Morgunblaðið - 18.08.2002, Blaðsíða 59
KRAKKARNIR í múm hafa verið á
stífu tónleikaferðalagi um Banda-
ríkin í mánuð. Í mánuðinum þar á
undan léku þau um gjörvalla Evr-
ópu en ferðalagið endar svo í Japan
um þessa helgi. Þau léku í Osaka í
gærkvöldi og Tókýó mun njóta list-
fengi þeirra í kvöld.
Nú er vart blettur í Bandaríkj-
unum sem múm hefur ekki stigið
sínum tónelska fæti á. Í New York
léku þau í Knitting Factory sem er
mekka framúrstefnutónlistar þar
vestan hafs og David Fricke, hinn
virti tónlistargagnrýnandi Rolling
Stone, mætti á svæðið og var bara
hress með frammistöðu múmara.
Hann segir þau, líkt og Björk og
Sigur Rós, mjög næm fyrir ljóðrænu
ljóss og rýmis og segir að endingu
að tónlistin sé dásamleg og djörf;
unnin úr ljúfum og viðkvæmum efni-
viði. Við hin, sem sitjum hér á Fróni,
getum séð sveitina og heyrt í Þjóð-
leikhúsinu 30. ágúst næstkomandi.
Ljósmynd/Chris Bellew
Múm spilaði í San Fransisco,
laugardaginn 10. ágúst, í Great
American Music Hall, og er
þessi mynd tekin þar.
Múm í Japan
Dásamleg
og djörf
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 59
STÓRKOSTLEGAR TÆKNIBRELLUR
OG BRJÁLAÐUR HASAR.
Sýnd kl. 2, 4, 8 og 10.
HK DV
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6 og 9. B. i. 14.
„Ein besta mynd þessa
árs. Fullkomlega
ómissandi.“
SV Mbl
Radíó X
1/2
Kvikmyndir.com
Frumsýning
Stúart lendir í ótrúlegum ævintýrum með kettinum
Snjóber og fuglinum Möggu Lóu! Frábær skemmtun
fyrir alla fjölskylduna.
l i í l i i
j li
i ll j l l .
Sýnd kl. 2, 4 og 6 með íslensku tali.
Frumsýning
Ben affleck Morgan Freeman
27.000 kjarnorkusprengjur
Einnar er saknað
Sýnd kl. 3.45, 6, 9 og POWER kl. 11.15.
POWERSÝNING
kl. 11.15.
Á STÆRSTA THX
tJALDI LANDSINS
Sýnd kl. 6, 9
og Powersýning kl. 10.30. B. i. 14.
Sýnd kl. 2, 4 og 6 með íslensku tali.
Mán 6 og 8.
Hverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
„Besta mynd ársins til þessa“
1/2HÖJ Kvikmyndir.com
„Ein besta mynd þessa árs.
Fullkomlega ómissandi.“
SV Mbl
Powersýning
kl. 10.30.
ÓHT Rás2
HK DV
Radíó X
Frumsýning
Stúart lendir í ótrúlegum ævintýrum með
kettinum Snjóber og fuglinum Möggu Lóu!
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
.
Forsýning
Powerforsýning kl. 8.
Powerforsýning
kl. 8.
Yfir 15.000 MANNS
Sýnd kl. 2, 4, 6.30, 8.30 og 10.30. Mán 6.30, 8.30 og 10.30.
Yfir
35.000
MANNS
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán 6, 8 og 10.
Sun. kl. 2 og 4.15.
2 fyrir 1
Allar síðustu sýn.
The Sweetest Thing
Sexý og Single
Yfir 15.000 MANNS
TÓNLISTARMAÐURINN Beck
hefur nú nefnt væntanlega breið-
skífu sína sem kemur á markað
þann 23. septembermánuðar. Grip-
urinn hefur hlotið nafnið Sea
Change og hefur að geyma 12 lög.
Í kjölfar útgáfunnar hyggst kapp-
inn svo leggja upp í tónleikaferð frá
miðjum október og fram í desem-
ber. Það sem markvert þykir við þá
ferð er að hljómsveitin Flaming
Lips hefur verið ráðin sem undir-
leikarar Beck. Engir tónleikar hafa
enn verið bókaðir en Beck sagði í
samtali við MTV sjónvarpsstöðina
að hann væri mjög spenntur fyrir
samvinnunni og myndi leggja á sig
nánast hvað sem er til að hún gengi
upp.
Reuters
Beck er mikill aðdáandi hinna
logandi vara, eða Flaming Lips.
Beck og Flaming Lips hyggja á samstarf
Leitast eftir
logandi vörum
SÖNG- OG leikkonan Jennifer
Lopez eyddi nýlega nokkrum millj-
ónum í að kaupa nýjan bíl handa
nýja kærastanum, Ben Affleck.
Jennifer, eða J-Lo eins og hún er
oft kölluð, lét ekkert minna duga
en Aston Martin DB7, en bílinn
keypti hún í Coral Gables í Flórída.
Ekki gerði hún þetta þó vegna
þess að Affleck vantaði nauðsyn-
lega bifreið því hann er nýbúinn að
kaupa sér Ferrari Spider hjá sömu
bílasölu.
Affleck, sem er 29 ára, fór strax í
bílferð með J-Lo, sem er 32 ára, og
keyrðu þau saman um Miami
Beach á nýja farartækinu. Parið
kynntist við upptökur á myndinni
Gigli þar sem þau fara bæði með
hlutverk.
Örlát
J-Lo
Reuters
Það er gott að eiga góða að,
sérstaklega J-Lo.
Á YFIRSTANDANDI Edinborg-
arhátíð eru hjónin Susan Sarandon
og Tim Robbins meðal fjölmargra
sem troða upp á sviði.
Leikritið þeirra The Guys fjallar
um harmleikinn 11. september. Tim
og Susan eru einu leikararnir í
hlutverkum slökkviliðsstjóra sem
tók þátt í björgunarstarfinu og rit-
stjóra sem hjálpar honum að skrifa
eftirmæli um fjóra undirmenn sína.
Þau hjónin, þá sérstaklega Tim,
eru þekkt fyrir sterka ádeilu í
vönduðum verkum sínum. Þar
muna allir eftir kvikmynd þeirra
Dead Man Walking, sem Tim leik-
stýrði en Susan fékk Óskarinn fyrir
aðalhlutverkið, en þar beindist
ádeilan að dauðarefsingum.
Löngu uppselt hafði verið á leik-
sýningarnar þrjár í Edinborg, og
þeir sem fengu þá miða voru víst
ekki sviknir. Áhorfendur stóðu á
fætur og klöppuðu í langan tíma og
allir vildu óska hjónunum til ham-
ingju með verkið.
Á fréttavef BBC segir að leikritið
gefi góða innsýn í það sem fólk
þurfti að upplifa og að þetta hafi
verið harmleikur allra. Á blaða-
mannafundi í Edinborg sögðu
Robbins og Sarandon að ætlunin
með leikritinu væri ekki að fjalla
um pólitískar afleiðingar árásanna.
Tim Robbins og Susan Sarandon
slá í gegn í Edinborg með leik-
riti um 11. september.
Harmleik-
ur á sviði
Trúlofunar- og giftingahringir
20% afsláttur
www.gunnimagg.is