Morgunblaðið - 18.08.2002, Side 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 43
Sérhæfðir sölumenn í atvinnuhúsnæði!
FRANZ@holl.is
Hóll — Alltaf
rífandi salaAGUST@holl.is
FJÖLDI EIGNA TIL
SÖLU OG LEIGU!
Ekki hika við að hringja í
okkur félagana,
Franz, gsm 893 4284,
Ágúst gsm, 894 7230.
Suðurlandsbraut
Til leigu
í þessu glæsilega húsi tvær til þrjár
hæðir, samtals allt að 3000 fm. Mjög
góð staðsetning. Glæsilegar, mjög
vandaðar og góðar skrifstofur á 3. og
4. hæð. Húsnæðið uppfyllir allar kröf-
ur til nútíma skrifstofureksturs. Eign-
in er í eigu traustra aðila. Sanngjörn
leiga fyrir rétta aðila.
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Upplýsingar veitir
Magnús Gunnarsson í
s. 588 4477 eða 899 9271
Nýkomið á skrá hár-
greiðslustofa í eigin hús-
næði á þessum eftirsótta
stað. Húsnæðið er á 1.
hæð og innréttingar og
tæki fyrsta flokks. Húsnæðið er 96 fm með sex stólum. Einnig
er til staðar aðstaða fyrir tvo ljósabekki. Stofan er í dag rekin
með þremur starfskröftum í hárgreiðslu, sem hægt er að ráða
áfram. Öll aðstaða til fyrirmyndar. Stofa með jafna og góða inn-
komu. Hárgreiðslustofan og húsnæðið er til sölu ásamt lager og
tækjum og selst í einu lagi. Allar nánari upplýsingar veita sölu-
menn okkar á skrifstofutíma. Verð 19,8 millj.
NÚPALIND - HÁRGREIÐSLUSTOFA OG HÚSNÆÐI
TIL SÖLU - MIKLIR MÖGULEIKAR
GIMLI GIMLI
FASTEIGNASALAN GIMLI, GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - 570 4810
SUMARHÚS
Sumarbústaður við Skorra-
dalsvatn Fallegur sumarbústaður við
Skorradalsvatn með möguleika á stækk-
un. Búst. stendur í fallegum birkiskógi. 2
svefnherb. auk svefnlofts, stofa, eldhús,
bað og góð verönd. Allt innbú fylgir svo
og bátur með utanborðsmótor. 2613
EINBÝLI
Fagrabrekka Fallegt og vel viðhald-
ið 155 fm einbýlishús á 1 hæð með stórri
lóð, ásamt 40 fm bílskúr. Húsið skiptist
þannig: forstofa, hol, stofa og borðstofa,
eldhús, baðherb., þv. hús og 3 svefnher-
b. Auk þess er björt og rúmgóð vinnu-
stofa með 5 m lofthæð. Bílskúrinn er inn-
rétt. sem vinnu- eða íbúðaraðstaða. Hús-
ið er laust fljótl. V. 21,9 m. 2601
PARHÚS
Hjarðarland - Mos. - laust 1.
sept. Nýl. (1990) 188 fm parhús á 2
hæðum með 30 fm innb. bílskúr. Húsið
skiptist í 4 svefnherb., stofu/borðstofu,
eldhús og 2 baðherb. Stórar s-svalir og
mikil lofthæð í stofum. V. 17,5 m. 2605
HÆÐIR
Sólvallagata - falleg hæð
5 herb. um 115 fm efri hæð í reisul. og
fallegu sérstæðu húsi ásamt bílsk. Hæð-
in skiptist í 3 saml. stofur, 2 herb., eldh.
og bað. Laus strax. V. 17,5 m. 2340
Suðurgata - sérhæð + bíl-
skúr 130 fm íbúð á hæð og í risi ásamt
30 fm bílskúr á fallegum stað við Suður-
götuna í Reykjavík. Húsið hefur mikið
verið endurnýjað að utan, íbúðin er í
góðu ástandi með tveimur svölum. Sér-
inngangur og bílastæði á lóð. Laus strax.
Áhvílandi 8,0 millj. í húsbréfum. Verð
18,7 millj. 2544
Fjólugata - 137 fm Til sölu mjög
falleg íbúð á 1. hæð og í kjallara á eftir-
sóttum stað. Á hæðinni eru m.a. þrjár
samliggjandi rúmgóðar stofur með mikilli
lofthæð, eldhús og snyrting. Í kjallara eru
þrjú herbergi, baðherbergi, vinnu-
herbergi og fleira. Verð 19,9 millj. 2578
3JA HERB.
Eikjuvogur - sérinngangur
Falleg og vel staðsett 73 fm íbúð. Kjall-
ari/jarhæð með sérinngangi í tvíbýli á
góðum stað í Eikjuvoginum. Eignin skipt-
ist í hol, stofu, borðstofu, eldhús, bað-
herbergi og herbergi. Góðar innréttingar
og parket á gólfum. Allt sér. Verð 9,9
millj. 2593
2JA HERB.
Ástún Falleg 2ja herbergja íbúð í
Ástúni í blokk sem var máluð sumarið
2002. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, bað-
herbergi, herbergi, stofu og eldhús.
Rúmgóðar svalir. Sérgeymsla í kjallara,
þurrkherbergi og hjóla- og vagna-
geymsla. Útsýni. Verð 9 millj. 2603
Austurberg - einstaklingsíb.
- ódýrt Vorum að fá í sölu tæplega 30
fm einstaklingíbúð á jarðhæð með sér-
garði. Laus strax. V. 4,8 m. 2591
Skipasund - glæsileg 2ja herb.
um 60 fm íb. sem öll hefur verið endurn.
þ.e. eldhúsinnr., baðh., lagnir að mestu,
gólfefni, hurðir o.fl. Húsið er nýklætt að
utan. Glæsil. eign. V. 8,9 m. 2612
BOÐAGRANDI 2
Glæsileg 2ja-3ja herbergja endaíbúð á efstu hæð í mjög fallegu nýju lyftuhúsi
ásamt stæði í vandaðri bílageymslu sem er undir húsinu og er innangengt beint
að lyftunni. Hún hefur tvennar svalir til suðurs og vesturs og nýtur einstaks út-
sýnis, bæði yfir alla Reykjavík og vestur yfir Seltjarnarnesið og áfram út flóann.
Sérlega vandaðar innréttingar og gólfefni. Laus strax
RÓTARYKLÚBBUR Ólafsvíkur
með Sæmund Kristjánsson í far-
arbroddi setti upp skilti fyrr í sum-
ar með upplýsingum um Ólafs-
víkur-Svaninn, skip sem sigldi í 115
ár milli Íslands og meginlands Evr-
ópu.
Skiltið var sett niður við hlið
Litabúðarinnar í Ólafsvík og á því
er ítarlegur texti á íslensku og
ensku þar sem annarsvegar er
fjallað um sögu skipsins og hins-
vegar um skipstjórana sem stjórn-
uðu skipinu.
Á skiltinu stendur meðal annars:
„Svanen“ var byggður fyrir ís-
lensku, færeysku og finnmersku
konungsverslunina sem „fiski-
húkkerta“ í Eckernförde í Slesvík
árið 1777-78, eftir teikningu skipa-
smíðameistarans Erik Eskildsen,
dagsettri í Kaupmannahöfn 18. nóv.
1777, sérstaklega merktri „Svan-
1en“. Nafn þess er stóð fyrir smíði
skipsins er nú ekki lengur þekkt.
Lengd milli stafna skipsins er sögð
vera 63’5’’, breidd þess 17’og dýpt í
lest 9’6’’. Djúprista að aftan 8’6’’, að
framan 8’ og stærðin áætluð 30
„commerce“-lestir. Breyttar mæl-
ireglur eftir 1867 segja skipið 64,5
commerce-lestir eða 129 rúmlestir.
Bolurinn var úr eik og eirnegldur,
botn skipsins var klæddur kop-
arþynnum upp að sjólínu til að verj-
ast sjávargróðri. Fram á miðja
nítjándu öld voru 9 manns í áhöfn,
en með breyttum seglabúnaði var
fækkað um tvo. Að sumrinu var
skipinu haldið til veiða. Þá bættust
5-6 innlendir fiskimenn við áhöfn-
ina.
Þegar konungsversluninni lauk
árið 1787 og verslunin við Ísland
var aftur fengin í hendur kaup-
manna voru öll skip verslunarinnar
seld og þar með einnig húkkertan
„Svanen“. Hver keypti hana er ekki
vitað en 6 árum síðar, árið 1793, er
Íslandskaupmaðurinn eða versl-
unarstjórinn Ole Christensen Olsen
nefndur útgerðarmaður en hann
átti Flateyjarverslun árið 1808
(sama ár og H.P. Clausen er eigandi
Ólafsvíkurverslunarinnar). Um
veru Svansins þar eru góðar vís-
bendingar því á þeim árum þurftu
kaupmenn í Íslandssiglingum mjög
oft á aðstoð yfirvalda að halda
vegna ófriðarins vegna Napóleons-
stríðanna. Siglingar til Íslands voru
áhættusamar eftir að Danmörk
flæktist í deilurnar líkt og árið 1808
er Bretar hertóku öll kaupskip á út-
siglingu héðan sem þeir gátu náð
til, þar á meðal Svaninn, sem haldið
var í herkví í heilt ár og náði ekki
til Kaupmannahafnar fyrr en 1810.
Svo flækti líka Jörgensen hunda-
dagakóngur málið þannig að marg-
ar verslanir urðu fyrir miklum
skakkaföllum en stjórnin átti í fjár-
hagslegum erfiðleikum er lauk með
gjaldþroti danska ríkisins 1811.
Á árunum 1812-1825 er stór-
kaupmaðurinn Holger Peter Clau-
sen eigandi Svansins. Hann eins og
fleiri Íslandskaupmenn á þeim
óróatímum lenti í fjárhagskröggum
og varð að lokum gjaldþrota
nokkru áður en hann lést. Seldi
dánarbú hans þá Svaninn stórkaup-
manninum Jacob Holm. Hann var á
þeim tíma einhver umsvifamesti at-
hafnamaður Danmerkur, sem auk
kaupsýslunnar rak fjölda skipa,
verksmiðjur og eigin skipa-
smíðastöð – og talinn mjög efnaður.
Frá 1826 er „Svanen“ í eigu og
rekstri Jacobs Hólm og (eftir 1859)
fyrirtækis hans, Jacob Holm & Søn-
ner, samfleytt í 45 ár. Árið 1871
eignast stórkaupmaðurinn H.A.
Clausen skipið, sem hann hafði haft
á leigu af og til frá árunum eftir
1840. Hann rekur skipið áfram í Ís-
landssiglingum, þ. á m. í vetr-
arleigu sem birgðaskip fyrir herinn
í Kaupmannahöfn í stríði Dana og
Þjóðverja 1864-65. Árið 1890 kaup-
ir svo síðasti eigandinn, fyrirtækið
Salomon Davidsen, gömlu húkkert-
una „Svanen“ og mun hafa átt hann
er hann rekur upp í höfninni í
Ólafsvík í norðanstórviðri 6. októ-
ber 1893, þótt hann þá kunni að
hafa verið í leigu annarra.
Talsvert ítarlegra ritmál er á
skiltinu og vel þess virði að gera sér
ferð til að skoða það og kannski fá
sér ís í leiðinni.
Textinn á skiltinu er úr óútgef-
inni ritgerð eftir Pétur Sigurðsson,
forstjóra Landhelgisgæslunnar, og
birt með góðfúslegu leyfi sona Pét-
urs.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Söguskilti um
Ólafsvíkur-Svaninn