Morgunblaðið - 24.08.2002, Side 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SEX þúsund fermetra heilsurækt-
arstöð, Sporthúsið, verður opnað
nú um helgina og er almenningi
boðið að kynna sér aðstöðuna á
morgun, sunnudag, frá klukkan
11–18. Þegar Morgunblaðsmenn
litu í heimsókn í gær voru fram-
kvæmdir í fullum gangi og margt
enn ógert en forsvarsmenn stöðv-
arinnar létu þó engan bilbug á sér
finna.
Linda Pétursdóttir, einn eig-
enda Sporthússins, segir stöðina
þá stærstu á Norðurlöndum og þó
víðar væri leitað. Gert sé ráð fyrir
að í lok næsta árs sæki þrjú þús-
und manns þjónustu í húsið dag-
lega en alls geti stöðin þjónað
15.000 manns. Kort í Sporthúsið
gilda einnig í Þrekhúsið í vest-
urbænum (áður Þokkabót) og
Baðhúsið en í síðarnefndu stöðina
mega aðeins konur koma og verð-
ur svo áfram.
Sporthúsið er engin venjuleg
heilsuræktarstöð heldur verður
þar boðið upp á margt sem ekki
fyrirfinnst annars staðar. Í eystri
hluta hússins er rúmlega 700 m²
fótboltavöllur (19x38 m) lagður
nýrri tegund af gervigrasi. Sævar
Pétursson, annar framkvæmda-
stjóri Sporthússins, segir gervi-
grasið það fullkomnasta sem völ
er á. Það sé mýkra en annað
gervigras og mun líkara raun-
verulegu grasi en Íslendingar hafi
áður vanist. Þar af leiðandi sé
minni hætta á meiðslum og spila-
mennskan á vellinum verði eðli-
legri. Í húsinu eru auk þess tveir
skvasssalir, körfuboltasalur,
hnefaleikasalur, tveir tennisvellir,
sem líka eru notaðir sem fótbolta-
vellir, 230 m² leikfimisalur og
spinning-salur. Þar verður auk
þess barnagæsla og kaffihús og
boðið verður upp á sjúkraþjálfun.
Æfingar skráðar á lykil
Meðal nýjunga er svokallaður
þjónustulykill sem skráir niður
allar æfingar sem notandinn ger-
ir. Þjálfari tekur á móti hverjum
viðskiptavini og býr til handa hon-
um æfingaáætlun sem er lesin inn
á lykilinn. Lyklinum er síðan
stungið inn í tækin og gefur iðk-
andanum upplýsingar um hve
þung lóðin eiga að vera og hversu
oft og hratt hann á að fram-
kvæma tiltekna æfingu. Hægt er
að stilla lyklana þannig að líði of
langur tími á milli æfinga hefur
þjálfarinn samband við viðkom-
andi og minnir hann á líkams-
ræktina.
Á 12 vikna fresti fer þjálfarinn
yfir æfingaáætlunina og útbýr
nýja og tekur þá mið af þeim
gögnum sem lykillinn hefur safn-
að saman. Sævar segir að þetta
kerfi auðveldi æfingar og geri
þær árangursríkari. Þetta bjóði
einnig upp á mikla möguleika fyr-
ir þjálfara íþróttaliða, með því
geti þeir fylgst með æfingum liðs-
manna án þess að þurfa að fylgj-
ast með hverjum og einum á æf-
ingum. „Þetta kerfi er komið á
um 800 líkamsræktarstöðvar víða
um heim og meðal notenda eru
AC Milan, Juventus og Ferrari,“
segir Sævar.
Hægt er að nota tækin án lyk-
ilsins og auk þess eru hefðbundin
lyftingalóð í salnum. Tölvufælnir
hafa því ekkert að óttast.
Golfhermar og
18 holu púttvöllur
Um miðjan október er gert ráð
fyrir að taka í notkun 800 m2
svæði fyrir golfara. Páll Krist-
jánsson, sem einnig gegnir starfi
framkvæmdastjóra Sporthússins,
segir að ekkert veiti af plássinu,
golfíþróttin sé í mikilli framþróun
og iðkendum fjölgi stöðugt. Þegar
hafi flestir stærstu golfklúbbar á
höfuðborgarsvæðinu samið um
æfingatíma, jafnt fyrir afreksfólk
sem almenna golfara. Í húsinu
verða tveir golfhermar en Páll
segir að þeir golfarar sem hann
hafi rætt við séu sérstaklega
spenntir fyrir nýrri tegund af
golfhermi sem þar verður komið
fyrir. Nýi hermirinn mælir hraða,
stefnu og snúninginn á boltanum
mun betur en eldri gerðir og er
að auki hægt að sjá boltann frá
tveimur sjónarhornum.
„Þetta er ný kynslóð af golf-
hermum sem hefur ekki áður sést
hér á landi,“ segir Páll. Við golf-
herminn er auk þess myndbands-
upptökuvél sem tekur upp sveifl-
una hjá golfurunum og þeir geta
þá skoðað hvað betur mætti fara
og hjá golfkennara er hægt að
bera sveifluna saman við sveiflu
helstu afreksmannanna í íþrót-
inni. Í húsinu verður einnig 18
holu púttvöllur með flötum, karga
og hliðarhalla auk æfingasvæðis
með átta mottum af nýrri og
mýkri gerð.
Fjölbreyttari möguleikar
en annars staðar
Þrátt fyrir að Sporthúsið opni
ekki fyrr en á morgun er þegar
búið að selja um 1.500 kort og
flestir fótboltatímar eru bókaðir
fram að áramótum. Þá hafa verið
gerðir samningar við KR og
Breiðablik um að afreksfólk frá
félögunum æfi í stöðinni og nem-
endur í Menntaskóla Kópavogs
munu nema þar íþróttir. Páll seg-
ir að eitt helsta aðdráttarafl
stöðvarinnar felist í þeirri fjöl-
breyttu aðstöðu sem þar er í boði.
Hvort sem menn leiki golf, spili
knattspyrnu, leiki tennis eða vilji
einfaldlega efla þrekið og styrk-
inn, bjóði Sporthúsið upp á fjöl-
breyttari möguleika til líkams-
ræktar en eru í boði annarsstaðar.
Framkvæmdir við Sporthúsið
hófust í maí og kosta þær um 250
milljónir. Það eru fyrirtækin
Sportvangur og Baðhúsið sem
standa að stöðinni en húsnæði
Tennishallarinnar var tekið undir
Sporthúsið auk þess sem ný,
tveggja hæða millibyggingin var
reist frá grunni.
Sporthúsið, 6.000 fermetra líkamsræktarstöð, verður opnað almenningi á morgun
Morgunblaðið/Þorkell
Gengið er inn á aðra hæð Sporthússins, í nýja millibyggingu sem var reist í sumar.
Pétur Bjarnason stjórnarmaður, Sævar Pétursson framkvæmdastjóri, Linda Pétursdóttir,
einn eigenda, og Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Sporthússins, voru glaðbeitt í gær.
Þjónustulykill
gegnir stóru
hlutverki við
þjálfun
Skvasssalirnir tveir voru næstum tilbúnir og tækjasalurinn var svo til klár og lítið eftir annað en að þurrka af.
Nóg er af speglum til að iðkendur geti fylgst vel með framförum sínum.
Mikið verk beið ræstingafólksins á föstudagsmorgninum en væntanlega
verður allt skínandi hreint þegar húsið verður opnað á morgun.