Morgunblaðið - 13.07.2002, Qupperneq 38
MINNINGAR
38 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa starfsfólks
Áskirkju er bent á guðsþjónustur í ná-
grannakirkjunum.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti Stefán Þorleifsson. Pálmi Matt-
híasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjálmar
Jónsson prédikar. Dómkórinn syngur. Org-
anisti Guðný Einarsdóttir. Prestsvígsla kl.
14. Biskup Íslands vígir cand. theol. Bolla
Pétur Bollason til þjónustu í Selja-
prestakalli. Sr. Bolli Gústafsson, fyrrv.
vígslubiskup, lýsir vígslu. Vígsluvottar: Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir, sr. Bjarni Karls-
son, sr. Ágúst Einarsson og sr. Valgeir Ást-
ráðsson. Sr. Jakob Ág. Hjálmarsson þjón-
ar fyrir altari. Organisti Guðný Einarsdóttir.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti
Árni Arinbjarnarson. Sr. Ólafur Jóhanns-
son.
GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 10:15. Prestur sr.
Hreinn S. Hákonarson. Organisti Kjartan
Ólafsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Har-
aldur Ólafsson kristniboði prédikar. Fé-
lagar úr Mótettukór syngja. Organisti Kári
Þormar. Sr. Sigurður Pálsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Tos-
hiki Toma, prestur innflytjenda, prédikar.
Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa kl. 11. Prestur sr. Petrína
Mjöll Jóhannesdóttir. Organisti Lára Bryn-
dís Eggertsdóttir. Einsöngur. Félagar úr
Kór Langholtskirkju syngja. Kaffisopi eftir
messu.
LAUGARNESKIRKJA: Fullorðinsfræðsla
kl. 19. Samvinna um prédikun, þar sem
sr. Bjarni Karlsson leiðir umræður um pré-
dikunarefni dagsins. Sumarmessa kl. 20,
þar sem gert er ráð fyrir öllum aldri. Geir-
laugur Sigurbjörnsson annast barnagæslu
meðan á prédikun og altarisgöngu stend-
ur. Kór Laugarneskirkju leiðir safn-
aðarsöng undir stjórn Gunnars Gunn-
arssonar. Sr. Bjarni Karlsson þjónar.
Sigurvin Jónsson gefur trúarvitnisburð
sinn. Meðhjálpari er Sigurbjörn Þorkels-
son. Messukaffi Sigríðar Finnbogadóttur
bíður svo allra í safnaðarheimilinu. Fram
til sunnudagsins 18. ágúst er sumarfrí
safnaðarins. Áskirkja stendur okkur opin
á meðan.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Kór Neskirkju
syngur. Organisti Reynir Jónasson. Prest-
ur sr. Örn Bárður Jónsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Kirkjan verður
opin til kyrrðar og fyrirbæna frá kl. 10:30–
12. Kirkjuvörður.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Í guðsþjónustunni verða sagð-
ar sögur, sungnir hressilegir söngvar og
von er á Sollu brúðu í heimsókn. Umsjón
hafa Sigrún Óskarsdóttir prestur og Mar-
grét Ólöf Magnúsdóttir æskulýðsfulltrúi.
Jón Ólafur Sigurðsson organisti sér um
undirleik og félagar úr kór Árbæjarkirkju
leiða sönginn en allir eru hvattir til að taka
virkan þátt. Félagar og leiðtogar æsku-
lýðsfélagsins Lúkasar grilla pylsur að
guðsþjónustu lokinni og vonast er til að
ungir jafnt sem aldnir sjái sér fært að
staldra við og borða saman léttan hádeg-
isverð. Pylsa og gos kosta 200 krónur. Öll-
um verður boðið upp á smáglaðning í eft-
irrétt. Fjölmennum í sumarstemmningu!
Prestar og starfsfólk Árbæjarkirkju.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Kirkjan verður lokuð
vegna sumarleyfa starfsfólks til 10.
ágúst. Bent er á guðsþjónustur í öðrum
kirkjum prófastsdæmisins.
DIGRANESKIRKJA: Kvöldmessa kl.
20.30. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson.
Gospelbandið Upendo leikur undir söng
og flytur nokkur lög.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Kirkjan verður
lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks til 10.
ágúst. Bent er á guðsþjónustur í öðrum
kirkjum prófastsdæmisins.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju
syngur. Organisti: Ester Ólafsdóttir. Eftir
guðsþjónustu verður opnuð í Grafarvogs-
kirkju sýningin Spunnið úr trúartáknum.
Sýningin mun standa til 18. ágúst nk.
Kaffi og kleinur eftir messu.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta fellur niður
sunnudaginn 14. júlí vegna sumarleyfa
starfsfólks. Bent er á guðsþjónustur í öðr-
um kirkjum Kópavogs. Bænastundir eru
áfram á þriðjudögum kl. 18. Sr. Íris Krist-
jánsdóttir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja og
leiða safnaðarsöng. Organisti Julian Hew-
lett. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20. Sr.
Bolli Pétur Bollason prédikar. Organisti er
Guðný Einarsdóttir. Altarisganga.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Samkoma
fellur niður vegna sumarferðalags safn-
aðarins.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur: Kl.
19.30 bænastund. Kl. 20 hjálpræð-
issamkoma í umsjón majórs Elsabetar
Daníelsdóttur.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl. 20:00.
Ræðumaður Vörður L. Traustason. Skírn-
arsamkoma. Lofgjörðarhópur Fíladelfíu
syngur. Allir hjartanlega velkomnir.
KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma
sunnudag kl. 14. Helga R. Ármannsdóttir
talar. Bænastund fyrir samkomu kl.
13.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Barnagæsla
fyrir 1–7 ára börn. Eftir samkomu verða
seldar grillaðar pylsur í stað kaffi-
meðlætis. Þriðjud.: Bænastund kl. 20.30.
Miðvikud.: Samverustund unga fólksins
kl. 20.30. Mikil lofgjörð og orð Guðs rætt.
Allir velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma
kl. 17. Yfirskriftin er: Ekki alveg skuldlaus.
Ólafur Jóhannsson talar. Allir hjartanlega
velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti,
dómkirkja og basilíka: Sunnudaga: Há-
messa kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18.
Alla virka daga: Messa kl. 18. Laugardag-
inn 20. júlí Þorláksmessa á sumri. Við
minnumst þess, að árið 1198 voru helgir
dómar dýrlingsins teknir upp og skrínlagð-
ir í Skálholtsdómkirkju. Hátíðarmessa er
kl. 14. Að henni lokinni er öllum kirkju-
gestum boðið í kaffi og veitingar í safn-
aðarheimilinu í tilefni 85 ára afmælis sr.
Húberts Oremus í dag.
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga:
Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.
Miðvikudaga kl. 20.
Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Frá júlí til september
fellur messan á miðvikudögum kl. 18.30
niður.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14. Fimmtudaga:
Skriftir kl. 19.30. Bænastund kl. 20.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Laug-
ardaga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 11
messa með altarisgöngu.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti Jónas
Þórir. Jón Þorsteinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Natalía Chow. Prestur sr.
Þórhildur Ólafs.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Sum-
arguðsþjónusta sunnudagskvöldið 14. júlí
k. 20. Kirkjukór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Úlriks Ólasonar. Allir velkomn-
ir. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Guðsþjónusta
kl. 11. Fermdur verður Friðrik Kristjánsson
sem búsettur er erlendis. Organisti Þóra
Guðmundsdóttir. Prestur Sigríður Kristín
Helgadóttir.
VÍDALÍNSKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta kl.
20.30. Athugið breyttan tíma! Kirkjukórinn
leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti
Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Friðrik J. Hjartar
þjónar. Ljúkið helginni í friðsæld kirkj-
unnar. Frátekið fyrir þig. Prestarnir.
NJARÐVÍKURKIRKJA: (Innri-Njarðvík).
Guðsþjónusta sunnudag kl. 20 og verður
stuðst við lesformið. Sóknarprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Hið árlega kirkjumót
verður haldið á púttvellinum nk. sunnu-
dag. Mótið hefst kl. 13 með helgistund.
Að henni lokinni verður keppt í öllum ald-
ursflokkum. Boðið verður upp á kaffiveit-
ingar í Kirkjulundi að móti loknu. Prestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl.
11. Léttur hádegisverður að messu lok-
inni. Morguntíð sungin þriðjudag til föstu-
dags kl. 10. Kaffisopi að henni lokinni.
Foreldrasamvera miðvikudag kl. 11. Sókn-
arprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Orgelstund kl.
20. Jörg E. Sondermann leikur tónlist frá
rómantíska tímabilinu.
STÓRA-NÚPSPRESTAKALL:
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Messa kl.
11. Guðspjallstexti: Jesús mettar fjórar
þúsundir manna. (Mark. 8). Orgelleikari
Nína María Morávek.
Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa verður
sunnudag 14. júlí kl. 17. Sr. Guðmundur
Óli Ólafsson annast prestsþjónustuna. Í
messunni verður flutt tónlist frá sumartón-
leikum helgarinnar. Sóknarprestur.
UNAÐSDALSKIRKJA: Guðsþjónusta 14.
júlí kl. 11. Sr. Magnús Erlingsson.
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Félagar
úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti
Björn Steinar Sólbergsson. Sum-
artónleikar kl. 17. Björn Steinar Sólbergs-
son leikur á orgel verk eftir Duruflé. Að-
gangur ókeypis.
GLERÁRKIRKJA: Kvöldhelgistund verður í
kirkjunni kl. 21.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu-
dagur: Kl. 19.30 bæn. Kl. 20 almenn
samkoma. Ræðumaður Ann Merethe Jak-
obsen. Allir hjartanlega velkomnir.
EIÐAPRESTAKALL: Bakkagerðiskirkja:
Messa kl. 11. Eiðakirkja: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Allir velkomnir. Sókn-
arprestur.
Guðspjall dagsins: Jes-
ús mettar 4 þúsundir
manna.
(Mark. 8.)
Morgunblaðið/Ómar
Elsku hjartans
mamma mín og besta
vinkona. Ég kveð þig
með söknuð í hjarta.
Hvernig get ég út-
skýrt hversu mikils
virði þú hefur alltaf verið mér, þú
varst alltaf besta vinkona mín.
Minningarnar eru margar og er ég
þeim þakklát. Það voru margar
glaðar stundir þegar við áttum
heima á Ísafirði, ég man þegar þú
fórst á morgnana niður í kjallara
til að setja kol í miðstöðina til að
hita upp húsið svo okkur yrði ekki
kalt. Síðan færðir þú okkur morg-
unmat í rúmið og klæddir mig
undir sænginni svo mér yrði ekki
kalt. Ég man þegar þú fótbrotn-
aðir en samt fórstu að vinna um
kvöldið. Daginn eftir fórum við
Pétur frændi með þig upp á
sjúkrahús. Ég man hversu mikið
þú hlóst þegar þú sást þvottinn
sem ég þvoði fyrir þig. Hann var í
öllum litum og stærðum. Ég man
líka erfiðleikana, en þú sigraðir þá
eins og annað. Ég man daginn sem
ég varð móðir og þú hjálpaðir mér
að taka á móti syni mínum.
Ég man þegar ég flutti til
Reykjavíkur og pabbi kom að
heimsækja mig. Ég bauð honum
upp á hafragraut og hann spurði
hvort ég eldaði oft hafragraut.
Þegar ég sagði já við því ráðlagði
hann mér að hafa samband við þig.
Það var mikið hlegið að þessu.
Þegar þú og pabbi fluttu til
Reykjavíkur bjuggum við öll sam-
an á ný. Við fórum í margar helg-
arferðir sem voru yndislegar. Dag-
urinn sem ég flutti til Ameríku
1966 var erfiður fyrir okkur öll en
tíminn læknar öll sár. Ég man
hversu glöð við vorum þegar þú
komst í fyrstu heimsóknina til mín
í Ameríku. Við ferðuðumst víða og
það myndaðist gott samband milli
þín og Tony, mannsins míns. Tony
sagði öllum hversu góða tengda-
móður hann ætti. Það var mikil
gleði og stolt þegar við Tony eign-
uðumst dóttir og við gátum skírt
hana í höfuðið á þér. Þú hvattir
mig að tala við börnin á íslensku.
Það gerði ég, mamma mín.
Þú varst myndarleg í öllu sem
BJÖRG
JÓNSDÓTTIR
✝ Björg Eggert-stína Jónsdóttir
fæddist í Hvammi við
Dýrafjörð 25. ágúst
1905. Hún lést á
Droplaugarstöðum
9. júní síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Háteigs-
kirkju 18. júní.
þú gerðir. Handavinn-
an þín bar af, hvort
sem það var að sauma
út eða prjóna. Þú
varst trúr vinur og
gjafmild. Á 96 ára af-
mælisdaginn þinn sl.
sumar útvegaði Garð-
ar sonur minn harm-
onikkuleikara. Þú
varst svo glöð.
Mamma mín, ég veit
að þú myndir vilja að
ég þakkaði Svövu
Guðbergsdóttur fyrir
að vera trygg vinkona
þín í meira en 70 ár.
Einnig þakka ég Erlu Friðjóns-
dóttur. Guð blessi ykkur. Elsku
hjartans mamma, ég bið Guð að
vera með þér og leiða þig í nýja
landinu.
Þín elskandi dóttir,
Björg Hinriksdóttir
Vacchiano.
Kæra amma. Það er svo margt
sem ég vildi segja þér og ég vona
að þú heyrir í mér. Það er svo
margt sem við gerðum saman og
ég mun aldrei gleyma. Þegar ég
var lítil kom ég venjulega til þín
rétt fyrir háttatíma og fékk að
skríða upp í til þín. Þó að rúmið
þitt væri lítið var dúnsængin þín
alltaf svo hlý og alltaf sofnaði ég
hjá þér.
Þó ég sé orðin fullorðin, þá er
svo margt sem ég vildi sýna þér og
sanna mig fyrir þér. Það er svo
margt sem ég gæti sýnt þér.
Ég mun alltaf muna ráðin sem
þú gafst mér, sérstaklega þegar
þú dvaldir hjá okkur í Bandaríkj-
unum. Þú sagðir mér að leggja
áherslu á eigin staðfestu og hug-
rekki. Þú sýndir mér fram á margt
sem fólk þarf að búa við og ég
lærði af þér. Ég get ekki dæmt um
áhrif þín á líf mitt en þau eru mjög
jákvæð og ég vonast til að geta
deilt þeim með komandi kynslóð-
um. Ég lærði af þér að ekkert get-
ur komið í veg fyrir að ég eflist,
hversu erfitt sem lífið er. Satt best
að segja er lífið erfitt eftir að þú
fórst en ég er að eflast. Ég lofaði
þér að þú yrðir alltaf hreykin af
mér og ég mun standa við það.
Þú kenndir mér að ég get allt og
mér hefur farnast vel á því sér-
staklega á erfiðleikatímum. Amma,
þú hefur alltaf verið boðberi
styrks, staðfestu og samúðar. Ég
elska þig og þakka fyrir áhrifin á
líf mitt. Þú hefur haft meiri áhrif á
þinni mannsævi en flestir aðrir og
sérstaklega þá breyttir þú lífi
mínu til hins betra.
Björg Maria Vacchiano.
Elsku langamma, mig langaði að
segja þér að ég elska þig áður en
þú fórst. Alltaf þegar ég labbaði
inn í eldhúsið hjá þér þá man ég
þegar þú mataðir mig og kenndir
mér bænirnar og við sungum
„Hannah er lagin að leika við
strákana og hún labbar út í bæinn
með krullulokkana“ og við sungum
margt annað. Við sungum mikið og
ég man ég að við vorum mestu
pakkarnir. Ég sakna þín svo mikið.
Ég veit að þú ert að horfa á mig
en ég sé þig ekki. Það gengur vel í
fótboltanum.
Ég elska þig.
Hannah Björg Ottesen.