Morgunblaðið - 17.07.2002, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 17.07.2002, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2002 43 DAGBÓK NOREGUR og Búlgaría mættust í 14. umferð EM og var leikurinn valinn til töflu- sýningar, enda báðar þjóðir í toppbaráttunni. Búlgarar unnu nauman sigur og mun- aði þar mestu um síðasta spil leiksins – þetta hér: Austur gefur; allir á hættu. Norður ♠ ÁDG853 ♥ ÁK876 ♦ 10 ♣4 Vestur Austur ♠ K62 ♠ 97 ♥ 9 ♥ D3 ♦ D98642 ♦ ÁKG73 ♣Á109 ♣8765 Suður ♠ 104 ♥ G10542 ♦ 5 ♣KDG32 Í lokaða salnum spiluðu Helness og Helgemo fjögur hjörtu í NS og tóku 11 slagi. Einfalt spil. En í opna saln- um gerðust „undur og stór- merki,“ eins og sagt var í mótsblaðinu: Vestur Norður Austur Suður Aa Karaiv. Grötheim Stamatov -- -- Pass 2 hjörtu Pass 2 grönd * Pass 3 lauf Pass 3 tíglar * Dobl 3 hjörtu 4 tíglar 4 grönd Pass 5 tíglar Pass 6 hjörtu Allir pass Karaivanov og Stamatov villtust upp í sex hjörtu eftir Tartan-opnun suðurs, sem sýndi veik spil með fimmlit í hjarta og láglit til hliðar. Karaivanov fór í rannsókar- leiðangur og fékk upp að makker ætti lauf og ekki al- vond spil. En Grötheim og Aa komust inn í sagnir og þegar Karaivanov ákvað loks að spyrja um lykilspil með fjórum gröndum, leit Stama- tov svo á að lauf væri sam- þykktur litur og sýndi einn „ás“ með fimm tíglum – nefnilega laufkónginn. Klaufaleg afgreiðsla, og auð- vitað hefði verið mun hrein- legra hjá norðri að stökkva beint í fjögur grönd við tveimur hjörtum. En nú fyrst fóru undrin að gerast. Aa kom út með tígul og Grötheim átti slaginn. Og spilaði TÍGLI aftur í tvöfalda eyðu!? Sagnhafi trompaði og henti laufi úr blindum og svínaði síðar fyrir spaða- kóng: 12 slagir og mjög óvæntir 13 IMPar til Búlg- ara. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake KRABBI Afmælisbörn dagsins: Þú býrð yfir metnaðargirni og sjálfsöryggi. Þrátt fyrir óskammfeilna hegðun þína oft og tíðum, þá tekurðu starfið alvarlega. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Rifrildi við maka eða ástvin, um peninga og sameiginlega ábyrgð, gæti dregið úr þér mátt í dag. Spurðu sjálfa(n) þig hvort rifrildið snúist í raun um peninga eða um eitt- hvað sem ekki hefur verið rætt. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þig átt í ágreiningi við ein- hvern varðandi útgjöld til heimilisins og fjölskyldunnar. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það vinnst ekkert með yfir- gangi þegar kemur að því að reyna að vinna einhvern á sitt band. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Rifrildi um peninga getur eyðilagt rómantíska stund í dag. Losaðu þig við óöryggið - sem fær þig til að vilja hafa stjórn á ástandinu - og slapp- aðu bara af. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Komdu þér út og hreyfðu þig í dag. Ekki leyfa þér að fara í fýlu, þá verðurðu ánægðari og umburðarlyndari gagn- vart fólkinu í kringum þig. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Aðlaðandi framkoma þín kann að vekja upp afbrýði hjá einhverjum. Horfðu fram hjá þessari manneskju - hvað geturðu annað gert? Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vinir þínir hvetja þig til eyðslusemi í dag. Þar sem þú hefur vanda til þjónkunar skaltu gæta þess að eyða ekki meiru en þér líður vel með. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Ekki vera of ýtin(n) þegar þú talar við yfirmann eða for- eldri í dag. Þú munt ná lengra með mildu orðalagi en reiði- lestri og þannig getur þú einnig komist hjá því að skapa fleiri vandamál. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Ævintýralöngun þín kann að knýja þig til að virða tilfinn- ingar annarra að vettugi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Umræður um það hvernig best sé að axla ábyrgð á öðr- um kunna að verða fullheitar í dag. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú verður fyrir vonbrigðum með náinn vin eða elskhuga og það varpar skugga á dag- inn. Slepptu tökunum á þess- ari hugsun því að þú getur ekki borið ábyrgð á gerðum annarra. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Létta lundin þín mun afla þér stuðnings og samvinnu á vinnustað. Hamingjan er smitandi - fólk vill alltaf vera nálægt þeim sem eru ham- ingjusamir. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT ÚR STELLURÍMUM ... Fyrst er sjón og svo er tal, svo kemur hýrlegt auga, síðan ástar fagurt fal freyju hefst við bauga ... Fleins þá týr og tvinnarós tengjast ástarþræði, fer sem kveikt sé ljós við ljós, er lögð eru saman bæði ... En þeir til fljóða áður ást ei hafa rennt af munni, fyrir þá eg finn það skást að fylgja náttúrunni. Sigurður Pétursson. Árnað heilla 50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 17. júlí, er fimmtug Margrét Gunnarsdóttir, Vestur- braut 8, Grindavík. Af því tilefni tekur hún og eigin- maður hennar, Eiríkur Tómasson, á móti ættingj- um og vinum kl. 18 laugar- daginn 20. júlí að Dalbrún 2, Reykholti, Biskupstungum. Morgunblaðið/Arnaldur Þessar duglegu stúlkur söfnuðu kr. 8.362 til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Þær heita Ást- hildur Ríkharðsdóttir og Þórdís Ólafsdóttir. Hlutavelta 1. e4 d6 2. d4 g6 3. Rc3 Bg7 4. Bg5 a6 5. Rf3 Bg4 6. Bc4 Rc6 7. h3 Bxf3 8. Dxf3 Bf6 9. Be3 e6 10. O-O-O Bg7 11. h4 h6 12. Dg3 h5 13. Bg5 Rce7 14. Re2 Dd7 15. Rf4 c6 16. Hhe1 d5 17. Bb3 Rf6 18. f3 dxe4 19. fxe4 Rg4 20. d5 cxd5 21. exd5 e5 22. Bxe7 Dxe7 23. d6 Dd8 Staðan kom upp á öðru bikarmóti FIDE sem lauk fyrir skömmu í Moskvu. Hinn firnasterki og taktíski Ísraeli, Emil Sutovsky (2660) lauk skák- inni snyrtilega gegn Zurab Azmaiparashvili (2667). 24. Bxf7+! og svartur gafst upp enda fátt til varnar eftir 24...Kxf7 25. Db3+. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. 70ÁRA afmæli. Á morg-un, fimmtudaginn 18. júlí, verður sjötugur Gunnar Torfason, ráðgjaf- arverkfræðingur, Reykja- vík. Gunnar og eiginkona hans, Svana Jörgensdóttir, bjóða vinum og velunnurum að fagna þessum tímamót- um með sér í Safnaðarheim- ili Háteigskirkju á afmælis- daginn milli kl. 17 og 20. Morgunblaðið/Einar Falur Þessar duglegu stúlkur söfnuðu kr. 26.600 til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Þær heita Inga María, María Sif, Linda og Nína.                  ! " ""#  $%&'(% ( )"" ""** + )"" ""*,                                 ! "#  $ %   "&#  '  ( )*+  , ,          -    ,      ,       /      .  0  1##1  '  (    2  ' ( &31  4  #" '  (    5   6633"  5    177#3 '  ( /+     8   0  9     0         :);*    0      0     <  8            :/;  8  !8 0 !8  $  8   8 < 8 < ,  0.  8                        61     &37     6131# . /0 !1 2 %%  3 !  '  .  '  ( SUMARTILBOÐ Stækkanlegar ferðatöskur 30% afsláttur af ámáluðum strammamyndum 20% afsláttur af allra handavinnu          Lagersala á Fiskislóð 73 (úti á Granda), 101 Reykjavík. Miðvikudaga kl. 14:00 til 18:00 Fimmtudaga kl. 14:00 til 18:00 Föstudaga kl. 14:00 til 18:00 Laugardaga kl. 12:00 til 16:00 Outlet Mikið úrval af skóm á ótrúlegu verði !!! Opnunartími: FRÉTTIR Í TILEFNI þess að hinn 21. júlí nk. verða liðin 200 ár frá því að fyrsti ís- lenski kaupmaðurinn, Kjartan Ís- fjörð, hóf verslun á Eskifirði verður efnt til hátíðarhalda á staðnum dag- ana 19.-21. júlí. Það er verslunaraf- mælisnefnd Fjarðabyggðar sem stendur fyrir hátíðarhöldunum en fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar hafa tekið þátt í undirbúningi þeirra. Kjartan Ísfjörð fékk verslunar- réttindi á Eskifirði hinn 21. júlí árið 1802 og reisti verslunarhús sín þar sem heitir í Framkaupstað. Hann var eskfirskur sýslumannssonur sem sigldi ungur til Kaupmanna- hafnar og gerðist þar umsvifamikill á sviði viðskipta um tíma ásamt því að reka verslunina á Eskifirði. Kjartan lést árið 1845 og var grafinn á Hólm- um í Reyðarfirði. Dagskrá hátíðar- haldanna verður fjölbreytt og má þar nefna ljósmyndasýningu um sögu verslunar á Eskifirði, sýningu á grafíkverkum, dansleiki, dagskrá fyrir börn og unglinga og sérstaka hátíðarsamkomu í Kirkju- og menn- ingarmiðstöðinni. Á hátíðarsamkomunni verða með- al annars flutt tónlistaratriði og þar munu til dæmis koma fram Kór Fjarðabyggðar, Bergþór Pálsson og Diddú auk þess sem flutt verða esk- firsk sönglög. Að hátíðarsamkomunni lokinni verður afhjúpaður minnisvarði um Kjartan Ísfjörð utan við svonefnt Framkaupstaðarhús. Minnisvarðinn er gerður eftir hugmynd Tryggva Ólafssonar myndlistarmanns. 200 ára verslunar- afmæli á Eskifirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.