Morgunblaðið - 18.08.2002, Síða 42

Morgunblaðið - 18.08.2002, Síða 42
FRÉTTIR 42 SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Opið hús í dag frá kl. 15-17 Suðurlandsbraut 20, sími 533 6050 www.hofdi.is Falleg og björt 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í fjórbýlishúsi. Rúmgott hol, með skápum úr kirsuberjavið. Sam- liggjandi stofur, svalir í suður. Rúm- gott svefnherbergi með góðum skápum. Gott barnaherbergi. Stórt eldhús með borðkrók. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Sérþvottahús í risi auk geymslu. Verð 14,1 m. Frábær staðsetning, stutt í skóla, göngufæri við miðborgina. Gyða og Steingrímur sýna íbúðina í dag frá kl. 15-17. Leifsgata 24 GIMLI GIMLI FASTEIGNASALAN GIMLI, GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - 570 4810 Á þessum eftirsótta stað erum við með til sölu vel skipulagða og bjarta 5 herb. sérhæð á 1. hæð í steinsteyptu þríbýli auk bíl- skúrs. Innan íbúðar eru þrjú svefnherbergi og samliggj- andi stofur. Tvennar svalir úr íbúðinni, aðrar í suður og hinar 22 fm afgirtar austursvalir yfir bílskúr. Húsið var málað og viðgert fyrir u.þ.b 4 árum. Verð 17,8 millj. Áhv. hagstæð hús- bréf og lífeyrissjóðslán, samtals 10,7 millj. Verið velkomin í dag frá kl. 14.00–16.00. ÖLDUGATA 34 - SÉRHÆÐ OG BÍLSKÚR Vorum að fá í sölu fallega 3ja herb. 79 fm íbúð á 2. hæð í fallegu fjölbýli. 2 stór herb. og stór og björt stofa með útg. á suðursvalir. Fallegar innr. Parket og flísar á gólfum. Sameign mikið endurnýjuð. Falleg lóð með leiktækjum. Stutt í þjónustu. Áhv. 6,8 millj. Verð 11,5 millj. Arndís og Pálmi sýna eignina frá kl. 13:00–16:00 í dag, sunnudag. EFSTIHJALLI 7 - 3JA HERB. ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ Húsið er 185 fm ásamt 32 fm bílskúr. Einnig er 110 fm innréttaður kjallari undir húsinu. Glæsilegur vel ræktaður garður umlykur húsið en það er á mörkum útivistarsvæðisins í Elliðaárdal. Verð 29,5 milljónir. Upplýsingar hjá eigendum í símum 567 3506 og 893 3333. Netfang: urr23@simnet.is Ártúnsholt - Urriðakvísl 23 Opið hús frá kl. 16-18 í dag, sunnudag Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði  FAGRIHVAMMUR - HF. - EINB. Glæsilegt einbýli í toppstandi miðsvæðis í suður- bænum í Hafnarfirði. Íbúðin er á einni hæð um 144 fm og kjallari undir öllu húsinu eða samtals um 280 fm. Í kjallara er stór bílskúr og innangengt í íbúð. Að auki er í kjallara herbergi, baðherbergi og góð aðstaða fyrir séríbúð. Glæsilegur garður, innri og ytri, umlykur húsið. Nánari upplýsingar á skrif- stofu Hraunhamars. HJALLABRAUT - ELDRI BORGARAR Glæsileg íbúð fyrir eldri borgara á Hjalla- braut 33. Öll aðstaða og þjónusta til staðar í húsinu. Íbúðin er 93 fm á jarðhæð með vönduðum innréttingum og útsýni til hafs og fjalla. Íbúðin er laus. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Hraunhamars. HÓLMATÚN - PARHÚS - ÁLFTANESI Nýkomið í einkasölu glæsilegt 194 fm parhús með innb. 42 fm bílskúr. Glæsileg arkitektahönnun. Hús klætt að utan. 3 óvenju stór svefnherb. Eitt glæsilegasta húsið á Álftanesinu - allt fyrsta flokks. Áhv. 9,4 millj. Verð 21,9 millj. 60786 SKÓGARLUNDUR - EINB. Í einkas. glæsil. ca 200 fm einb. á þessum fráb. stað. Eignin er mikið endurnýjuð að utan sem innan, m.a. nýtt þak. Nýbyggður vandaður garðskáli. Eldhús og baðherb. hafa verið endurnýjuð. Frábær staðs. í enda á botnlanga. Glæsil. ræktuð lóð. Verðtilb. 88271 Gistiheimili til sölu Suðurlandsbraut 20, sími 533 6050 runolfur@hofdi.is Um er að ræða vel rekið gistiheimili í mjög snyrtilegu húsi í miðbæ Reykjavíkur. Í húsinu eru 16 herb. auk eldhúss, mat- sals o.fl. Gistiheimilið byggir á ferðamönnum á sumrin en fastri útleigu á vetrum. Hér er kjörið tækifæri fyrir einstakling eða samhent hjón. Ásett verð 49 millj. Nánari upplýsingar veitir Runólfur á Fasteignasölunni Höfða og í síma 892 7798. Viltu eignast áhugavert sérbýli með þremur svefnherbergjum og góðum bílskúr? Höfum í einkasölu fjögur hús á mjög hagstæðu verði. Hvernig væri að fá sér bíltúr í Hvera- gerði næstu daga og skoða ný, falleg hús. Húsin eru 123 fm með innbyggðum bílskúr, full- frágengin að utan, einangruð að innan með vélslípuðum gólfum og verðið er aðeins 9.150 þús. fullbúin, án gólfefna 13.650 þús. Afhending í ágústmánuði. GIMLI HVERAGERÐI Allar upplýsingar um þessi hús hjá sölumanni okkar í Hveragerði í sími 483-4151 og í GSM 892-9330 MIKLIR MÖGULEIKAR - LAND Í ÖLFUSI ÁSAMT BOGSKEMMU Á 2 ha spildu úr landi Valla í Ölfusi er 330 fm bogaskemma til sölu, einangruð og sundurstúkuð að hluta og með hitaveitu. Landinu fylgir góð jarðvegsskipt útiaðstaða. Tilvalið er að byggja íbúðarhús án allra lóðargjalda. Hér er um áhugaverða eign að ræða, rétt utan við Hveragerði. Ýmsir og mjög fjölbreyttir notkunarmöguleikar. LEIÐRÉTT Tapi snúið í hagnað Ónákvæmni gætt í fyrirsögn í frétt í Morgunblaðinu í gær um af- komu Hraðfrystihúss Þórshafnar. Eins og kemur fram í fréttinni var hagnaður fyrirtækisins 244,4 millj- ónir á fyrri helmingi ársins. Tap var hins vegar á fyrri hluta síðasta árs. ÞAÐ ER svo mikið rætt og ritað um svokallaðan einkadans að á andvökunóttum fer þetta efni að sækja að manni. Eina nóttina lá ég og var að hugsa um hvað fram færi í þessum bæ meðan ég lægi hér og hugsaði og hugsaði. Líklega svæfu flestir en margt drifi sennilega á „daga“ þeirra sem væru vakandi og í ýmiskonar aðgerð- um. Skemmtana- lífið bar auðvitað hæst í umhugsun um það sem fram færi. Það væri nú líklega líf í tuskunum, hjá þeim sem á annað borð væru í tuskum. Úr þessari hugsun var örstutt í einkadansinn, því þar er víst alsiða að fækka tuskum jafnt og þétt þar til fátt eitt stendur eftir nema þá kannski sá hjúpur sem við flest umvefjum okkur í til þess að verj- ast ágangi annarra og liggur í vök- ulu augnaráði og fráhrindandi við- horfi. Þannig viðhorf sér maður t.d. vel í sundlaugum. Fólk glatar ekki virðuleik úr fasi sínu þótt það sé þar allsnakið og manni dytti ekki hug að fara að ráðast inn á einkaathafnasvæði annarra sund- laugagesta þótt maður væri sjálfur í fötum en þeir berir, – enda yrði manni þá bara hent út. Sumir segja að þessu sé öðruvísi farið þegar einkadansinn er annars vegar. Meðal annars hafa sumar þessar einkadansmeyjar látið eftir sér hafa að þær verði fyrir áreitni við dansinn og jafnvel sé farið á fjörurnar við þær. Fáar konur hafa orðið til að mótmæla þessu en hins vegar þónokkrir karlmenn. Þeir eru líklega sérlega vandaðir til orðs og æðis og geta ekki trúað þessu upp á kynbræður sína. Út frá þessu fór ég að hugsa um hvort ég myndi hugsanlega drífa mig á fætur og fara niður í bæ til þess að kaupa mér einkadans ef karlmenn sinntu þessari þjónustu eins og konur gera. Við nánari umhugsun komst ég að þeirri niðurstöðu að ekki aðeins væri ég ófáanleg til þess að borga fyrir slíkan einkadans heldur þyrfti að bjóða mér mikið fé til þess að fá mig til þess að horfa á ókunnugan karlmann, varla arms- lengd frá mér, dansa um fyrir framan mig, tínandi af sér spjar- irnar eina af annarri með ögrandi fasi. Þegar ég hugsaði um sveittan líkamann með ókunnuga lykt, hár- in á fótleggjunum og kannski brjóstkassanum og allt annað sem prýðir karlmannslíkamann hraus mér hugur við og ákvað með sjálfri mér að jafnvel miklir peningar dygðu ekki til, í það minnsta yrði dansinn að vera mjög stuttur. Ef við bættist að umræddur dansari væri frá Austur-Evrópu og væri kannski búið að taka passann hans og troða hann út af eiturlyfjum, þá segi ég fyrir mig – ég kynni ekki við þetta. Þó hefur mér hingað til þótt karlmenn nokkuð áhugaverðir og ég hef þekkt mörg góð eintök af því kyni. Ég er líklega ekki ein um þetta viðhorf til einkadansins, því það ber ekki á því að slíkur dans fyrir konur sé mikið stundaður svo ég viti til. Allt öðru máli gegnir um venju- legan dans, ég viðurkenni að ég hef oftar en ég hef tölu á látið hafa mig út á gólfið í faðmi ókunnugs manns og dansaði þar fram og aft- ur án þess að á bæri að ég yndi mér illa. Svona er lífið undarlegt. Líklega er það tilfinningin um að kaupa sér svona þjónustu og svo vitneskjan um neyð eða nauð þess sem þjónustuna léti af hendi sem markar það viðhorf að ég kynni alls ekki við þetta. En miðað við fréttir af eftirspurn eftir einka- dansi þá eru karlmenn margir hverjir ekki eins viðkvæmir fyrir neyð annarra. Ef fréttir af meintu vændi í tengslum við einkadansinn eru réttar þá má ætla að það standi þeim ekki fyrir kynferðis- legum æsingi þótt hin keypta einkadansmey sé í brjóstumkenn- anlegri neyð stödd og sinni þessu viðfangsefni af öðrum ástæðum en löngun sinni. Maður á kannski ekki að dæma – en ég get ekki að því gert, mér finnst þetta ekki fallegt af mönnum. Mér finnst að þeir ættu bara að reyna að ná sér í konur með gamla laginu og láta sig hafa það þótt þeir þyrftu að vinna það til að bjóða þeim út að borða, í leikhús eða bíó. Ég er heldur ekki viss um að það yrði þeim svo miklu dýrara þegar upp er staðið – ef þeir eru að hugsa um þetta á pen- ingalegum nótum. Að þessu hugs- uðu sneri ég koddanum mínum við svo hann yrði kaldari og ákvað að taka undir með þeim sem vilja banna einkadans. Í minningu Cato gamla segi ég því: „Auk þess legg ég til að „þessi syndarinnar“ Kar- þagó (einkadansinn en ekki stað- irnir) verði lögð í rúst.“ Þjóðlífsþankar/Á að leyfa einkadans? Auk þess legg ég til … eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.