Morgunblaðið - 18.08.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 18. ÁGÚST 2002
192. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
10
Hernaður
gegn landinu
14
Íslenska hjartað
slær í Grenihlíð 24
Hælisleit í
hörðum heimi
Fjöldi þeirra, sem leitað hafa hælis á Íslandi,
hefur snaraukist á síðustu árum og að-
stæður breyst vegna Schengen-samkomu-
lagsins. Um leið hefur
umræða um innflytj-
endur harðnað í ná-
grannalöndunum. 8
Sunnudagur
18. ágúst 2002
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
B
EFTIR margra daga flóð í Saxelfi
hafa björgunarstarfsmenn í borginni
Dresden í austurhluta Þýskalands
loks fengið von um að það versta sé
yfirstaðið. Talsmaður innanríkis-
ráðuneytisins í Saxlandi sagði í gær
að áin inni í borginni hefði verið
„nærri stöðug“ og vatnshæðin verið
9,39–9,40 metrar.
Talsmaður umhverfisráðuneytis-
ins sagði þetta benda til þess að flóð-
in í Saxelfi hefðu náð hámarki eftir
verstu flóð í Mið-Evrópu í manna
minnum í vikunni, en vatnsborð Sax-
elfar í Dresden hefur ekki verið
hærra frá því að mælingar hófust á
sextándu öld.
Flóðin halda hins vegar áfram
neðar í ánni og gerðu þau nokkurn
usla í iðnaðarborginni Bitterfeld þar
sem stíflur gáfu sig, en nokkrar mik-
ilvægar efnaverksmiðjur er þar að
finna. Vatnið hefur þó ekki enn náð
til verksmiðjanna og er ekki talin
hætta á umhverfisslysi. Margar
verksmiðjanna drógu úr framleiðslu
eða hættu henni fyrr í vikunni vegna
flóðanna. Meirihluti íbúa borgarinn-
ar þurfti að yfirgefa heimili sín og
sagði talsmaður almannavarna á
svæðinu að um helmingur borgar-
innar væri undir vatni.
Flóðin
í Þýskalandi
Mestu
flóð síðan
á 16. öld
Dresden. AFP.
NUNNUR syngja og veifa fánum meðan þær
bíða komu Jóhannesar Páls páfa til heimaborgar
hans, Krakár, í Póllandi. Páfi er nú í níundu
heimsókn sinni til Póllands og mun eyða fjórum
dögum í Kraká, þar sem hann vann nauðung-
arvinnu fyrir þýska hernámsliðið í seinni heims-
styrjöld. Seinna barðist hann gegn kúgun komm-
únista í landinu, en hann var erkibiskup í Kraká
áður en hann varð páfi.
Pólskar nunnur taka syngjandi á móti páfa
Reuters
inni, hafa lík stúlknanna ekki fund-
ist, en á föstudag fundu lögreglu-
menn hluti í skólanum sem skipta
miklu máli fyrir rannsóknina.
„Þessir hlutir hafa verið varðveittir
þar sem þeir fundust og munu sæta
viðamikilli rannsókn sérfræðinga,
sem mun væntanlega taka nokkurn
tíma,“ segir Hebb.
Parið, sem handtekið var í gær-
morgun, hefur enn ekki verið
ákært, en lögreglan getur haldið
þeim í allt að þrjá sólarhringa án
ákæru.
„Sorgin mikil og djúp“
Stúlkurnar hurfu 4. ágúst í
heimabæ þeirra Soham, norðaustur
af Cambridge, og hefur leitin að
þeim verið ein sú umfangsmesta að
horfnu fólki sem átt hefur sér stað á
Bretlandi. Lögregluyfirvöld hafa
hingað til talið að stúlkurnar væru
BRESKA lögreglan tilkynnti í gær,
laugardag, að tvennt hefði verið
handtekið vegna hvarfs stúlknanna
Jessicu Chapman og Holly Wells,
sem saknað hefur verið í tvær vik-
ur. Fólkið, 28 ára karlmaður og 25
ára kona, er grunað um að hafa
rænt stúlkunum og myrt þær og er
því ljóst að stúlkurnar eru ekki
lengur taldar á lífi.
Lögreglan hefur ekki gefið upp
nöfn fólksins, en breskir fjölmiðlar
segja að um sé að ræða þau Ian
Huntley, umsjónarmann í gagn-
fræðaskóla, og unnustu hans Max-
ine Carr, en hún var eitt sinn að-
stoðarkennari í bekk stúlknanna
tveggja. Þau Carr og Huntley voru
tekin til yfirheyrslu á föstudag og
leitaði lögreglan í húsi þeirra, gagn-
fræðaskólanum og á heimili föður
Huntleys. Að sögn aðalvarðstjórans
Andy Hebb, sem stýrir rannsókn-
á lífi og breyttist það viðhorf ekki
fyrr en með fundinum á föstudag og
handtökunum í gær. Fyrr í vikunni
reyndi lögreglan að ná sambandi
við mannræningjana í gegnum far-
síma sem vitað var að önnur stúlk-
an hafði á sér þegar hún hvarf. Skil-
aði tilraunin engum árangri, og
heldur ekki áskoranir fjölskyldna
stúlknanna til ræningjanna um að
skila börnunum heilum á húfi heim
til sín.
Komu handtökurnar í gær ætt-
ingjum og nágrönnum stúlknanna í
opna skjöldu. „Þetta eru verstu
fréttir sem við gátum fengið,“ sagði
Alan Ashton, prestur við meþód-
istakirkjuna í Soham. „Sorgin mun
verða mikil og djúp.“ John Powley,
bæjarstjórnarmaður í Soham, sagði
samfélagið allt vera í losti. „Soham
mun aldrei verða aftur eins og hann
var.“
Tvennt handtekið vegna hvarfs tveggja breskra stúlkna
Talið að stúlkurnar
hafi verið myrtar
London. AFP.
UPPI eru vangaveltur meðal banda-
rískra stjórnmálaskýrenda um að
áform um innrás í Írak njóti ekki
stuðnings George Bush eldri, fyrr-
verandi Bandaríkjaforseta og föður
George W. Bush, sem nú gegnir
sama embætti. Vangaveltur þessar
eiga rót sína að rekja til greinar sem
birtist á fimmtudaginn í The Wall
Street Journal undir fyrirsögninni
„Ekki ráðast á Saddam“ eftir Brent
Scowcroft. Höfundurinn er fyrrver-
andi hershöfðingi í flugher Banda-
ríkjanna og var ráðgjafi Bush eldri í
þjóðaröryggismálum á sínum tíma.
Segja sumir fyrrverandi embættis-
menn óhugsandi að Scowcroft hafi
skrifað greinina án þess að bera
hana undir forsetann fyrrverandi.
Bush eldri hefur ekki tjáð sig opin-
berlega um hugsanlega innrás í Írak,
og hefur það gefið vangaveltunum
um hugsanlega andstöðu hans við
slíka aðgerð, byr undir báða vængi.
„Ég held að greinin endurspegli
það sem 41 er að hugsa,“ sagði einn
fyrrverandi starfsmaður Hvíta húss-
ins, en Bush eldri var 41. forseti
Bandaríkjanna.
Heilbrigð umræða
Í greininni sagði Scowcroft meðal
annars að Saddam Hussein ætti lítið
sameiginlegt með hryðjuverka-
mönnunum sem ógnuðu öryggi
Bandaríkjanna. „Það er ólíklegt að
hann stefni vopnabirgðum sínum,
hvað þá landinu, í hættu með því að
láta hryðjuverkamönnum gereyð-
ingarvopn í hendur.“
Orð Scowcrofts eru talin hafa tölu-
vert vægi hjá forsetanum, ekki ein-
ungis vegna sérstakra tengsla
Scowcrofts við Bush-fjölskylduna,
heldur einnig vegna þess að hann var
mjög viðriðinn rekstur Flóastríðsins
við Írak árið 1991.
Núverandi forseti sagði við frétta-
menn í gær að hann gerði sér grein
fyrir því að margt mjög vel gefið fólk
væri að tjá skoðanir sínar um Sadd-
am Hussein og hugsanlega innrás í
Írak. „Þetta er heilbrigð umræða og
nauðsynlegt fyrir fólk að tjá sig,“
sagði forsetinn. „En Bandaríkja-
menn verða að vita að ég mun gera
sjálfur upp hug minn og taka þá
ákvörðun, byggða á nýjustu upplýs-
ingum, sem verður best til þess fallin
að verja Bandaríkin, vini okkar og
bandamenn.“
Bush-feðg-
ar ekki
sagðir á
sama máli
Crawford. The Los Angeles Times.
Bandaríkin og Írak
Friðlýsing með
undanþágu