Morgunblaðið - 18.08.2002, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 21
HÚN VAR löng ogvirðuleg röðin, sembeið þolinmóð eftirað fá aðgang aðfundinum hjá
SPRON. Eins og sagt var frá í
fréttum sjónvarps: máttarstólpar
þjóðfélagsins voru mættir. Menn
virtust léttir í skapi, spauguðu sín
í milli, enda var framundan fundur
í sparisjóðnum án þess að til mik-
illa átaka kæmi. Andstæðar fylk-
ingar höfðu fallist í faðma.
Í rauninni
var ekkert eftir
nema fallast á
að það væri í
lagi fyrir þá að
fallast á að
stofnfé þeirra í
sjóðnum fimmfaldaðist að raun-
gildi. Margur hefur nú lagt meira
á sig til að græða minna fé, með
því einu að rétta upp höndina.
Nú er það sosum ekki í frásögur
færandi þótt einhver græði á
bankastarfsemi og má segja að
okkur hinum, sem ekki græðum,
komi það lítið við, hvað þeir aðhaf-
ast, þessir menn og þessir mátt-
arstólpar, þótt ekki hefði verið
verra að hafa verið með í röðinni,
svona óskaplega afslappaður og
yfirvegaður og fimmfaldaður að
raungildi. Nei, það er í sjálfu sér
ástæðulaust að öfundast út í þetta
fólk, enda ekki máttarstólpar fyrir
ekki neitt. Þeirra gæfa var að eiga
stofnfé í SPRON, sem ekki liggur
á lausu og ekki fyrir hvern sem er
að koma höndum á. Og hefur sos-
um ekki verið mikils virði. Frekar
fórnarkostnaður göfugra manna.
Það hefur að vísu aldrei verið
upplýst hvernig menn geta orðið
stofnfjáreigendur í sparisjóði, því
aldrei hafa þessi stofnfjárbréf ver-
ið boðin út og aldrei hefur manni
verið boðið að gerast stofnfjáreig-
andi. Sem ekki er von. Blankir
menn eiga sjaldnast banka. Og
ekki skrítið. Þú ert ekki mátt-
arstólpi. Og svo hefur þetta held-
ur ekki verið neitt til að sækjast
eftir. Stofnfé er bara peningur í
innistæðu í sparisjóðnum, sem
ekki hefur gefið neitt af sér, nema
rétt vextina til að halda í við verð-
bólguna.
Nei, þetta kemur manni ekki
við og satt að segja fóru þessar
deilur allar fyrir ofan garð og neð-
an hjá hinum sauðsvarta almenn-
ingi, þegar lögfræðingarnir voru
að rífast um lagatúlkanir og
bankastjórarnir að bera af sér
sakir og svo var líka sagt að þetta
væru fjandsamleg afskipti af hálfu
Búnaðarbankans, sem voru þó
ekki alvarlegri en svo, að bankinn
bauð allt í einu af örlæti sínu fjór-
falt gengi í stofnféð. Það var nú
meiri fjandskapurinn!
Stjórn sjóðsins brást illa við
þessum tíðindum og starfsmenn
ruku upp til handa og fóta og buðu
betur, fimmfalt gengi, sögðu þeir,
og söfnuðu stuðningsyfirlýsingum
og fjárfestum út og suður. Fram
að þessu og áfram inn í þessa deilu
hafa vísir menn verið að halda því
fram að stofnfé væri bara stofnfé.
Ekki hlutafé, ekki áhættufé og
stofnfjáreigendur ættu ekki nokk-
urn skapaðan hlut í sparisjóðnum,
nema það sem næmi stofnfénu og
vöxtunum af því. Verðmætin í
sparisjóðnum, eignirnar og við-
skiptavildin og peningarnir og allt
klabbið væri í rauninni eig-
endalaust! Alþingismenn og ráð-
herrar hafa meira að segja fullyrt
að svo væri og það ætti enginn
sparisjóðina, nema þá helst sam-
félagið. Það var þá sem ég sperrti
eyrun, því ég er hluti af samfélag-
inu, ekki satt?
En samfélagið átti engan mann
á fundinum í SPRON á mánudag-
inn og engan mann í stjórn og
glöggir menn segja réttilega að
ekki sé bannað að þiggja borgun
fyrir það sem aðrir vilja kaupa af
þér. Jafnvel þótt þú eigir það ekki.
Þannig að þeir hjá SPRON bíða
nú spenntir eftir því hvað fjár-
málaeftirlitið segir um þessi kaup
og þessi tilboð á fimmföldu gengi
og ef æðsta valdið í eftirlitinu með
fjármálum landsmanna leggur
blessun sína yfir fyrirætlanir
starfsmannanna og stofnfjáreig-
endanna þarf ekki lengur að lifa
við þá óvissu að ekki finnist eig-
andi að fjármagninu í SPRON.
Mikill léttir yrði það fyrir alla að-
ila. Ekki bara þá sem geta þannig
selt það sem þeir vissu ekki að
þeir áttu, heldur líka fyrir okkur
hin sem héldum að við ættum eitt-
hvað sem við ekki eigum. Og þetta
eigendalausa fjarmagn, sem hefur
safnast upp í algjöru mun-
aðarleysi, er loksins komið í
örugga höfn.
Þetta er ævintýri líkast og svip-
ar til þess öryggisleysis sem skap-
aðist fyrir fiskana í sjónum, sem
syntu um hafið, eigendalausir í
reiðileysi, þangað til stjórnvöld
tóku af skarið um að útgerðin ætti
þessa fiska og gæti selt þá fyrir
markaðsprís, eins og lögmálin um
framboð og eftirspurn segja til
um. Og kvótinn komst í góðra
manna hendur.
Samfélagið, hvað er nú það?
Það erum við hin, sem ekki stönd-
um í röðinni og ekki höfum átt
neinn að, til að bjóða okkur að ger-
ast stofnfjáreigendur, og það er
þjóðin, Íslendingarnir, sem ekki
komast á fundi hjá SPRON og
ekki eru í stjórn og ekki eru
starfsmenn og eru bara það sem
heitir samfélag, sem er ómerki-
legt og gamaldags samheiti um
ótíndan lýð, sem í besta falli á við-
skipti við banka og sparisjóði til að
standa undir rekstri þeirra. Það
er nú allt og sumt og þess vegna
kemur okkur þetta eiginlega ekk-
ert við, sem er að gerast í banka-
viðskiptunum, og næst er auðvitað
að selja ríkisbankana, sem eru
fjandsamlegir sparisjóðum og
öðrum minnimáttar í þjóðfélaginu,
og aftur geta þá máttarstólparnir
lagt fram tilboð eða þá bara gert
eðlilegt tilkall til þeirra eig-
endalausu verðmæta sem liggja í
hirðuleysi allt um kring. Hvort
heldur í sjó eða á þurru landi.
Það getur ekki nokkur maður
farið að öfundast út af þessu.
Hvað þá að breyta markaðs-
lögmálunum. Hvað þá að hafa
pólitíska skoðun á kaupunum eins
og þau gerast á eyrinni. Og spari-
sjóðnum.
Teikning/Andrés
Eigendalaus
verðmæti
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Ellert B.
Schram
Skot-
veiðimenn
Það er að bresta á!
Biðin er á enda,
eftir 2 daga hefst gæsaveiðin á ný.
Í eina viku bjóðum við mjög takmarkað magn
af völdum byssum
á frábæru verði.
Athugið takmarkað magn
og ein vika.
Nokkur verðdæmi:
Benelli Super 90 ........................102.900 stgr.
Benelli Centro ............................109.900 stgr.
Benelli Mancino..........................107.900 stgr.
Benelli Raffaello ........................135.900 stgr.
Benelli Nova..................................48.900 stgr.
Remington 11-87..........................89.900 stgr.
Browning Silver Camo ................69.900 stgr.
Browning Gold Fusion ................89.900 stgr.
Franchi AL48 ................................58.900 stgr.
Norconia........................................29.900 stgr.
Sellier & Bellot haglaskot. Frábær skot á góðu verði.
2 ¾" og 3" 42 gr. og 53 gr.
Felunet, fatnaður og fylgihlutir í úrvali.
150 leirdúfur og 250 skeet skot á 4.490
Veiðihornið Kringlunni - Byssur, skot, fatnaður og fylgihlutir
Veiðihornið Hafnarstræti - Skot, fatnaður og fylgihlutir
Veiðihornið Síðumúla - Fatnaður og fylgihlutir (frá 1. sept.)
Símar 551 6760, 568 8410, 575 5122
www.veidihornid.is