Morgunblaðið - 17.07.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.07.2002, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2002 37 GRASAFRÆÐIN er alltaf að breytast eins og nafnið á þessari grein á að gefa í skyn. Menn eru stöðugt að breyta nöfnum á jurt- um og jafnvel færa þær til innan ætta, búa til nýjar ættir eða ættkvíslir og sameina aðrar. Hnoðrarnir eru meðal þeirra blómpl- antna sem hafa orðið fyrir þessari upp- stokkun. Reyndar til- heyra þeir ennþá sömu ætt, hellu- hnoðraættinni, sem á latínu heitir Crassulaceae, en hnoðraættkvíslinni hefur verið skipt upp í Sedum og Rhodiola, sem á að kalla hnoðra og svæflur á því ást- kæra ylhýra máli, sem er öllum tungum fegurra. Einhvern veginn held ég nú samt að við notum öll hnoðranafnið, a.m.k. svona hvers- dags, það er þá helst ef við viljum slá eitthvað um okkur, sem við tölum um svæflur. Helluhnoðraættin er mjög stór, bara hnoðrarnir telja meira en 500 tegundir og þeir vaxa á norðurhveli jarðar. Hnoðrarnir, eins og flestar aðrar plöntur af hellu- hnoðraættinni, eru yf- irleitt þykkblöðungar, en með því er átt við að laufblöðin séu þykk og safamikil með þykka yfirhúð, sem hindrar uppgufun úr blöðun- um. Laufblöðin eru stakstæð en eru oft svo þétt að þau mynda hvirfingar eða breiður. Blómstönglarnir lyfta sér síðan upp úr breið- unni, stöngullinn er settur blöðum og blóm- in sitja í þéttum sveip- um eða skúfum á stöngulendanum. Hvert blóm er 5-skipt, þ.e. hefur fimm bikarblöð og krónublöð, 10 fræfla og 5-skipta frævu (5 frævur). Krónublöðin eru oftast oddmjó og útbreidd og mynda þannig fallega stjörnu, en hjá sumum hnoðrum eru blómin það lítið opin, að þau verða klukkulaga. Þótt hvert blóm um sig sé lítið fyrirferðar standa þau svo þétt í blómskipuninni, að þau verða mjög áberandi. Um þau gildir þann- ig hið gamla spakmæli „sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér“. Blómlitir hnoðranna eru hvítir, gul- ir, bleikir og rósrauðir og frævan verður oft rauðleit, þegar hún þroskast og eykur þannig á litskrúð blómanna. Þótt mikill hluti hnoðr- anna eigi heimkynni sín í heitum löndum eru nokkrar tegundir sem vaxa villtar á Norðurlöndum og meira að segja á Íslandi. Ég var í hópi þeirra heppnu barna, sem voru í sveit á sumrin, og þá vaknaði áhugi minn á gróðri. Húsbóndinn var vel að sér í grasa- fræði og gat frætt mig um heiti á öll- um þeim blómum, sem ég kom með til hans. Meðal þeirra voru burnirót- in, helluhnoðrinn og meyjaraugað. Heima var til bók Áskels Löve Ís- lenzkar jurtir og þar fletti ég upp á þessum blómum. Þar kynntist ég latnesku nöfnunum og öll hétu þau Sedum eitthvað og þar að auki var til fjórði íslenski hnoðrinn, sem var bara einær, en allir hinir voru fjöl- ærir. Þessi hnoðri heitir skriðu- hnoðri og er algengastur sunnan- og vestanlands, en finnst líka á Aust- fjörðum og Eyjafjarðarsvæðinu. Þótt íslensku hnoðrarnir séu að- eins fjórir hafa þeir sannarlega fengið að kenna á nafnabreytingum. Meyjaraugað er núna yfirleitt kallað flagahnoðri, enda finnst mörgum meyjarauga-nafnið ankanalegt á bleiku blómi, sem verður dökkrautt, þegar aldinið þroskast. Það væri þá helst að meyjan væri í ástarsorg og væri búin að gráta lengi og orðin rauðeygð af harmi. Burnirótin ber mörg heiti á ís- lensku, sem sýnir að hún hefur þótt mesta nytsemdarplanta. Hún er af- bragðs góð beitarjurt, þannig að þar sem sauðfjárbeit er finnst burnirót- in aðeins í klettum þar sem blessuð sauðkindin kemst ekki að. Burnirót- in eða burnin, eins og hún er oft köll- uð, er líka kölluð blóðrót og svæfla og henni eignaðar margvíslegar náttúrur og á að vera allra meina bót, ef marka má það sem Björn Halldórsson í Sauðlauksdal skrifaði í Grasnytjum 1776. Og það var ein- mitt það, burnirótin er líka kölluð svæfla. Aumingja burnin hefur verið rekin úr fjölskyldu sinni, Sedum, og sett í aðra, Rhodiola, sem heitir svæflur á íslensku, vegna burnirót- arinnar auðvitað. Burnin er mjög skemmtileg garð- planta, en það er helluhnoðrinn líka. Helluhnoðrinn hefur ekki orðið fyrir neinum nafnbreytingum, enda má nú fyrr rota en dauðrota, ættin er kennd við hann. Helluhnoðrinn elsk- ar sól og grjót og kann best við sig í magurri jörð, þar sem vatn hripar burtu. Hann er mjög lágvaxinn, varla meira en 5 cm frá jörðu. Blóm- stönglarnir enda í fagurgulum stórum blómsveipum, gulum stjörn- um, sem geta alveg þakið plöntuna. Þá sést ekki munurinn á hellu- hnoðra og skriðuhnoðra. Hjá skriðu- hnoðranum endar hver einasti stöngull í blómum en helluhnoðrinn er með fjölmarga stöngla, sem bera einungis þéttar blágrænar blað- hvirfingar. Helluhnoðrinn verður kannski ekki mjög langlífur í görð- um, en það er auðvelt að koma hon- um til, þar sem hver einasta blað- hvirfing getur skotið rótum. Helluhnoðrinn er miðsumarblóm eins og mjög margir hnoðrar. Hann blómgast einkum í júlí-ágúst, þótt hann fari auðvitað fyrr af stað sé sumarið sólríkt. S.Hj. VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r 476. þáttur HNOÐRAR – SEDUM EÐA RHODIOLA? Helluhnoðri, fallegur jafnt í görðum sem á víðavangi. Íslenskir hnoðrar ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Fosshótel Starfskraft vantar í almenn störf tímabundið, á sumarhótel á landsbyggðinni. Upplýsingar í síma 562 4000 eða biðjið um um- sóknarblöð á renato@fosshotel.is .   Nuddara vantar í heilsdags- og hálfsdags- störf á nýja nuddstofu í Grafarvogi. Upplýsingar í s. 567 6708 eða 862 0212. DDF Vátryggingamiðlun er útibú frá Den Danske Forsikringsmægler ApS sem hefur hafið störf á Íslandi. Tryggingaráðgjafar Starfið felur í sér sölu á líftryggingum, sjúk- dómatryggingum, sparnaðarleiðum og viðbót- arsparnaði í lífeyrissjóð. Starfskröfur: Færni í mannlegum samskiptum, faglegum og skipulögðum vinnubrögðum. Uppl. gefnar á skrifstofu félagsins á Reykjavík- urvegi 60, Hafnarfirði, eða í síma 555 6010. Kennsla Auglýst er til umsóknar kennsla í eftirfarandi greinum við Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá 1. ágúst: ■ Myndlist — ½ staða. ■ Saga — ½ staða. ■ SAM — 10 tímar ■ Sérgreinar Upplýsinga- og fjölmiðla- brautar — 20 tímar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum framhaldsskólakennara. Ekki er nauðsynlegt að skila inn umsóknum á sérstöku eyðblaði. Frekari upplýsingar um störf þessi veitir Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólameistari (olijon@fss.is), í síma 421 3100 eða 894 6046. Umsóknir þurfa að berast skólameistara fyrir 24. júlí 2002. Skólameistari. R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Verslunarhúsnæði til leigu á besta stað við Laugaveg 82, 109.4 fm horn- hús. Mikið af bílastæðum. Húsið var byggt í upphafi sem verslun. Mikil lofthæð. Björt húsa- kynni. Skammtíma leiga kemur til greina þó ekki skemur en í 10 mán. Húsnæðið er til sýnis á opnunartíma. Nánari uppl. gefur Sigurður í símum 551 5575 og 660 6618. FYRIRTÆKI Snyrtifræðingar Atvinnutækifæri Viltu hefja þinn eigin rekstur? Frábært tækifæri. Upplýsingar í síma 698 7277. NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Heiðarvegur 9a, neðri hæð, þingl. eig. skv. kaupsamningi V.M. Vegg- efni ehf., afsalshafar, Sjöfn Kolbrún Benónýsdóttir og Sigmar Gísla- son, gerðarbeiðandi Sparisjóður Vestmannaeyja, miðvikudaginn 24. júlí 2002 kl. 14.30. Heimagata 28, efri hæð og ris, þingl. eig. Ósvald Alexander Tórsham- ar og Ágústa Salbjörg Ágústsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóð- ur, Íslandsbanki-FBA hf., Kreditkort hf. og Landssími Íslands hf., inn- heimta, miðvikudaginn 24. júlí 2002 kl. 14.00. Heimagata 28, neðri hæð, þingl. eig. Ósvald Alexander Tórshamar og Ágústa Salbjörg Ágústsdóttir, gerðarbeiðendur Kreditkort hf. og Landsbanki Íslands hf., höfuðst., miðvikudaginn 24. júlí 2002 kl. 14.10. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum, 4. júlí 2002. Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Miðvikud. 17. júlí. Hellaskoð- unarferð með Hellaskoðun- arrannsóknafélagi Íslands. Brottför frá BSÍ og Mörkinni 6 kl. 19:30. Verð kr. 1.200/1.500. 21. júlí, sunnud: Dyravegur — forn þjóðleið vestan Heng- ils, afmælisferð, munið stimpl- ana. Gengið af Svínahraunsvegi um Marardal og Dyr að Nesja- völlum. Um 200 m hækkun, 4—5 klst. ganga. Verð kr. 1.500/1.800. Önnur Laugavegsganga — 18. júlí (uppselt), þriðja Lauga- vegsganga 19. júlí (uppselt), fjórða Laugavegsganga 20. júlí, nokkur sæti laus. Kjalvegur 17.—21. júlí, 3 sæti laus. Bolungarvík — Reykjarfjörð- ur 17.—26. júlí. Fimmvörðu- háls 19. júlí, Kerlingarfjöll 20. júlí (ný ferð). www.fi.is og bls. 619 í texta- varpi RUV, sími á skrifstofu 568 2533. 17. júlí. Reykjadalur. Brottför á eigin bílum kl. 18:30 frá skrif- stofu Útivistar. Ekkert þátttöku- gjald. 19.—22. júlí. Sveinstindur — Skælingar. Trússferð. Farar- stjóri: Steinar Frímannsson. UPP- SELT. 19.—21. júlí. HJÓLAFERÐ Hvanngil — Strútslaug — Skaftártunga. Trússferð. Brott- för frá BSÍ kl. 20:00. Verð kr. 17.900/20.400. Fararstjóri: Magn- ús Andrésson. 19.—21. júlí. JEPPAFERÐ Ör- æfaferð — Fjallabak. Verð kr. 7.400/8.400. Fararstjóri: Guðrún Inga Bjarnadóttir. 19.—21. júlí. Að Fjallabaki: Laugar — Eldgjá — Rauði- botn. Gist í Landmannalaugum og í Álftavötnum. Rútu- og skoð- unarferð. Brottför frá BSÍ kl. 20:00. Verð kr. 13.300/15.100. 19.—21. júlí. Jökuldalir — Illa- gil — Muggudalir — Strúts- laug. Gist í Landmannalaugum og Hvanngili. Gönguferð og gist í tjöldum. Brottför frá BSÍ kl. 20:00. Verð kr. 11.900/13.500. 20.—23. júlí. Sveinstindur — Skælingar. Fararstjóri: Oddur Friðriksson uppselt. 20.—25. júlí. Víknaslóðir — Borgarfjörður eystri. Matur innifalinn. Brottför kl. 10:00 frá Borgarfirði eystri. Verð kr. 43.000/47.900. 21. júlí. Leggjabrjótur frá Þingvöllum. Brottför kl. 10:30 frá BSÍ. Verð kr. 1.800 fyrir fé- laga/2.100 fyrir aðra. Fararstjóri: Tómas Þ. Rögnvaldsson. 21. júlí. Glymur. Brottför kl. 10:30 frá BSÍ. Verð kr. 1.800 fyrir félaga/2.100 fyrir aðra. Farar- stjóri: Anna Soffía Óskarsdóttir. 23.—30. júlí. Hesteyri – Veiði- leysufjörður. Verð kr. 14.900/ 17.100. Brottför frá Ísafirði kl. 10:00. Fararstjóri: Gunnar Hólm Hjálmarsson. Örfá sæti laus. ATVINNUAUGLÝSINGAR sendist á augl@mbl.is mbl.is FASTEIGNIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.