Morgunblaðið - 18.08.2002, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 51
DAGBÓK
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudagskvöld 23. ágúst og laugardag
24. ágúst í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Meðvirkni
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Fimm daga námskeið í blómaskreytingum
frá kl. 9-17, dagana 26.-30. ágúst.
Kenndir eru mismunandi blómvendir,
brúðarvendir, skreytingar, kransar
og annað eftir óskum.
Skráning í síma 555 3932 - Uppl. í síma 897 1876.
Blómaskreytinganámskeið
VR styrkurUffe Balslev
Upplýsingar gefur Martin
í síma 567 4991 eða 897 8190
Um er að ræða 4ra ára nám sem byrjar
í haust á vegum College of Practical
Homoeopathy í Bretlandi.
Mæting 10 helgar á ári í Reykjavík.
Spennandi nám.
Kennarar með miklu reynslu.
Hómópatanám
hitablásarar
WESPER
Nú eru til afhendingar
einir bestu blásararnir á
markaðnum:
7kw, 10kw, 19kw/24kw
og 28kw/35kw
Pípurnar er úr
kopar - nikkel.
Miklu sterkari en eirinn.
Hljóðlátustu blásararnir
á markaðnum.
Verði mjög stillt í hóf.
40 ára reynsla.
WESPER UMBOÐIÐ.
SÓLHEIMUM 26, 104 REYKJAVÍK,
SÍMI 553 4932, GSM 898 9336,
FAX 581 4932.
Innritun á námskeið hefst 26. ágúst
Síðumúla 35, s. 553 3770. Opið mán.-fös. kl. 10-18.
BÚTASALA - AFSLÁTTARDAGAR
19.-23. ágúst
35 - 40% afsláttur af bútum.
20% afsláttur af öðrum vörum.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Þolinmæði þín og réttlæt-
iskennd er meiri en orð fá
lýst og afmælisbarnið
er djúphyggið. Hindranir
og áskoranir ögra því
til átaka og sigra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þar sem sköpunargleði þín
er sterk um þessar mundir
er rétt að láta vita af því
með einhverjum hætti.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú er tími kominn til að þú
festir rætur ef þú ætlar það
þá einhvern tíma. Reyndu
að finna þér fótfestu í lífinu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Samskipti við aðra eru með
betra móti, enda hefurðu
áttað þig á að hömlur í þeim
efnum voru ekki utanað-
komandi heldur komu inn-
an frá.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Upplagt er að gaumgæfa
áform sín í dag af hrein-
skilni og átta sig á hvað
þarf til að ná markmiðun-
um.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þar sem þrjár reikistjörnur
eru í ljónsmerkinu dregst
fólk og auður að þér og þú
munt ná miklu fram næsta
árið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú finnur mikla löngun til
að eiga samskipti við aðra í
dag og munt fá mikið út úr
skoðanaskiptum við fólk.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vonir þínar og hugmyndir
um framtíðina munu frem-
ur rætast í dag en aðra
daga, ekki síst þar sem þú
áttar þig betur á hverju þú
getur áorkað.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Nú eru upplagðir tímar til
að taka þátt í hreyfingum
er hafa það að markmiði að
bæta heiminn eða þig.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér er nú ljóst að það dug-
ar lítt að lifa lengur með
gömlu fordómunum. Fólk
getur alltaf þroskast, sama
hversu gamalt það er.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert í þeirri ágætu stöðu
að geta notið auðæva ann-
arra, annað hvort gegnum
förunaut þinn eða arf eða
gjafir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Nú er rétti tíminn til að
leita til sérfræðinga með
þín mál. Njóttu ráða þeirra,
það þarf ekki að finna hjól-
ið upp aftur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér mun fara svo fram í
vinnunni á árinu að það
hálfa væri nóg. Taktu já-
kvætt á öllum breytingum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
90ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 18.
ágúst, er níræð Ólafía
Thorlacius, Nóatúni 32,
Reykjavík. Hún verður að
heiman.
70ÁRA afmæli. Á morg-un, mánudaginn 19.
ágúst, er sjötugur Halldór
Árnason skósmiður, Lind-
arsíðu 4 á Akureyri. Hall-
dór er að heiman á afmæl-
isdaginn.
LJÓÐABROT
Ráðið
Hossir þú heimskum gikki,
hann gengur lagið á,
og ótal asna stykki
af honum muntu fá;
góðmennskan gildir ekki,
gefðu duglega á kjaft:
slíkt hefir, það ég þekki,
þann allra bezta kraft.
Benedikt Jónsson Gröndal.
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Be7 4.
cxd5 exd5 5. Bf4 Rf6 6. e3
Bf5 7. Rge2 O-O 8. Rg3 Be6
9. Bd3 c5 10. dxc5 Bxc5 11.
O-O Rc6 12. Hc1 d4 13. Rb5
Bb6 14. e4 Rg4 15. Rf5 Bxf5
16. exf5 Rge5 17. Be4 He8
18. Dh5 a6 19. Ra3 d3 20.
Rc4 Rxc4 21. Hxc4 d2 22.
f6 g6 23. Dh6 Dxf6 24.
Bxd2 Bd4
Staðan kom upp á Lost
Boys mótinu sem lauk
fyrir skömmu í Amster-
dam. Ivan Sokolov (2677)
hafði hvítt gegn Andrey
Shchekachev (2546). 25.
Bxc6! bxc6 26. Hxd4! og
svartur gafst upp enda
gengur 26...Dxd4 ekki
upp vegna 27. Bc3. Ís-
landsvinurinn Ivan teflir
nú undir fána Hollands en
hann hefur búið þar í mörg
ár ásamt konu sinni og börn-
um.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
ÞAÐ hefur lengi vafist fyrir
dálkahöfundi að koma orð-
um að því þegar karl og
kona spila saman. Banda-
ríkjamenn tala hiklaust um
„mixed pair“, sem einhvern
veginn gengur ekki í beinni
þýðingu sem „blandað par“.
Ef til eru „blönduð pör“
ættu líka að vera að vera til
„óblönduð pör“. Hvernig
líst mönnum á þetta:
„Meckstroth og Rodwell
eru eitt besta óblandaða
par sögunnar.“ Nei, þetta
gengur ekki.
Norður
♠ 98
♥ K1092
♦ DG5
♣9873
Vestur Austur
♠ KG6 ♠ D107532
♥ 5 ♥ G43
♦ K98432 ♦ 76
♣DG6 ♣K2
Suður
♠ Á4
♥ ÁD876
♦ Á10
♣Á1054
Stundum er farið í kring-
um vandann með því að
kalla það „parakeppni“
þegar karl og kona spila
saman, en það er óþægilega
tvírætt, því parakeppni er
auðvitað tvímenningur.
Þetta er vandamál, en ég
bið menn þó lengstra orða
að taka ekki upp orðin
„samkynja“ og „gagn-
kynja“ til að leysa vandann.
Flestir spilarar hneigjast
til að spila á móti makker
af sama kyni, án þess þó að
vera samkynhneigðir.
Að svo mæltu er tíma-
bært að koma sér að efn-
inu. Helen Sobel (1910–
1969) og Charles Goren
(1901–1991) mynduðu
sennilega þekktasta
„blandaða par“ bridssög-
unnar. Goren var kennivald
síns tíma, stórtækur höf-
undur sem allir þekktu, og
Sobel mátti lúta því að vera
í skugga meistarans. Í hópi
keppnisspilara naut Sobel
hins vegar réttmætrar virð-
ingar sem toppspilari. Ekki
voru þó allir jafn vel upp-
lýstir um hæfileika konunn-
ar. Eitt sinn spurði áhuga-
samur áhorfandi Sobel
hvernig það væri að spila á
móti sönnum meistara.
Svarið var: „Ég veit það, þú
ættir að spyrja Charles.“
Sobel var með spil suð-
urs að ofan, sagnhafi í fjór-
um hjörtum. Vestur kom út
með laufdrottningu, sem
hún tók með ás og lagði
niður ÁD í hjarta og vestur
kallaði í tígli með fyrsta af-
kasti. Hvernig myndi les-
andinn spila?
Soblel ákvað að treysta
afkastinu og láta tígulsvín-
inguna eiga sig, en byggja
þess í stað upp slag á tígul
sem niðurkast fyrir spaða-
hundinn heima. Ekki er þó
sama hvernig það er gert.
Ef þriðja trompið er tekið
áður en tígullinn er fríaður
missir sagnhafi vald á
spilinu og nær ekki byggja
upp slag á fjórða laufið.
Ekki má heldur spila tíg-
ulás og tígli, því vestur spil-
ar þá enn tígli og lætur
austur trompa.
Sobel fann rétta leikinn –
spilaði tígultíu undan ásn-
um.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
40ÁRA afmæli. Á morg-un, mánudaginn 19.
ágúst, verður fertug Krist-
björg Theodórs Jónsdóttir,
meinatæknir, starfsmaður
hjá deCode, Húsalind 5,
Kópavogi.
ALDARMINNING. Aldarminning hjónanna frá Ingjaldshóli,
Maríu Óladóttur, f. 18. ágúst 1902, d. 4. desember 1972, frá
Miðhrauni, Miklaholtshreppi, Snæfellsnesi, og Jörundar
Þórðarsonar, f. 10. ágúst 1901, d. 19. desember 1988, frá
Bíldhóli á Skógarströnd, Snæfellsnesi. Þau giftu sig 9. júní
1928 og eignuðust sjö börn, og í dag eru afkomendur þeirra
sjötíu og fimm.
Þau hættu búskap 1966 og fluttu suður. Þau hvíla í Kefla-
víkurkirkjugarði. Blesssuð sé minning þeirra.
Flotaforinginn
vill fá saltið!