Morgunblaðið - 24.08.2002, Síða 51
MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 51
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kór Ás-
kirkju syngur. Organisti Kári Þormar. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti Guðmundur Sigurðsson. Pálmi
Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjálm-
ar Jónsson prédikar. Sönghópur úr Dóm-
kórnum syngur. Organisti Marteinn H.
Friðriksson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Grensásirkju syngur. Organisti Árni Ar-
inbjarnarson. Sr. Ólafur Jóhannsson.
GRUND DVALAR- OG HJÚKRUNARHEIM-
ILI: Guðsþjónusta kl. 10.15. Organisti
Kjartan Ólafsson. Sr. Kjartan Örn Sig-
urbjörnsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Hóp-
ur úr Mótettukór syngur. Organisti Hörð-
ur Áskelsson. Sr. Sigurður Pálsson.
Ensk messa kl. 14. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari.
Organisti Hörður Áskelsson. Jónína
Kristinsdóttir syngur einsöng og leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Messukaffi.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Innritun
fermingarbarna. Organisti Douglas A.
Brotchie. Sr. Tómas Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa kl. 11. Prestur Jón
Helgi Þórarinsson. Félagar úr Kór Lang-
holtskirkju leiða söng. Organisti Jón
Stefánsson. Kaffisopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Kór
Laugarneskirkju syngur við undirleik
Gunnars Gunnarssonar. Prestur sr.
Bjarni Karlsson, meðhjálpari Þorkell Sig-
urbjörnsson. Messukaffi.
NESKIRKJA: Messa kl. 11.
Væntanleg fermingarbörn fá að ganga til
altaris í fyrsta sinn með foreldrum sín-
um en þau hafa verið á námskeiði í kirkj-
unni alla vikuna. Kór Neskirkju syngur
undir stjórn Reynis Jónassonar org-
anista. Séra Frank M. Halldórsson og
séra Örn Bárður Jónsson þjóna báðir við
messuna ásamt kennurum af námskeið-
inu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Helgistund kl.
11 í umsjón Jóhönnu Guðjónsdótir.
Kvartett Seltjarnarneskirkju syngur. Org-
anisti Viera Manasek.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjónusta
kl. 20.30. Jón Hagbarður Knútsson
þjónar fyrir altari og Bryndís Valbjarn-
ardóttir guðfræðingur prédikar.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Almenn guðs-
þjónusta kl. 11. Fyrsta guðsþjónustan
eftir sumarleyfi starfsfólks.
ÁRBÆJARKIRKJA: Útvarpsguðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Þór Hauksson.
Organisti Pavel Manásek. Kirkjukórinn
syngur. Daði Kolbeinsson spilar á óbó.
Eftir guðsþjónustuna verður súpa og
brauð í safnaðarheimilinu. Síðan verður
lagt af stað í safnaðarferðalag kirkj-
unnar til Sólheima. Kaffi og meðlæti á
staðnum kostar kr. 700. Allir eru vel-
komnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti: Sigrún Þórsteinsdóttir. Gísli
Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Kvöldmessa kl.
20.30. Prestur sr. Magnús B. Björns-
son. Organisti Sigrún Þórsteinsdóttir.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 20. Prestur sr. Guðmundur Karl
Ágústsson. Organisti Lenka Mátéová.
Kór Fella- og Hólakirkju syngur.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Vigfús Þór Árnason þjónar fyrir
altari. Sr. Sigurður Árni Þórðarson, verk-
efnastjóri á Biskupsstofu prédikar. Org-
anisti: Hörður Bragason. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Sýning á vatnslitamyndum
Bjargar Þorsteinsdóttur sem spunnin
eru úr trúartáknum, verður framlegnd til
31. ágúst vegna mikillar aðsóknar. Sýn-
ingin er opin alla virka daga frá kl. 9–17.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Félagar
úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsöng.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Íris
Kristjánsdóttir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks verður ekki messað í kirkj-
unni í ágústmánuði og er fólki bent á
guðsþjónustur í öðrum kirkjum í Kópa-
vogi. Kirkjan er opin á hefðbundnum
opnunartímum og getur fólk leitað eftir
upplýsingum eða aðstoð kirkjuvarðar
eða átt rólega stund í kirkjunni.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20. Sr.
Valgeir Ástráðsson þjónar. Organisti er
Gróa Hreinsdóttir. Altarisganga.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN:
Almenn samkoma á Bíldshöfða 10 kl.
20. Hljómsveit kirkjunnar leiðir lofgjörð.
Beðið fyrir þeim sem þess óska og inn-
sendum bænarefnum. Prestur safnaðar-
ins, Friðrik Schram, predikar um efnið:
„Hvert er mesta vandamál íslensku
þjóðarinnar og hvernig getum við, hvert
og eitt, bætt þar úr?“
Allir velkomnir. Nýtt efni á heimasíðu
kirkjunnar www.kristur.is.
Sjónvarpsþættirnir „Um trúna og til-
veruna“ eru endursýndir á Omega
sunnudaga kl. 13.30 og mánudaga kl.
20. Útsending nýrra þátta hefst í sept-
ember.
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Smiðjuvegi 5,
Kópavogi. Bænastund kl. 16.
Almenn samkoma kl. 16.30, Högni Vals-
son predikar, lofgjörð, fyrirbænir og
mjög skemmtilegt aldursskipt barna-
starf á sama tíma. Allir velkomnir. Athug-
ið breyttan samkomutíma.
Dagana 30. og 31. ágúst verður Åke
Carlsson gestur okkar. Báða dagana
verður samkoma kl. 20 og kennsla hinn
31. frá 10 til 16. Allir velkomnir.
BOÐUNARKIRKJAN: Guðsþjónusta kl.
11. Frú Lilja Guðsteinsdóttir mun leiða
guðsþjónustuna og munu Ágúst Ólafur
og Ragnheiður Stephensen koma henni
til aðstoðar með Ritningarlestur en pre-
dikun mun flytja dr. Steinþór Þórðarson.
Barna- & unglingastarf hefst í deildum
um leið og predikunin byrjar. Biblíu-
fræðsla í lok guðsþjónustunnar. Veit-
ingar í boði að lokinni guðsþjónustu.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 19.30 bæna-
stund, kl. 20 hjálpræðissamkoma í um-
sjón Elsabetar Daníelsdóttur.
KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma
kl. 14. Sigrún Einarsdóttir talar. Bæna-
stund fyrir samkomu kl. 13.30. Lofgjörð
og fyrirbænir. Barnagæsla fyrir 1–7 ára
börn. Þriðjud.: Bænastund kl. 20.30.
Miðvikud.: Samverustund unga fólksins
kl. 20.30. Mikil lofgjörð og Orð Guðs
rætt. Allir velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma
klukkan 17. Yfirskrift: „Erfið ákvörðun.“
Halldór Elías Guðmundsson byrjar sam-
komuna með nokkrum orðum og bæn.
Ragnar Gunnarsson talar. Kaffi á könn-
unni eftir samkomu. Allir velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti,
dómkirkja og basilíka:
Sunnudaga: Hámessa kl. 10.30. Messa
á ensku kl. 18.
Alla virka daga: Messa kl. 18.
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11.
Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30.
Virka daga: Messa kl. 18.30
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16. Miðvikudaga kl. 20.
Hafnarfjörður – Jósefskirkja:
Sunnudaga: Messa kl. 10.30.
Frá júlí til september fellur messan á
miðvikudögum kl. 18.30 niður.
Karmelklaustur
Sunnudaga: Messa kl. 8.30.
Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík - Barbörukapella: Skólavegi
38: Sunnudaga: Messa kl. 14.
Fimmtudaga: Skriftir kl. 19.30. Bæna-
stund kl. 20.
Stykkishólmur, Austurgötu 7:
Alla virka daga: Messa kl. 18.30
Sunnudaga: Messa kl. 10.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturs-
kirkja, Hrafnagilsstræti 2:
Laugardaga: Messa kl. 18. Sunnudaga:
Messa kl. 11.
REYNIVALLAPRESTAKALL:
Brautarholtskirkja á Kjalarnesi: Guðs-
þjónusta kl. 11 f.h. Gunnar Kristjánsson
sóknarprestur.
Reynivallakirkja í Kjós:
Guðsþjónusta kl. 14.
Gunnar Kristjánsson sóknarprestur.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti. Hjörtur Howser.
Prestur: Sr. Gunnþór Þ. Ingason.
GARÐAPRESTAKALL:
Vídalínskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Ath. breyttan tíma. Kirkjukórinn leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Organisti Jó-
hann Baldvinsson. Sr. Friðrik J. Hjartar
þjónar. Allir velkomnir!
Prestarnir.
Bessastaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 17.
Ath. breyttan tíma. Álftaneskórinn leiðir
almennan safnaðarsöng. Organisti
Hrönn Helgadóttir. Sr. Friðrik J. Hjartar
þjónar. Allir velkomnir!
Prestarnir.
GARÐAKIRKJA: Síðasta kvöldguðsþjón-
usta sumarsins kl. 20.30. Athugið
breyttan tíma! Kirkjukórinn leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Organisti Jó-
hann Baldvinsson. Sr. Friðrik J. Hjartar
og Nanna Guðrún djákni þjóna. Rúta fer
frá Vídalínskirkju kl. 20 og frá Hleinum
kl. 20.10. Nú er síðasta tækifærið til að
njóta kyrrðar sumarkvöldsins í guðsþjón-
ustu í Garðakirkju. Allir velkomnir!
GRINDAVÍKURKIRKJA: Kvöldguðsþjón-
usta kl. 20.30. Prestur sr. Jóna Kristín
Þorvaldsdóttir. Organisti Örn Falkner.
Kór Grindavíkurkirkju leiðir safn-
aðarsöng. Sóknarnefnd.
EYRARBAKKAKIRKJA:
Messa kl. 14.
Sóknarprestur.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11, prestur sr. Kristín
Tómasdóttir. Organisti Steinar Guð-
mundsson sem kveður söfnuðinn.
Kór kirkjunnar leiðir söng.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta í
kirkjunni kl. 11. Börn borin til skírnar.
Ræðuefni: Er viðskiptasiðferði miskunn-
arlaust? Prestur: Ólafur Oddur Jónsson.
Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Org-
anisti og söngstjóri: Hákon Leifsson.
Meðhjálpari: Hrafnhildur Atladóttir.
Kirkjukaffi og umræður eftir messu.
Sjá Vefrit Keflavíkurkirkju: keflavik-
urkirkja.is
KIRKJUBÆJARKLAUSTURSPRESTA-
KALL: Langholtskirkja í Meðallandi:
Guðsþjónusta kl. 14. Boðið verður upp á
akstur frá Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Klausturhólum kl. 13.
Kirkjukaffi verður í boði sóknarnefndar
að guðsþjónustu lokinni. Samkór
(fyrrum) Ásaprestakalls leiðir safn-
aðarsöng. Organisti: Kristófer
Sigurðsson. Prestur: sr. Baldur Gautur
Baldursson
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. stud.
theol. Guðbjörg Arnardóttir predikar. Sr
Gunnar Björnsson þjónar fyrir altari. Á
eftir verður borinn fram léttur hádeg-
isverður í safnaðarheimilinu. Tíðasöngur
með fyrirbæn í kirkjunni kl. 10 þriðju-
daga til föstudaga. Morgunkaffi á eftir.
Samvera foreldra miðvikudag kl. 11.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa kl. 11.
Sóknarprestur.
TORFASTAÐAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 14.
Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
20.30. Dvalarheimilið Höfði: Guðsþjón-
usta kl. 12.45. Sóknarprestur.
BORGARPRESTAKALL:
Borgarneskirkja Messa kl. 14.
Akrakirkja Messa kl. 16.
Sóknarprestur.
AKUREYRARKIRKJA: Kvöldmessa kl.
20.30. Sr. Svavar A. Jónsson. Günther
Saalfrank ritstjóri prédikar. Félagar úr
Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti: Ey-
þór Ingi Jónsson.
GLERÁRKIRKJA AKUREYRI: Kvöld-
guðþjónusta kl. 21.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Kl.
19.30 bæn, kl. 20 almenn samkoma,
brigader, Ingibjörg Jónsdóttir (Imma) tal-
ar. Allir velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akureyri: Sam-
koma kl. 20 þar mun Snorri Óskarsson
predika. Lofgjörð og fyrirbænaþjónusta.
Allir velkomnir.
KIRKJUBÆJARKIRKJA Í HRÓARS-
TUNGU
Messa kl. 14. Allir velkomnir Sókn-
arprestur. Kaffihlaðborð kvenfélagsins í
Tungubúð eftir messu.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Kvöldmessa
verður fyrir allt prestakallið í sunnudag-
inn 25. ágúst kl. 21.
Messukaffi á prestssetrinu á eftir.
Allir velkomnir.
Sóknarprestur.
Guðspjall dagsins: Mis-
kunnsami Samverjinn.
(Lúk. 10.)
Morgunblaðið/Jim Smart
Skálholtskirkja
HELGIHALD þarfnast ekki hús-
næðis heldur lifandi fólks. Kirkja
Jesú Krists er ekki steypa, heldur
lifandi steinar, manneskjur af holdi
og blóði.
Þess vegna er hægt að fara út úr
kirkjubyggingum með helgihald og
fagnaðarerindið og mæta fólki í
dagsins önn. Í tilefni af því bjóðum
við til messu í Kolaportinu sunnu-
daginn 25. ágúst kl. 14.
Kjartan Jónsson, framkvæmda-
stjóri KFUM&KFUK, predikar og
þjónar ásamt Jónu Hrönn Bolladótt-
ur miðborgarpresti og Ragnheiði
Sverrisdóttur djákna.
Þorvaldur Halldórsson leiðir lof-
gjörðina. Áður en Kolaportsmessan
hefst kl. 13.40 mun Þorvaldur Hall-
dórsson flytja þekktar dægurperlur.
Þá er hægt að leggja inn fyrirbæn-
arefni til þeirra sem þjóna í mess-
unni.
Í messunni verður sumarleg söng-
stund sem Þorvaldur stjórnar. Mess-
an fer fram í kaffistofunni hennar
Jónu í Kolaportinu sem ber heitið
Kaffi port, þar er hægt að kaupa sér
kaffi og dýrindis meðlæti og eiga
gott samfélag við Guð og menn.
Það eru allir velkomnir.
Miðborgarstarf KFUM og K.
Fyrsta altarisgangan
VÆNTANLEG fermingarbörn í
Neskirkju sem verið hafa á nám-
skeiði alla vikuna fá að ganga til alt-
aris í fyrsta sinn í fylgd foreldra
sinna í hefðbundinni messu safn-
aðarins nk. sunnudag, 25. ágúst kl.
11. Altarisgangan er mikilvægur
þáttur í trúarlífi kirkjunnar. Kristur
stofnsetti heilaga kvöldmáltíð nótt-
ina sem hann svikinn var og neytti
hennar með lærisveinum sínum. Í
hinum helguðu efnum sem útdeilt er
af borði Drottins í kirkjunni birtist
Kristur sjálfur, líkami hans og blóð
sem felur í sér líf hans og hugsjónir,
elsku og umhyggju, dauða og upp-
risu. Hann kemur sjálfur til okkar
með eilífðina að gjöf. Með því að
ganga til altaris erum við að næra
eilífðina í brjósti okkar, eilífðina
sem við vorum vígð til í heilagri
skírn og styrkja trú okkar á hið
góða, fagra og fullkomna. Alt-
arisgangan er um leið tækifæri til
að biðjast fyrirgefningar og þiggja
miskunn Gus og náð. Marteinn Lúth-
er lagði áherslu á að okkur bæri að
iðrast daglega og snúa okkur til
Guðs. Altarisgangan er staður fyr-
irgefningar og stefnumót við kær-
leiksríkan Guð. Kór Neskirkju syng-
ur við messuna undir stjórn Reynis
Jónassonar organista. Séra Frank
M. Halldórsson prédikar og þjónar
fyrir altari fyrir prédikun en sér
Örn Bárður Jónsson eftir prédikun.
Starfsfólk af fermingarnámskeiðinu
les ritningarlestra og útdeilir sakra-
mentinu með prestunum.
Fermingarnámskeið
Háteigskirkju
Á MORGUN, sunnudag, er sérstök
skráningarmessa fermingarbarna í
Háteigskirkju kl. 11. Messan, sem er
sérstaklega tileinkuð verðandi
fermingarbörnum og foreldrum
þeirra markar upphafið af ferming-
arnámskeiði Háteigskirkju en
kennsla hefst miðvikudaginn 28.
ágúst. Nánari upplýsingar um til-
högun fermingarnámskeiðs Há-
teigskirkju er að finna á heimasíðu
kirkjunnar hateigskirkja.is. Vetr-
arstarf að hefjast í Fríkirkjunni í
Reykjavík Almenn guðsþjónusta kl.
11. Fyrsta guðsþjónustan eftir sum-
arleyfi starfsfólks.
Tónlist í umsjón Önnu Sigríðar
Helgadóttur og Carls Möller. Tón-
leikar í kirkjunni kl. 20.30, flutt
verða verk eftir Handel, Bach o.fl.
Flytjendur eru: Rögnvaldur Val-
bergsson orgel, Anna Kjartansdóttir
píanó, Anna Sigríður Helgadóttir
söngkona.
Sögustund fyrir börnin. Anda-
brauðið verður í lok guðsþjónustu.
Barnastarf safnaðarins hefst síðan
formlega og af fullum krafti sunnu-
daginn 15. september. Haustferð
safnaðarins verður farinn laug-
ardaginn 7. september. Farinn verð-
ur dagsferð um Skorradal, í Reyk-
holt og á Hvanneyri. Nánar auglýst
síðar. Allir velkomnir.
Kolaportsmessa
Kirkjustarf
Hallgrímskirkja: Hádegistónleikar kl.
12:00. Christopher Herrick frá Englandi
leikur á orgelið.
Menningarnótt í Hallgrímskirkju með fjöl-
breyttri dagskrá frá kl. 17:00 til 22:30.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9, Kópa-
vogi. Samkoma í dag kl. 11-12.30. Lof-
gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu-
fræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir,
spurt og svarað. Á laugardögum starfa
barna- og unglingadeildir. Létt hressing
eftir samkomuna. Allir hjartanlega vel-
komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl.
10, 13 og 22 á FM 105,5.
Vegurinn. Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Bænastund kl. 16:00
Almenn samkoma kl. 16:30, Högni Vals-
son predikar, lofgjörð, fyrirbænir og
mjög skemmtilegt aldursskipt barnastarf
á sama tíma. Allir hjartanlega
velkomnir. Athugið breyttan samkomu-
tíma.
Dagana 30. og 31. ágúst verður Åke Carls-
son gestur okkar. Báða dagana verður
samkoma kl. 20:00 og kennsla þann 31.
frá 10 til 16. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjunni á Akureyri
Laugardaginn 24. ágúst verður bæna-
stund.
Safnaðarstarf