Morgunblaðið - 24.08.2002, Page 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 49
®
HANNES Hlífar Stefánsson sigr-
aði í þriðju skákinni í röð og er einn
efstur í landsliðsflokki á Skákþingi
Íslands. Helgi Áss Grétarsson fylgir
fast á eftir með 2½ vinning.
Sigurbjörn Björnss. - Bragi Þor-
finnss. ½-½
Þorsteinn Þorsteinss. - Hannes
Hlífar 0-1
Arnar Gunnarss. - Páll Þórarinss.
½-½
Stefán Kristjánss. - Jón V. Gunn-
arss. 0-1
Jón G. Viðarss. - Sævar Bjarnas.
0-1
Björn Þorfinnss. - Helgi Á. Grét-
arss. 0-1
Staðan eftir þrjár umferðir:
1. Hannes Hlífar Stefánsson 3 v.
2. Helgi Áss Grétarsson 2½ v.
3. Bragi Þorfinnsson 2 v.
4.-8. Jón Garðar Viðarsson, Sævar
Bjarnason, Björn Þorfinnsson, Sig-
urbjörn Björnsson, Stefán Kristjáns-
son 1½ v.
9.-10. Arnar Gunnarsson, Jón Vikt-
or Gunnarsson 1 v.
11.-12. Þorsteinn Þorsteinsson,
Páll Þórarinsson ½ v.
Teflt er daglega í hátíðarsal
Íþróttahúss Gróttu á Seltjarnarnesi
og eru áhorfendur velkomnir á
keppnisstað á meðan húsrúm leyfir.
Umferðir á virkum dögum hefjast
klukkan 17, en kl. 13 um helgar. Bein-
ar útsendingar verða frá öllum skák-
unum á ICC og á heimasíðu mótsins
www.chess.is/sthi2002.
Alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor
Gunnarsson byrjaði illa á mótinu, en
komst loks á blað með sigri í þriðju
umferð.
Hvítt: Stefán Kristjánsson
Svart: Jón Viktor Gunnarsson
Petrovsvörn
1.e4 e5 2.Rf3 Rf6 3.Rxe5 d6 4.Rf3
Rxe4 5.d4 d5 6.Bd3 Bd6 7.0–0 0–0
8.c4 c6 9.cxd5 cxd5 10.Rc3 Rxc3
11.bxc3 Bg4 12.h3 Bh5 13.Hb1 Rd7
14.Hb5 Rb6 15.c4 Bxf3 16.Dxf3 dxc4
17.Bc2 Dd7 18.a4 Hfe8 19.Bf5 Dc7
20.Be4 --
Önnur leið er 20.a5 Dc6 21.Dxc6
bxc6 22.Hb2 g6 23.axb6 gxf5 24.b7
Hab8 25.Bd2 He2 26.Hfb1 Bc7
27.Kf1 He6 28.Be3 Bb6 29.d5 cxd5
30.Bxb6 axb6 31.Hxb6 c3 32.H6b4
He7 33.Hc1, með nokkuð jöfnu tafli
20...a6 21.Hg5 Hxe4!
Svartur verður að gæta sín:
21...Rxa4?? 22.Hxg7+ Kxg7
23.Bh6+ Kxh6 (23. -- Kg8 24.Dg4+
Kh8 25.Dg7+ mát; 23...Kh8 24.Df6+
Kg8 25.Dg7+ mát) 24.Df6+ Kh5
25.g4+ mát, eða 21...g6 22.Bxb7 Ha7
23.Bc6 Hc8 24.d5, með betra tafli fyr-
ir hvít.
22.Dxe4 Rxa4 23.He1 g6!
Ekki gengur að leika 23...Hc8?,
vegna 24.Hxg7+! Kxg7 25.Dg4+
Kh8 26.Bg5! Bh2+ 27.Kh1 Dc6 28.d5,
og ef svartur ætlar að koma í veg fyr-
ir 24.Bf6+ mát, þá verður hann að
sleppa valdinu á hróknum á c8.
24.h4 Rc3 25.Df3 Ra2 26.Ba3 Rb4
27.h5 Rd3 28.hxg6 hxg6 29.He6!? --
Sjá stöðumynd eitt.
Stefán leikur nýjum leik, í stað
þess að fylgja skákinni Ponomarjov-
Safin, Jerevan 2001, sem tefldist á
eftirfarandi hátt: 29.Bxd6 Dxd6
30.He4 Hd8 31.Hg3 b5 32.Hh3 Kg7
33.De3 Df6 34.Dh6+ Kg8 35.Dh7+
Kf8 36.Dh8+ Dxh8 37.Hxh8+ Kg7
38.Hxd8 b4 39.d5 c3 40.Hc8 og svart-
ur gafst upp. Ef til vill hefur Stefán
ekki viljað glíma við þá leið, sem
mælt er með í skýringum við skákina:
30...Kg7! (í stað 30. -- Hd8) 31.Hg3
Hh8 og svartur virðist standa mun
betur.
Af framhaldi skákarinnar virðist
mega ráða, að hvítur verði að leita að
endurbótum fyrr í skákinni, því að
sókn hans stöðvast fljótlega, en eftir
það ræður hann ekkert við svörtu frí-
peðin á drottningarvæng.
29...Bh2+ 30.Kf1 Df4 31.De2 --
Hvíta staðan er ekki glæsileg, eftir
31.He7 Dxf3 32.gxf3 o.s.frv.
31...Kg7
Svartur virðist mega drepa hrók-
inn á g5, t.d. 31...Dxg5 32.He8+ Kh7
33.Hxa8 Db5! 34.g3 Db1+ 35.Kg2
Dg1+ 36.Kf3 Dh1+ 37.Ke3 Bg1 og
hvítur er illa beygður.
32.Hg4 Df5 33.He7 Bf4 34.g3 Bg5
35.Hee4 Bf6 36.Kg1 b5
37.Bd6 Hh8 38.De3 --
Sjá stöðumynd tvö.
Eða 38.Be7 Bxe7 39.Hxe7 Rxf2
40.Hh4 Hxh4 41.gxh4 Rd3 42.Dg2
Df4 43.He4 Dc1+ 44.Kh2 b4 45.Df3
c3 46.He7 (46.Dxd3 Dd2+ 47.De2
Dxe2+ 48.Hxe2 b3) 46. -- Df4+
47.Dxf4 Rxf4 48.Hc7 Re2 49.d5 b3
50.d6 b2 51.Hb7 c2 52.Hxb2 c1D
53.Hxe2 Dd1 54.Hf2 Dxd6+ og svart-
ur vinnur auðveldlega.
38...b4 39.d5
Eftir 39.Be5 b3 40.Bxf6+ Dxf6
41.He7 Rxf2 42.Hh4 Hxh4 43.gxh4
Rg4! 44.De2 Dxd4+ 45.Kg2 b2
46.Hb7 c3 47.h5 Re3+ 48.Kh3 Dg4+
49.Dxg4 Rxg4 50.Kxg4 c2 51.Hxb2
c1D verður fátt um varnir hjá hvíti.
39...b3 40.Db6 --
Eða 40.Ba3 Dxd5 41.f3 b2 42.Bxb2
Rxb2 og svartur á vinningsstöðu.
40...Df3 og hvítur gafst upp. Svart-
ur vinnur auðveldlega eftir 41.Hh4
Hxh4 42.Hxh4 Bxh4 43.gxh4 Dxd5
44.Dxa6 c3, t.d. 45.Bf8+ Kxf8
46.Dc8+ Kg7 47.Dxc3+ Kh7 48.h5
gxh5 49.Kh2 b2 50.Dc2 Df3 51.Db1
Dxf2+ 52.Kh3 Df3+ 53.Kh2 h4
54.Kg1 h3 55.Dc2 b1H+ 56.Dxb1
Dg2+ mát.
Sjötta mótið í Bikarsyrpu Halló!
Taflfélagið Hellir, Halló! og ICC
standa sameiginlega að 10 móta röð á
ICC-skákþjóninum sem kallast Bik-
arsyrpa Halló! Sjötta mótið fer fram
25. ágúst, en það síðasta verður hald-
ið 24. nóvember og verður það jafn-
framt Íslandsmótið í netskák. Vegleg
verðlaun eru í boði Halló! eða tvær
ADSL-tengingar í eitt ár auk frímán-
aða frá ICC.
Þeir sem hafa teflt í fimm fyrstu
mótunum þurfa ekki að skrá sig held-
ur er nægilegt að mæta fyrir 20:00 á
ICC. Aðrir þurfa að skrá sig á heima-
síðu Taflfélagsins Hellis, hellir.is.
Tefldar verða níu umferðir. Umhugs-
unartími er fjórar mínútur á skák
auk þess sem tvær sekúndur bætast
við eftir hvern leik.
Atkvöld hjá Helli á mánudag
Taflfélagið Hellir heldur atkvöld
mánudaginn 25. ágúst og hefst mótið
kl. 20:00. Fyrst verða tefldar 3 hrað-
skákir þar sem hvor keppandi hefur 5
mínútur til að ljúka skákinni og síðan
þrjár atskákir, með tuttugu mínútna
umhugsun. Sigurvegarinn fær verð-
laun, mat fyrir tvo frá Dominos Pizz-
um. Þá verður annar keppandi dreg-
inn út af handahófi, sem einnig fær
máltíð fyrir tvo hjá Dominos Pizzum.
Þar eiga allir jafna möguleika, án til-
lits til árangurs á mótinu.
Þátttökugjald er kr. 300 fyrir fé-
lagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og
yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300
fyrir 15 ára og yngri). Allir velkomn-
ir.
Íslandsmót öldunga
Annað Íslandsmót öldunga verður
haldið dagana 30. ágúst til 1. sept-
ember. Tefldar verða sjö umferðir og
byrjar sú fyrsta föstudaginn 30.
ágúst kl. 19. Umhugsunartími verður
ein klukkustund. Þátttökurétt eiga
allir 60 ára og eldri. Þátttökugjald er
kr. 1.500. Verðlaun verða bikarar,
annar til eignar en hinn er farand-
bikar gefinn af Guðmundi Arasyni.
Teflt verður í Garðabergi, sem er fé-
lagsmiðstöð eldri borgara í Garðabæ
(Garðatorgi við hliðina á heilsugæsl-
unni). Mótið er styrkt af Íslenskum
aðalverktökum.
Sigurvegari mótsins verður
fulltrúi Íslands á Evrópumóti í sama
aldursflokki sem haldið verður í Sa-
int-Vincent í Aosta-dal á Ítalíu 28.
september til 6. október. Fulltrúi Ís-
lands á mótinu þarf að vera fæddur
fyrir 1. janúar 1943.
Tekið er á móti skráningum í mótið
í síma 861 9656, eða með tölvupósti
(pall@vks.is). Hægt verður að fylgj-
ast með skráningu á mótið á heima-
síðu Taflfélags Garðabæjar,
www.tgchess.com.
Ókeypis barna- og unglinga-
æfingar hefjast á mánudag
Barna- og unglingaæfingar Tafl-
félagsins Hellis hefjast aftur mánu-
daginn 26. ágúst. Taflið byrjar kl.
17:15 og fyrirkomulagið verður það
sama og síðasta vetur. Auk þess sem
teflt verður á æfingunum verður get-
raunaskák a.m.k. einu sinni í mánuði.
Æfingarnar eru opnar öllum 15 ára
og yngri. Ekkert þátttökugjald.
Æfingarnar verða haldnar í félags-
heimili Hellis í Álfabakka 14a, Mjódd.
Umsjón með unglingaæfingunum
hefur Vigfús Ó. Vigfússon.
Fjótlega í haust stefnir félagið í
samstarfi við Skákskóla Íslands að
landskeppni við Norðmenn. Þátttak-
endur verða u.þ.b. 15 frá hvorri þjóð í
aldursflokknum 12 ára og yngri.
Keppt verður á Netinu. Val í liðið
mun m.a. byggja á þátttöku og ár-
angri á mánudagsæfingum Hellis.
Einnig er stefnt að því að hafa við-
burð sambærilegan við keppnisferðir
sem farnar hafa verið tvo síðustu vet-
ur. Í þau lið verður valið m.a. eftir ár-
angri og ástundun á æfingunum.
Stórmeistararnir efstir
í landsliðsflokki
SKÁK
Seltjarnarnes
SKÁKÞING ÍSLANDS 2002,
LANDSLIÐSFLOKKUR
20.–30. ágúst 2002
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Stöðumynd 2Stöðumynd 1
Veitir leiðsögn
um sýningu sína
SUNNUDAGINN 25. ágúst kl. 11.
f.h. verður guðsþjónusta í Skálholts-
kirkju – sr. Valdimar Hreiðarsson,
prestur á Suðureyri við Súganda-
fjörð, prédikar.
Eftir messu gefst gestum kostur á
hádegisverði í matsal Skálholtsskóla
og að honum loknum mun Súgfirðing-
urinn Benedikt Gunnarsson listmál-
ari veita leiðsögn um málverkasýn-
ingu sína í skólanum, en Benedikt er
nú staðarlistamaður Skálholts.
Myndverkin spegla öll vissa trúarlega
þætti þar sem megináhersla er lögð á
kristin lífsviðhorf.
Þar næst mun sr. Bernharður Guð-
mundsson, rektor Skálholtsskóla,
annast staðarkynningu í Skálholti, –
m.a. verða steindir gluggar kirkjunn-
ar skoðaðir svo og svæðið vestan við
kirkjuna þar sem unnið er að um-
fangsmiklum fornleifarannsóknum.
Þess skal getið að allir steindir
gluggar Suðureyrarkirkju eru hug-
verk Benedikts og með tilurð þeirra
hefur sr. Valdimar Hreiðarsson fylgst
frá upphafi.
Með komu sinni í Skálholt og
messu í Skálholtskirkju styrkir sr.
Valdimar hin trúar- og menningar-
legu tengsl milli Skálholtsstaðar og
landsbyggðarinnar.
Allir eru velkomnir. Súgfirðingar
fjölmenna væntanlega.
Rafheimar opnir
LAUGARDAGINN 24. ágúst verða
Rafheimar í Elliðaárdal opnir al-
menningi milli kl. 13 og 17. Rafstöðin
verður opin á sama tíma.
Rafheimar eru fræðslusetur
Orkuveitu Reykjavíkur í rafmagns-
fræði. Á ári hverju heimsækja
hundruð skólabarna fræðslusetrið til
að fræðast um rafmagn. Nú gefst öll-
um, bæði börnum og foreldrum,
tækifæri til að heimsækja Rafheima
og gera skemmtilegar tilraunir und-
ir leiðsögn þeirra Stefáns Pálssonar,
forstöðumanns minjasafns Orku-
veitu Reykjavíkur, og Ólafs Guð-
mundssonar kennara.
♦ ♦ ♦