Morgunblaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 4
ÖKUMAÐUR sjúkrabifreiðar var fluttur á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar eftir árekstur við fólksbifreið á gatnamótum Miklu- brautar og Kringlumýrarbrautar í gærmorgun klukkan 8.25. Óverulegar skemmdir urðu á sjúkrabifreiðinni en fólksbifreiðin var óökufær eftir áreksturinn. Báðar voru fluttar burt með kranabifreið. Sjúkrabifreiðin var að koma frá Sel- fossi með sjúkling og slapp hann við heilsutjón af völdum árekstursins. Þegar áreksturinn varð ók sjúkra- bifreiðin með forgangsljósum og var ökumaður hennar með bílbeltin spennt. Sömuleiðis var sjúklingurinn tryggilega festur aftan í bifreiðinni. Lögreglan segir að bílbeltin hafi líka verið notuð í fólksbifreiðinni. Morgunblaðið/Júlíus Sjúkrabifreið lenti í árekstri FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ AÐEINS þrír lífeyrissjóðir án ábyrgðar annarra voru reknir með meira en 10% fráviki frá þeim mörkum sem lög gera ráð fyrir en ekki fjórir eins og fram kom í skýrslu Fjármálaeftirlitsins og greint var frá í Morgunblaðinu á miðvikudaginn. Af þessum þremur sjóðum var hrein eign Frjálsa lífeyrissjóðsins (tryggingardeildar) umfram heild- arskuldbindingar jákvæð um 11,5% og sjóðurinn þarf því að huga að því að auka réttindi félaga en ekki skerða þau. Heildarskuldbindingar eða áfallnar skuldbindingar tveggja sjóða, Lífeyrissjóðsins Hlífar og Eftirlaunasjóðs Sláturfélags Suður- lands, voru neikvæðar um meira en 10% í fyrra. Lífeyrissjóðurinn Hlíf (félagar voru einkum vélstjórar í landi) hef- ur verið sameinaður Sameinaða líf- eyrissjóðnum og skertust réttindi félaga Hlífar þegar gengið var frá þeirri sameiningu en fjöldi sjóð- félaga í Hlíf var 433 og fjöldi lífeyr- isþega 160 í fyrra. Eftirlaunasjóður Sláturfélags Suðurlands er lokaður sjóður, þ.e. ekki er lengur greitt í hann. Hrein eign sjóðsins umfram áfallnar skuldbindingar var neikvæð um 15% í fyrra og ljóst að skerða þarf réttindi þeirra 210 lífeyrisþega sem fengu greiðslur úr sjóðnum í fyrra. Verulegur halli var á flestum þeirra lífeyrissjóða sem reknir eru með ábyrgð ríkis og sveitarfélaga, þ.e. skattgreiðenda, en sú ábyrgð brúar það sem á vantar að sjóðirnir geti staðið við skuldbindingar sínar. Tveir sjóðir þurfa að huga að skerðingu VERULEGAR truflanir urðu á millilandaflugi Flugleiða á fimmtu- dagskvöld og aðfaranótt föstudags vegna framkvæmda við flugbraut á Keflavíkurflugvelli og hvassviðris- ins sem gekk yfir landið. Fjórar Boeing 757 vélar Flugleiða áttu samkvæmt áætlun að lenda á Keflavíkurflugvelli þegar hvassast var en vindurinn stóð þvert á þá einu flugbraut sem opin var, segir í tilkynningu frá Flugleiðum. Tvær vélar, sem voru að koma frá London og París, voru fyrst látnar bíða ytra á meðan versta veðrið gekk yfir en lögðu síðan af stað til landsins. Þegar komið var að landinu varð ljóst að ekki væri enn unnt að lenda á flugbrautinni og því var vélunum snúið til Glas- gow. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Flugleiða, segir að alls hafi 263 farþegar verið um borð í vél- unum tveimur. Farþegarnir komu til Glasgow um þrjúleytið aðfara- nótt föstudags og urðu flestir að gista í flugstöðvarbyggingunni, en vegna stórrar ráðstefnu í Glasgow og Edinborgarhátíðarinnar reynd- ist ekki unnt að finna hótelpláss fyrir fólkið þótt leitað væri til 120 hótela. Slæmt fyrir farþega að lenda í slíkum aðstæðum Guðjón sagði að tvær vélar frá Flugleiðum til viðbótar, sem komu frá Krít og Kaupmannahöfn, hefðu einnig lent í vandræðum. Kaup- mannahafnarvélin lenti hins vegar á Reykjavíkurflugvelli og vélin frá Krít lenti á Egilsstöðum. Þá urðu sex þýskar farþegaflugvélar að snúa við frá Keflavík vegna veðurs. Að sögn Guðjóns urðu óviðráð- anlegar aðstæður þess valdandi að vélunum tveimur var snúið frá Keflavík til Glasgow. „Það er vit- anlega slæmt fyrir farþega að lenda í slíkum aðstæðum um miðja nótt en starfsfólk Flugleiða í Glasgow reyndi hvað það gat til þess að sinna þeim,“ sagði Guðjón. Hann sagði að ekki yrði komið sérstak- lega til móts við farþegana vegna þeirra breytinga sem urðu í fyrra- kvöld. Von var á vélunum tveimur frá Glasgow til landsins um tvöleytið í gær. Guðjón sagði að truflanirnar á fimmtudag hefðu valdið nokkrum töfum á áætlun Flugleiða í gær en sagði að áætlunin yrði væntanlega með eðlilegum hætti í dag. Hvassviðri og viðgerðir trufluðu áætlun Flugleiða Tveimur vélanna snúið til Glasgow ÞAÐ HAFA skipst á skin og skúrir í Reykjavík í vikunni. Á milli rigningarskúra nýtti þessi starfsmaður veitingarstaðarins Lækjarbrekku sér tækifærið og þurrkaði vatnsdropana af stól- um utandyra þannig að gestir gætu tyllt sér á meðan sólar naut, eða stytti í það minnsta upp um hríð. Senn fer að hausta og þá verða ferðamenn ekki jafn sjáanlegir í mið- bænum og þeir hafa verið að undanförnu. Stund milli skúra Morgunblaðið/Jim Smart Vanskil LSH við birgja Um lægri upphæð en 840 millj. að ræða SKULDIR Landspítala – háskóla- sjúkrahúss við birgja eru lægri en 840 milljónir, að sögn Önnu Lilju Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra fjárreiðna- og upplýsingasviðs hjá Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Í bréfi sem Samtök verslunarinnar – FÍS sendu forstjóra spítalans á fimmtudag kom fram að skuldir spít- alans við birgja innan samtakanna nema 840 milljónum. Var spítalanum og Sjúkrahúsapótekinu ehf. gefinn tveggja vikna frestur til þess að ganga frá skuldinni við birgjana, sem stunda innflutning á lyfjum og öðr- um hjúkrunar- og heilbrigðisvörum. Anna Lilja sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að verið væri að fara yfir málið. Tölur úr kerfum Landspítala hefðu verið keyrðar út og verið væri að sannreyna þær tölur með birgjunum. „Við höfum verið í sambandi við birgjana og munum hitta þá á mánudag og ljúka málinu þá,“ segir Anna Lilja. Hún segir ljóst að þrátt fyrir að skuldirnar séu lægri en 840 milljónir sé um háar fjárhæðir að ræða. Van- skil spítalans séu talsverð en sú stefna hafi verið tekin í fram- kvæmdastjórn hans að setja skil á launum starfsmanna í forgang. VERÐI úrskurður Skipulagsstofn- unar um umhverfisáhrif Norðlinga- ölduveitu kærður til umhverfisráð- herra munu framsóknarmenn leggja til að Jón Kristjánsson heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra verði settur umhverfisráðherra til að fjalla um kæruna. Forsætisráð- herra skipar seturáðherra. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra hefur lýst sig vanhæfa til að fjalla um málið ef úrskurðurinn verður kærður vegna opinberra ummæla sinna um Þjórsárver í febrúar á seinasta ári. „Við höfum rætt þetta í okkar hópi og við munum gera til- lögu um að Jón Kristjánsson heil- brigðisráðherra verði settur um- hverfisráðherra, komi til kæru á úrskurði Skipulagsstofnunar vegna mats á umhverfisáhrifum Norð- lingaölduveitu,“ sagði Siv í samtali við Morgunblaðið í gær. Hún kveðst fastlega eiga von á að úr- skurður Skipulagsstofnunar verði kærður til ráðherra. Kærufrestur vegna úrskurðarins er til 18. sept- ember. Leggja til að Jón Krist- jánsson fjalli um kæru Flugfélagið Atlanta Í viðræðum við Flugleiðir um hluta viðhalds SAMNINGAVIÐRÆÐUR eru í gangi milli flugfélaganna Atlanta og Flugleiða um að síðarnefnda félagið taki að sér skipulag og skráningu viðhalds á þremur nýjum Boeing 757-vélum sem Atlanta er að taka í notkun erlendis í næsta mánuði. Lík- legt er að skrifað verði undir samn- ing á næstu dögum, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Að sögn Finnboga Óskarssonar, viðhaldssstjóra Atlanta, munu flug- virkjar á vegum félagsins eftir sem áður sjá um sjálfa viðhaldsvinnuna þegar þar að kemur. Aðeins er um að ræða pappírsvinnuna í viðhaldskerfi Flugleiða sem Atlanta telur hagræði í að fá aðgang að sökum reynslu Flugleiða af slíkum vélum. Aðspurður segir Finnbogi þennan samning ekki kalla á breytingar á starfsmannahaldi félaganna. ♦ ♦ ♦ Staða framkvæmda- stjóra flugöryggissviðs Tuttugu manns sóttu um stöðuna TUTTUGU manns sóttu um stöðu framkvæmdastjóra flugöryggissviðs Flugmálastjórnar sem var auglýst laus 28. júlí síðastliðinn. Umsóknarfresturinn rann út 14. ágúst og segir Heimir Már Péturs- son, upplýsingafulltrúi Flugmála- stjórnar, að flugmálastjóri reikni með að gera tillögu um einstakling í starfið til samgönguráðherra í næstu viku. ♦ ♦ ♦ Lærbrotnaði við Skeiðaveg FARÞEGI fólksbíls, sem hafnaði á ljósastaur við vegamót Skeiðavegar og Suðurlandsvegar um miðjan dag í gær, lærbrotnaði og var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Að sögn lögreglunnar á Selfossi missti öku- maðurinn stjórn á bílnum í lausamöl og hafnaði bíllinn á ljósastaur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.