Morgunblaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Upphaf skólastarfs Nemendur fá stundaskrár afhentar þriðjudaginn 26. ágúst. Nýnemar komi í skólann kl. 9.00. Að afhendingu lokinni eru þeir boðaðir á fund með umsjónarkennurum. Aðrir nemendur fá stundaskrár sínar eftir kl. 11.00. Kennsla hefst þriðjudaginn 27. ágúst kl. 8.15. Skólameistari Blaðbera vantar • Skerjafjörður Upplýsingar fást í síma 569 1122 Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á höfuðborgarsvæðinu ⓦ vantar Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. Morgunblaðið, Kaupvangsstræti 1, Akureyri, sími 461 1600. í Innbæinn Skólastíg/Eyrarlandsveg Morgunblaðið/Kristján Rennt fyrir þorsk og ýsu NOKKUÐ er um að trillukarlar á Akureyri, jafnt áhugamenn sem atvinnumenn, dóli um Pollinn á bátum sínum og renni fyrir fisk, ekki síst á góðviðrisdögum, sem reyndar hafa verið frekar fáir þetta sumarið. Eru menn að reyna bæði við þorsk og ýsu en minna fer fyrir silungsveiði. Þessir kappar á myndinni voru á siglingu meðfram Drottningarbrautinni í vikunni, þegar ljósmyndari Morgunblaðs- ins var þar á ferð og reyndu við þann gula og ýsuna með ágætum árangri. VINIR Óskars Þórs Halldórssonar og Lovísu Jónsdóttur hafa ákveðið að efna til átaks til stuðnings Sig- rúnu Maríu Óskarsdóttur og fjöl- skyldu hennar í Dalsgerði 1k á Ak- ureyri. Markmið átaksins er að létta fjölskyldunni róðurinn eftir bílslys sem hún lenti í í Danmörku í byrjun júlí sl. Opnaður hefur verið hlaupa- reikningur í Sparisjóði Svarfdæla til að taka við framlögum. Framfarir Sigrúnar Maríu hafa verið verulegar undanfarnar vikur og allir sem að því verki koma gera hvað þeir geta til að hún nái sem mestum og bestum bata til fram- búðar. Hún er enn sem komið er með skerta hreyfigetu og þarf á hjólastól að halda, hvað sem síðar verður. Það er því ljóst að hennar bíður langt og strangt endurhæfing- arferli með tilheyrandi álagi á hana sjálfa og aðstandendur. Slysið og afleiðingar þess hafa bein áhrif á afkomu fjölskyldunnar þar sem saman fara tekjusam- dráttur vegna vinnutaps og útgjöld vegna slyssins sem ekki fást bætt eftir tryggingaleiðum. Einnig vega þungt kaup á stórum bíl og nauðsyn- legar breytingar á húsnæði, en fjöl- skyldan býr nú á tveimur hæðum. Vinir þeirra Óskars og Lovísu hafa því tekið höndum saman í þeirri von að samhjálpin muni draga sem mest úr því fjárhagslega höggi sem fjölskyldan óhjákvæmilega verður fyrir eins og segir í frétt sem vinahópurinn sendi frá sér. Opnaður hefur verið hlaupareikningur í Sparisjóði Svarfdæla undir heitinu „Stuðningur við Sigrúnu Maríu og fjölskyldu í Dalsgerði“. Bankanúm- erið er 1177, höfuðbók 26, reikn- ingnúmerið er 4242, en kennitala reikningsins er 280463-2139. Friðrik Friðriksson sparisjóðs- stjóri hefur tekið að sér að vera ábyrgðarmaður stuðningssjóðsins og sjá til þess ásamt frumkvæð- ishópi að fjármunirnir verði notaðir eins og til þeirra er stofnað. Fram kemur í frétt hópsins að hver króna sem safnast skilar sér óskert til við- takenda, en sparisjóðurinn mun annast umsýslu átaksins án endur- gjalds. Fjölskyldan sem lenti í bílslysi í Danmörku í sumar Efnt til stuðningsátaks BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur hafnað erindi frá Bernharð Stein- grímssyni, veitingamanni á nekt- arstaðnum Setrinu, varðandi styrk- beiðni til breytinga á staðnum, auk þess sem hann gerir athugasemdir við nýlegar breytingar á lögreglu- samþykkt bæjarins. Bernharð sagði að breytingar á lögreglusam- þykkt vegna nektarstaða, sem tóku gildi um síðastliðin mánaðamót, væri dauðadómur yfir staðnum sem nektarstað. Bernharð sagðist hafa leitað eftir tveggja milljóna króna styrk til að breyta veitingastað sínum í sport- bar enda gæti hann vel hugsað sér að hætta rekstri nektarstaðar. Hann sagði að þar sem bæjarráð hefði hafnað beiðni sinni myndi hann reka staðinn áfram í óbreyttri mynd þar til hann yrði stöðvaður. Með breytingum á lögreglusam- þykkt bæjarins er lagt bann við einkadansi og strangar takmark- anir eru lagðar á svokallaðan sú- ludans. Dansatriði skulu einungis fara fram á einu afmörkuðu svæði í veitingasal þar sem tryggt er að fjarlægð milli dansara og áhorf- enda sé að minnsta kosti fjórir metrar. Þá er dönsurum óheimilt að fara um á meðal gesta. Sams- konar breytingar voru gerðar á lögreglusamþykkt Reykjavíkur- borgar. Heimamenn hættir að sækja staðinn Bernharð sagði að rekstraraðili í Reykjavík hefði kært þá breytingu og að þar yrði um prófmál að ræða. Hann sagði að það mál færi mjög líklega alla leið til Hæstaréttar og því gæti liðið langur tími þar til endanlegur dómur fellur. Bernharð sagði að mórallinn gagnvart veitingastað sínum hefði breyst mikið að undanförnu og að þangað kæmu heimamenn ekki lengur, heldur aðeins aðkomufólk. „Það hefur mikið breyst frá því fyrir ári og reksturinn nú er mun erfiðari. Það væri því best að lög- reglan kæmi hingað og lokaði staðnum því að þá ætti ég ský- lausan rétt á skaðabótum.“ Töluverð umræða hefur verið um að vændi sé stundað í tengslum við nektarstaðina. Bernharð sagði að það færi algjörlega gegn hagsmun- um staðanna að slík starfsemi væri stunduð í kringum þá. „Það kærir sig enginn um slíkt enda myndi það rýra tekjur staðanna mikið.“ Setrið verður rekið í óbreyttri mynd Breytingar á lögreglusamþykkt vegna nektarstaða Í DAG kl. 14.00 verður gönguferð um Norðurbrekkuna á Akureyri á vegum Minjasafnsins. Leiðsögu-menn verða arkitektarnir Árni Ólafsson og Finnur Birgisson sem segja göngufólki frá byggingarstíl húsanna í hverfinu, en elstu húsin voru byggð fyrir 1920. Upp úr 1930 fór að kveða við nýjan tón í útliti húsa á Akureyri. Svokölluð funkisstefna eða nytjastefna fór að ryðja sér til rúms í hönnun og bygg- ingu húsa. Húsin áttu fyrst og fremst að vera hentug til að búa í. Allt í útliti þeirra átti að hafa ákveðna „funksjón“ og öllu óþarfa skrauti var hafnað. Mörg þessara húsa er að finna á Norður- brekku og segja má að heilu hverfin á Akureyri hafi verið byggð undir áhrif- um frá funksjónalisma íhúsagerð. Á Norðurbrekku er einnig að finna steinsteypt hús með hefðbundnum formum timburhúsa. Göngunni, sem tekur um eina og hálfa klukkustund, lýkur á byrjunar-reit við Akureyrar- kirkju sem var vígð árið 1940 og teiknuð af Guðjóni Samúelssyni fyrr- verandi húsa-meistara ríkisins. Allir eru velkomnir. Gönguferð um Norðurbrekkuna HALLDÓR Ásgeirsson opnar myndlistasýningu í Safnasafninu á Svalbarðsströnd, Eyjafirði, í dag, laugardaginn 24. ágúst kl. 14. Myndlistarverkið sem Halldór sýnir heitir „…og gá þar að orði sem kynni samt að ná yfir alla ver- öldina.“ Tilvitnunin er úr ljóði eftir Sigfús Daðason skáld. Verkið er samtal ólíkra stafa annars vegar, sem hafa verið tekn- ir upp úr ritmálum heimsins, og endurbrædds hrauns hins vegar, sem hefur verið límt á hvíta mat- ardiska. Svartur hraunglerungur- inn minnir á myndletur og rímar á móti tölvuprentuðum stöfunum. Saman myndar þetta eina rým- isheild. Halldór Ásgeirsson fór í framhaldsnám í myndlist til Frakklands og hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum heima og erlendis og sett upp einkasýn- ingar sem hafa fengið lofsamlega umfjöllun. Í upphafi ferils síns tók hann fyrir táknmynd frumstæðra þjóða og framdi gjörninga, en síð- ari ár hefur hann vakið eftirtekt fólks fyrir að umforma glóandi hraun og gera tilraunir með áhrifamátt og ljósmagn litaðra vökva í glerílátum. Sýning Halldórs Ásgeirssonar í Safnasafninu stendur yfir til 15. september og er opin alla daga frá kl 10:00 til 18:00. Safnasafnið á Svalbarðsströnd Halldór Ásgeirsson sýnir GRUNNSKÓLAR Akureyrar verða settir mánudaginn 26. ágúst. Rúm- lega 2.500 börn stunda nám í skólum bæjarins í vetur og þar af eru um 240 börn að hefja skólagöngu í 1. bekk. Að sögn Gunnars Gíslasonar, deild- arstjóra skóladeildar, er þessi ár- gangur sem nú er hefja sína skóla- göngu í stærri kantinum miðað við síðustu ár. Gunnar sagði að óvenju vel hefði gengið að ráða kennara við grunn- skóla bæjarins og væri hlutfall rétt- indakennara yfir 90%. Á síðasta skólaári var hlutfall réttindakennara um 88% og árið þar áður tæplega 80%. Í vetur verða rekin skólamötuneyti í fjórum grunnskólum bæjarins, Lundarskóla, Oddeyrarskóla, Gler- árskóla og Giljaskóla. Gunnar sagði að boðið yrði upp á heita létta máltíð í þessum skólum og hefur gjald fyrir hverja máltíð verið ákveðið 300 krón- ur. Skólamötuneyti voru rekin í Lundarskóla og Oddeyrarskóla á síð- asta skólaári og mæltist það vel fyrir, að sögn Gunnars. Nú hafa mötuneyti verið sett upp í tveimur skólum til viðbótar. Gunnar sagði stefnt að því að koma upp mötuneyti í Brekku- skóla árið 2004 og í Síðuskóla 2005 en í báðum skólum standa fyrir dyrum umfangsmiklar framkvæmdir. Nú við upphaf skólaárs verður tek- in í notkun ný viðbygging við Gilja- skóla en við það stækkar húsnæði skólans um helming. Mötuneyti í fjórum grunnskólum Um 240 börn að hefja nám í 1. bekk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.