Morgunblaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 52
DAGBÓK 52 LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Loyal kemur og fer í dag. Florinda, Arleigh, Burke, Carr, Porter og Vædderen koma í dag. A.V. Humboldt, c. Col- umbus, Loyal og Coimbra fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Er- idan fer í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Mánu- daginn 26. ágúst Boccia kl. 10, Sheena aðstoðar í vinnustofu kl. 13, fé- lagsvist kl. 14. Hæðargarður 31. Haustferð verður farin miðvikudaginn 28. ágúst. Ekið verður til Þingvalla yfir Lyng- dalsheiði að Laug- arvatni. Gullfoss og Geysir heimsóttir. Málsverður í Brattholti. Leiðsögumaður Hólm- fríður Gísladóttir. Lagt af stað kl. 10.30. Bólstaðarhlíð 43. Vetr- arstarfið hefst mánu- daginn 2. sept. Upplýs- ingar í s. 568 5052. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Í dag morgungangan kl. 10 frá Hraunseli, Rúta frá Firðinum kl. 9.50. Or- lofsferð að Höfðabrekku 10.–13. sept. Skráning og allar upplýsinga eru gefnar í Hraunseli milli kl. 13 og 17. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Félagið hefur opnað heimasíðu www.feb.is. Sunnudag- ur: Dansleikur kl. 20 Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13. Dans- kennsla Sigvalda, fram- hald kl. 19 og byrjendur kl. 20.30. Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10. Línu- danskennsla Sigvalda kl. 19.15. Þjórsárdalur, Veiðivötn, Fjallabaks- leið nyrðri, 27.–30. ágúst. Fundur verður með leiðsögumönnum mánudaginn 26. ágúst kl. 16 í Ásgarði, Glæsibæ. Nokkur sæti laus vegna forfalla. Réttarferð í Þverárrétt 15. september. Leið- sögumaður Sigurður Kristinsson. Brottför frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 12. Skráning hafin á skrifstofu FEB. Silf- urlínan er opin á mánu- og miðvikudögum kl. 10–12. Skrifstofa félags- ins er flutt að Faxafeni 12, s. 588 2111. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upp- lýsingar á skrifstofu FEB. Gerðuberg, félagsstarf. Sund- og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug, kl. 13 á þriðjudögum og kl. 10. á föstudögum. Föstudaginn 30. ágúst kl. 14.30 fundur hjá Gerðubergskórnum, kórstjórnandi Kári Friðriksson, nýir fé- lagar velkomnir. Þriðju- daginn 10. sept hefst glerskurður, umsjón Helga Vilmundardóttir. Allar upplýsingar á staðnum og í síma 575 7720. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið alla virka daga kl. 9–17 hádegismatur, kaffi og heimabakað meðlæti. Félag eldri borgara Kópavogi. Púttað verð- ur á Listatúni í dag, laugardag, kl. 10.30. Mætum öll og reynum með okkur. Fimmtu- daginn 29. ágúst verður ferð á Suðurnesin sunn- anverð, ekið til Kefla- víkur, m.a. skoðuð báta- líkanasýning. Þaðan farið að Stekkjarkoti, Fitjum. Hafnirnar heimsóttar og þar skoð- að fiskasafnið o.fl. Síðan að Haugsgjá. Skoðuð verður og gengið yfir nýju brúna yfir fleka- skilin milli Ameríku- og Evrópuflekanna. Reykjanesviti heimsótt- ur og Gunnuhver skoð- aður. Síðan haldið til Grindavíkur og Orku- verið í Svartsengi heim- sótt þar sem skoðað verður fræðslusetur Orkuveitunnar Eld- borgin (Gjáin). Komið við í Bláa lóninu og ekið að Veitingahúsinu Sjáv- arperlunni í Grindavík – þar sem snæddur verð- ur kvöldverður. Lagt af stað frá Félagsheim- ilinu Gjábakka kl. 13.15 og frá Félagsheimilinu Gullsmára kl. 13.30. Heimkoma áætluð kl. 19–19.30. Skráning sem fyrst, á lista sem liggja frammi í Félagsmið- stöðvunum Gjábakka og Gullsmára. Frekari upplýsingar hjá ferða- nefnd, (Bogi Þórir s. 554 0233 eða Þráinn s. 554 0999). Vesturgata 7. Tvímenn- ingur í brids verður á þriðjudögum í vetur frá kl. 13–16.30. Stjórn- endur Bjarni Guð- mundsson og Guð- mundur Pálsson (einnig verður frjáls spila- mennska). Upplýsingar og skráning í síma 562 7077. Allir velkomn- ir Eldri borgarar Há- teigskirkju. Fyrirhuguð er sumarferð, Heið- mörk-Kaldársel, fimmtudaginn 29. ágúst, lagt af stað frá Setrinu kl. 13. Skráning og upp- ýsingar í s. 511 5405 eða 511 5400. Eldri borgarar, Vestfjarðaferð dagana 28.–31. ágúst, farið frá Hallgrímskirkju kl. 10, gist í Flókalundi, á Hót- el Ísafirði og Reykja- nesi, heimferð um Steingrímsfjarðarheiði, í Hrútafjörð og þaðan yfir Holtavörðuheiði og heim. Uppl. og skráning hjá Dagbjörtu í s. 693 6694, 510 1034 og 561 0408, allir velkomn- ir. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 frá Gjábakka í Kópavogi laugardagsmorgna. Krummakaffi kl. 9. Allir velkomnir Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur í kvöld kl. 21 í Konnakoti, Hverfisgötu 105. Nýir félagar velkomnir. Mun- ið gönguna mánu- og fimmtudaga. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁA, Síðumúla 3–5, og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigs- veg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Kattholti. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást á eftirtöldum stöðum á Suðurlandi: Í Vestmannaeyjum: hjá Axel Ó. Láruss. skó- verslun, Vest- mannabraut 23, s. 481- 1826. Á Hellu: Mosfelli, Þrúðvangi 6, s. 487- 5828. Á Flúðum: hjá Sólveigu Ólafsdóttur, Versl. Grund s. 486- 6633. Á Selfossi: í versl- uninni Írisi, Austurvegi 4, s. 482-1468 og á sjúkrahúsi Suðurlands og heilsugæslustöð, Ár- vegi, s. 482-1300. Í Þor- lákshöfn: hjá Huldu I. Guðmundsdóttur, Oddabraut 20, s. 483- 3633. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga, fást á eftirtöldum stöðum á Reykjanesi. Í Grindavík: í Bókabúð Grindavíkur, Vík- urbraut 62, s. 426-8787. Í Garði: Íslandspósti, Garðabraut 69, s. 422- 7000. Í Keflavík: í Bóka- búð Keflavíkur Penn- anum, Sólvallagötu 2, s. 421-1102 og hjá Íslands- pósti, Hafnargötu 89, s. 421-5000. Í Vogum: hjá Íslandspósti b/t Ásu Árnadóttur, Tjarn- argötu 26, s. 424-6500, í Hafnarfirði: í Bókabúð Böðvars, Reykjavík- urvegi 64, s. 565-1630 og hjá Pennanum- Eymundsson, Strand- götu 31, s. 555-0045. Í dag er laugardagur 24. ágúst, 236. dagur ársins 2002. Barthóló- meusmessa. Orð dagsins: Og sólin rennur upp, og sólin gengur undir og hraðar sér til samastaðar síns, þar sem hún rennur upp. (Préd. 1, 5.) K r o s s g á t a 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Víkverji skrifar... VÍKVERJI er ferðalangur. Hannferðaðist vítt og breitt um land- ið í sumar, gisti á ófáum tjaldstæðum og er öllu nær um margbreytileika hinnar undursamlegu íslensku nátt- úru. Einn er sá áningarstaður sem gnæfir þó upp úr í minningunni hvað fegurð varðar og framúrskarandi að- stöðu og gestrisni við ferðalanga, en það er Ásbyrgi í N-Þingeyjarsýslu. Fyrir það fyrsta þá var þjónustulund starfsfólksins á hinu himneska og vel skipulagða tjaldstæði í gljúfraskjól- inu í sérflokki og leyndi sér ekki virðingin sem það ber fyrir staðnum og starfi sínu. x x x SKAMMT frá Ásbyrgi er eitt afmögnuðustu náttúruundrum landsins, Hljóðaklettar, sem gnæfa upp úr í gróðursældinni við bakka Jökulsár á Fjöllum. Þar eru ein- hverjar allra skemmtilegustu gönguleiðir sem fyrirfinnast fyrir leikmenn sem lengra komna og til að fullkomna heimsóknina þangað stendur á sumrin til boða að ganga um svæðið í fylgd þjóðgarðsvarða sem fúsir eru til að deila fróðleik sín- um með þeim er áhuga hafa. Það sem meira er þá er leiðsögn þessi al- gjörlega ókeypis (svo langt sem það nær því hádegisverðurinn er jú aldr- ei ókeypis?) Hvar í heiminum annars staðar stendur slík þjónusta til boða? VÍKVERJI er sjónskertur. Hanner löngu orðinn þreyttur á að þurfa að bera gleraugu á nefinu. Geislameðferð er þó eitthvað sem heillar ekki í svipinn, er bæði kostn- aðarsöm og of margar sögur á kreiki um mislukkaðar aðgerðir. Því verða linsur að duga um sinn þótt þær séu langt því frá hin fullkomna lausn á sjóndeprunni, því Víkverji hefur sannreynt að linsur eru eins misjafn- ar og tegundirnar eru margar. Fyrst voru reyndar fokdýrar „harðar“ linsur sem endast áttu í ár með eðlilegri notkun og umhirðu. Eftir 4 mánuði voru þær hins vegar farnar að angra augun svo að notk- unin varð óþolandi og þeim því sturt- að niður. Þá voru reyndar heldur ódýrari þriggja mánaða linsur. Þær reyndust betur, dugðu meira að segja í heila tvo mánuði, næstum jafnlengi og árslinsurnar. Undir það síðasta voru þær þó líka farnar að angra allverulega en Víkverji þrjóskaðist náttúrlega alltof lengi við í ljósi loforða um að linsurnar ættu að duga a.m.k. mánuði lengur. Aftur var gömlu brillunum því tyllt á nefið og þar sátu þær í all- langan tíma enda Víkverji svo gott sem búinn að gefa linsur upp á bát- inn. En að því kom að hann vildi reyna einu sinni enn og ákvað þá að prófa dagslinsur, linsur sem einung- is eiga að duga daglangt eða þar um bil. Og viti menn, loksins voru réttu linsurnar fundnar! Loksins gat Vík- verji verið með linsur án þess að þær öngruðu hann, því um leið og það fór að gerast var ekkert einfaldara en að henda þeim og setja upp aðrar, ekk- ert bras við að hreinsa þær. Og það sem meira var þá entust þær mun lengur en daglangt, því þær fóru ekki að angra fyrr en eftir 3–4 daga. x x x VÍKVERJI hafði notað þessa fínulinsutegund í ár eða svo þegar umbúðum var breytt, gerðar hand- hægari, vistvænni og fyrirferðar- minni. Kom brátt einnig í ljós að lins- unum hafði verði breytt eitthvað líka, eðlilega til hins betra, myndu flestir ætla, en nei, því fer fjarri. Eft- ir breytingar er sama vörutegundin orðin lélegri að gæðum en áður. Linsurnar endast mun skemur, ekki lengur en daglangt, eins og lagt er upp með, og ekki nóg með það held- ur eru þær mun viðkvæmari en áður og rifna mjög auðveldlega. Hvað get- ur eiginlega valdið því að vara sé gerð lélegri en áður? Jú, auðvitað að fá neytendur til að klára linsu- skammtinn fyrr. Alltént horfir málið svo við Víkverja að eldri gerðin hljóti bara að hafa þótt einum of góð. Linsuvandinn heldur því enn áfram og senn munu gleraugun rata enn eina ferðina upp á nef. Um týndar kisur NÝVERIÐ skrifaði kona í Velvakanda og sagði frá því að kötturinn hennar hefði fundist. Mér finnst frábært að sagt skuli vera frá því þegar kettirnir finn- ast. Ég tek undir það sem annar aðili skrifaði, að fólk verður að láta gelda kett- ina sína. Það er hið besta mál, jafnvel þó það kosti eitthvað. Það kostar jú líka að láta lóga kettlingum sem ekki er hægt að koma á heimili. Það er gott að vita af því þegar týnd dýr finnast og hvet ég fólk til að láta Vel- vakanda vita þegar dýrin koma í leitirnar. Björg. Kettir og fleiri kettir ÞIÐ SEM auglýsið kettina ykkar, vitið þið hvað verð- ur um þessa kettlinga? Rannsóknir á Norðurlönd- um hafa því miður sýnt að innan við 10% kettlinga sem fæðast eiga í vændum einhverja fullorðinsævi. Slík könnun hefur ekki ver- ið gerð hér, en sá gífurlegi fjöldi af köttum sem eru af- lífaðir og týnast segir sína sögu um hvernig ástandið er hér á landi. Kettir eru dásamleg heimilisdýr en þeir eiga skilið betri umhirðu. Með aukinni þjónustu dýra- lækna við heimilisdýr hef- ur ófrjósemisaðgerðum fjölgað mikið frá því sem áður var. Enn er þó allt of mikið um að kattaeigendur sinni því ekki. Það sést best á kettlingaframboð- inu. Þið berið ábyrgð, þið sem gefið kettlinga. Kattakona. Tapað/fundið Hermannavesti NOKKURS konar her- mannavesti, líklega af ung- um dreng, fannst á Kirkju- bæjarklaustri, við Hæðagerðisvatn í landi Starfsmannafélags Álvers- ins, Álfheimar STÍS. Vest- ið fannst 30. júlí og hefur líklega týnst vikuna áður. Eigandi má vitja vestisins í síma 554 1040 á kvöldin. Eyrnalokkur týndur TVÍLITUR gulleyrnalokk- ur tapaðist um verslunar- mannahelgina. Hann hefur að öllum líkindum glatast við verslun Europris við Lyngháls, í Árbæjarhverfi eða í Vesturbænum. Lokk- urinn er mótaður úr tveim- ur samföstum hringjum, annar úr gulli en hinn úr hvítagulli. Skilvís finnandi er vinsamlega beðinn að hafa samband í síma 691 2949 eða 567 3537. Konan hans Árna TRÚLOFUNAR- eða gift- ingarhringur fannst fyrir nokkru. Hringurinn er merktur dagsetningunni 9. 3. 1990 og nafni Árna. Sá sem telur sig eiga hringinn má hringja í síma 898 8853. Karlmannsjakki DÖKKBLÁR karlmanns mittisjakki tapaðist í miðbæ Reykjavíkur að- faranótt 3. ágúst. Í honum voru Nokia 5210 farsími, lyklar og veski með skil- ríkjum. Finnandi vinsam- lega gefi sig fram í síma 562 1177 eða 551 9007. Mjög góð fundarlaun í boði. Bíllinn horfinn RAUÐUR Nissan Pulsar (Sunny) bíll, árgerð 1987, var tekinn ófrjálsri hendi 19. ágúst. Bíllinn var með skráningarplötu M 845 og með græna þrykkimynd í afturrúðu. Eigandinn er illa staddur án bílsins og biður þá sem vita hvar bíll- inn er niður kominn að hringja í síma 692 9882, 554 6404, 564 1423 eða hafa samband við lögreglu. Dýrahald Kettlingar fást gefins FALLEGIR og ljúfir 8 vikna gamlir kettlingar fást gefins. Kassavanir og heimilislegir, afskaplega skemmtilegir kettir. Nán- ari upplýsingar í síma 861 5011 eða 581 1719. Yndislegar og blíðar ÞÆR Dimmalimm, Tígru og Skoppu vantar gott heimili. Þær eru 10 vikna kettlingar, yndislega fal- legar og blíðar. Þær eru kassavanar og kattþrifnar. Þeir sem vilja taka þær að sér hringi í síma 581 4025 eða 860 2270. Ljónslegir kettlingar ÞRÍR yndislegir kettlingar fást gefins. Þeir eru rúm- lega 9 vikna, kassavanir og barnavanir. Þeir eru sér- lega góðir og dagfarsprúðir kettir og ljónslegir í útliti. Áhugasamir hringi í síma 565 3422. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT: 1 höfuðhlíf, 4 heiðarlegt, 7 erfiðar, 8 sykurlaust, 9 hagnað, 11 pésa, 13 skott, 14 hvarfla, 15 fram- kvæmt, 17 halarófa, 20 ósoðin, 22 dylur, 23 var- kár, 24 rödd, 25 kaka. LÓÐRÉTT: 1 vafasöm, 2 ryskingar, 3 lofa, 4 vel að sér, 5 lán- leysi, 6 larfa, 10 blauðar, 12 megna, 13 mann, 15 spakar, 16 kindar, 18 ólyfjan, 19 naga, 20 karl- dýr, 21 mjög góð. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 mögulegur, 8 sýgur, 9 illum, 10 afl, 11 mýrar, 13 lerki, 15 fokka, 18 hróks, 21 lúr, 22 grund, 23 afæta, 24 mannalæti. Lóðrétt: 2 öfgar, 3 urrar, 4 erill, 5 uglur, 6 ýsum, 7 smái, 12 auk, 14 err, 15 fugl, 16 kaupa, 17 aldan, 18 hrafl, 19 ótækt, 20 skap.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.