Morgunblaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 18
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
18 LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GÓÐ hreyfing er á fasteignamark-
aðnum á Suðurlandi, einkum vestast í
Árnessýslu. Að mati sölumanna á
þremur fasteignasölum á Selfossi,
sem selja eignir á Suðurlandi, er ljóst
að aðflutningur fólks er töluverður á
svæðið. Telja þeir að eitt af því sem sé
sammerkt með þessu fólki er að það
leiti í rólegt umhverfi með góða nær-
þjónustu og þjónustutengsl við höf-
uðborgarsvæðið. Um er að ræða fólk
á öllum aldri. Mest hreyfing fasteigna
er á Selfossi og í Hveragerði en vax-
andi áhugi er fyrir eignum á Stokks-
eyri og Eyrarbakka.
Sölumennirnir segja greinilegt að
þorpin við ströndina eigi sess í hugum
margra þó svo að verslunar- og
bankaþjónusta hafi minnkað þar.
Góð viðbrögð við
atvinnuhúsnæði
„Það er nánast undantekningar-
laust fólk á höfuðborgarsvæðinu sem
kaupir eignir á Eyrarbakka og
Stokkseyri, það kýs greinilega friðinn
og rólegheitin á þessum stöðum og er
tilbúið að keyra til höfuðborgarsvæð-
isins í vinnu,“ sagði Sigurður Fannar
Guðmundsson, sölumaður hjá fast-
eignasölunni Árborgum á Selfossi.
Hann sagði greinilegt að fólk væri að
leita fyrir sér á markaðnum, það væri
meiri hreyfing á fólki en áður frá því
að fólk átti sama húsið alla ævi. Þá
væri og greinilegt að fólk leitaði inn á
svæðið til búsetu. Það sýndi áhugi
fólks utan svæðisins á íbúðarhúsnæði,
einkum á þéttbýlisstöðunum.
„Við höfum einnig verið að sinna at-
vinnulífinu með því að taka atvinnu-
húsnæði á skrá og það er ágæt hreyf-
ing í sölu á því sviði og góð stígandi í
atvinnulífinu. Komi eign á sölu eru
viðbrögðin góð og margir sýna þess-
um eignum áhuga sem okkur finnst
merki um að það eru hugmyndir í
gangi í atvinnulífinu um uppbygg-
ingu. Auðvitað má alltaf segja að fjöl-
breytileiki í atvinnulífinu megi vera
meiri en hann kemur með stækkandi
byggð,“ sagði Sigurður Fannar, sölu-
maður hjá Árborgum.
Kippur í sölu eigna í júlí
„Nú í júlí kom verulegur kippur í
sölu eigna eftir að það hefur verið
frekar rólegt framan af ári. Það selj-
ast eignir á öllu svæðinu, Selfossi,
Eyrarbakka, Stokkseyri og í Hvera-
gerði,“ sagði Þröstur Árnason, sölu-
maður hjá fasteignasölunni Bakka.
„Það er alltaf að koma hingað fólk
frá Reykjavík og maður heyrir alltaf
það sama; það vill komast úr stress-
inu í rólegra og öruggara umhverfi
þar sem stutt er í alla þjónustu. Mér
finnst þetta vera tveir hópar, annars
vegar barnafólk og svo eldra fólk. Ég
er bjartsýnn á uppbyggingu svæðis-
ins, fjölbreytileiki í þjónustu fer vax-
andi og auknum íbúafjölda er hér
fylgt eftir með skólabyggingum og
leikskólum. Þá er opinber þjónusta öll
til staðar og stutt í allt hérna. Hér
þarf til dæmis ekki að keyra börnin í
skóla og fjölskyldan þarf þess vegna
ekki að eiga nema einn bíl.
Það eru vaxandi umsvif hér á svæð-
inu. Með nýrri hótelbyggingu komu
til dæmis föst störf sem drógu að fólk
og það á eftir að bætast við í því efni.
Svo seljast hús á Eyrarbakka og
Stokkseyri mjög vel og hafa hækkað
aðeins í verði en eru samt mun ódýr-
ari en sambærilegar eignir á höfuð-
borgarsvæðinu. Hvað framhaldið
varðar þá er ég bjartsýnn, það er góð
spá frá Seðlabankanum um aðstæður,
vaxtalækkun, og maður gerir ráð fyr-
ir að afföll húsbréfa verði 3–5%,“
sagði Þröstur Árnason, sölumaður
hjá Fasteignasölunni Bakka.
Fólk kann að meta
minni fjarlægðir
„Það er talsverð hreyfing á öllu
Suðurlandi. Mesta hreyfingin er á
Selfossi en einnig talsverð á Eyrar-
bakka og Stokkseyri. Þá er ágæt
hreyfing á eignum í Hveragerði og í
Þorlákshöfn og verð þar fer hækk-
andi,“ sagði Steindór Guðmundsson,
sölumaður hjá fasteignasölu Lög-
manna Suðurlandi. „Það er mikið um
hrókeringar innan svæðisins en einn-
ig talsvert um að ungt fólk sem á ætt-
ir að rekja til svæðisins flytji hingað,
einnig á það við um eldra fólk. Mér
finnst eins og fólk af höfuðborgar-
svæðinu líti á vesturhluta Árnessýslu
og höfuðborgarsvæðið sem eitt svæði.
Fólk kann að meta að fjarlægðir hér
eru minni og auveldara að sækja alla
þjónustu. Svo er mikið um að fólk er
að leita sér að húsnæði og dvalarstað
nær sumarbústaðnum sem það á.
Það er greinilegt að fjarlægðin
hingað austur fyrir fjall er mun minni
í hugum fólks en var áður og það sér
það fyrir að geta, með búsetu hér,
verið í ákveðnum þjónustutengslum
við höfuðborgarsvæðið og fá í staðinn
rólegt umhverfi fyrir fjölskylduna
með góðri nærþjónustu. Svo er verðið
lægra hér þó það fari hækkandi.
Það er ívið meiri hreyfing á mark-
aðnum núna en var í fyrra. Eyrar-
bakki og Stokkseyri eiga vaxandi vin-
sældum að fagna þrátt fyrir
minnkandi verslunar- og bankaþjón-
ustu.
Svo er líka mikið spurt um eignir á
Flúðum og í Reykholti í Biskupstung-
um. Það eru margir að velta fyrir sér
möguleikanum á að vera með íbúðar-
hús og einhvern landskika, svona 5–6
hektara, til að hugsa um. Slíkt svæði
hefur nú verið skipulagt í Gljúfurholti
í Ölfusi,“ sagði Steindór Guðmunds-
son, sölumaður hjá fasteignasölu
Lögmanna Suðurlandi.
Góð hreyfing sögð vera á fasteignamarkaðnum á Suðurlandi, einkum á Árborgarsvæðinu
Þorpin við ströndina
njóta vaxandi vinsælda
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Frá Eyrarbakka. Hlýlegt umhverfi í þorpunum við ströndina, Eyrar-
bakka og Stokkseyri, laðar fólk í vaxandi mæli til búsetu þar.
Selfoss
MIKLAR byggingaframkvæmdir
hafa verið í bænum síðustu misserin.
Á þessu ári hefur um 60 lóðum verið
úthlutað fyrir einbýlis- og fjölbýlis-
hús. Vestast í bænum eru að byggjast
tveir botnlangar, annar við Kamba-
hraun og hinn við Borgarhraun. Við
Laufskóga er verið að þétta byggð og
þar eru og hafa verið að rísa fjögur ný
hús. Þessa dagana þýtur hvert húsið
upp af öðru í nýju hverfi rétt vestan
við Breiðumörk, aðalgötu bæjarins.
Er gaman að sjá hversu hratt nýju
húsin spretta upp úr jörðinni.
Að sögn Orra Hlöðverssonar bæj-
arstjóra er stærsta úthlutun þessa
árs við Kjarrheiði, sem er nýtt hverfi
og mun það rísa vestan Lyngheiðar.
Þar eru framkvæmdir við gatnagerð
þegar hafnar. Næsta ár verður út-
hlutað 40 lóðum við Valsheiði, sem
mun rísa sunnan við Kjarrheiðina.
Þar sem meðaltal íbúa á íbúð á Íslandi
er 3.3 má gera ráð fyrir að sú byggð
sem rís á næstu misserum, muni hýsa
400–500 manns.
Auðvitað er eitthvað um að fólk
flytjist milli húsa í bænum, en með
þessum byggingaframkvæmdum
skapast rými fyrir fleiri til að gerast
Hvergerðingar. Orri segir að þessar
framkvæmdir skapi vitanlega mikið
álag á bæinn, þar sem gera verði ráð
fyrir gatnaframkvæmdum og aukinni
þjónustu á öllum sviðum. Einnig má
gera ráð fyrir að skólinn þurfi að taka
við fleiri nemendum en sl. vetur var
unnið að stækkun hans. Gert ráð fyrir
nýjum leikskóla innan tíðar, en ekki
er búið að ákveða staðsetningu hans.
Bæjarstjórinn bætir því við að gaman
sé að sjá hversu mikil vakning er
meðal bæjarbúa um bætt umhverfi.
Margir séu að gera upp gömul hús og
fólk almennt sé orðið meðvitað um að
rækta garðinn sinn.
Í samtali við Kristin Kristjánsson
fasteignasala kom fram að seinni part
síðasta vetrar voru nánast engar
eignir á söluskrá, því að sl. tvö ár var
mikil sala á húsum í Hveragerði. Verð
hefur farið hækkandi, en er þó ekki
nema 70%–80% af húsverði á höfuð-
borgarsvæðinu. Á þessu ári hafa
margir Hvergerðingar farið í hús-
byggingar. Einnig hafa verktakar
verið að byggja og selja. Athyglisvert
er hversu vaxandi eftirspurn eftir
húsnæði er frá fólki á höfuðuborgar-
svæðinu, Mikið er byggt af rað- og
parhúsum og er byggingarefni
margskonar s.s. steinn, timbur, stál
og gler sem er nú meira áberandi en
áður. Þá eru nokkur kanadísk hús í
smíðum Mörg nýju húsanna eru dýr í
byggingu og er áætlaður byggingar-
kostnaður nokkurra húsa 30–40 millj-
ónir. Eignir í þessum verðflokki hafa
ekki sést hér áður og er greinilegt að
fólk hefur mikla trú á því að hér sé
góður bær í miklum vexti, sem á sér
bjarta framtíð.
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Kristinn Kristjánsson, fasteignasali hjá Gimli Hveragerði, við ný hús sem
eru að rísa, rétt við miðbæinn, en þar eru framkvæmdir í fullum gangi.
Miklar byggingafram-
kvæmdir í Hveragerði
Hveragerði
LAUGARDAGINN 17. ágúst var
seinni hluti Blómstrandi daga hér í
Hveragerði. Veðurguðirnir voru í
betra skapi núna en þegar fyrri há-
tíðin fór fram, því að veðrið lék við
bæjarbúa og gesti þeirra. Hátíðin
hófst kl. 12 með knattspyrnukapp-
leik á Grýluvelli, en síðan voru
uppákomur í miðbænum um miðjan
dag. Þar var m.a. boðið upp á tón-
leika, trúða sem spúðu eldi, sölu-
tjöld, grillveislu og fleira. Skát-
arnir voru með leiktæki á Fossflöt
og buðu einnig upp á kajakasigl-
ingar á Varmánni. Um kvöldið var
brekkusöngur í Lystigarðinum, þar
sem varðeldur var tendraður og
bræðurnir Örvar og Ævar Að-
alsteinssynir stjórnuðu fjöldasöng,
með miklum ágætum, þrátt fyrir
tæknilega örðugleika um tíma. Inn
í fjöldasönginn var skotið söng-
atriðum. Fyrst komu tvær sjö og
átta ára stúlkur, þær Árný Margrét
og Jamie og sungu eitt lag. Seinna
komu svo tvær fimm ára telpur,
þær Bryndís Rós og Elva Rún og
sungu Hveragerðislagið, sem heitir
Hveragerði blómstrandi bær. Þeg-
ar fjöldasöng lauk sá Hjálparsveit
skáta um flotta flugeldasýningu.
Flugeldasýningin var að venju
toppurinn á hátíðinni. Að því loknu
var boðið upp á ball á Hótel Örk,
þar sem hljómsveitin Pass skemmti
mönnum og einnig var tríóið Blátt
áfram á Café Róm. Góður dagur,
góð skemmtun, góður endir í sum-
arlok.
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Mikill fjöldi Hvergerðinga og gesta lagði leið sína að varðeldinum.
Blómstr-
andi dagar í
sumarlok
Hveragerði
NEMENDUR í Fjölbrautaskóla
Suðurlands á haustönninni sem er
að hefjast verða 812 í dagskóla og
hafa aldrei verið fleiri. Til viðbótar
eru nokkrir á biðlista. Á sama tíma í
fyrra voru nemendur 781 talsins.
Þetta er fimmta haustönnin í röð
sem nemendafjöldi er meiri í skól-
anum en árið áður. Á Litla-Hrauni
eru innritaðir 24 nemendur auk
nokkurra á Sogni. Ekki er gert ráð
fyrir starfsemi öldungadeildar á
þessari önn. Starfsmenn skólans eru
nú 104 en voru 91 á síðustu önn.
Fjölgun nemenda og starfsmanna
veldur því að erfitt reynist að finna
allri starfsemi skólans stað. Kennt
verður í húsnæði utan skólans auk
þess sem samkomusalur hans verð-
ur í fullri notkun undir kennslu og
þá í stærri hópum, 35–70 manna.
Skólinn er vel tölvuvæddur og
hefur verið útbúinn sérstakur far-
tölvuvagn sem kennarar geta bókað
til notkunar í einstökum kennslu-
stundum í hópvinnu nemenda.
Verulegt átak hefur verið gert í
skjávarpavæðingu og er slíkt tæki í
öllum kennslustofum.
Undanfarin ár hefur bygging
íþróttahúss við skólann verið í und-
irbúningi en í tengslum við þá bygg-
ingu er fyrirhugað að bæta við
nokkrum kennslustofum. Núverandi
skólahúsnæði, sem var hugsað fyrir
650–700 nemendur, er því orðið of
lítið fyrir hið viðamikla starf skól-
ans.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Nemendur Fjölbrautaskólans mættu í skólann á fimmtudagsmorgun.
Aðsóknarmet í Fjölbrauta-
skóla Suðurlands
Selfoss