Morgunblaðið - 05.09.2002, Síða 27

Morgunblaðið - 05.09.2002, Síða 27
MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2002 27 ÞAÐ ER ómetanleg reynslafyrir kennara að uppgötv-asnjallar aðferðir viðkennslu, og það er nem- endum dýrmætt að kennarinn hans tileinki sér nýja kennsluhætti. Í ágúst var haldið þriggja daga nám- skeið á vegum Íslensku menntasam- takanna í Áslandsskóla. Námskeið þetta var viðamikið og sóttu það kennarar og annað áhugafólk um nám og uppeldi. David G. Lazear, sem er vinsæll fyrirlesari og tals- maður fjölgreindarkenninga How- ard Gardners, var aðalfyrirlesari á námskeiðinu. Hann hefur stjórnað þróunarstofnunum, annast þjálfun kennara í um fimmtán löndum, og samið sjö bækur sem fjalla um notk- un fjölgreindarkenninga í skóla- starfi. Í einum fyrirlestranna sagði hann umhugsunarverða dæmisögu af dýrum. Dæmisaga um skóla Eitt sinn fyrir langa löngu ákváðu nokkur dýr að taka sig saman og drýja einhverja hetjudáð til þess að mæta áskorun nútímans. Þau voru sammála um að farsælasta leiðin væri að stofna skóla. Dýrin tóku upp virka námskrá sem samanstóð af hlaupum, flugi, sundi og klifri. Námskráin tók yfir allar athafnir dýranna og margskon- ar líkamlega færni þeirra. Til þess að auðvelda umsjón með nám- skránni og gæta fyllsta réttlætis, þurftu öll dýrin að leggja stund á allar námsgreinarnar og tóku ávallt samræmt próf í greinunum. Öndin var frábær í sundi, meira að segja betri en sjálfur kennarinn, en hún náði naumlega fullnægjandi einkunn í flugi og var afar lélegur hlaupari. Þar sem hún hljóp of hægt var hún látin sitja eftir í skólanum, sleppa sundi og æfa hlaup í staðinn. Þessu var haldið til streitu þar til sundfitjaðir fætur hennar voru orðnir svo sárir að hún átti í erf- iðleikum með að synda og varð því aðeins meðalnemandi í sundi í lok annar. En meðaltal var viðunandi í skólanum svo engin kippti sér upp við það nema öndin. Kanínan var í byrjun skólagöng- unnar best í hlaupum, en fékk fljót- lega taugaáfall sökum mikils álags við að bæta sig í sundi. Kanínur og sund eiga illa saman. Íkorninn var frábær í klifri þar til hann smám saman missti sjálfs- traustið vegna flugtímanna. Kenn- arinn vildi nefnilega að hann hæfi sig á loft frá jörðu í stað þess að stökkva af trjákrónunum og niður til jarðar. Hann fékk líka vöðvakrampa af of mikilli áreynslu. Í einkunn fékk hann síðan C í klifri og D í hlaupum. Örninn var vandræðafugl. Reynt var að aga hann en svo fór að lokum að hann var agaður til óbóta. Í klif- urtímum var hann fyrstur allra að komast efst upp í tréð, en þrjósk- aðist við að nota sína eigin aðferð til að komast þangað. Hann neitaði al- gjörlega að nota þá aðferð sem ætl- ast var til af skólanum og lenti úti í kuldanum. Í lok skólaársins var það svo kam- elljón sem synti framúrskarandi vel og gat líka hlaupið, klifrað og flogið dálítið, sem fékk hæstu meðalein- kunnina og dúxaði þar með í skól- anum. Sléttuúlfarnir neituðu að ganga í skólann og börðust gegn skattaálög- um af þeirri ástæðu að stjórnin vildi ekki bæta greftri og grenjagerð við námskrána en það fannst þeim skipta öllu máli. Þeir komu börnum sínum til náms hjá greifingja og stofnuðu síðar farsælan skóla í fé- lagi við múrmeldýr og jarðíkorna. Uppruni kenningarinnar Howard Gardner, upphafsmaður fjölgreindarkenningarinnar, telur það afar mikilvægt að við viður- kennum og leggjum rækt við allar þær greindir sem í manninum búa og samsetningu þeirra. Hann telur að þannig munum við eiga meiri möguleika á að takast á við mörg þeirra vandamála sem við stöndum andspænis nú á tímum. Hann ve- fengir stöðluð greindarpróf og telur vestræna menningu hafa skilgreint greind of þröngt. Gardner setur fram hugmyndir sínar um að til séu a.m.k. átta greindir og þar með víkkar hann sýnina á mannlega möguleika. Gardner telur að greind snúist um hæfileika til að leysa þrautir eða vandamál og láta gott af sér leiða í samskiptum og samhengi við um- hverfið. Eins og flestir hafa reynslu af hefur námskrárgerð skóla að mestu tekið mið af leikni nemenda í málgreind og stærðfræðigreind. Nú hillir ef til vill undir einhverj- ar breytingar eftir því sem boðskap- urinn breiðist hraðar út og fleiri og fleiri viðurkenna að það skipti líka máli að vera t.d. góð manneskja og geta átt jákvæð samskipti við aðra. Að eftirsóknarvert sé að vera bæði góður og fróður nemandi. Nú er svo komið að skólar eru almennt farnir að gera sér grein fyrir mikilvægi þess að veita nemendum þá þjálfun sem hentar hverjum og einum best því nemendur eru afar mismunandi og læra þar af leiðandi best á mis- munandi hátt. Greindirnar átta Málgreind er sú greind sem vafa- laust hefur mest vægi í skólum. Hún er reglulega mæld með t.d. sam- ræmdum prófum frá því nemendur ná 9 ára aldri. Málgreindin tekur til þess að geta tjáð sig með orðum bæði munnlega og skriflega. Skap- andi skrif, formleg ræðuhöld, munn- leg frásögn, ljóðagerð og orðaforði, rökræður, ritgerðir flokkast undir málgreindarþáttinn. Skólanám- skrárnar leggja ávallt ríka áherslu á þjálfun þessarar greindar. Þeir sem standa sterkir í málgreindinni gætu t.d. verið rithöfundar, stjórnmála- menn, málfræðingar, blaðamenn og skáld. Rök- og stærðfræðigreind vegur þungt í skólanámskránni. Hæfileik- inn til þess að nota tölur á árangurs- ríkan hátt og ná að skapa þýðing- armikið táknkerfi sem yfirlit yfir mismunandi ferli eða þekkingar- bálka. Þessi greind felur í sér næmi fyrir röklegum mynstrum, tengsl- um, staðhæfingum, ályktun, flokkun og útreikningum. Stærðfræðingar, viðskiptafræðingar, endurskoðend- ur, rökfræðingar, tölvusérfræðingar og vísindamenn standa hér sterkir að vígi. Rýmisgreind felur í sér hæfileik- ann til að skynja nákvæmlega hið sjónræna og rúmfræðilega um- hverfi. Hæfnin til að sjá fyrir sér hluti og tjá á myndrænan hátt. Þessi greind getur til um hæfni til að sjá hluti fyrir sér, tjá hugmyndir á myndrænan hátt, og geta áttað sig á rúmfræðilegum kerfum. Í þessum flokki má búast við að finna leið- sögumenn, arkitekta, listamenn og uppfinningamenn. Tónlistargreind er hæfileikinn til að skynja og meta eða skapa tónlist. Þessi greind felur í sér næmni fyrir takti, tónhæð og laglínu. Einstak- lingar sem búa yfir tónlistargreind hafa innsæi og skilning á tónlist og geta oft bæði spilað eftir nótum og/ eða eftir eyranu. Líkams- og hreyfigreind getur til um þá sem búa yfir færni til að nota allan líkamann til að tjá hugmyndir og tilfinningar. Sérstök leikni í sam- hæfingu, jafnvægi, styrk, lipurð, næmt hreyfi- og stöðuskyn, snerti- viðbrögð og næmar fínhreyfingar, einkennir þessa einstaklinga. Dæmi um þá sem búa yfir greind af þessu tagi eru leikarar, látbragðsleikarar, íþróttafólk, handverksmenn, vél- virkjar og þúsundþjalasmiðirnir góðkunnu. Samskiptagreind má segja að sé hæfileikinn til að skilja tilfinningar annarra og skilja og greina skap- gerð fólks. Það er að segja mögu- leikinn á að vera góður mannþekkj- ari og bera gott skynbragð á tilfinningar og innri hvöt annarrar manneskju. Hæfni til þess að geta sett sig í spor annarra, meðvitund um tengsl manna á milli og geta fyr- irfram gert sér í hugarlund hvernig manneskja muni bregðast við að upplifa tilteknar aðstæður. Þeir sem bera gæfu til þess að eiga góðan skammt af samskiptagreind eiga yf- irleitt árangursrík samskipti við aðra. Að búa yfir samskiptagreind er öllum nauðsynlegt en sérstaklega er gerð krafa um samskiptagreind til þeirra sem vinna að mennta- og heilbrigðismálum. Sjálfsþekkingargreind vísar til þess að þekkja sjálfan sig, kosti sína og galla, styrk og hæfileika. Sjálfs- mynd manneskjunnar byggist á þessari greind. Að þekkja eigið hug- arástand, skapgerð, langanir og skilning á því sem er að gerast í kringum mann. Að eira einn og finna persónulega þýðingu fyrir sjálfan sig og eigin hugsanir. Umhverfisgreind er leikni í að bera kennsl á og geta flokkað fjölda tegunda úr plöntu- og dýraríkinu. Að búa yfir þekkingu á náttúrunni og umhverfi manneskjunnar s.s. veðráttu, jarðþekkingu, landslagi, mynstur náttúrunnar og ræktun hverskonar. Sérstakt næmi fyrir umhverfishljóðum, snertingu og sjón og bragði af náttúrunni sjálfri. Skemmtilegur lærdómur En hvernig má nýta þessi greind- arsvið í kennslu? Þeir eru ófáir sem halda að því leiðinlegri og kvalafyllri sem lærdómurinn er, því árangurs- ríkari hljóti hann að vera. Aftur á móti eru fleiri og fleiri sem telja lík- legra, að börn læri best í gegnum leik og upplifun hvers konar. Nem- andinn þarf jafnvel ekki að vera meðvitandi um lærdóminn sem fer fram. Lazear mælir með því að kenn- arar vinni með námsefnið á hverju greindarsviði fyrir sig, því að þannig muni eitthvað höfða til allra. Ef námsefnið höfðar til nemandans og hann fær tækifæri til þess að læra námsefnið á því greindarsviði sem hann er sterkur fyrir, mun árangur síður láta á sér standa. Nemandi getur t.a.m. átt í miklum erfiðleikum með að læra að þylja upp margföld- unartöfluna en fái hann tækifæri til þess að rappa hana eða teikna hana upp á myndrænan máta gæti hann hæglega lært hana og skilið eðli hennar. „Við þurfum að læra að horfa á allt sem barnið er og getur, en ekki að einblína eingöngu á höfuð þess. Þannig mun barnið tileinka sér þekkinguna og hún verða hluti þess,“ sagði Lazear á námskeiðinu, og barði sér á brjóst til frekari áréttingar. Hann sagði einnig að kennari sem kenni samkvæmt fjölgreindarstefn- unni sé frábrugðinn hinum venju- bundna mál-kennara sem standi fyr- ir framan bekkinn og skrifi á töfluna á milli þess sem hann spyr nem- endur út úr efninu. „Fjölgreindar- kennarinn skiptir stöðugt um að- ferðir, frá málaðferðum til rýmisaðferða til tónlistaraðferða og tengir greindir á skapandi hátt,“ sagði Lazear. Hvað mun breytast? Kennarar og foreldrar þurfa m.ö.o. að gera sér grein fyrir þeim fjölmörgu leiðum sem hægt er að velja og sem byggjast á fleiru en máluppeldi. Nemendur verða einnig að fá tækifæri til að nýta alla sína vitrænu hæfileika við öflun þekking- ar. Ef til vill mun skólinn og skóla- fólk með hjálp fjölgreindarkenning- arinnar öðlast víðsýnna viðhorf til náms en lengi hefur tíðkast, nám- skráin styðja alhliða þroska barns- ins og námsmat í skólum taka mið af því. Lazear fullyrðir að ef kennslu- hættir í anda fjölgreindarkenning- arinnar verði teknir upp, muni nem- endur hlakka til að koma í skólann, kennarar síður kulna í starfi, sam- vinna nemenda á milli muni aukast og nemendur verða betur í stakk búnir til að lifa og starfa á 21. öld- inni. Fjölgreindarkennari/Undanfarin ár hafa skólamenn kannað kosti þess að leyfa nemendum að beita hinum ýmsu hæfileikum til að leysa verkefni. Námskeið voru á vegum Íslensku menntasamtakanna í ágúst í Áslandsskóla, þar sem fjölgreindarkenningin var í brennidepli. Hér er sagt frá einu þeirra sem David Lazear kenndi á. Ein stefna fyrir alla nemendur  „Við þurfum að sjá hvað barnið getur, en ekki einblína á höfuðið“  „Öndin fékk lága einkunn í flugi og var afar lélegur hlaupari“ TENGLAR .............................................. David Lazear. 1991,1999. Eight ways of teaching: The Artistry of Teaching with Multiple Intelligences. Skylight Professional Development. David Lazear. 1991,1999. Eight ways of knowing: teaching with Multiple Intelligences. Skylight Pro- fessional Development. Thomas Armstrong. Íslensk þýðing Erla Kristjánsdóttir. 2001. Fjöl- greindir í skólastofunni. Reykjavík. JPV-útgáfa. www.ims.is http://pzweb.harvard.edu/PIs/ HG.htm Morgunblaðið/Árni Sæberg David Lazear reyndist stórskemmtilegur kennari og beitti fjölbreyttum aðferðum við kennsluna. ÍSLENSKU menntasamtökin voru stofnuð á grundvelli menntastefnu alþjóðlegu skólasamtakanna „The Council for Global Education“. Sam- tökin reka tvo tilraunaskóla í Hafn- arfirði en þeir eru leikskólinn Tjarnarás og grunnskólinn Áslands- skóli. Samtökin voru stofnuð af Böðvari Jónssyni og dr. Sunita Gandhi. Í hugmyndafræðinni er lögð áhersla á að hvetja einstakling- inn og hámarka þroska hans og samfélagsins. Skólinn byggir starf sitt á fjórum meginhugmyndum eða hornsteinum menntunar en þeir eru: Sammannleg gildi, hnattrænn skilningur, að gera allt framúrskar- andi vel og þjónustu við mannkynið. Kjörorð skólans er: „Sérhvert barn ber í sér möguleika til að verða ljós heimsins.“ Meðal meginreglna menntunar í skólanum eru:  Skóli sem býður upp á hvetjandi umhverfi  Skóli sem notar tónlist, líkams hreyfingu og listgreinar til að dýpka tilfinningar og fága skap- gerð  Skóli sem leggur áherslu á náms- ferlið, ekki aðeins sjálfa fræðsluna  Skólaumhverfi sem veitir fræðslu um lönd, menningar- heildir, trúarbrögð og tungumál  Skóli og heimili sem hafa samráð og samstarf til gagns fyrir sér- hvert barn Íslensku menntasamtökin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.