Morgunblaðið - 18.08.2002, Side 34
SKOÐUN
34 SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTSALAN HEFST Í DAG
SUNNUDAG OG STENDUR AÐEINS Í FJÓRA DAGA - KOMDU STRAX!
ÁGÆTI Friðrik.
Það er ekki að
ástæðulausu, sem ég
sé mig knúinn til að
skrifa þér opið bréf,
vegna frétta af skyndi-
legum áhuga ALCOA
á að reisa 300 þúsund
tonna álbræðslu á
Reyðarfirði.
Nýting auðlindanna
Í viðtali í Morgun-
blaðinu 28. júlí sl. und-
ir yfirskriftinni „Við
þurfum að nýta auð-
lindirnar“, fullyrðirðu
að ef Íslendingar ætli
sér að búa við svipuð
lífsskilyrði og aðrar þjóðir sem við
keppum við, þurfi þeir m.a. að nýta
orkuauðlindirnar. Við hvaða þjóðir
keppa Íslendingar í þessu tilliti? Í
vaxandi mæli er um að ræða þjóðir
þriðja heimsins, s.s. í Asíu, einkum
Kína, Indónesíu og Malasíu, Afríku,
s.s. S-Afríku og Mósambik. Ál-
bræðslurnar stækka hröðum skref-
um. Því er sóst eftir að staðsetja
þær, þar sem næga ódýra orku er
að fá, nægt framboð af sem ódýr-
ustu vinnuafli, sem minnstar meng-
unarkröfur, sem styst að ná í súrál
og koma álinu á markað.
Umframframleiðslugeta
Mikil umframframleiðslugeta er
til staðar í heiminum, ekki hvað síst
í Norður-Ameríku, þar sem orku-
verð hefur hækkað mjög á síðast-
liðnum árum. Þegar álverð er jafnt
lágt og verið hefur undanfarin tvö
ár, er einungis lítill hluti álbræðslna
í N-Ameríku starfræktur. Þannig er
framleiðslan um þessar mundir ein-
ungis 200 þúsund tonn í NV-Banda-
ríkjunum, en framleiðslugetan 1.630
þúsund tonn.
Sömu sögu er að segja um sum
önnur svæði heimsins eins og t.d.
nokkur lönd S-Ameríku, þar sem
ónýttar álbræðslur eru til staðar, en
orkuverð of hátt miðað við núver-
andi álverð. Þetta stafar af því að ál-
verð nú er um 1.350 USD/tonn, en
almennt var gert ráð fyrir að með-
alverð á þessu ári yrði a.m.k. 1.500
USD/tonn. Þessi mikla umfram-
framleiðslugeta, ásamt með því að
mun ódýrara er að stækka ál-
bræðslur, en að byggja nýjar, leiðir
óhjákvæmilega til þess að álverð og
þar með raforkuverð mun fara
lækkandi til framtíðar litið. Þar af
leiðandi stækka álbræðslur stöðugt,
eða um hundruð þúsunda tonna í
stað tug þúsunda tonna áður. Þá er
ógetið allrar álframleiðslunnar í A-
Evrópu, en fyrirtækin þar þola mun
lægra verð en samsvarandi verk-
smiðjur í V-Evrópu og N-Ameríku.
Óvænt framboð áls í miklu magni
frá Rússlandi og Kína er aukinheld-
ur stórt vandamál, sem ítrekað hef-
ur leitt til verðfalls, nú síðast í júní.
Varðandi ítarlegri upplýsingar
um verð og stöðu álmála, sjá: http://
www.alunet.net, http://
www.lme.co.uk
Arðsemismat
Í fyrrgreindu viðtali fullyrðir þú
að miðað við fyrirliggjandi áætlanir
um orkusölu til Reyðaráls, sem eftir
því sem þú segir, nánast var búið að
ganga frá, liggi fyrir að arðsemi eig-
in fjár af virkjuninni verði 12–14%.
Nefnir því til sönnunar að Sumi-
tomo Mitsui-bankinn japanski hafi
sannreynt alla útreikninga Lands-
virkjunar og niðurstaða bankans um
mat á arðsemi sé skýr, þó að öðru
hafi verið haldið fram í
blöðum.
Ég skora hér með á
þig, Friðrik, þannig að
deilum um þetta veiga-
mikla atriði linni í eitt
skipti fyrir öll, að láta
birta í Morgunblaðinu
fyrirvara þann sem
Sumitomo Mitsui-
bankinn birtir í 6
neðstu línunum á bls. 3
í greinargerð sinni
dags. 3. september
2001.
Grundvöllur
arðsemismats
Megingrundvöllur
arðsemismats og jafnframt megin-
óvissa þess er áætlun um álverð til
framtíðar litið. Orkusölusamningar,
þar sem raforkuverð er tengt ál-
verði, eru yfirleitt gerðir til 15–20
ára. Í samningum þessum eru
gjarnan ákvæði um atriði sem
leggja á til grundvallar við endur-
nýjun orkusölusamnings. Af sjálfu
leiðir að áætlað meðalálverð yfir
samningstímann og tilsvarandi raf-
orkuverð, ræður því fyrst og fremst,
hvaða arð má áætla að fáist af fjár-
festingunni. Annað sem einnig ræð-
ur talsverðu um hversu nákvæma
áætlun unnt er að gera, er hversu ít-
arlegar tæknilegar upplýsingar
liggja fyrir um væntanlegan virkj-
unarkost. Þar ríkir ennþá talsverð
óvissa. Dæmi um það má nefna gerð
Hálslóns, sem verða mun 25 km að
lengd og samtals 57 km². Í það mun
á skömmum tíma setjast óhemju
aurmagn úr Jökulsá á Brú, aurug-
ustu jökulá landsins. Afleiðing af
þessu og þeirri staðreynd að yfir-
borðssveifla vatnsins í lóni þessu,
sem líkja má að stærð við innan-
verðan Hvalfjörð, verður allt að 75
metrum. Þetta veldur því að víð-
áttumiklar aurstrandir myndast,
sem án víðtækra mótvægisaðgerða
munu óhjákvæmilega leiða til mikils
aurfoks og tilsvarandi gróðureyð-
ingar. Sama er að segja um samtals
79 km löng jarðgöng, 3,6–7 m í þver-
mál, sem bora á undir Fljótsdals-
heiði og nærliggjandi landsvæði.
Um er að ræða álíka vegalengd og
frá Reykjavík til Hvolsvallar. Þau
verður að vatnsþétta að kröfu um-
hverfisráðuneytisins, þannig að
vatnsstaða svæðisins raskist ekki.
Þetta kallar á samsvarandi kostn-
aðarsamar mótvægisaðgerðir.
Virkjun við Kárahnjúka myndi leiða
af sér byggingu stærstu stíflu í Evr-
ópu. Um er að ræða 900 m risastíflu,
sem verður allt að 190 m há, eða
áþekk 3 Hallgrímskirkjuturnum.
Efnismagn í þessari einu stíflu er
10–11 milljónir rúmmetra eða sam-
svarandi 50 ára steypuframleiðslu á
Íslandi, eins og hún hefur orðið
mest á undangengnum árum. Þó að
stórum hluta sé um jarðvegsstíflu
að ræða, gefur augaleið, hversu
risavaxið inngrip og umbylting á
náttúrunni verður að ræða.
Náttúran við Kárahnjúka
Svæðinu suður af Kárahnjúkum
til Brúarjökuls, sem fórna á undir
risalón, sem óhjákvæmilega mun
leiða til mikilla náttúruspjalla, er
einstakt hálendissvæði.
Sérstaða þess felst í ótrúlega fjöl-
breyttum og kjarnmiklum hálend-
isgróðri í rúmlega 600 m hæð. Óvíða
annars staðar á landinu má finna
hliðstæðu. Ástæðan er m.a. sú að
þetta svæði hefur þá sérstöðu að
komast næst því á Íslandi að þar
ríki fremur meginlands- en eyja-
loftslag. Úrkoman er einungis 400
mm á ári samanborið við 1.000 mm
á SV-landi og 1.100–1.200 sunnan
jökla á Suðurlandi. Ég var á ferð um
þetta svæði á sl. sumri, skömmu eft-
ir að snjóa leysti. Um svæðið mátti
auðveldlega ganga á götuskóm, svo
þurrt var það og algerlega laust við
forarsvað, sem annars staðar fylgir
snjóleysingu. Þegar komið er u.þ.b.
hálfa leið að Brúarjökli, suður að
Kringilsá, blasir við ægifögur sam-
felld fossaröð með Töfrafoss í há-
sæti. Einkennisfugl svæðisins,
heiðlóan, flögraði syngjandi allt um
kring og einnig mátti greina flugna-
niðinn, sem dæmi um gróskuna í
náttúrunni. Gróðurþekjan er sam-
felld og þykk, einkum í lægðunum
sem fara munu undir jökullitað
vatn, ef af gerð Hálslóns verður,
sem verður að flatarmáli stærra en
Lögurinn. Það flokkast því undir öf-
ugmæli að halda því fram að engin
verðmæti séu fólgin í náttúruvin
sem þessari, vegna þess að þjóðin
hefur ekki beinar fjárhagslegar
tekjur af henni nú um stundir. Í
heimi nútímans, þar sem flest er falt
fyrir peninga, ber okkur að standa
vörð um náttúruperlur landsins.
Þetta svæði, sem hér um ræðir, er
eitt slíkra og gildir einu, þó að um
það hafi verið fjallað fyrir áratugum
að hugsanlega mætti fórna hluta
þess í skiptum fyrir Þjórsárver, sem
þá var bjargað. Einungis í þriðja
heims löndum kæmi til greina að
fórna slíkri náttúruperlu endur-
gjaldslaust. Til að bæta síðan gráu
ofan á svart að afhenda væntanlegri
álbræðslu nýúthlutaðan mengunar-
kvóta, sem Ísland fékk skv. Kyoto-
samkomulaginu, endurgjaldslaust
og niðurgreiða þar með spillingu
lands og lofts ásamt tilheyrandi
sjónmengun. Eftirhverju telja menn
að íbúar og ferðamenn sækist helst
á Íslandi í framtíðinni?
Hverjir björguðu
Þjórsárverum?
Við skulum ævinlega minnast
þess, Friðrik, að erlendir vísinda-
menn og umhverfisverndarsamtök
ásamt örfáum framsýnum Íslend-
ingum urðu til þess að Þjórsárver-
um var bjargað frá því að vera
sökkt undir uppistöðulón vegna
virkjanaáforma þeirra sem mestu
réðu þá um ákvarðanir í orkumál-
um.
Bresku fuglafriðunarsamtökin
áttu þar stærstan þátt og nutu
stuðnings annarra alþjóðlegra sam-
taka. Án ötullar baráttu þeirra,
hefði Þjórsárverum ekki verið
þyrmt.
Vísast hafa margir þeirra sem
sökkva vildu Þjórsárverum talið þá
Íslendinga, sem þyrma vildu þessari
náttúruvin, ekki gæta hagsmuna
þjóðarinnar. Jafnvel sakað þá um að
ganga í lið með erlendum aðilum í
ófrægingarherferð gegn þjóðinni.
En á þessum nótum finnst mér að
þú, sem forstjóri Landsvirkjunar,
fyrirtækis í eign íbúa þessa lands,
getir ekki leyft þér að tala. Þvert á
móti ætti að vera keppikefli þitt að
ná sem víðtækastri sátt og efla
tiltrú um að yfirlýst markmið
Landsvirkjunar um góða umgengni
við landið séu ekki orðin tóm.
Markmið virkjunar
Yfirlýst markmið stjórnvalda er
að með því að auka nýtingu orku-
linda landsins eflist atvinnulífið og
efnahagur batni. Markmiðið er göf-
ugt, en ábyrgð ykkar, sem ber að
leggja „kalt mat“ á hversu raunhæf-
ir möguleikar eru til að því verði
náð, er mjög mikil. Þú heldur því
statt og stöðugt fram að Lands-
virkjun fari einungis í stórvirkjun-
arframkvæmdir á borð við Kára-
hnjúkavirkjun til að „græða“.
Landsvirkjun sé ekki „Byggðastofn-
un“ og þar af leiðandi séuð þið hjá
Landsvirkjun ekki sérstaklega að
hugsa um hvaða áhrif þessar fram-
kvæmdir munu hafa á samfélagið á
Austurlandi.
Pólitísk ákvörðun
Það eru stjórnmálamenn, með
Halldór Ásgrímsson í broddi fylk-
ingar, sem barist hafa fyrir því að
ráðist verði í að virkjað verði fyrir
austan í tengslum við byggingu ál-
bræðslu á Reyðarfirði. Þessu hét
hann Austfirðingum fyrir síðustu
kosningar, svo endurheimta mætti
þau 700–800 störf sem tapast hafa
vegna kvótasetningar og brott-
hvarfs kvóta. Nú dregur senn að
kosningum að nýju. Útilokað er fyr-
ir Framsóknarflokkinn að fara í
kosningar eystra, án þess að það sé
í það minnsta mögulegt að láta líta
svo út að af þessu verði. Sjóndeild-
arhringur stjórnmálamanna eru
næstu kosningar. Markmið þeirra
stjórnmálamanna sem beittu sér í
málinu var þess vegna að drífa
framkvæmdir sem fyrst í gang.
Þess vegna var lífsspursmál að ráð-
ast strax í byggingu Fljótsdalsvirkj-
unar á grundvelli löngu útgefins
virkjanaleyfis. Þá virtist gilda einu,
þó að Norsk Hydro upplýsti að 120
þúsund tonna álver, með óvissu um
hvenær unnt yrði að stækka, væri
óviðunandi kostur. Með stækkun úr
210 MW Fljótsdalsvirkjun í 725
MW Kárahnjúkavirkjun var fullyrt
að vegna stærðarhagkvæmni, næð-
ist lægra einingarverð. Ekki er að
sjá að svo sé, þegar einingarverð
hinna mismunandi valkosta er borið
saman. Þvert á móti er einingar-
verðið óbreytt um 149,2 milljónir
króna á MW, án tillits til stærðar
virkjunarkosta.
Brotthvarf Norsk Hydro
Blekkingar koma alltaf í bakið á
mönnum, fyrr eða síðar. Þannig eru
sýndarskýringar á því hvað varð til
þess að Norsk Hydro frestaði mál-
inu ítrekað og dró sig að lokum í hlé,
að þeir hafi átt við fjárhagsörðug-
leika að stríða. Norsk Hydro, sem
veltir 1.700 milljörðum króna á ári
og hagnast hefur hlutfallslega mun
meir á undanförnum árum, saman-
borið við Landsvirkjun, með 14
milljarða króna ársveltu! Aldrei var
gefin skýring á því, hvers vegna
Norsk Hydro, sem í upphafi var
fullyrt að fjárfesta myndi í ál-
bræðslu á Reyðarfirði og hugsan-
lega einnig í virkjun henni tengdri,
gaf einungis upp að þeir hefðu hug á
20–25% hlut í álbræðslunni. Þá var
fullyrt að svo mikill hagnaður yrði
fyrirsjáanlega af starfseminni að
mikilvægt væri fyrir Íslendinga að
eiga meirihluta í fyrirtækinu. Var
þátttaka lífeyrissjóða nefnd sérstak-
lega í því sambandi, en eðli málsins
samkvæmt ber þeim að ávaxta fjár-
muni sína á sem tryggastan hátt.
Þessi mjög svo varfærna afstaða
Norsk Hydro til málsins gat ekki
þýtt annað en að fjárfestingin væri
mjög vafasöm. Með því að láta Ís-
lendingum eftir að fjármagna alfar-
ið virkjanaframkvæmdirnar og að
auki álbræðsluna að 75–80%, var
augljóst að Norsk Hydro hætti ekki
miklu, þar sem þeir áttu að sjá um
alla tæknilegan þátt uppbyggingar
og væntanlega einnig sölu afurða.
Kaup Norsk Hydro á þýska álfyr-
irtækinu VAW og sameining við
Norsk Aluminium undir nýju nafni,
Hydro Aluminium, varð til þess að
mun meiri áhersla er nú lögð á að
fullnægja álþörf með endurvinnslu á
áli, þar sem einungis 5% orku þarf
til endurvinnslu á hverju tonni sam-
anborið við frumvinnslu. Jafnframt
munu þeir auka frumvinnslu á áli í
Brasilíu og öðrum þeim stöðum, þar
sem allar aðstæður eru sem hag-
stæðastar. Skammtímasjónarmið
stjórnmálamanna í atkvæðaleit
koma hvergi nærri þeirri ákvarð-
anatöku.
Heiðarleg skýring
Það stendur upp á þig, Friðrik, að
gefa landsmönnum heiðarlega skýr-
ingu á því, hvers vegna fá má raf-
orku á ódýrara verði frá nýjum
vatnsaflsvirkjunum og miðlunum á
Þjórsár-Tungnársvæðinu og gufu-
orkuverum á Hengilssvæðinu og
Reykjanesi en fyrirsjáanlega er
mögulegt frá Kárahnjúkavirkjun.
Þetta myndi eyða þeim misskilningi,
sem talsvert hefur borið á að und-
anförnu, að hreppapólitík ráði því að
mun minni andstaða er gegn áform-
um um stækkanir álbræðslnanna,
sem til staðar eru í landinu. Þó að
eftir eigi að semja um raforkuverðið
liggur í augum uppi að lægra kostn-
aðarverð eykur möguleika á að
grundvöllur sé til samninga, auk
þess sem eldri álbræðslur geta að
öðru jöfnu greitt hærra raforkuverð
en nýjar.
ALCOA
„Mey skal að morgni lofa,“ var
svar þitt þegar þér var óskað til
hamingju með „árangurinn“ í út-
varpsviðtali um daginn. Það fór
hrollur um mig, þegar þú lýstir AL-
COA sem „meyju“. Ef á annað borð
á að kvenkenna þennan stærsta álr-
isa heims, væri nær að líkja fyr-
irbrigðinu við tröllskessu. Mörgum
miður góðum sögum fer af fram-
komu skessunnar við þær þjóðir,
þar sem verksmiðjur hennar eru
staðsettar.
5–6 risafyrirtæki eru yfirgnæf-
andi í heimi álsins. Þó er mjög erfitt
að spá fyrir um verð á áli til næstu
mánaða og missera, hvað þá ára og
áratuga. Tæpast dettur risum þess-
um í hug að reisa nýtt álver á stað,
sem ekki verður unnt að knýja fram
stækkun í framtíðinni. Skammsýni
má ekki leiða til víðtækra og óaft-
urkræfra spjalla á náttúrunni. Sí-
vaxandi fjöldi ferðamanna kemur
gagngert til þess að njóta þess hér,
sem búið er að spilla allt of víða ann-
ars staðar. Um er að ræða verðmæti
sem ekki eru eignfærð í efnahags-
uppgjöri þjóðarinnar frá ári til árs.
Engu að síður er þetta ein af okkar
mestu auðlindum, sem umgangast
ber af virðingu og varfærni. Þá mun
þjóðinni vel farnast.
KÁRAHNJÚKAVIRKJUN
Sveinn
Aðalsteinsson
Ég skora hér með á
þig, Friðrik, segir
Sveinn Aðalsteinsson í
opnu bréfi, að láta birta
í Morgunblaðinu fyr-
irvara þann sem
Sumitomo Mitsui-
bankinn birti í 6 neðstu
línunum á bls. 3 í grein-
argerð sinni dags.
3. september 2001.
Höfundur er viðskiptafræðingur og
einn af stofnendum Umhverfisvina.