Morgunblaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ OPINBERRI heimsókn Davíðs Oddssonar forsætisráðherra til Færeyja lauk í gær með heimsókn til Vogs á Suðurey þar sem um 1.500 manns búa. Davíð kom þang- að um hádegisbil eftir siglingu frá Þórshöfn með nýju varðskipi Fær- eyinga, Brimli. Börnum hafði verið gefið frí í skólanum af tilefni dags- ins og var aðalgötu bæjarins lokað fyrir umferð. Alls taldi lögreglan að um 400 manns hefðu tekið á móti ráðherranum. Börnin veifuðu íslenskum og færeyskum fánum og lék lúðrasveit við komu ráð- herrans. Vilja kynnast íslenskri stjórnsýslu Um borð í Brimli funduðu Davíð og Anfinn Kallsberg, lögmaður Færeyja. Þar lýsti Kallsberg áhuga Færeyinga á því að kynnast störf- um íslenskra ráðuneyta þar sem Færeyingar eru að taka að sér auk- in verkefni. Hann nefndi sér- staklega í því sambandi dóms- málaráðuneyti, félagsmálaráðu- neyti og utanríkisráðuneyti. „Mér finnst sjálfsagt að gera þeim tilboð um að starfa innan þessara ráðu- neyta, með samþykki viðkomandi ráðherra að sjálfsögðu í einhvern tíma, hvort sem það eru 6 mánuðir, ár eða hvernig sem það er. Bæði til að fylgjast með og einnig til þess að starfa þar. Færeyingarnir myndu auðvitað greiða sínu fólki laun en við myndum greiða götu þess að öðru leyti. Þeir rökstyðja það þann- ig að þeir hafi meira gagn af að sjá hvernig við leysum mál í tiltölulega litlu landi en að vera að fylgjast með hvernig stærri þjóðir eins og Danir gera þetta. Ég held að það sé alveg hárrétt metið hjá þeim og það sé sjálfsagt að við hjálpum þeim hvað það varðar,“ segir Davíð í samtali við Morgunblaðið. „Svo fórum við yfir nokkra þætti í fiskveiðisamstarfi þjóðanna með almennum hætti og fórum yfir stöð- una hvað varðar skiptingu á svæð- um hér austur af Íslandi og vestur af Grænlandi þar sem hafa verið deildar meiningar um hvernig eigi að skipta yfirráðum yfir auðlind- inni, eða sjávarútveginum.“ Segir Davíð að utanríkisráðherra hafi haft veg og vanda af umræðunum fyrir hönd Íslands en hann telji að málið sé komið á samkomulagsstig. Endanlega verði gengið frá því af hálfu utanríkisráðherra og lög- manns Færeyja, að höfðu samþykki við utanríkismálanefnd og rík- isstjórn. Snýst málið um það hvort miða eigi miðlínuna, sem skiptir landhelginni milli landanna, við strandlínuna eða kletta í hafinu, sambærilega Kolbeinsey fyrir norð- an Ísland. Segir Davíð svæðið ekki mjög stórt og tiltölulega afmarkað en vill ekki fjalla frekar um það fyrr en utanríkisráðherra, utanríkismálanefnd og ríkisstjórn hafa farið yfir það. Mikil hlýja og vinsemd í garð Íslands Þá bauð Davíð Kallsberg starfs- bróður sínum að endurgjalda heim- sóknina og koma til Íslands í op- inbera heimsókn einhvern tímann þegar öllum hentar. Var Davíð hæstánægður með heimsóknina til Færeyja. „Heimsóknin var mjög at- hyglisverð og skemmtileg, ekki síst þessi síðasti partur þar sem við heimsóttum sveitarfélagið Vog og þar sem var tekið afskaplega hlý- lega á móti okkur. Mikil hlýja og vinsemd kom þar fram í garð Ís- lands og Íslendinga og var þetta ánægjulegur endapunktur á heim- sókninni,“ sagði Davíð. Í Vogi var lax- og silungseldi skoðað og ný vinnslustöð, sem er í eigu Atlantic Seafood, og var tekin í notkun fyrir ári. Vogur lenti illa í niðursveiflunni sem varð í Fær- eyjum á tíunda áratugnum. „Það var gaman að sjá hvernig þeir eru að rífa sig upp eftir niðursveifluna sem varð fyrir svona 8–10 árum. Þá varð þetta sveitarfélag og sam- félag fyrir gríðarlegum áföllum þegar stór og mikil frystihús lok- uðu og öll starfsemin eiginlega hrundi í byggðarlaginu. Þarna er um að ræða aðra starfsemi að vísu, silunga- og laxeldi, sem virðist vera á góðu róli, þar sem íslenskt hugvit og þekking virðist koma að góðum notum. Það var mjög skemmtilegt að skoða það. Þetta er mjög tæknivædd verksmiðja sem veitir frá 70–110 manns vinnu sem er náttúrulega gríðarlega mikið í 1.500 manna byggðarlagi,“ segir Davíð. Egill Steindórsson, framleiðslu- stjóri í verksmiðjunni, sýndi for- sætisráðherra og fylgdarliði verk- smiðjuna og sagði að um 90% tækjabúnaðar þar væru íslensk, frá Marel, Carnitech, Ískerfi, 3XStál, Samey og Skaganum. Morgunblaðið/Nína Björk Börnin fengu frí í skólanum í tilefni heimsóknarinnar og veifuðu ís- lenskum og færeyskum fánum. Hér ræðir Davíð við nokkur þeirra. Rúmlega þriðjungur íbúa í Vogi tók á móti forsætisráðherra og Anfinn Kallsberg. Taldi lögreglan að um 400 manns hefðu verið á bakkanum. Börnum gefið frí í skólum og aðalgötu bæjarins lokað Davíð Oddsson, forsætisráðherra Ís- lands, fékk höfðinglegar móttökur við komuna til Suðureyjar í gær, við lok op- inberrar heimsóknar hans til Færeyja. Um 400 manns tóku á móti honum á bryggjunni, börn veifuðu færeyskum og íslenskum fánum en þau fengu frí í skólanum í tilefni dagsins. Egill Steindórsson framleiðslustjóri sýnir Davíð verksmiðjuna sem er í eigu Atlantic Seafood. Þar eru um 90% tækjabúnaðar frá Íslandi. Þórshöfn. Morgunblaðið. Vel tekið á móti forsætisráðherra á Suðurey á síðari degi opinberrar heimsóknar hans til Færeyja Ekki tekið heildstætt á búfjár- málum Í TILLÖGU samstarfsnefndar um sameiningu Kjalarnesshrepps og Reykjavíkur frá 11. maí 1997 segir um landbúnaðarmál í hinu nýja sveit- arfélagi, Reykjavík, að tryggja þurfi vöxt og viðgang landbúnaðar og sjá um að hann búi við sambærilegar að- stæður og í öðrum landbúnaðarhér- uðum. Segir þar ennfremur að ekki séu uppi áform um að nýta land ofan höfuðborgargirðingarinnar til meiri beitar en nú og sé lausaganga hrossa bönnuð. Ekki er hins vegar minnst á bann við lausagöngu sauðfjár. Kolbrún Jónsdóttir, nefndarmaður í samstarfsnefndinni og fyrrverandi varaoddviti Kjalarneshrepps, segir að við tillögugerðina hafi ekki verið tekið heildstætt á búfjármálum. „Með því að það var ekki tekið fram að önnur regla skyldi gilda hér um lausagöngu búfjár en í Reykjavík nær bann við lausagöngu búfjár í Reykjavík frá 1986 yfir Kjalarnes að lokinni samein- ingu,“ segir Kolbrún. „Ef það hefði verið tekið fram að lausaganga búfjár væri leyfð þrátt fyrir sameiningu, þá hefði verið samþykkt í nefndinni að fé fengi að ganga laust.“ Kolbrún segir að það hafi augljóslega ekki verið gert og því beri að líta svo á að lausaganga búfjár sé bönnuð í Esjuhlíðum neðan ofanbyggðagirðingar. Í fyrrnefndri tillögu frá 1997 segir að svæðið í Esjuhlíðum sé skilgreint sem landbúnaðarsvæði í Aðalskipu- lagi Kjalarness 1990–2010. Er lagt til að þar verði bæði landbúnaður og smábýli. Ásgeir Harðarson, sem kom að tillögugerðinni á sínum tíma, segir aðspurður hvernig sú fullyrðing fari saman við bann við því að hafa fé á beit í hlíðum Esjunnar, eins og borg- arlögmaður segir engan vafa leika á, samkvæmt samþykkt um búfjárhald í Reykjavík frá 1986, að fleira sé land- búnaður en fjárbúskapur. Bendir Ás- geir á að skógrækt og svínarækt sé dæmi um landbúnaðargreinar og jafnt nú sem áður sé litið á svæðið sem landbúnaðarsvæði. Gerum okkur vonir um nýtt lagaumhverfi næsta vor Ellý K. J. Guðmundsdóttir, for- stöðumaður umhverfis- og heilbrigð- isstofu, þar sem hin umdeildu málefni búfjárins í Esjunni hafa verið til um- ræðu, segir að í gær hafi því verið beint til vörslumanns borgarinnar að hann smali fénu í samvinnu við Har- ald Jónsson á Varmadal út af landi skógræktarinnar. Megi búast við miklu annríki hja vörslumanni næstu fjórar vikurnar. „Eftir það gerum við okkur vonir um að ný samþykkt taki gildi þannig að við störfum í nýju lagaumhverfi næsta vor. Þá verður lausaganga fjár bönnuð annars staðar en innan beitarhólfa." Byggingar- kostnaður 8% umfram áætlun HEILDARKOSTNAÐUR vegna byggingar nýrrar höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur við Réttar- háls nemur 2.487 milljónum kr., sam- kvæmt kostnaðarmati, sem gert var í sumar. Upplýsingar um bygging- arkostnaðinn voru kynntar í stjórn Orkuveitunnar í gær, að sögn Guð- mundar Þóroddssonar, forstjóra Orkuveitunnar. Þegar hornsteinn var lagður að húsinu í apríl sl. var gert ráð fyrir að heildarkostnaður vegna byggingar- innar næmi 2,3 milljörðum. Hefur byggingarkostnaðurinn því farið 8% fram úr kostnaðaráætlun. Nýjar höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.