Morgunblaðið - 05.09.2002, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.09.2002, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2002 29 ta ekki hanna g fleira. sér er Ísrael, eyttum vera í her- eð öðr- ar eru í beitt uverk- seinni um. ki her- undir yfirráð 7 réðu og yfir kkan- Gaza. rf deil- irráðin leiðin gengur Evr- man við er um ða. Ísl- jafnvel ingar í ð þeir verðið væðum tta. En þess að damál- trygg- árásum sstjórn þess að semja – En deilan við Palestínumenn snýst ekki eingöngu um hryðju- verk. Landnemarnir, sem Sharon styður, vilja klófesta Vesturbakk- ann eða hluta af honum og segja gyðinga eiga sögulegan rétt á hon- um. Margir Ísraelar segjast vilja innlima svæðið. „Það er rétt að við gerum okkar kröfur og einnig Palestínumenn. Eina leiðin til að leysa deiluna er að semja. En jafnvel þótt við létum megnið af svæðinu af hendi höfum við eftir sem áður söguleg tengsl við það. Þeim sögulegu tengslum má ekki rugla saman við raunveru- legar, pólitískar kröfur okkar sem við munum setja fram í samninga- viðræðum. Við buðum þeim á sínum tíma að fá 97% af öllu svæðinu og buðum skipt yfirráð í Jerúsalem. Sögulegu tengslin hindruðu okkur ekki í að gera þeim tilboð en þá töldum við að gagnaðilinn væri reiðubúinn að semja, sem ekki er reyndin núna.“ – Vildi Likud-maðurinn Sharon nokkuð fórna landnemabyggðun- um árið 2000? Hvorum eigum við að trúa, Sharon sem segist núna vilja semja eða hinum sem margoft hef- ur sagt að hann muni aldrei sam- þykkja að landnemabyggðir verði lagðar niður? „Hvort eigum við að trúa Arafat þegar hann segir að milljón „písl- arvotta“ muni ráðast á Jerúsalem eða Arafat þegar hann harmar að sjálfsmorðingjar skuli hafa drepið Ísraela? Sharon er í forystu fyrir ríkis- stjórn. Þegar hann tók við völdum 2001 gerði hann samkomulag við Verkamannaflokkinn um að allir samningar sem þegar hefðu verið gerðir myndu verða virtir, einnig Óslóarsamkomulagið. Margir segja að Sharon vilji efla landnema- byggðirnar en hann var eini Likud- ráðamaðurinn sem lagðist gegn því á þingi flokksins að hugmyndinni um sjálfstætt Palestínuríki yrði hafnað. Hann vissi að í samningum verða menn að hafa svigrúm.“ Vannæring og úrbætur – Sagt hefur verið frá vaxandi vannæringu meðal palestínskra barna. Stjórn Arafats ræður af aug- ljósum ástæðum ekki við ástandið. Hver er ábyrgð Ísraela? „Við teljum ekki að það sé okkur í hag að kjör Palestínumanna séu svona slæm, öðru nær, og ástandið veldur okkur miklum áhyggjum. Hermennirnir sem sendir eru til Gaza og annarra svæða koma aftur heim og segja frá því sem þeir sáu og þeir eru ósáttir. Við verðum að gæta öryggis okkar en samtímis verðum við að gefa Palestínumönn- um einhverja von um betra líf, fyrsta skrefið er að bæta efnahags- ástandið. Stjórnvöld í Ísrael hafa þegar gripið til ýmissa ráðstafana sem hafa að markmiði að bæta stöðu mála. Ég tek fram að um einhliða aðgerðir er að ræða, ekki samninga við Palestínustjórn heldur okkar eigið frumkvæði. Ákveðnar ráðstaf- anir voru kynntar í liðinni viku. Nú geta allt að 10.000 Palestínumenn fengið leyfi til að vinna í Ísrael en við vonum að við getum hækkað töl- una í 20.000. Við gerum okkur vonir um að opnuð verði sérstök iðnsvæði á Gaza og í Austur-Jerúsalem, síðar einnig í Jenin og Tulkarm ef að- stæður leyfa. Við höfum gert auð- veldara fyrir ýmis frjáls félagasam- tök að hjálpa Palestínumönnum með því að auka ferðafrelsi liðs- manna samtakanna. Sjómenn á Gaza mega nú fara lengra frá landi til veiða, allt að 12 sjómílum, en þeir kvörtuðu undan því að þeir fengju lítið á svæðinu sem þeir máttu nýta. Og loks höfum við látið Palestínumenn hafa 10% af skattfé sem við höfum haldið eftir síðustu árin. Nýr fjármálaráðherra Palestínustjórnar segist ætla að taka til í sínum ranni og bað okkur að gefa sér tækifæri en spilling hef- ur verið mikið vandamál hjá þeim. Merki um hana sjást vel í Gaza- borg, sumir lifa þar hátt. Sumt af því sem við höfum gert eða ætlum að gera rekst á öryggis- hagsmuni okkar og því er málið mjög vandasamt. Því lengur sem kyrrð ríkir þeim mun víðtækari geta aðgerðirnar orðið,“ segir Liora Herzl, sendiherra Ísraels. r ir í enn a eir ir arsson ir að egar “ Í NIÐURSTÖÐUM nýrrarkönnunar jafnréttisráðs ognefndar um efnahagsleg völdkvenna, sem skipuð er af for- sætisráðherra, kemur fram að dag- vinnulaun kvenna eru 70% af launum karla. Könnunin tekur til launamun- ar karla og kvenna á almennum vinnumarkaði og hjá sveitarfélögun- um. Föst dagvinnulaun karla í gagna- safni kjararannsóknarnefndar voru 179 þúsund kónur að jafnaði í febrúar 2001 en laun kvenna 124 þúsund að því er fram kemur í niðurstöðum könnunarinnar. Tvo þriðju til þrjá fjórðu þess sem munar á milli má skýra með ólíkum starfsvettvangi, starfi, menntun og ráðningarfyrir- komulagi kynjanna. Það sem eftir stendur, 7,5–11% launamunur, má samkvæmt könnuninni skýra með hjónabandi, barneignum og öðru sem hefur önnur áhrif á laun karla en kvenna. Elín Líndal, formaður jafnréttis- ráðs, Sigurður Jóhannesson, fulltrúi Samtaka atvinnulífsins í jafnréttis- ráði, Þórhallur Vilhjálmsson, fulltrúi fjármálaráðuneytisins og Þórveig Þormóðsdóttir, fulltrúi BSRB í jafn- réttisráði, Ingólfur V. Gíslason, sér- fræðingur jafnréttisráðs, og Stefanía Óskarsdóttir, formaður nefndar um efnahagsleg völd kvenna, kynntu í gær niðurstöður könnunarinnar og sátu jafnframt fyrir svörum. Skortir upplýsingar um starfs- aldur og menntun Að sögn Sigurðar Jóhannessonar hjá Samtökum atvinnulífsins voru gögn úr þjóðskrá um fjölskylduað- stæður lesin saman við tölur kjara- rannsóknarnefndar um kaup og kjör. Nýttar voru upplýsingar frá u.þ.b. 16.500 manns sem starfa á 104 vinnu- stöðum á almennum vinnumarkaði og hjá sveitarfélögunum, að undan- skildum bönkum, ríki og Reykjavík- urborg. Úrtakið nær alls til um 7.000 karla og 9.500 kvenna og var úr- vinnsla gagna í höndum Samtaka at- vinnulífsins. Að sögn Sigurðar var miðað við föst dagvinulaun en til þeirra teljast bónusgreiðslur, matarpeningar, verkfærapeningar o.s.frv. að undan- skildum yfirvinnugreiðslum. Þá voru hlutastörf metin til jafns við heils- dagsstörf. Sigurður bendir á að tekið sé tillit til þess í könnuninni hvort fólk sé í sambúð eða ekki og hvort fólk sé með börn á framfæri. Sérstaklega er til- greint hvort fólk sé með börn 7 ára eða yngri. Þá kemur fram hvort starfsfólk hafi stundað iðnnám, hvort það sé í hlutastarfi eða fullu starfi, hvort það fái „pakkalaun“, þ.e. dag- laun með fastri yfirvinnugreiðslu, hver sé starfsaldur viðkomandi í til- teknu fyrirtæki, aldur, staðsetning, starf, atvinnugrein, o.s.frv. Í gagnasafn kjararannsóknar- nefndar skorti hins vegar upplýsing- ar um samanlagðan starfsaldur á vinnumarkaðnum og menntun, aðra en iðnmenntun og menntun þeirra sem bera lögverndað starfsheiti og starfa sem slíkir, að sögn Sigurðar. „Það hefur komið fram í öðrum könnunum að samanlagður starfsald- ur kvenna er oft minni en karla á sama aldri,“ segir Sigurður. Laun karla í hjónabandi hækk- uðu meira en laun kvenna Samkvæmt niðurstöðum könnun- arinnar kemur fram að ef konur fengju greitt eins og karlar í sama fyrirtæki, í sama starfi með sömu menntun, stæði 21% launamunur eft- ir af rúmlega 30% launamun sem skýrist af mismunandi aðstæðum karla og kvenna, þ.e. mismunandi vinnustað, mismunandi menntun, starfi o.s.frv. Fengju karlar sömu laun og konur í sömu stöðu stæði 24% launamunur eftir. Þá kemur fram að 13–14% launa- munarins má rekja til þess að konur starfa hjá öðrum fyrirtækjum en karlar. Aðrir þættir sem kunna að skýra launamun að hluta eru sam- kvæmt könnuninni að fáar konur eru iðnlærðar, að sögn Sigurðar, þær eru fremur í láglaunastörfum, síður á „pakkalaunum“ eða í vaktavinnu, síð- ur verkstjórar og fremur í hluta- starfi. Sjö og hálft til 11% prósent launa- munar milli kynja er samkvæmt nið- urstöðunum sagt að stafi af því að að- stæður hafa önnur áhrif á laun karla en kvenna. Sigurður nefnir að ríflega helming þess munar megi að líkind- um rekja til þess að hjúskapur og barneignir hafa önnur áhrif á laun karla en kvenna. „Þegar við skoðuðum laun karla og kvenna sitt í hvoru lagi virðist sem laun karla aukist um 4–5% prósent við það að vera í sambúð eða ganga í hjónaband. Laun kvenna eru hins vegar svo til óbreytt hvort sem þær eru í sambúð eða ekki,“ segir hann. Séu börn yngri en 7 ára á heimilinu hækka laun kvenna um 1% en laun karla um 3–4%. Sigurður bendir á að áhrif sambúðar og barneigna á launa- mun gætu að hluta legið í því að kon- ur sinna heimili og börnum meira en karlar. Þær taki lengra barneigna- leyfi og hverfi oftar af vinnumarkaði vegna barneigna. Þá kunni hjóna- band eða sambúð kvenna að gefa vís- bendingu um að starfsreynsla þeirra á vinnumarkaði sé að jafnaði minni en karla á sama aldri þó að um það verði ekki fullyrt út frá gögnunum. Hann nefnir að lokum að niður- stöður könnunarinnar nú séu ekki ósvipaðar og birtust í könnun sem jafnréttisráð lét gera árið 1995. Ekki óvinnandi vegur að leið- rétta kynbundinn launamun Að sögn Elínar Líndal, formanns jafnréttisráðs, lítur jafnréttisráð ekki á það sem óvinnandi veg að hægt sé að leiðrétta kynbundinn launamun. „Ég vil minna á tvo jafnréttisráðs- viðurkenningarhafa, Reykjavíkur- borg og Verslunarfélag Reykjavíkur, sem hafa unnið með markvissum hætti að því að minnka þennan mun og hafa náð sýnilegum árangri,“ seg- ir Elín. Hún segir það von jafnréttisráðs að könnunin verði hvatning til at- vinnurekenda um að vinna markvisst að leiðréttingu á kynbundnum launa- mun. Stefanía Óskarsdóttir, formaður nefndar um efnahagsleg völd kvenna, segist vonast til þess að sá mikli áróð- ur sem rekinn hefur verið fyrir því að heimilisfeður taki virkari þátt í upp- eldi barna og heimilisstörfum, auk breytinga á fæðingarorflofi, bætt dagvistun á leikskólum og heilsdags- skóli, muni leiða til þess að konur og karlar hafi svipað svigrúm á vinnu- markaði. „Það er spurning hversu langan tíma þetta tekur en það er mjög mik- ilvægt að fyrirtæki og stjórnvöld séu meðvituð um að útrýma kynbundn- um launamun,“ segir Stefanía Ósk- arsdóttir. Niðurstöður könnunar jafnréttisráðs og nefndar um efnahagsleg völd kvenna Dagvinnulaun kvenna 70% af launum karla Jafnréttisráð og nefnd um efnahagsleg völd kvenna kynntu í gær niðurstöður nýrrar könnunar um launamun karla og kvenna. Samkvæmt henni hafa hjónabönd og barn- eignir önnur áhrif á laun karla en kvenna. Morgunblaðið/Kristinn Sigurður Jóhannesson, fulltrúi Samtaka atvinnulífsins í jafnréttisráði, kynnir niðurstöður könnunarinnar. Við hlið hans eru Elín Líndal, for- maður jafnréttisráðs, Stefanía Óskarsdóttir, formaður nefndar um efnahagsleg völd kvenna, Þórhallur Vilhjálmsson, fulltrúi fjármála- ráðuneytisins í jafnréttisráði, og Ingólfur V. Gíslason sérfræðingur. HJÖRLEIFUR Guttormsson, fyrrverandi alþing- ismaður, segist gera sér vonir um að fundur Sam- einuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun komi þróun- inni í umhverfismálum aftur á rétta braut. Það hafi ekki verið staðið við veigamikla þætti Ríó-yfirlýs- ingarinnar og stjórnmálamenn séu vonandi með fundinum í Jóhannesarborg að sjá að sér og bregð- ast við. Hjörleifur er fulltrúi NAUST á fundinum í Jó- hannesarborg, en fjölmargir fulltrúar frjálsra fé- lagasamtaka sækja fundinn. Hann sótti einnig um- hverfisráðstefnuna í Ríó 1992 og fund Sameinuðu þjóðanna um umhverfismál sem haldinn var í Stokkhólmi 1972. „Ég tel að niðurstaða fundarins í Jóhannesar- borg sé ekki óvænt. Mér fannst það liggja alveg í spilunum áður en fundurinn hófst að hér yrðu ekki neinar stökkbreytingar til hins betra eins og hefði auðvitað þurft að gerast. Þetta er þungur vagn sem verið er að draga og menn verða að meta stöðuna í ljósi þess sem hefur verið að gerast á undanförnum áratugum og alveg sérstaklega frá því að Ríó-ráð- stefnan var haldin 1992. Ríó setti markmið nokkuð hátt og mótaði leikreglur sem menn hafa verið að vísa til og reyna að halda í. Þær voru mjög jákvæðar þó að það væru ekki allir ánægðir þegar þeirri ráð- stefnu lauk. Hún skilaði auðvitað ekki því sem þeir sem lengst vildu ganga í umhverfismálum hefðu óskuðu. Bandaríkin voru á þeirri ráðstefnu í hlut- verki dragbítsins, þó ekki eins áberandi og núna. Síðan gerist það á þeim 10 árum sem eru liðin frá Ríó að það hefur hægt mikið á ferðinni miðað við það sem var ákveðið á fundinum. Framkvæmda- áætlunin, Dagskrá 21, lenti fljótlega út af spori. Það var ekki staðið við fjárhagsleg framlög til þróun- armála og fleira gekk ekki eftir. Loftslagsmálin gengu hægar fyrir sig en stefnt var að þótt þar hafi þó orðið ávinningur.“ Hjörleifur sagði að hnattvæðingin hefði heldur ekki skilað þeim ávinningi sem fátækustu ríki heims hefðu þurft á að halda. Hann sagði það sitt mat að hún hefði aukið gjána milli ríku og fátæku þjóðanna. „Á þessum fundi eru menn að reyna að koma sér aftur inn á brautina sem mörkuð var í Ríó og það tel ég jákvætt. Hinn kosturinn hefði verið að ekki hefði náðst saman um neitt í Jóhannesarborg og það hefði verið skelfilegt. Í ljósi þess tel ég að þessi ráð- stefna sé betur haldin en ekki og ég tel að hún skapi ákveðna viðspyrnu og ákveðna von. Mér finnst það liggja í lofti að leiðtogar þjóða og stjórnmálamenn séu að átta sig á því að þeir geta ekki leyft sér að endurtaka svona svik sem hér hafa gerst. Menn verða að taka til heima hjá sér og einnig í þessu stóra alþjóðlega samhengi,“ sagði Hjörleifur. Hjörleifur sagði að eitt af vandamálunum væri að stjórnmálamenn væru of uppteknir af því að hugsa til skamms tíma og þeir væru of bundnir af hinni pólitísku stöðu heima fyrir. Það yrði hins vegar að gera þá kröfu til stjórnmálamanna og kjósenda að þeir horfðu til langs tíma. Það yrði heldur ekki hægt að taka á fátæktar- vandanum nema að íbúar í ríku löndunum legðu verulega af mörkum. Hjörleifur Guttormsson um fund Sameinuðu þjóðanna í Jóhannesarborg Verið er að reyna að kom- ast aftur inn á rétta braut Jóhannesarborg. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.