Morgunblaðið - 18.08.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 9
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
KR
I
18
05
4
0
8/
20
02
ERFITT reynist oft á tíðum að
upplýsa mál sem tengjast minni-
háttar eignaspjöllum, s.s. á stræt-
isvagnabiðskýlum, skólalóðum, bíl-
um og svo framvegis þar eð brotin
eru oftast framin þegar enginn sér
til. Sé miðað við sakhæfisaldur,
sem er 15 ár, og einstakling sem
fremur lögbrot af því tagi sem lýst
er að ofan eru viðurlögin sektir
eða allt að 2 ára fangelsi. Að auki
er sá sem tjóninu veldur skaða-
bótaskyldur.
Í vikunni var sagt frá því í
Morgunblaðinu að dæmi væri um
að sama strætisvagnaskýlið hefði
verið skemmt 20 sinnum.
Að sögn Harðar Jóhannessonar,
yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í
Reykjavík, falla brot af því tagi
sem skemmdir á strætisvagnaskýl-
um teljast til undir 257 gr. hegn-
ingarlaganna og falla undir ákæru-
vald lögregustjóra. Veggjakrot
telst jafnframt til slíkra brota.
Í fyrstu málsgrein 257. greinar
er fjallað um viðurlög við minni-
háttar eignaspjöllum en sam-
kvæmt refsirammanum varða þau
sektum eða fangelsi allt að tveim-
ur árum.
Í sömu grein kemur fram að við-
urlög við meiriháttar eignaspjöll-
um eru allt að sex ára fangelsi.
Gáleysisbrot varða á hinn bóginn
sektum eða fangelsisvist allt að
sex mánuðum, að sögn Harðar.
Að hans sögn eru refsiþyngjandi
og refsimildandi ákvæði í hegning-
arlögunum sem dómari tekur alla
jafnan tillit til. Sé um einbeittan
brotavilja að ræða eða hópur ein-
staklinga fremur skemmdarverkin,
svo dæmi sé nefnt, yrði að öllum
líkindum horft til refsiþyngingar
en til refsilækkunar þegar tekið er
tillit til ungs aldurs þess sem
fremur brotið eða hafi viðkomandi
bætt fyrir tjónið.
Lögregla á staðinn
þegar glæpurinn er afstaðinn
Að sögn Harðar er ákæran háð
því að tjónþoli krefjist refsingar.
Nokkuð er um að lögreglu takist
að upplýsa minniháttar eignar-
spjöll og hafa nokkur mál sem
varða skemmdir á strætisvagnab-
iðskýlum verið upplýst, að hans
sögn. Í mörgum tilfellum reynist
það hins vegar erfitt þar sem lög-
regla er í flestum tilfellum kölluð á
vettvang þegar glæpurinn er af-
staðinn.
Hörður bendir á að í sumum til-
fellum bæti tryggingar tjónið en í
öðrum tilfellum taki eigendur á sig
allan kostnað af völdum þess.
Hann segir lögregluna fá fjöl-
margar tilkynningar á hverjum
degi um skemmdarverk sem fram-
in eru og oft eigi ungmenni þar
hlut að máli. Sum brotanna virðist
framin í hugsunarleysi en önnur af
ásetningi eins og oft eigi við um
strætisvagnabiðskýlin sem séu
sterkbyggð og töluvert átak þurfi
til að brjóta þau.
Minniháttar eignaspjöll varða
sektum eða allt að 2 ára fangelsi
Reynist oft erfitt
að upplýsa
skemmdarverk
GERÐ stuttmynda upp úr Biblíu-
sögunum er meðal þess sem börn
á leikjanámskeiði í Neskirkju
hafa fengist við í sumar. Um 180
börn á aldrinum 6–12 ára sóttu
leikja- og ævintýranámskeið á
vegum kirkjunnar í sumar. Segir
Rúnar Reynisson, skrifstofustjóri
Neskirkju, að þetta séu leikja-
námskeið á kristnum forsendum,
börnin kynnist kirkjunni og á
hverjum degi sé lesið úr Biblí-
unni. Tilgangurinn sé að kynna
kirkjuna fyrir börnunum og að
hún sé lifandi. Þá var einnig farið
í leiki, skoðunarferðir og alls
konar verkefni unnin. Lokadag-
urinn var í gær enda skólarnir að
hefjast og var þá slegið upp
kökuveislu.
180 börn sóttu leikja- og ævintýra-
námskeið í Neskirkju í sumar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gerðu stuttmyndir
upp úr Biblíusögunum
ATVINNA mbl.is