Morgunblaðið - 18.08.2002, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
hér sérðu
debetkort, skólaskírteini, afsláttarkort
og alþjóðlegt stúdentaskírteini.
4kort
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
REYKJAVÍKURMARAÞON, sem
markar upphaf menningarnætur í
miðborg Reykjavíkur, fór fram í
góðu veðri í gær. Þátttaka í hlaup-
inu var mjög góð. Þetta er í sjöunda
sinn sem menningarnótt í miðborg-
inni er haldin. Árni Þór Sigurðsson,
forseti borgarstjórnar, setti menn-
ingarnótt í Lækjargötu á hádegi og
ræsti um leið hlaupara í Reykjavík-
urmaraþoni.
Dagskrá menningarnætur var
fjölbreytt að vanda en fjöldi þátt-
takenda hefur aukist ár frá ári.
Margar verslanir, veitingahús,
kirkjur, söfn, gallerí og vinnustofur
voru opin frameftir og margs kon-
ar viðburðir voru í boði í tilefni
dagsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Góð þátt-
taka í
Reykjavík-
urmaraþoni
Leigubílstjóra-
félagið Frami
Vill
fækka
leyfum úr
570 í 520
FRAMI, eitt þriggja félaga
leigubílstjóra á höfuðborgar-
svæðinu, hefur óskað eftir því
við samgönguráðuneytið að
endurskoðaður verði fjöldi
leyfa til leigubílaaksturs sem í
dag eru 570. Telja forsvars-
menn Frama að með minnk-
andi verkefnum sé nauðsynlegt
að fækka leyfum.
Ástgeir Þorsteinsson, for-
maður Frama, segir brýnt að
fækka leyfum þar sem sam-
dráttur hafi ríkt í leiguakstri
síðustu misserin. Því hafi verið
óskað eftir fundi um málið.
Reykjavíkurborg á móti
Jóhann Guðmundsson hjá
samgönguráðuneytinu segir
ósk Frama hafa komið fram
snemma í sumar og hafi í fram-
haldi af henni verið leitað um-
sagnar sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu og hinna
tveggja félaga leigubílstjóra,
Andvara og Átaks. Segir hann
lítil viðbrögð hafa komið frá
sveitarfélögunum, en þrjú
sveitarfélög, Bessastaðahrepp-
ur, Reykjavík og Seltjarnarnes,
hafi lýst sig mótfallin fækkun
leyfa. Jóhann segir málið verða
rætt á fundi 3. september og
hafi verið boðaðir á hann
fulltrúar Frama, sveitarfélaga,
leigubílastöðva og Vegagerðar-
innar, sem sér nú orðið um
framkvæmd málaflokksins fyr-
ir hönd samgönguráðuneytis-
ins. Ráðuneytið sér eftir sem
áður um útgáfu leyfa, kærumál
og fleira. Jóhann segir að síðar
verði fulltrúar Átaks og And-
vara boðaðir til fundar.
Jón Stefánsson, varaformað-
ur Átaks, sagði að stjórn félags-
ins hefði ritað samgönguráðu-
neytinu og óskað eftir því að
fulltrúar Átaks sætu fundinn 3.
september ásamt fulltrúum
Frama. „Á fundinum er mein-
ingin að taka fyrir mál sem
varðar alla leigubifreiðastjóra,
þ.e. fjölda starfsleyfa á höfuð-
borgarsvæðinu, og því fráleitt
að ekki skuli allir aðilar sem
málið varðar vera boðaðir til
fundarins,“ segir í bréfi Átaks.
Jón segir bílstjóra sammála um
að rétt sé að fækka leyfum en
spurning sé hvaða aðferð eigi
að beita.
HÓPUR erlendra sérfræðinga sem
unnið hafa að fornleifauppgreftri
við bæinn Hrísbrú í Mosfellsdal
hefur fundið grafreit, sem miklar
líkur eru á að sé frá heiðnum sið.
Rannsóknir benda til að um sé að
ræða brunagröf, þar sem lík hafi
verið brennd að heiðnum greftr-
unarsið. Fundist hafa brunnin bein
og viðarkol og bendir flest til að
þarna hafi komið í ljós fyrsta
brunagröfin sem fundist hefur á Ís-
landi.
Hauskúpa virðist hafa
verið klofin með eggjárni
Alls hafa vísindamennirnir fund-
ið sjö beinagrindur við uppgröftinn
að Hrísbrú og hefur aldursgreining
leitt í ljós að beinin eru allt frá
upphafi landnáms. Þ.á m. hefur
fundist hauskúpa sem ber greini-
lega merki þess að hafa verið klof-
in í sundur með eggjárni.
Bandarískir og norskir fræði-
menn hafa unnið að uppgreftri í
landi Hrísbrúar í sex undanfarin ár
í samvinnu við Þjóðminjasafn Ís-
lands, undir stjórn Jesses Byocks,
prófessors í norrænum fræðum við
Kaliforníuháskóla. Hefur 14 manna
hópur sérfræðinga á ýmsum svið-
um haldið rannsóknunum áfram í
sumar. Uppgreftrinum er nú að
ljúka.
Rústir kirkju sem virðist hafa
verið reist snemma á 11. öld
Byock sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að við rannsókn-
irnar hefði m.a. fundist rústir
kirkju sem virðist hafa verið byggð
snemma á elleftu öld eða skömmu
eftir kristnitöku, leifar af bæjar-
eða gripahúsi frá því snemma á tí-
undu öld og grafreitur sem virðist
hafa verið notaður bæði í heiðnum
sið og kristnum sið skömmu eftir
kristnitöku.
Að sögn hans hefur C-14 aldurs-
greining leitt í ljós að elstu beina-
grindurnar sem fundust séu frá því
um 900. Talið er að kirkjan hafi
staðið að Hrísbrú fram á tólftu öld
en þá verið flutt að Mosfelli. Skv.
Egilssögu á að hafa staðið kirkja á
þessum slóðum fyrir 1.000 árum,
sem reist var við kristnitöku.
Að mati Byocks er m.a. athygl-
isvert að í einni gröfinni er ein-
göngu að finna leggbein en aðrar
leifar virðist hafa verið teknar upp
og fluttar. Einnig hafi fundist hval-
bein í grafreitnum með áristum
krossi eða rúnum, sem sé þá vænt-
anlega úr heiðnum sið.
Merkar uppgötvanir við fornleifa-
uppgröft að Hrísbrú í Mosfellsdal
Telja sig hafa
fundið heiðna
brunagröf
TÖLUR Útlendingaeftirlitsins um
hælisleitendur á Íslandi undanfarin
ár sýna mikla fjölgun þeirra sem
leita til Íslands.
„Líklegt má telja að þessi fjölgun
tengist aðild okkar að Schengen-
samstarfinu en vegna vegabréfa-
frelsisins kemst fólk skilríkjalaust
frá Evrópu hingað. Að sama skapi
gerist æ oftar að fólk hverfur af landi
brott áður en málsmeðferð er lokið,“
segir Georg Kr. Lárusson forstjóri
Útlendingaeftirlitsins sem fer með
málefni hælisleitenda og annarra út-
lendinga sem hingað koma.
Sigrún Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri Rauða kross Íslands, segir
endurskoðunar þörf á samningum
RKÍ og ríkisins vegna fjölgunar hæl-
isleitenda. Einnig séu fólksflutning-
ar almennt miklir í heiminum um
þessar mundir.
Mikil fjölgun
hælisleitenda
Flóttamenn/B1
Á ÞESSU ári hefur tollgæslan á
Keflavíkurflugvelli lagt hald á um
14,7 kíló af hassi, 300 grömm af
amfetamíni, 50 grömm af mari-
júana, 30 grömm af kókaíni auk
nokkurs magns af sterum og um
tug áhalda til fíkniefnaneyslu.
Fíkniefnin eru falin í kókdósum, í
kaffibaukum og í nærbuxum svo
eitthvað sé nefnt. Þau eru límd á
fótleggi og á maga, falin í enda-
þarmi og þau eru gleypt. Magnið er
svipað og á síðasta ári en fleiri ein-
staklingar hafa verið teknir fyrir
smygl.
Margir smygla
efnum innvortis
Kári Gunnlaugsson, aðaldeildar-
stjóri tollgæslunnar, segir eftirtekt-
arvert hve margir reyni að smygla
kannabisefnum innvortis. Vitað sé
að sterkari og dýrari fíkniefnum
hafi verið smyglað með þessum
hætti en þar til fyrir nokkrum
misserum var tiltölulega sjaldgæft
að reynt væri að smygla kannabis-
efnum innvortis. Slíkt sé stór-
hættulegt enda geti umbúðirnar ut-
an um fíkniefnin hæglega rifnað í
meltingarveginum sem geti valdið
dauða smyglarans.
Í lok júlí sl. var breskur karl-
maður handtekinn með um hálft
kíló af hassi innvortis og nokkrum
dögum síðar stöðvuðu tollverðir ís-
lenskan karlmann sem hafði 100
grömm af sama efni innvortis. Að-
spurður hvað geti valdið því að
fleiri smygli kannabisefnum inn-
vortis en áður segir Kári að hluti
skýringarinnar sé að reynt sé að
halda uppi öflugu fíkniefnaeftirliti á
flugvellinum. Fíkniefnaleitarhundar
hafi reynst vel við að hafa uppi á
smyglurum auk þess sem tollgæsl-
an notast við jónatæki sem nemur
hvort fíkniefnaagnir eru á farangri
eða fatnaði farþega. Margir hafi
játað fíkniefnasmygl eða -neyslu
eftir að jónatækið hefur gefið til
kynna að viðkomandi hafi verið ná-
lægt fíkniefnum. Meirihluti þeirra
sem eru teknir með fíkniefni eða
með áhöld til neyslu eru að koma
frá Kaupmannahöfn og þeir eru yf-
irleitt á aldrinum 18–30 ára. Á
þessu ári hafa 40–50 mál komið til
kasta tollgæslunnar. Fíkniefnadeild
lögreglunnar í Reykjavík rannsak-
ar umfangsmeiri mál en lögreglan
á Keflavíkurflugvelli lýkur málum
þar sem um er að ræða lítið magn
efna.
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hef-
ur í ár lagt hald á 14,7 kg af hassi
Reyna margar
smyglleiðir