Morgunblaðið - 24.08.2002, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 57
Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit 415
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 422 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10. Vit 426
Sýnd kl. 2 og 3.45. Ísl tal. Vit nr. 410.
Sýnd kl. 2.
Ísl tal. Vit nr. 410.
SK Radíó X
DV
MBL
SK Radíó X
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 422
Sýnd kl. 8 og 10. Vit 420
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi. 12. Vit 420
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
„Enginn ætti að missa af þessari,“
Kvikmyndir.is
„Enginn ætti að missa af þessari,“
Kvikmyndir.is
Sýnd í lúxussal kl. 4, 6, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 423
Sýnd kl. 8 og 10.10. Bi. 14. Vit 417
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
SG. DV
SV Mbl
SK Radíó X
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
MBL
Rómantísk gamanmynd úr raunveruleikanum sem fjallar um ís-
lenskan mann, Jón Gnarr, sem verður ástfangin af Kíverskri stúlku.
Frá sömu aðilum og gerðu Íslenska drauminn.
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal. Vit 418
FRUMSÝNING
FRUMSÝNING
Aðal skvísan í skólan-
um er komin
með samkeppni sem
hún ræður ekki við!
PiperPerabo(CoyoteUgly) fer á kostum í þessari
stórskemmtilegu gamanmynd.
Sýnd kl 2, 4 og 6. Vit 398
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP
ÓHT Rás2
ÓHT Rás2
Sýnd kl. 2 og 4.
með íslensku tali.
Sýnd kl. 2 og 4.
Ísl tal. Vit nr. 410.
Sýnd kl. 4 og 6.
Vit 415
Sýnd kl. 6, 8 og 10.30. Vit 422
Sýnd kl. 2. Ísl. tal. Vit 418
BRUNA
ÚTSALA
Skeifunni 8
bera hana saman við neitt annað
sem við höfðum gert,“ svarar
Berryman. „Undir slíkum kring-
umstæðum eiga menn það til, vegna
tilhneigingar sinnar að þurfa að
finna samsvörun, að bera tónlistina
saman við tónlist annarra og
Parachutes var því borin saman við
Radiohead og Travis. Nýja platan
verður hinsvegar miklu fremur
borin saman við þá fyrri, sem að
mínu viti er mun hollara. Nú þekkir
fólk okkur, hefur ákveðnar vænt-
ingar og gerir vissar kröfur. En ég
er ekki frá því að platan eigi samt
eftir að koma sumum á óvart.
En upptökuferlið og gerð platna
var ekkert svo ólík. Viðhorf okkar
til tónlistar hefur t.a.m. ekkert
breyst þótt við séum orðnir þekktir
í dag.“
Heilli plötu fargað
– En þið hljótið að hafa fundið
fyrir meiri þrýstingi núna?
„Nei, satt að segja höfum við
aldrei fundið fyrir neinum ut-
anaðkomandi þrýstingi. Við höfum
ætíð notið fulls trausts útgáfunnar
okkar og höfðum algjörlega frjáls-
ar hendur um hvaða leiðir við fær-
um eftir Parachutes. Eini þrýsting-
urinn á sér stað innan bandsins. Við
gerum miklar kröfur hver til ann-
ars, erum hreinskilnir og hikum
ekki við að gagnrýna þann sem
ekki stendur sig. Martin fær t.d.
aldeilis að heyra það ef hann ætlar
að reyna að koma einhverju lélegu
lagi á plöturnar og þá aðallega frá
Will, sem hefur mjög skýran og út-
hugsaðan smekk. Hann er smekk-
löggan.“
– Eruð þið meðvitaðir um vænt-
ingarnar sem gerðar eru til ykkar?
„Óttinn við að fólk kunni ekki að
meta það sem maður gerir er vissu-
lega alltaf fyrir hendi,“ viðurkennir
Berryman. „Á hinn bóginn er ég
nokkuð öruggur með mig og viss
um það að platan sé vel heppnuð og
muni uppfylla væntingar manna.
Ég hlakka til að sjá viðbrögð fólks
við henni.“
– Þannig að þið funduð fyrir
þessum ótta að þurfa að fylgja eftir
farsælli fyrstu plötu?
„Við settum okkur markmið í
upphafi, að gefa ekki neitt út fyrr
en við værum allir fyllilega sáttir
og vissir um að við værum að gera
betur en síðast. Við tókum það
markmið mjög alvarlega, svo alvar-
lega að í desember létum við heila
plötu róa, voru ósáttir við hana og
byrjuðum upp á nýtt og lögðum enn
meira á okkur.“
– Hvað var að plötunni?
„Sum lögin voru einfaldlega ekki
nógu góð og útsetningar á öðrum,
þeim sem rötuðu á endanlegu út-
gáfuna, voru okkur alls ekki að
skapi.“
– Ég las að þið hefðuð þá drifið
ykkur norður til Liverpool, lokað
ykkur inni og þjappað ykkur betur
saman.
„Já, Ken Nelson, sem tók plötuna
upp með okkur, er frá Liverpool og
hann lokkaði okkur þangað. Þar
var hann nær fjölskyldu sinni og við
höfðum betri aðgang að okkar nán-
ustu.“
– Það hefur hjálpað...
„Það var nauðsynlegt að skipta
um umhverfi, við vorum greinilega
orðnir gegnsýrðir af Lund-
únageðveikinni. Það blés allavega
nýju lífi í samstarfið að breyta til.“
– Nýja platan er mjög eðlileg og
áreynslulaus framþróun frá þeirri
síðustu, var það vísvitandi?
„Við vildum gera kröftugri og
hrárri plötu, halda sömu tilfinn-
ingasemi en gæða hana enn meiri
sál, meiri vigt. Þær hljóma ólíkt en
um leið er það rétt hjá þér að
framþróunin er eðlileg.“
– Þið höfðuð ekki áhyggjur af því
að verða gagnrýndir fyrir að gera
of líka hluti og síðast?
„Kannski á ákveðnum tíma-
punkti en það hefur aldrei valdið
okkur alvarlegum áhyggjum.“
– Það má greina mun meira
sjálfstraust í öllum aðgerðum, laga-
smíðum, útsetningum, söng Martins
og spilamennsku ykkar..
„Já, sjálfstraust er orð sem við
höfum heyrt oft þegar menn lýsa
plötunni og réttilega því það var
vissulega mun meira. Titillinn gef-
ur líka til kynna líðan sveitarinnar,
ákafann og viljann til þess að
hamra járnið á meðan það er heitt.“
Málglaði Martin
– Sjálfstraustið – þetta jafnvægi
sem greina má á milli kraftsins og
yfirvegunar – það virðist gefa til
kynna að þótt líf ykkar hafi um-
turnast þá hafi persónur ykkar vart
haggast.
„Við erum alveg jafneinbeittir í
að ná markmiðum okkar og þegar
við hófum samstarfið, að búa til og
gefa út góða tónlist og hafa gaman
af því að spila hana. Þannig hefur
lítið breyst, en það er ekki hægt að
horfa framhjá þeirri staðreynd að
lífið hefur tekið aðra stefnu en
maður hefði haldið og það hefur ef-
laust breytt okkur eitthvað, von-
andi ekki til hins verra þó.“
– Nú þegar sveitin er orðin svo
ráðsett, eruð þið enn sömu fé-
lagarnir og þið voruð áður en hún
sló í gegn?
„Við komumst ekki hjá því,“ er
Berryman fljótur að svara. „Við
eyðum öllum stundum saman!“
(Hlær.) „Ef við erum ekki að spila á
tónleikum þá erum við að æfa eða í
hljóðveri, svo einfalt er það. En við
horfum líka saman á boltann.“
– Hvers vegna hafið þið aldrei
leyft neinum að nota lög ykkar í
auglýsingar?
„Okkur myndi aldrei detta í hug
að lána lög okkar í McDonalds eða
Pepsi auglýsingu eða eitthvað því
líkt. Þótt Britney geri það þá eru
flestir tónlistarmenn því andvígir.
Við höfum engan áhuga á því að
stórfyrirtæki maki krókinn með því
að nota okkar lög. Svo er þetta
spurning um samhengi. Lögin hafa
ekkert með einhverjar vörur að
gera og við viljum ekki að neinn
haldi það.“
– Að lokum. Til að fá það á hreint
í eitt skipti fyrir öll – er orðróm-
urinn réttur um að Martin hafi sagt
að hugsanlega séuð þið búnir að
gera ykkar síðustu plötu?
„Æææ, Chris missti út úr sér í
einhverju viðtali að það yrði nær
vonlaust að toppa plötuna. En tæk-
ist það ekki væri alveg eins gott að
hætta. Hann verður að fara að
passa sig, drengurinn, á að missa
ekki svona hluti út úr sér við blaða-
menn!“
Ljósmynd/Ellis Parinder
Champion & Berryman.
skarpi@mbl.is