Hallgrímskirkju 1999 í boði List-
vinafélags kirkjunnar.
Sýningin í Grafarvogskirkju verð-
ur opin á sama tíma og kirkjan og
stendur til 18. ágúst.
Meðal verka á sýningunni er þetta málverk Bjargar Þorsteinsdóttur.
Út frá táknum
trúarinnar
ÓLÖF Sigursveinsdóttir flytur tón-
leika í Ólafsfjarðarkirkju á morg-
un, sunnudag, kl. 17. Hún mun leika
tvö verk á barokkselló eftir Johann
Sebastian Bach annars vegar og
Benedetto Marcello hins vegar.
Eftir nám á Íslandi hélt Ólöf til
náms í Þýskalandi þar sem hún út-
skrifaðist frá Listaháskólanum í
Stuttgart með hæstu einkunn sum-
arið 2001.
Barokksellóið hefur fangað at-
hygli Ólafar undanfarið og leikur
hún með Bachsveitinni í Skálholti
sem sérhæfir sig í túlkun tónlistar á
upprunaleg hljóðfæri. Barokk-
sellóið er forfaðir nútímasellós en
krefst nokkuð annarrar leiktækni.
Það hefur strengi úr girni og hljóm
sem hæfir vel þeirri gömlu tónlist
sem því var upphaflega ætlað að
túlka. Ólöf var á námsárum sínum
hér heima fastráðinn hljóðfæraleik-
ari við Sinfóníuhljómsveit Íslands
um skeið. Hún hefur leikið með fjöl-
mörgum hljómsveitum og komið
fram sem einleikari á tónleikum
hér heima, í Þýskalandi og á Norð-
urlöndunum.
Ólöf Sigursveinsdóttir
Barokk-
selló í
Ólafsfjarð-
arkirkju
ANDREA Gylfadóttir söngkona og
Guðmundur Pétursson troða upp á
smurbrauðsstofunni og veitingahús-
inu Jómfrúnni í dag.
Hér eru á ferðinni sjöundu tón-
leikarnir í sumartónleikaröð
Jómfrúarinnar.
Leikið verður utandyra á
Jómfrúartorginu ef veður leyfir en
tónleikarnir hefjast klukkan 16 og
standa til 18 og er aðgangur ókeypis.
Sumardjass
á Jómfrúnni
JÓN Yngvi Jóhannsson
bókmenntafræðingur flyt-
ur á Skriðuklaustri á morg-
un, sunnudag, kl. 17 erindi
um Sögu Borgarættarinn-
ar eftir Gunnar Gunnars-
son og þau átök sem birtast
þar milli föðurlandsástar
og hollustu við ættina ann-
ars vegar og persónulegs
frelsis og listsköpunar hins
vegar.
Fyrirlesturinn nefnir Jón Óðals-
herra eða galeiðuþræll – fyrirlestur
um þjóðerni og listsköpun í Sögu
Borgarættarinnar
Saga Borgarættarinnar hefur
lengi verið talin dæmi um nýróman-
tískan átthagaskáldskap, ekki síst í
dönskum bókmenntaskrifum, en
bókin kom fyrst út á
dönsku á árunum 1911–
1913. Í fyrirlestrinum verð-
ur reynt að sýna fram á að
þessi lestur á sögunni
stenst illa og að það er
þversagnakennd afstaða
aðalsöguhetjunnar til föð-
urlands síns og föðurleifðar
sem er völd að persónuleg-
um klofningi hans og
þeirra átaka innan ættar-
innar sem eru meginefni sögunnar.
Fyrirlesarinn, Jón Yngvi Jó-
hannsson, er um þessar mundir að
vinna að doktorsritgerð um íslenska
rithöfunda í Danmörku, þ. á m.
Gunnar Gunnarsson.
Aðgangur að fyrirlestrinum er
ókeypis.
Rætt um Sögu
Borgarættarinnar
Jón Yngvi
Jóhannsson
MIKIÐ er tíminn fljótur að líða!
Undirrituðum eru í fersku minni
útvarpsþættirnir Tónlistartími
barnanna. Umsjónarmenn þeirra
voru þær Jórunn Viðar og Þuríður
Pálsdóttir og voru þættirnir á dag-
skrá Ríkisútvarsins fyrir 40 árum. Þá
hlustuðu börn einnig af athygli á tóm-
stundaþátt Jóns Pálssonar og fram-
haldsleikritin sem gerð voru við sögur
Enid Blyton. Tónlistin og hið talaða
orð nægði til að koma hugmyndaflug-
inu af stað, myndmálið var óþarft.
Ríkisútvarpið var hinn eini og sanni
fjölmiðill. Sambland af skemmtun og
fræðslu fyrir alla aldurshópa. Og ekki
er laust við að sumum finnist dag-
skrárefnið fyrir börn hafa verið ris-
meira í þann tíð en efni það sem aug-
lýsingaútvarpsstöðvar nútímans
flytja og hafa börn og unglinga að
markhópi.
Ég er reyndar ekki viss um að við
sem hlustuðu á Tónlistartíma
barnanna höfum almennt gert okkur
grein fyrir hversu merkilegt það efni
var sem þær stöllur, Þuríður og Jór-
unn, fluttu okkur. En við lærðum þó
mörg þessara laga og texta, sungum
þau við ýmsar aðstæður
og þá ekki hvað síst
voru þau þau mörg
órjúfanlegur hluti af
starfinu í barnaskólum
landsins. Skólarnir
unnu að því að bera
hinn þjóðlega tónlistar-
arf áfram og söngurinn
var hluti af daglegu
skólastarfi. Og mark-
visst framlag Ríkisút-
varpsins í Tónlistar-
tíma barnanna hefur
ábyggilega orðið til
þess að styrkja söng-
hefðina í skólunum.
Þegar hlustað er á
Fljúga hvítu fiðrildin,
nýútkomið safn þjóð-
laga, þula og annarra
barnalaga í flutningi
þeirra Þuríðar Páls-
dóttur og Jórunnar Við-
ar, heyrist glöggt
hversu metnaðarfullt
starf þær hafa unnið við
að viðhalda tónlistararfi
þjóðarinnar. Þær hafa
sýnt þessum gömlu
barnalögum og ekki síð-
ur hlustendum sínum,
börnum landsins, mikla
virðingu með tónlistar-
flutningi sem hlýtur að
teljast einstakur að
gæðum og smekkvísi. Nú veit ég ekki
hvernig upptökustarfinu var háttað á
sínum tíma en mig grunar þó að ekki
hafi menn haft ómældan tíma til
hljóðritana og víst er að ekki var til að
dreifa stafrænni upptökutækni þar
sem allar misfellur má laga ef að
henni standa færir upptökumenn.
Hér heyrast engar misfellur, allt virð-
ist undirbúið út í ystu æsar, sannköll-
uð fagmennska hvert sem litið er.
Raddtækni Þuríðar Pálsdóttur er
óviðjafnanleg, röddin er falleg sem
endranær. Frá því er sagt í bæklingi
að Jórunn hafi sagt Þuríði að hún
skyldi gleyma því að hún væri óperu-
söngvari þegar hún flytti barnalögin.
Varla hefur þurft að segja listamönn-
um eins og Þuríði svo sjálfsagðan hlut
eins og það að laga raddtækni sína að
viðfangsefninu enda er túlkun hennar
í alla staði hafin yfir gagnrýni. Píanó-
leikur Jórunnar Viðar er feiknagóður.
Hér er á ferðinni meðleikur sem er
nærfærinn en þó afger-
andi. Helst mætti óska
sér að meira heyrðist í
píanóinu því meðleikur í
þessum gæðaflokki er
satt að segja sjald-
heyrður. En við þessu
er að sjálfsögðu ekkert
að gera enda er efnið
tekið beint af segul-
böndum útvarpsins.
Ef mið er tekið af
aldri þessara hljóðrit-
ana þá eru þær ótrúlega
góðar þótt gerðar séu í
mónó. Og sérstaklega
kemur á óvart hversu
lík hljóðmyndin er milli
laga þrátt fyrir það að
lögin hljóta að hafa ver-
ið tekin upp á ólíkum
tíma. Á einstaka stað
má greina mun sem þó
skiptir litlu máli. Menn
hafa greinilega kunnað
sitt fag á tæknideild út-
varpsins þá ekki síður
en nú.
Jórunnar Viðar út-
setti flest laganna og
eru raddsetningarnar
gerðar af mikilli smekk-
vísi, oftast einfaldar að
gerð þótt stundum
bregði fyrir nútíma-
legra tónmáli eins og í
Fúsíntesþulu (diskur 1, nr. 24). En
alltaf er hið saklausa, barnslega haft
að leiðarljósi í tónmálinu.
Pabbar og mömmur, afar og ömm-
ur, gefið börnum ykkar og barna-
börnum hlutdeild í sameiginlegum
tónlistararfi okkar. Barnalagasafn
Þuríðar Pálsdóttur og Jórunnar Við-
ar er geysilega vandað og þótt það sé
barns síns tíma á það vissulega erindi
til okkar allra og ekki hvað síst yngstu
kynslóðarinnar sem bera á arfinn
áfram til barnanna sinna.
Og að lokum þetta. Ég skora hér
með á alla leikskólastjóra og skóla-
stjóra í grunnskólum landsins að sjá
til þess að þessir diskar verði keyptir
og notaðir í skólum þeirra. Ég held að
það sé mikilvægt og sannarlega er
það áríðandi að til sé eitthvert mót-
vægi við þeirri lágkúrulegu kaup-
sýslumenningu sem troðið er upp á
börn á Íslandi nú á dögum.
TÓNLIST
Geislaplötur
Íslensk og erlend barnalög, þulur og þjóð-
lög úr útvarpsþáttunum „Tónlistartími
barnanna“ frá árunum 1960-1962. Söng-
ur: Þuríður Pálsdóttir (sópran). Hljóð-
færaleikur: Jórunn Viðar (píanó). Útsetn-
ingar: Jórunn Viðar. Upptökur:
Ríkisútvarpið 1960-1962. Umsjón með
útgáfu: Trausti Jónsson, Vala Krist-
jánsson og Valgarður Egilsson. Heild-
artími 1’34 (2 diskar). Útgefandi:
Smekkleysa SMG5 .
FLJÚGA HVÍTU FIÐRILDIN
Geymt en ekki gleymt
Valdemar Pálsson
Þuríður Pálsdóttir
Jórunn Viðar