Morgunblaðið - 24.08.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hammarby skoðar
Sævar Þór Gíslason / B1
Marion Jones hafði betur
gegn Pintusevic / B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r24.
á g ú s t ˜ 2 0 0 2
Sérblöð í dag www.mb l . i s
Morgun-
blaðinu í dag
fylgir auglýs-
ingablað frá
Tali. Blaðinu
verður dreift
um allt land.
ÞAÐ er vart hægt að greina á
milli hvort um ljósmynd eða mál-
verk er að ræða. Vissulega er
þetta náttúran í sinni fegurstu
mynd en myndin var tekin af
þessu tignarlega hestastóði á
Dómadalsleið í vikunni.
Sagan segir að Dómadalur
dragi nafn af því að þar hafi ver-
ið háð dómþing, hér á öldum áð-
ur, til þess að gera út um deilu-
mál milli Skaftfellinga og
Rangæinga.
Áður fyrr var talað um dóma-
dalsvitleysu meðal Skaftfellinga
þegar þeim þótti vitleysan keyra
fram úr hófi, eins og fram kemur
í bókinni Landið þitt Ísland.
Ljósmynd/Vilhelm Gunnarsson
Hestar á
Dóma-
dalsleið
BÆNDASAMTÖKIN samþykktu
tillögur um útflutningshlutfall vegna
haustslátrunar í gær og eru þær nú
til skoðunar hjá Guðna Ágústssyni
landbúnaðarráðherra.
Að sögn Ara Teitssonar, formanns
Bændasamtakanna, gera samtökin
tillögu um 28% útflutningshlutfall í
september og október, 16% fyrri
hluta nóvembermánaðar og 8% eftir
það. Hann segir tillögu markaðsráðs
kindakjöts vera samhljóðandi enda
er markaðsráðið samstarfsvettvang-
ur bænda og sláturfélaga og segir
Ari að það sé eðlilegt að menn á
þeim samstarfsvettvangi hafi besta
yfirsýn yfir þessi mál.
Ari bendir á að tillagan geri ráð
fyrir hærra hlutfalli nú en útflutn-
ingurinn var á sama tíma í fyrra og
nefnir til dæmis að hlutfallið hafi
verið 21% í september og október á
síðasta ári.
Hann segir nokkrar skýringar
vera á þessari hækkun. „Í fyrsta lagi
reiknum við með að framleiðslan
verði öllu meiri nú, auk þess sem fé
hefur fjölgað um tvö prósent. Í öðru
lagi hefur því miður orðið lítils hátt-
ar sölusamdráttur á kindakjöti milli
ára og í þriðja lagi erum við með
birgðir vegna gjaldþrots Kjötum-
boðsins sem þurfa að fara úr landi
núna,“ bætir hann við og undirstrik-
ar að þessar birgðir hefðu þegar átt
að vera farnar og íþyngi mönnum í
ár.
Að sögn hans tekur landbúnaðar-
ráðherra ákvörðun um útflutnings-
hlutfallið en samkvæmt lögum skal
hann fá tillögu frá Bændasamtökun-
um áður en sú ákvörðun er tekin.
Ráðherra hefur frest til 1. septem-
ber til þess að ákveða útflutnings-
hlutfallið.
Tillögur um hækkun
útflutningshlutfalls
vegna haustslátrunar
HIN heimsfræga listflugsveit
breska flughersins, Red Arrows,
er væntanleg til Reykjavíkur á
mánudag, 26. ágúst, þar sem hún
mun sýna listir sínar í lágflugi yf-
ir borginni.
Í tilkynningu frá breska sendi-
ráðinu á Íslandi segir að ráðgert
sé að sýningin hefjist kl. 15, svo
fremi sem veður og aðstæður
leyfi.
Red Arrows eða „Rauðu örv-
arnar“ halda héðan áleiðis vestur
um haf til Bandaríkjanna þar sem
sveitin mun sýna listir sínar á
nokkrum stöðum.
Listflug-
sveitin Red
Arrows
væntanleg
til Íslands
Íbúð stór-
skemmdist
í eldi
ÍBÚÐ á efstu hæð fjögurra hæða fjöl-
býlishúss í Torfufelli 27 í Breiðholti
stórskemmdist í eldsvoða í gær. Íbúð-
in var mannlaus þegar eldurinn kom
upp og breiddist eldurinn ekki út til
annarra íbúða.
Tilkynning um eldsvoðann kom kl.
14.11 og var mikill viðbúnaður við-
hafður af hálfu Slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins. Sendir voru slökkvibílar
frá öllum stöðvum og fóru reykkaf-
arar inn í íbúðina til að ganga úr
skugga um að enginn væri innandyra.
Eldurinn kom upp í svefnherbergi
íbúðarinnar og olli miklum skemmd-
um. Slökkvistarf gekk samt vel og
lauk því á klukkustund. Eldsupptök
eru ókunn en eru til rannsóknar hjá
lögreglunni í Reykjavík.
Eldur í þurrkara
Á sjöunda tímanum í gærkvöldi var
slökkviliðið kvatt að fjölbýlishúsi við
Berjarima 26 í Grafarvogi. Þar var til-
kynnt um reyk frá íbúð á 1. hæð, sem
reyndist mannlaus. Slökkviliðsmenn
réðust á opinn eld í þvottaherbergi
inni í íbúðinni og var slökkvistarfi lok-
ið á innan við hálftíma. Miklar reyk-
skemmdir urðu í íbúðinni en þar sem
hún er með sérinngangi varð ekki
tjón annars staðar í húsinu. Eldsupp-
tök eru rakin til þurrkara.
45 daga
fangelsi fyr-
ir að smygla
hassi í skóm
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær 19 ára danskan karl-
mann í 45 daga óskilorðsbundið
fangelsi en hann var handtekinn af
tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli
fyrir rúmri viku með rúmlega hálft
kíló af hassi í skóm sem hann var í.
Daninn ætlar að una dómnum og
hefur þegar hafið afplánun.
Lögreglan í Reykjavík ákærði
piltinn á fimmtudag og var málið
flutt og dæmt í gær. Gera má ráð
fyrir að honum verði vísað úr landi
þegar afplánun lýkur.
Þorði ekki að segja hver
fékk hann til verksins
Við yfirheyrslur hjá fíkniefnadeild
sagðist pilturinn ekki eiga efnið
sjálfur heldur hefði hann átt að fá
greitt fyrir innflutninginn. Hann
þorði hins vegar ekki að láta nokkuð
uppi um hver hefði fengið hann til
verksins eða hvern hann átti að hitta
hér á landi, væntanlega af ótta við
hefndaraðgerðir.
Pilturinn kvaðst hafa fallist á að
smygla hassinu eftir að hann var
fullvissaður um að Íslendingar tækju
vægt á fíkniefnainnflutningi. Var
honum sagt að hann fengi í mesta
lagi sekt, kæmist upp um smyglið.
Valtýr Stefánsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Sigurður Gísli
Gíslason sótti málið f.h. lögreglu-
stjórans í Reykjavík og Lúðvík
Kaaber var skipaður verjandi.
STJÓRN Persónuverndar hefur
úrskurðað að Oddi Ingimarssyni
hafi verið heimilt sem stofnfjár-
eiganda í Sparisjóði Reykjavíkur
að lesa inn á segulband nöfn og
heimilisföng stofnfjáreigenda í
stofnfjáreigendaskrá SPRON
með það að markmiði að hafa sam-
band við aðra stofnfjáreigendur til
að freista þess að boða til fundar
og til að gera öðrum grein fyrir
viðhorfum hans og fimm annarra
stofnfjáreigenda um kaup og kjör
á stofnfjárhlutum.
Í byrjun júlí barst Persónu-
vernd erindi frá Kristjáni Þor-
bergssyni hrl. þar sem þess var
krafist, fyrir hönd SPRON, að
Persónuvernd stöðvaði vinnslu
Búnaðarbanka Íslands með skrá
yfir stofnfjáreigendur SPRON,
enda hafi Búnaðarbankinn komist
yfir skrána með óheiðarlegum
hætti. Persónuvernd gaf Oddi
Ingimarssyni og BÍ færi á að
koma afstöðu sinni til efnis þessa
bréfs á framfæri og gerði Árni
Harðarson hdl. það fyrir þeirra
hönd.
Í úrskurðarorðum Persónu-
verndar kemur fram, auk framan-
ritaðs, að umræddum mönnum
hafi verið heimilt sem ábyrgðar-
aðilum vinnslunnar að fá Búnað-
arbanka Íslands sem vinnsluaðila
til að aðstoða þá við þessa fram-
kvæmd og eins og málið hafi verið
lagt fyrir gefi það ekki tilefni til
sérstakra viðbragða af hálfu Per-
sónuverndar.
Upptökurnar
voru heimilar
♦ ♦ ♦