Morgunblaðið - 05.09.2002, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 05.09.2002, Qupperneq 52
„EINS OG eðlilegt er hefur verið töluvert stress í gangi. Nú er allt að smella saman í alveg hreint frá- bæra sýningu með leikaraúrvali úr öllum fimm framhaldsskólunum,“ segir Þorvaldur Davíð Krist- jánsson, nemandi í Verslunarskól- anum og fjármálastjóri leiksýning- arinnar Fullkomið brúðkaup, og telur upp sinn eigin skóla, Mennta- skólann við Hamrahlíð, Mennta- skólann í Reykjavík, Kvennaskól- ann og Menntaskólann við Sund. Þessi sameiginlega leiksýning framhaldsskólanna fimm verður frumsýnd í Loftkastalnum kl. 20 nk. laugardag. Þorvaldur Davíð rifjar upp að talsverður undirbúningur hafi ver- ið að sýningunni. „Hugmyndin kom fyrst upp snemma í vor. Við byrj- uðum fjögur úr jafnmörgum skól- um að velta því fyrir okkur hvernig væri að efna til samstarfs á milli skólanna um eina stóra sýningu ein- hvern tímann í maí. Eftir nokkrar vangaveltur ákváðum við síðan að láta hendur standa fram úr ermum og sóttum um styrk fyrir sýning- unni til Reykjavíkurborgar. Styrk- inn fengum við og héldum því gal- vösk áfram. Leikarar voru valdir úr leikfélögum skólanna fimm því að einn hafði bæst í hópinn og æfingar hófust í júní. Við æfðum og tókum að okkur nokkur verkefni fyrir Reykjavíkurborg í júní og júlí, t.d. 17. júní, áður en við fórum í sum- arfrí í ágúst. Nú erum við aftur komin á fullt og ætlum að frumsýna Fullkomið brúðkaup í Loftkastal- anum á laugardaginn.“ Bakland í framhaldsskólunum Þorvaldur segir að mesta vinnan hvíli á herðum 11 manna hóps. Þar fyrir utan hafi Leikfélagið Þrándur gott bakland í öllum framhaldsskól- unum fimm. Ótalinn fjöldi fram- haldsskólanema komi því að und- irbúningnum. „Sýningin sjálf er ekki aðeins fyrir framhalds- skólanema. Þó að sérstaklega verði selt inn á sýningarnar í næstu viku í framhaldsskólunum eru allir vel- komnir á þær sýningar eins og aðr- ar sýningar,“ segir Þorvaldur og tekur fram að leiksýningin ætti að höfða til allra aldurshópa. „Sýn- ingin fjallar um verðandi brúðguma sem vaknar upp daginn eftir stegg- japartíið í herbergi sem hann þekk- ir ekki og við hliðina á konu sem hann þekkir ekki. Söguþráðurinn gengur reyndar út á makalausan misskilning með tilheyrendi gleði og kátínu. Ekki má heldur gleyma tónlistinni því að fjörug tónlist og söngur er stór hluti af sýningunni.“ Fullkomið brúkaup er eftir Robin Hawdon og í þýðingu Arnar Árna- sonar. Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarsson og leikmyndahönnuður er Frosti Friðriksson. Almennt miðaverð á sýninguna er 1.500 kr. og er boðið upp á sérstakan hóp- afslátt. Morgunblaðið/Jim Smart Fullkomið brúðkaup? Kannski ekki alveg. Allt að smella saman í Loft- kastalanum Fimm framhaldsskólar setja upp leiksýningu TENGLAR ..................................................... www.fullkomidbrudkaup.mis.is 52 FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 3.55, 5, 7 og 9. Íslenskt tal. Vit 429 Líf þitt mun aldrei verða eins! Mel Gibson og Joaquin Phoenix í magnaðri spennumynd eftir M. Night Shyamalan, höfund og leikstjóra Sixth Sense. Það er einn í hverri fjölskyldu!  Kvikmyndir.is Roger Ebert Sýnd kl. 5.45, 8, 9.15 og 10.20. B.i. 12. Vit 427 EIGHT LEGGED FREAKS  Kvikmyndir.com  DV 1/2 SK.RadioX SCOOBY- DOO Sýnd kl. 4 og 6 Vit 398 Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. 1/2 SV Mbl 1/2 Kvikmyndir.is 27 þúsund áhorfendur Sýnd kl. 6. Líf þitt mun aldrei verða eins! Sjáið myndina í frábæru nýju hljóðkerfi Háskólabíós  ÓHT Rás2  SK Radíó X Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12.  Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com Roger Ebert  SG. DV ÓHT Rás 2  Kvikmyndir.com  Kvikmyndir.is  SV Mbl Rómantísk gamanmynd úr raunveruleikanum sem fjallar um íslenskan mann, Jón Gnarr, sem verður ástfangin af Kínverskri stúlku. Frá sömu aðilum og gerðu Íslenska drauminn. Sýnd kl. 6, 8 og 10. 1/2 Kvikmyndir.is 1/2 SK.RadioX  DV Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 6. Íslenskt tal. Sýnd kl. 10.15. Enskt tal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.