Morgunblaðið - 24.08.2002, Qupperneq 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 21
50%afsláttur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
1
85
46
08
/2
00
2
HEILLANDI HEIM
UR
Reykjavík sími 580 0500 • Selfossi sími 480 0800
www.blomaval.is
Útsalan
heldur áfram!
Heimilisblómvöndur
499 kr.
af öllum kaktusum og þykkblöðungum
Mold 10l.
199 kr.
MEISTARINN.IS
ÍBÚÐALÁNASJÓÐI bárust rúm-
lega 20% fleiri umsóknir í júlí á þessu
ári en í sama mánuði í fyrra. Fjöldi
umsókna í júlí síðastliðnum var 954.
Umsóknir hafa ekki áður verið fleiri í
júlímánuði, en næst kemur júlímán-
uður á árinu 2000 er fjöldi umsókna
var 950. Tæplega 20% aukning varð í
fjölda samþykktra afgreiðslna milli
júlí í ár og í fyrra og aukningin í fjár-
hæð samþykktra skuldabréfaskipta
nam tæpum 22%. Frá þessu er greint
í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs
fyrir júlí 2002. Þar segir að aukning í
fjölda umsókna, afgreiðslna og fjár-
hæða komi nokkuð á óvart og sé
meiri en vonir hafi staðið til.
Sé litið til einstakra lánaflokka
sést að dregið hefur úr lánum til ný-
bygginga, til byggingaraðila og til
endurbóta á notuðu íbúðarhúsnæði.
Útlán til notaðs húsnæðis hafa hins
vegar aukist.
Íbúðalánasjóður gerir ráð fyrir því
í endurskoðaðri áætlun að útgáfa
húsbréfa verði um tveimur milljörð-
um króna meiri á þessu ári en fjárlög
segja til um. Hins vegar er gert ráð
fyrir að útgáfa húsnæðisbréfa verði
um 2,5 milljörðum króna lægri en
áætlað var.
Heildarvanskil viðskiptavina
Íbúðalánasjóðs um síðustu mánaða-
mót námu rúmlega 1,9 milljörðum
króna, eða um 0,52% af heildarút-
lánum. Þar af voru vanskil sem höfðu
staðið í þrjá mánuði eða lengur um
1,2 milljarðar.
Íbúðalánasjóður
Aukning um-
sókna kemur
á óvart
FLUGLEIÐAHÓTEL hafa verið
valin sem ráðstefnustaður fyrir
stóra alþjóðlega ráðstefnu á vegum
alþjóðlegra samtaka í ferðaþjónustu
sem kallast SITE-Society of Incen-
tive & Travel Executives, en að því
er segir í tilkynningu frá Flugleiða-
hótelum eru samtökin ein þau virt-
ustu sinnar tegundar í heiminum.
Meðlimir samtakanna sérhæfa sig í
skipulagningu á ráðstefnum og
hvataferðum stórra fyrirtækjahópa.
Ráðstefnan verður haldin í des-
ember árið 2003 og hana munu
sækja um 400 erlendir gestir, flestir
hverjir áhrifamiklir aðilar sem geta
haft mikil áhrif á til hvaða borga
hvataferðahópum er beint, að því er
segir í tilkynningu hótelanna.
Hvataferð kallast það þegar fyr-
irtæki býður starfsmönnum, um-
boðsmönnum eða öðrum hagsmuna-
aðilum fyrirtækis í ferð þar sem
fyrirtækið er oft á tíðum að verð-
launa fyrir vel unnin störf eða kynna
gestum sínum fyrirtækið, nýja vöru-
línu eða þjónustu.
Í tilkynningu Flugleiðahótelanna
kemur fram að samkepni milli fyr-
irtækja og borga um að halda ráð-
stefnuna sé jafnan mikil.
„Þau áhrif sem Flugleiðahótelin
eru fyrst og fremst að sækjast eftir
er að kynna fyrir þátttakendum ráð-
stefnunnar í Reykjavík borgina og
landið sem ákvörðunarstað fyrir
ráðstefnu- og fyrirtækjahópa. Ís-
land á mikla möguleika á þessu
sviði.“
Jafnframt segir að val samtak-
anna sé mikil viðurkenning fyrir
Hótel Esju og þær áherslubreyting-
ar sem Flugleiðahótelin hafa verið
að vinna að í tengslum við stækkun
hótelsins, en í erlendu markaðs-
starfi fyrirtækisins verður lögð stór-
aukin áhersla á ráðstefnu- og hvata-
ferðamarkaðinn.
Flugleiðahótel halda stóra
ráðstefnu um hvataferðir
Hótel Esja kemur til með að líta svona út þegar ráðstefnan verður haldin.
SAMTÖKIN Europe’s 500 hafa valið
Opin kerfi hf. í hóp 500 framsækn-
ustu fyrirtækja í Evrópu í annað sinn
á tveimur árum. Valið var úr fyrir-
tækjum í 15 Evrópusambandslönd-
um auk Noregs, Íslands og Liechten-
stein á grundvelli vaxtar,
veltuaukningar, fjölgunar starfa,
stærðar og fleira.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
þessi viðurkenning sé mjög jákvæð
fyrir stjórn og starfsmenn Opinna
kerfa og staðfesti að eftir árangri fyr-
irtækisins sé tekið á erlendum vett-
vangi. Þá segir að síðastliðna sex
mánuði hafi vöxtur félagsins nær tvö-
faldast miðað við sama tímabil í fyrra
og tæpur helmingur tekna þess komi
nú utan hefðbundins heimamarkaðar.
Opin kerfi meðal
500 framsækn-
ustu í Evrópu
♦ ♦ ♦