Morgunblaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 9 ÍÞRÓTTAKENNARINN Tafing Win er komin hingað til lands til að kenna fólki og þjálfa það í wushu art sem er ævagömul kínversk íþrótt. Heilsudrekinn, kínversk heilsulind, hefur opnað íþróttasal í Ármúla 17 og býður nú upp á tíma í wushu art. Að sögn Qing, eiganda Heilsu- drekans, er wushu art hefðbundin kínversk íþrótt og mjög margþætt. Hún segir að ekki hafi verið hægt að leggja stund á hana hér á landi fyrr en Heilsudrekinn hyggst bæta úr því næsta mánudag þegar kennsla hefst. Qing bætir við að Tafing Win hafi margra ára reynslu í þjálfun wushu art í Kína og hafi meistaragráðu í þessum fræðum. „Wushu art er öðruvísi íþrótt. Meiri áhersla er lögð á orkustöðvar, lækningar og and- legu hliðina. Þetta er sambland af líkamlegum æfingum og andlegum,“ segir Qing, sem sjálf hefur kennt kínverska teygjuleikfimi á Íslandi í tíu ár. Hún segir að í teygjuleikfimi sé meiri áhersla lögð á slökun en wushu art sé öllu fjölbreyttari og hraðari og í raun nokkurs konar bardagaíþrótt. Mikill áhugi á íþróttinni hér á landi „Wushu art hefur þróast í 5.000 ár. Þetta er mjög spennandi íþrótt og hentar fyrir fólk á öllum aldri. Við munum bjóða upp á námskeið fyrir allan aldur,“ bendir hún á og undirstrikar að afbrigði íþrótt- arinnar séu mörg. Qing segir Taifing Win bjartýna og fulla tilhlökkunar að hefja kennsluna. Hún segir að hún vonist til að geta fundið ungt fólk til að þjálfa fyrir sýningar og jafnvel keppnir erlendis. Aðspurð segist hún sannfærð um að mikill áhugi sé á wushu art á Ís- landi. „Á þessum fjórum árum sem ég hef starfrækt Heilsudrekann hef- ur fullt af fólki hringt og spurst fyrir um wushu art,“ segir hún og bætir við að hún hafi verið hvött til að koma íþróttinni á hér á landi. Qing bendir á að íþróttin sé vinsæl til dæmis í Bretlandi og Bandaríkj- unum og fjölmargir Íslendingar hafi komist í kynni við hana þar. Að sögn Qing eru alls konar kín- verskar heilsumeðferðir í boði í Heilsudrekanum, nudd og smyrsl- meðferðir, svo fátt eitt sé nefnt. Hún segist ætla að halda áfram að kenna kínverska teygjuleikfimi og að því verði hægt að leggja stund á ýmsar tegundir kínverskrar leikfimi þar. Kynnir kínverska leikfimi í kínverskum íþróttasal Morgunblaðið/Árni Sæberg Kínverski íþróttakennarinn Tai Fingwin ætlar að kenna wushu art. SKIPULAGSSTOFNUN taldi ekki þörf á mati á umhverfisáhrifum vegna byggingar 400 kílówatta vatnsafls- virkjunar í landi Húsafells í Borgar- firði. Framkvæmdin felur m.a. í sér að til verður 0,85 hektara miðlunarlón í farvegi Kiðár auk þess sem farvegur Kaldár verður færður til og hún látin renna í uppistöðulónið. Tilgangur með virkjuninni er að tryggja raforku á svæðinu og styrkja rekstur Ferðaþjónustunnar Húsa- fells. Í niðurstöðu Skipulagsstofnunar segir að bygging vatnsaflsvirkjunar- inar ásamt efnistöku og haugsetningu þess hafi ekki verulegt rask í för með sér og hún sé því ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfis- áhrif og skuli því ekki háð slíku mati. Skipulagsstofnun um vatnsaflsvirkjun í landi Húsafells Ekki þörf á umhverf- ismati ♦ ♦ ♦ Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán. - fös. kl. 10-18 laugardag kl. 10-14 Dragtir með síðum og stuttum pilsum Flottur gallafatnaður Síðbuxur - mörg snið margir litir Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Mikið af nýjum vörum Dragtir verð 13.490                Mánudaga og miðvikudaga kl. 12.05, 16.25, 17.25 og 19.00. Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16.40 og 17.40. Föstudaga kl. 12.05 og 17.25. Laugardaga kl. 9.00. Byrjendatímar hefjast 26. ágúst, mánudaga og miðvikudaga kl. 20.00. Kennarar leiða nemendur í gegnum hatha-yoga; jógastöður, öndun og slökun. Haustönnin er 16 vikur til 21. desember. Fullt verð kr. 22.900. Ef vorönn er keypt um leið er veittur 20% afsláttur. Stakur tími kr. 1.000, mánuður kr. 8.500, 1 mánuður í byrjendatímum kr. 9.900. Frjáls mæting, sturtur og sauna. Auðbrekku 14, Kópavogi, símar 544 5560 og 864 1445, www.yogastudio.is Haustönn opinna jógatíma hefst 2. sept. 4ra vikna uppbyggjandi námskeið fyrir þá, sem eiga við streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Ásmundur, sem m.a. byggir námskeiðið á eigin reynslu af kvíða, tekur fyrir þætti eins og jógastöður, öndunaræfingar, slökun og andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu. Ekki er krafist reynslu af jóga. Yfirgripsmikið og traust námskeið frá árinu 1994. Hefst fimmtudaginn 5. september – þri. og fim. kl. 20:00 Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni Næsta jógakennaraþjálfun fer af stað helgina 20.-22.september. Ásmundur heldur kynningarfund fyrir áhugasama laugardaginn 14. september kl. 17. Sjá nánari umfjöllun á www.yogastudio.is verslun fyrir konur Laugavegi 44, sími 562 8070 og Mjódd, sími 557 5900 Opnum í dag á nýjum stað í Mjóddinni Full búð af nýjum vörum frá Jensen, Share og Espririt Gallafatnaður, dragtir, toppar og peysur Opnunartilboð í tilefni dagsins Opið frá kl. 10-16 Verið velkomnar Satín brúðarskór og töskur Laugavegi 58 — Smáralind, sími 551 3311 — 528 8800 Gott verð Líttu í gluggana BROTIST var inn í 10 bifreiðir í fyrrinótt miðsvæðis í Kópavogi og talsvert tjón unnið. Brotnar voru hliðarrúður í bifreiðunum og stolið hljómtækjum, geisladiskum og ýmsu smálegu. Einnig var farið inn í íbúð- arhús og stolið rafsuðuvél og verk- færum. Málin eru í rannsókn lög- reglunnar í Kópavogi og óskar hún eftir upplýsingum sem gætu varpað ljósi á málin. Brotist inn í 10 bifreiðir Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is flísar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.