Morgunblaðið - 13.07.2002, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 45
DAGBÓK
Raðhús - Víkurhverfi
Vönduð og vel skipulögð 190 fm raðhús á einni hæð í Víkurhverfi,
Grafarvogi. 4 svefnherbergi. Bílskúr. Tvö af raðhúsunum eru með
tvöfaldan bílskúr. Byggingaraðili er Hrauntún ehf.
Upplýsingar í símum 896 1606 og 557 7060.
Árnað heilla
75 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 13.
júlí, er 75 ára Sigríður B.
Kolbeins, Ásholti 32,
Reykjavík. Hún dvelst á
sjúkrahúsinu á Sauðár-
króki.
40 ÁRA afmæli. Nk.mánudag, 15. júlí,
er fertug Ólöf Ingibjörg
Steinarsdóttir, Hvassa-
leiti 6, Reykjavík. Hún
tekur á móti gestum í sum-
arbústað sínum á Þingvöll-
um í dag, laugardaginn 13.
júlí, kl. 17.
LJÓÐABROT
STÖKUR
Margur rakki að mána gó,
mest þegar skein í heiði,
en eg sá hann aldrei þó
aftra sínu skeiði.
Hryssu tjón ei hrellir oss,
hress er eg, þó dræpist ess;
missa gjörði margur hross;
messað get eg vegna þess.
Jón Þorláksson
1. d4 Rf6 2. c4 d6 3. Rc3 e5
4. Rf3 Rbd7 5. g3 Be7 6.
Bg2 0–0 7. 0–0 c6 8. Dc2
De8 9. b3 Hb8 10. Hd1 b5
11. c5 b4 12. cxd6 Bxd6 13.
Ra4 De7 14. Bg5 Ba6 15.
dxe5 Rxe5 16.
Rd4 Hbd8 17.
Rf5 De6 18.
Rxd6 Hxd6 19.
Rc5 Hxd1+ 20.
Hxd1 Dc8 21.
Bxf6 gxf6 22.
Be4 Bb5 23.
Bxh7+ Kg7 24.
Bf5 De8 25. f4
Rg6 26. e4 Re7
27. Bh3 Hh8 28.
Kg2 Hh6 29. Bd7
Dh8 30. h4 Hg6
31. Hh1 Dh5 32.
f5 Be2 33. Kh2
Staðan kom
upp á EM kvenna sem
lauk fyrir nokkru í Varna í
Búlgaríu. Hin sókndjarfa
Ekaterina Kovalevskaya
(2.482) hafði svart gegn
Elena Zaiatz (2.346). 33.
… Hxg3! 34. Kxg3 Df3+
35. Kh2 Df2+ 36. Kh3
Bg4+ og hvítur gafst upp
enda verður hann drottn-
ingu undir.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
HVENÆR á að trompa út
og hvenær ekki? Þetta stef
var nokkuð til umræðu í síð-
asta mánuði og niðurstaðan
var í grófum dráttum þessi
– trompútspil eru rétt þegar
þau eru rétt! Pólverjinn
Lesniewski hitti á rétta and-
artakið til að trompa út í
þessu spili:
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♠ G5
♥ D9
♦ ÁD43
♣G9854
Vestur Austur
♠ D7 ♠ K10964
♥ 72 ♥ G65
♦ K10972 ♦ 65
♣ÁD73 ♣1042
Suður
♠ Á832
♥ ÁK10843
♦ G8
♣K
Í töluleik Búlgara og Pól-
verja í 10. umferð EM varð
Búlgarinn Kalin Karaiv-
anov sagnhafi í fjórum
hjörtum eftir þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
Lesn. Trendaf. Martens Karaiv.
-- -- -- 1 hjarta
Pass 1 grand Pass 2 spaðar
Pass 4 hjörtu Allir pass
Á hinu borðinu hafði Pól-
verjinn Balicki spilað þrjú
grönd í suður og tekið tíu
slagi eftir útspil í laufi.
Fjögur hjörtu sýnist þó
vera eðlilegri samingur og
auðunninn ef ekki kemur út
tromp. En Lesniewski hitti
á tromp út og Karaivanov
varð að vanda sig til að ná í
tíu slagi.
Hann tók útspilið heima
og spilaði strax laufkóng.
Vestur drap og trompaði
aftur út og Karaivanov not-
aði innkomu blinds á tromp-
drottningu til að spila lauf-
gosa og henda spaða heima.
Lesniewski fékk slaginn á
laufdrottningu og skipti yfir
í spaðadrottningu. Sagnhafi
dúkkaði, en tók næsta slag á
spaðaásinn, tók þriðja
trompið og spilaði tígulgosa.
Af einhverjum torskildum
ástæðum setti Lesniewski
lítinn tígul, svo að gosinn
átti slaginn og drottningin
þann næsta. En spilið var
unnið, samt sem áður. Ef
vestur leggur kónginn á tíg-
ulgosann, trompar sagnhafi
út lauftíuna og fær alla slag-
ina sem eftir eru.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir staðfestu, hug-
rekki og þori og tekst á við
krefjandi verkefni með gleði.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dagurinn í dag markar upp-
haf líflegs tímabil sem varir
næstu vikur. Gríptu tækifærið
og skipuleggðu frí eða
skemmtanir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ættir að gera áætlanir um
endurbætur á heimilinu. Þú
skalt gera ráð fyrir því að
næsta mánuð ríki skipulögð
ringulreið á heimilinu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Í dag munt þú taka eftir því að
þú ert smátt og smátt að verða
miðpunktur athygli. Það veitir
þér kjark og sjálfstraust til að
hrífa aðra með þér og kenna
þeim eitthvað gagnlegt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er líklegt að þú munir
þurfa að eyða meiri peningum
á næstunni. Til allrar ham-
ingju eru áætlanir um aukna
fjáröflun einnig að ganga eftir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Mars er kominn í merki þitt
og það eykur þér líkamlega
orku á næstu vikum. Það er
nauðsynlegt að þú takir meira
á líkamlega til að fá heilbrigða
útrás fyrir þessa orku.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Venus er í þínu merki um
þessar mundir og því geta fáir
staðist töfra þína. Notaðu
þetta tækifæri til að bæta
sambandið við þá sem þér eru
kærir.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Félagslífið stendur með mikl-
um blóma um þessar mundir.
Gerðu þér far um að umgang-
ast fólk því aðrir taka eftir þér
og vinir þínir vilja umgangast
þig.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þrátt fyrir að þú viljir losna úr
viðjum vanans er metnaðar-
girnd þín vakin. Reyndu að
grípa tækifærin til að koma
þér áfram, einkum í tengslum
við starfið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Gjafir og utanaðkomandi að-
stoð gera þér kleift að fara í
langþráða ferð. Þú hefur gam-
an af ferðalögum og því skaltu
þiggja öll boð sem þér berast.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það kemur aukinn þungi í
samband sem þú átt við aðra,
einkum þó rómantískt sam-
band. Þú finnur fyrir ástríðu,
kynþokka og ánægju.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú vilt skipuleggja umhverfi
þitt en um leið kannt þú að fá
félaga þinn eða einhvern ná-
kominn upp á móti þér. Gerðu
þér far um að halda jafnvæg-
inu milli persónulegra mark-
miða og tengsla þinna við
aðra.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gleði, rómantík, ánægja og
hvers kyns skemmtanir ráða
ríkjum í dag. Reyndu að
gleðja einhvern nákominn
með einhverjum hætti sem
veitir ykkur báðum ánægju.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Ljósmynd/Sigríður Bachmann
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 27. maí sl. Anna
Ragna Magnúsdóttir og Vil-
hjálmur Þorsteinsson.
Heimili þeirra er á Bauga-
tanga 6 í Reykjavík.
Morgunblaðið/Sverrir
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 1.650 kr. til styrktar
Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Þær heita
Bjarndís Sjöfn Blandon og Helga Rut Steinsdóttir.
Hlutavelta
Það er ekkert í sjónvarpinu
sem hægt er að hafa gaman
af. Eigum við ekki að ná í
gömlu ástarbréfin?
Smælki
KIRKJUSTARF
VIÐ erum í sumarskapi og ætlum
að gleðjast saman. Sunnudaginn 14.
júlí eru ungir sem aldnir Árbæing-
ar og allir sem áhuga hafa hvattir
til að koma í kirkju.
Við komum saman í kirkjunni kl.
11. Þar verða sungnir gömlu góðu
sunnudagsskólasöngvarnir og ein-
hverjum nýjum jafnvel bætt við. Fé-
lagar úr kirkjukórnum verða til
halds og trausts en að sjálfsögðu er
vonast til almennrar þátttöku í
söngnum. Organisti verður Jón
Ólafur Sigurðsson. Sagðar verða
biblíusögur, við förum með bænir
og von er á brúðunni Sollu. Margrét
Ólöf Magnúsdóttir æskulýðsfulltrúi
og Sigrún Óskarsdóttir prestur
hafa umsjón með stundinni. Leið-
togar og félagar æskulýðsfélagsins
Lúkasar verða tilbúnir við grillið
þegar guðsþjónustu lýkur og seldar
verða pylsur og gos á 200 kr. Boðið
uppá glaðning í eftirrétt.
Vonumst til að eiga saman
ánægjulega stund í sumarskapi.
Starfsfólk og prestar
Árbæjarkirkju.
Haraldur Ólafsson
kristniboði í Hall-
grímskirkju
VIÐ guðsþjónustu í Hallgríms-
kirkju næstkomandi sunnudag kl.
11 mun Haraldur Ólafsson kristni-
boði prédika.
Haraldur var í fjöldamörg ár
kristniboði í Eþíópíu og vann þar
m.a. að þýðingu Nýja testament-
isins á mál Borana-þjóðflokksins.
Þá hefur hann unnið mikið að hjálp-
arstarfi í Eþíópíu á vegum Hjálp-
arstarfs kirkjunnar í Noregi.
Haraldur er sonur hjónanna Her-
borgar og Ólafs Ólafssonar sem
störfuðu sem kristniboðar í Kína í
14 ár og bróðir Jóhannesar Ólafs-
sonar kristniboðslæknis sem lengi
starfaði sem læknir í Suður-
Eþíópíu.
Guðsþjónustan er í umsjá séra
Sigurðar Pálssonar.
Helgistund í Hrísey
Á SUNNUDAGINN verður helgi-
stund í Hrísey kl. 14.30 í bisk-
upshalla. Tilefnið er að 800 ár eru
liðin frá því sr. Guðmundur góði
Arason messaði í Hrísey.
Í helgistundinni mun sr. Sigurður
Guðmundsson, vígslubiskup
Hólabiskupsdæmis, predika og
þjóna ásamt sóknarpresti, sr. Huldu
Hrönn M. Helgadóttur. Ásgeir Hall-
dórsson málarameistari mun rekja
sögu sr. Guðmundar góða og Þor-
steinn Þorsteinsson fugla-
áhugamaður mun segja frá örnefn-
um og staðháttum. Kirkjukór
Hríseyjarkirkju mun syngja undir
stjórn Arnórs Brynjars Vilbergs-
sonar organista.
Fjölskylduguðs-
þjónusta og
grillveisla í
Árbæjarkirkju
Morgunblaðið/Jim Smart
Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar kl. 12.
Halgeir Schiager frá Noregi leikur á org-
elið.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9, Kópa-
vogi. Samkoma í dag kl. 11–12.30. Lof-
gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu-
fræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir,
spurt og svarað. Á laugardögum starfa
barna- og unglingadeildir. Létt hressing
eftir samkomuna. Allir hjartanlega vel-
komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl.
10, 13 og 22 á FM 105,5.
Safnaðarstarf