Morgunblaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 39 ✝ Ási Markús Þórð-arson fæddist á Sléttabóli í Vest- mannaeyjum 22. júní 1934. Hann lést á Sjúkrahúsi Suður- lands 18. ágúst sl. Foreldrar hans voru Þórður Þórðarson skipstjóri í Vest- mannaeyjum, f. 12.1. 1893, d. 1.3. 1942, og Guðfinna Stefáns- dóttir, f. 11.10. 1895, d. 5.5. 1971. Systkini Ása Markúsar eru: Sigríður, f. 24.3. 1921, d. 12.1. 1996, Ása Magnea, f. 19.5. 1922, d. 19.12. 1931, Bára, f. 23.2. 1924, d. 12.1. 2001, Eyþór, f. 4.11. 1925, d. 16.10. 1998, og Stef- anía, f. 20.10. 1930. Eftirlifandi eiginkona Ása Markúsar er Aðalheiður Sigfús- dóttir, f. í Garðbæ á Eyrarbakka 10.6. 1932. Þau gengu í hjónaband 12.9. 1953. Synir þeirra: 1) Þórð- ur, f. 29.11. 1953, d. 7.9. 1983. 2) Sigfús, f. 2.8. 1958, d. 7.9. 1983. 3) Vigfús , f. 17.8. 1961, maki Elínbjörg Ing- ólfsdóttir, dóttir þeirra er Ása Magn- ea Vigfúsdóttir, f. 19.4. 1987. Þórður og Sigfús fórust með mb. Bakkavík ÁR 100, 7. sept. 1983. Ási Markús gekk í Barnaskóla Vest- mannaeyja. Árið 1948 flutti hann til Eyrarbakka með móður sinni og systkinum. Mestan hluta starfsævinnar var hann vélstjóri til sjós, lengst af í eigin útgerð. Eftir að sjó- mennsku lauk var hann aðstoðar- maður í eldhúsinu í fangelsinu Litla-Hrauni, auk eigin verslunar- rekstrar. Ási Markús var einn af stofnendum Dvalarheimilisins Sólvalla á Eyrarbakka og vann öt- ullega að uppbyggingu þess. Útför Ása Markúsar verður gerð frá Eyrarbakkakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ég hafði verið á menningarnótt í Reykjavík og gisti þar um nóttina. Pabbi hringdi í mig í hádeginu á sunnudeginum og sagði mér að afi væri dáinn. Ég vissi að þú værir veikur, en hélt samt að þetta myndi ekki gerast svona snöggt, en svona er víst lífið. Ég man eftir því þegar við vorum að fara í sund saman, þú, amma og ég. Við skemmtum okkur ágætlega og eftir sundið fórum við í bakarí og fengum okkur eitthvað gott. Þegar ég var yngri fórum við í útilegur út um allt á sumrin. Ég gleymi ekki þegar við fórum einu sinni í Þjórs- árdalinn og ætluðum að labba að vatninu meðan amma væri að hafa matinn til, en þegar við vorum að drífa okkur í matinn rann ég í drullu og þú sagðir mér að þetta yrði nú allt í lagi, ég myndi bara skipta um föt þegar við kæmum til ömmu. Ég veit að hún amma missir mikið þegar þú ert farinn, og auðvitað við öll, eins og ég eina barnabarnið. En þetta kemur fyrir alla að missa ást- vin og það er alltaf jafn erfitt. Vinir mínir og vinkonur hafa verið mér mikið núna eftir að þú fórst frá okk- ur eins og allir. Þú varst mikið fyrir tónlist og söng og þú varst nú í kirkjukórnum. Ég hef líka gaman af söng og allri tónlist og þú hafðir gaman af því þegar ég lærði á fiðlu. Ég tók þátt í söngvakeppni og þú og amma komuð og hlustuðuð á mig æfa mig fyrir keppnina og þú sagðir mér hvað ég yrði nú að laga smávegis svo þetta yrði nú gott hjá mér. Eða þegar ég var að æfa körfubolta og kom oftast í mat til ykkar ömmu á eftir, þá skild- irðu mig aldrei að vilja nú oftast ekki það sem var í matinn hjá ykkur. Þá útbjó amma eitthvað handa mér sem mér fannst gott og svo fengum við okkur alltaf graut eða ís í eftirmat. Þegar þið fóruð fyrst til Kanarí keyptuð þið svo mikið handa mér að þú sagðir að þið hefðuð þurft að kaupa aukatösku. Þið keyptuð Adid- as-föt á mig og ég man þegar ég kom í leikfimi í nýju fötunum hvað mér fannst flott að vera í öllu nýju sem þið gáfuð mér. Ég man að þegar þú og ég vorum að fara á Selfoss eða eitthvað saman og þú varst stundum að tala við sjálfan þig og ég skildi aldrei hvað þú varst að gera, en ég skil það núna, því þú sagðir mér það. En núna líður þér vonandi mjög vel hjá Guði, þú kannski lítur eftir mér hérna niðri og athugar hvort ég sé nokkuð að gera vitleysu. Guð blessi þig. Þín Ása Magnea. Ási frændi hefur lengi verið fastur punktur í tilveru okkar fjölskyld- unnar. Faðir minn varð þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp með Ása og hafa samskipti þeirra verið mikil í gegnum tíðina, bæði í leik og starfi. Ási frændi var alveg einstakur maður. Hann hafði gaman af því að segja frá og var hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom, hann var mikill framkvæmdamaður og hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum sem hann var ófeiminn að láta uppi. Það er ómælt sem hann hefur gert fyrir okkar litla þorp og hann var þannig maður að hann lét sér ekki nægja að tala um hlutina heldur framkvæmdi þá. Ási hefur því víða markað spor sín. Nú hin síðari ár ráku þau hjónin ferðaþjónustu heima á hlaði hjá sér. Ási vildi auðvitað að gestunum liði sem best og þar sem hann talaði lítið í erlendum málum fékk hann mig stundum til að vera sér til halds og trausts. Það var oftast algjör óþarfi því Ási var einstaklega laginn við að tjá sig og var oft gaman að fylgjast með því. Nú í dag er við kveðjum Ása hinsta sinni sjáum við á eftir góðum félaga, vini og frænda sem verður sárt saknað. Við fjölskyldan vottum Allý, Vigfúsi og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Guðfinna H. Þórsdóttir. Fimleiki hans í fasi og hugsun var með slíkum léttleika að í hvert sinn sem maður hitti hann var ekki hægt annað en fagna. Það eru mikil hlunn- indi að eiga slíka menn að samferða- mönnum. Ási Markús var eldhugi, driffjöður í hverju sem hann tók sér fyrir hendur og hvatning samferða- mönnum sínum til dáða, en þó að það gæti hvesst hjá honum eins og flest- um athafnamönnum var glaðlyndi hans aðalsmerki, tvíræða brosið við auga og munn. Þessi gróni Eyjapeyi stóð ríflega undir nafni árin í Eyjum og á Eyrarbakka markaði hann af- gerandi spor með persónuleika sín- um, setti svip og lit á mannlífið og oft reyndi á þolinmæðina þegar hug- myndir hans voru langt á undan framkvæmdum. Hvert samfélag sem missir mann eins og Ása ber harm í brjósti, því regnboginn hefur fölnað. Allý og Ási voru mjög samrýnd og það var alltaf eins og þau væru nýtrúlofuð. Að heimsækja þau var engin venjuleg heimsókn, það var veisla. Einu sinni sem oftar var ég á ferðinni með sameiginlegum vini okkar Ása, Einari heitnum í Betel. Við Einar vorum á ferðinni um Suð- urland og m.a. kom hann við á Litla- Hrauni til þess að færa föngum þar páskaegg sem hann hafði fengið gef- ins í sælgætisgerðinni Mónu. Klukk- an var að verða þrjú þegar við kom- um að Litla-Hrauni og Einar hafði á orði við fangaverðina að hann mætti ekki vera að því að líta inn vegna þess að hann væri að fara á áríðandi fund á Eyrarbakka. Þeir fengu hann nú til að líta inn og hafa stund með „strákunum“. Það var ógleymanlegt þegar Einar í Betel vatt sér inn í fangelsið og kallaði sinni þrumu- rödd: „Strákar, allir á dekk.“ Og það mætti hver einasti. Einar bað, lét strákana fara með Faðirvorið, mig spila á gítar undir sálmasöng og þetta varð hörkugóð stund á „dekk- inu“. En fyrr en varði var Einar lagður í’ann á Bakkann og kóssinn var tekinn beint til Ása Markúss og Aðalheiðar. Þá náði ég tilkynning- unni um þennan áríðandi fund, á borðum hjá Allý voru a.m.k. 17 sort- ir, ótrúlegt veisluborð og það var gantast og spjallað og gert gott úr öllum hlutum. Þannig var nú andrúmið í Ásgarði þeirra Ása og Allýar, en ógurleg var reynsla þeirra og sorg þegar tveir synir þeirra, Þórður og Sigfús, fór- ust í innsiglingunni á Eyrarbakka ungir sjómenn og enginn gat rétt hjálparhönd. Vigfús, einn bræðr- anna þriggja í gúmmíbjörgunar- bátnum, bjargaðist úr þessu hrika- lega sjóslysi. Það er mikið afrek fyrir þá sem eftir standa í augliti líð- andi stundar að lifa slíkt af, en tónn þessa fólks hefur alltaf verið svo sterkur og heill, hlaðinn vilja og lífs- gleði, hlaðinn hlýju og vinarþeli í garð samborgaranna og það gerir spegilmynd hversdagsins viðkunn- anlegri þótt á móti blási. Ási Markús Þórðarson var mikill áhugamaður um ferðaþjónustu og stundaði slíkt í nokkrum mæli af sinni alkunnu útsjónarsemi. Þau seldu Ásgarðinn og byggðu upp Garðbæ með aukaíbúð og íbúð í bíl- skúr og þar nutu ferðamenn góðrar gistingar í góðum anda þeirra hjóna. Þá lét Ási aldeilis að sér kveða í upp- byggingu og rekstri dvalarheimilis- ins Sólvalla á Bakkanum og þar eins og hvarvetna sem Ási kom við sögu er hans sárt saknað því hlýja hans og hvatning náði svo mörgum hjartarótum. Megi góður Guð styrkja eftirlif- andi ástvini hans og vinafjöld, megi okkur auðnast að rækta áfram í hans anda lífsgleðina sem hann fangaði svo fimlega. Árni Johnsen. Ási Markús vinur okkar hefur kvatt. Nú er hann floginn til fegurri landa og það fyrr en hann ætlaði sér. Það var ekki í eðli hans að gefast auðveldlega upp fyrir ofurafli þess sem öllu ræður. Ási Markús vissi samt mætavel að hverju stefndi en var ákveðinn í að sigrast á þessum veikindum rétt eins og öllum hinum. Ási Markús var einstakur maður. Það er óhætt að segja að skaparinn geri örfá eintök af mönnum á borð við Ása Markús. Við Áslaug teljum okkur hafa verið einstaklega lánsöm að hafa fengið að kynnast Ása. Hann kynnti okkur fyrir samfélaginu á Eyrarbakka og kenndi okkur að meta þetta friðsæla fiskiþorp við suðurströndina. Ekki bara það, hann sá til þess að við eignuðumst kot á Bakkanum og festum þar rætur. Lífshlaup þessa einstaka manns var litríkt. Fullt af áföllum og erf- iðleikum. Það voru líka margir ávinningar og stórir sigrar. Ási var athafnamaður í orðsins fyllstu merk- ingu. Hann gat aldrei kyrr setið eða aðgerðarlaus verið. Hann þurfti stöðugt að vera að framkvæma eitt- hvað, ekki bara fyrir sig og sína, heldur og fyrir allt og alla. Heimili eldri borgara á Bakkanum er gleggsta dæmið um það að Ási bar velferð samferðamanna sinna fyrir brjósti. Ási Markús var um margt merki- legur maður. Hann var uppfullur af hugmyndum um allt sem þurfti að framkvæma. Skoðanafastur var Ási og gaf ekkert eftir ef hann taldi á hlut sinn gengið. Sótti mál af festu og sannfæringarkrafti og bar jafnan sigur úr býtum. Það voru skemmtilegir og gefandi tímar að fá sér morgunsopann á laugardagsmorgnum hjá Ása og Al- lýju, konu hans, sem var hans stoð og stytta alla tíð. Ási sagði skemmti- lega frá lífi sínu, draumum, sigrum og áföllum. Það var eins og að sitja á skólabekk að hlusta á meistara Ása Markús á slíkum stundum. Mesta áfall í lífi þeirra hjóna var að horfa upp á tvo syni sína farast í innsiglingu Eyrarbakkahafnar, en sá þriðji komst lífs af með yfirnátt- úrulegum hætti. Maður fær ekki skilið hvernig þau hjón komust í gegnum þann sorglega hildarleik. Ef Ási Markús væri að hefja líf sitt nú myndi hann hafa gengið menntaveginn og komist í raðir þeirra sem fremstir fara í þessu litla samfélagi okkar. Hann hefði náð langt á sviði athafna og framfara, heildinni til heilla. Í dag drúpum við höfði í sorg, en erum samtímis þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að kynnast og njóta samvista með þessum ein- staka Eyrbekkingi. Með Ása Mark- úsi er genginn gegnheill Íslending- ur, sem skilað hefur drjúgu dagsverki. Við Áslaug og börnin okkar send- un Allýju, Vigfúsi og fjölskyldu okk- ar dýpstu og innilegustu samúðar- og vinakveðjur og vonum að hinn hæsti höfuðsmiður veiti þeim styrk og vernd á sorgarstundu. Blessuð sé minning Ása Markúsar. Áslaug og Jón Hákon í Norðurkoti. Ási Markús var hugmyndaríkur og margbreytilegur persónuleiki sem setti svip á mannlífið á Eyr- arbakka. Hann var glaðlegur í fasi og framgöngu, átti auðvelt með að koma fyrir sig orði, hafði skoðun á flestu sem gert var í þorpinu og var létt um að tala við hvern sem var, bæði háa og lága. Ási varð fyrir mörgum áföllum í lífinu. Hann missti ungur föður sinn, glímdi við langvar- andi heilsuleysi allt frá unglingsár- um og missti tvo syni sína í blóma lífsins. Ekkert af þessu lét hann buga sig en hélt áfram með óbilandi bjartsýni og viljaþreki. Ási var fæddur og uppalinn í Vest- mannaeyjum og þó að hann byggi lengstan hluta ævinnar á Bakkanum var hann alltaf Eyjamaður í hjarta sínu. Ási var í eðli sínu hugmaður, vildi alltaf vera að láta eitthvað ger- ast og lét sér detta fjölmargt í hug. Eftir að hann hafði fengið hugmynd unni hann sér ekki hvíldar fyrr en henni hafði verið hrundið í fram- kvæmd. Hann tók sér margt fyrir hendur á lífsleiðinni; stundaði sjó- mennsku, kjötiðn, eldamennsku, kvikmyndasýningar, verslunar- rekstur, ferðaþjónustu og standsetti hús svo eitthvað sé nefnt. Hann hafði næmt auga fyrir breytingum á húsum og innréttingum og sýndi í því hugkvæmni og útsjónarsemi. Hann staldraði ekki alltaf lengi við, en skildi við hlutina í betra ástandi en hann tók við þeim. Það var gaman að Ása þegar hann náði sér á flug um margsvísleg framfaramál á Eyr- arbakka og engum gat dulist að hann vildi veg þess byggðarlags sem mestan. Þá gilti einu hvort það var markaðssetning brimsins eða endur- bygging Miklagarðs fyrir veitinga- hús. Stundum hvarflaði samt að manni að Ási hefði notið sín betur í stærra samfélagi þar sem olnboga- rýmið hefði verið meira og athafna- þránni verið sniðinn stærri stakkur. Fyrir tuttugu árum hafði Ási frumkvæði að söfnun undirskrifta til stuðnings því að komið yrði á fót dvalarheimili fyrir aldraða í fyrrum læknisbústað þorpsins á Sólvöllum. Það var honum hugsjónamál að Eyr- bekkingar fengju notið ævikvöldsins í sinni heimabyggð og málið var brýnt því margir Eyrbekkingar dvöldu á þeim árum á ýmsum öldr- unarstofnunum innan og utan hér- aðs. Ási hafði forystu um að hrinda þessu máli í framkvæmd og þó að það mætti töluverðri andstöðu tókst með samstilltu átaki fjölmargra að koma dvalarheimilinu á stofn. Marg- ir af eðliskostum Ása nutu sín vel í því starfi. Rekstur heimilisins var Ása æ síðan hjartans mál og hann vann því allt sem hann mátti og taldi aldrei neitt eftir sér í þeim efnum. Ási gaf mikið af sér í starfinu fyrir Sólvelli en það gaf honum líka mikið. Hann hefur í sjálfboðastarfi verið í senn húsvörður og sendiherra þeirr- ar stofnunar. Ási og Allý voru með þeim fyrstu sem ég kynntist þegar ég flutti á Eyrarbakka fyrir tuttugu árum. Við höfum átt samleið allan þann tíma og þó að við Ási værum ekki alltaf sammála skyggði það aldrei á vináttuna. Það er sjónar- sviptir að Ása Markúsi. Inga Lára Baldvinsdóttir. Hann Ási er allur. Því er raunar erfitt að trúa, því þrátt fyrir langvar- andi veikindi lét hann þau aldrei aftra sér frá því að vinna að þeim verkefnum sem honum voru hug- leikin. Eða svo notuð séu hans eigin orð: „Litli karlinn rís alltaf upp aft- ur“. Allt sem Ási tók sér fyrir hendur gerði hann af fullum krafti og mikilli einurð. Hann var sífellt að byggja upp og ekki er grunlaust um að sú veraldlega uppbygging hafi með- fram verið andleg uppbygging og styrking, ekki síst undanfarna tvo áratugi eða svo. Ási átti líka traustan samherja þar sem Allý kona hans var, en hún stóð ávallt sem klettur við hlið hans í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Ási var félagi í kirkjukór Eyrar- bakkakirkju sl. 10 ár. Hann stundaði æfingar vel og söng við velflestar at- hafnir, þó heldur hafi dregið úr síð- ustu misseri vegna veikinda hans. Honum fannst betra að mæta og vera með þó ekki gæti hann sungið af sama krafti og áður. Þannig var Ási, samviskusamur og lét sig helst ekki vanta. Við kórfélagar söknum vinar í stað og vitum hvað við höfum misst. Við þökkum Ása fyrir sam- veruna á söngloftinu og eigum örugglega eftir að skotra augunum að plássinu hans sem nú er autt. Ekki vitum við hvort til er eitthvert framhald eða hvort Ási taldi slíkt vera, en ef svo er þá er ekki víst að plássið hans á kirkjuloftinu sé jafn autt og sýnist. Við sendum Allý, Vigfúsi, Ellu og Ásu Magneu hugheilar samúðar- kveðjur og vonum að góður Guð styrki þau í sorg þeirra. Kórfélagar í kirkjukór Eyrarbakkakirkju. ÁSI MARKÚS ÞÓRÐARSON  Fleiri minningargreinar um Ása Markús Þórðarson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.