Morgunblaðið - 14.09.2002, Side 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa,
Menningar- og fræðslusamband al-
þýðu og idan.is (Samtök iðnaðar-
ins) hlutu starfsmenntaverðlaun
Starfsmenntaráðs og Menntar fyr-
ir árið 2002 og afhenti Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
fulltrúum verðlaunahafanna verð-
launin í húsakynnum Alþýðu-
sambands Íslands í gær.
Þetta er í þriðja sinn sem starfs-
menntaverðlaunin eru veitt en í
fyrsta sinn sem afhending verð-
launanna fer fram í tengslum við
Viku símenntunar. Þau eru veitt
þeim sem þykja vinna framúrskar-
andi starf á sviði starfsmenntunar
á Íslandi í flokki fyrirtækja og fé-
lagasamtaka, flokki skóla og
fræðsluaðila og í opnum flokki.
Tilgangurinn er að styðja við ný-
sköpun og framþróun starfs-
menntunar ásamt því að vekja at-
hygli á málefninu, en verðlaunin
eiga að vera verðlaunahöfum
hvatning til áframhaldandi starfa
og öðrum til fyrirmyndar á þessu
sviði.
Mega nota nýtt
verðlaunamerki
Nýtt merki starfsmannaverð-
launanna var hannað og býðst
verðlaunahöfum ársins að nota
það til kynningar á útnefningunni
næstu þrjú árin, en þeir fengu auk
þess sérstaka verðlaunagripi eftir
Helga Gíslason.
Jón Steindór Valdimarsson, að-
stoðarframkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins, sagði við afhendinguna
að hann væri stoltur af verkefninu
sem hefði verið verðlaunað og
væri upplýsingavefur ætlaður
ungu fólki, en idan.is er rekin af
Samtökum iðnaðarins í samvinnu
við félagsvísindadeild Háskóla Ís-
lands, nám í námsráðgjöf við HÍ,
Morgunblaðið og námsráðgjafa
framhaldsskóla. Haukur Harð-
arson, formaður stjórnar MFA,
sagði að verðlaunin væru mikil
hvatning og þakkaði öllum sem
höfðu lagt verkefninu lið. Hall-
grímur Gíslason, verkefnisstjóri
ÚA-skólans, sagði að verðlaunin
væru viðurkenning á því sem hefði
verið gert á árinu, hvatning til að
gera enn betur og áskorun til ann-
arra fyrirtækja um að huga að sí-
menntun og gera betur en ÚA.
Í dómnefnd voru Anna Kristín
Halldórsdóttir, Baldur Gíslason,
Halldór Frímannsson, Jónína Giss-
urardóttir, Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir, Örn D. Jónsson og Jó-
hannes Einarsson, formaður
nefndarinnar.
Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs og Menntar
Morgunblaðið/Sverrir
Að verðlaunaafhendingunni lokinni. Frá vinstri: Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Jón Steindór Valdi-
marsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Hallgrímur Gíslason, verkefnisstjóri ÚA-skólans,
Haukur Harðarson, formaður stjórnar MFA, og Jóhannes Einarsson, formaður dómnefndar.
Hvatning og öðr-
um til fyrirmyndar
LIÐ lagadeildar bar sigurorð af
nemendum í læknadeild í spurn-
ingakeppninni Kollgátunni, en úr-
slitaviðureignin fór fram í gær á
Stúdentadeginum, sem var nú hald-
inn í þriðja sinn. Keppnin hefur
staðið alla vikuna en allar deildir
skólans tóku þátt í henni og var það
Logi Bergmann Eiðsson sem spurði
keppendur spjörunum úr. Í liði
laganema voru Arnar Þór Stefáns-
son, Stefán Bogi Sveinsson og Mar-
grét Urður Snædal og í liði lækna-
nema Eyjólfur Þorkelsson, Gísli
Björn Bergmann og Snorri Freyr
Donaldsson.
Laganemar voru sigursælir í dag
en lið þeirra sigraði sömuleiðis HM
2002, eða Happdrættismótið 2002 í
knattspyrnu. Þá var auk þess keppt
í fjölbragðaglímu, bandí og um tit-
ilinn sterkasti stúdentinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Lið laganema
sigraði í Kollgátunni
SÍÐAN 11. september í fyrra hafa
verið tekin rúmlega 11 þúsund vopn
af flugfarþegum í Leifsstöð samhliða
hertu vopnaeftirliti sem hófst eftir
hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjun-
um.Vopnafjöldinn samsvarar því að
tollverðir hafi lagt hald á 30 vopn á
dag. Mest er um skæri og hnífa, sem
ekki er leyfilegt að taka með sér í
flugvél sem handfarangur, en einnig
hafa verið teknir 4 úðabrúsar og eft-
irlíkingar af byssum.
Bandaríska flugmálastjórnin gerði
sýslumannsembættinu á Keflavíkur-
flugvelli að framfylgja mjög ströngu
vopnaeftirliti í kjölfar árásanna 11.
september í fyrra og segir Kári Gunn-
laugsson, deildarstjóri tollgæslunnar
á Keflavíkurflugvelli, að farþegar hafi
sýnt aðgerðum tollvarða skilning og
þolinmæði.
Munirnir sem teknir hafa verið af
fólki fylla nú 50 kassa og fara þeir í
eyðingu. Haldlögð skæri eru 5.266 og
hnífar 3.167. Kári segir þessa hluti af
öllum gerðum, bæði stóra og litla
hnífa og skærin sömuleiðis. Tollverðir
hafa einnig tekið stunguvopn og aðra
oddhvassa hluti í þúsundatali.
Kári Gunnlaugsson segir farþega
ekki smygla vopnum viljandi, heldur
virðist fólk gleyma vopnabanninu
þegar það pakkar niður og setur þá
skæri og aðra bannvöru í hand-
farangur sinn fyrir klaufaskap. „Þeir
taka þessu ótrúlega vel og biðjast af-
sökunar á gleymskunni,“ segir Kári
aðspurður hvernig farþegar bregaðst
við. „Við höfum reynt að auglýsa
bannið og bent fólki á að hafa þessa
hluti í farangri sem það tékkar inn í
vél, í stað þess að hafa þá í hand-
farangrinum, en fólk á eingöngu á
hættu að missa þessa hluti ef þeir eru
í handfarangri.“ Kári segir ekkert
málanna hafa orðið að lögreglumáli.
30 vopn tekin
daglega af
flugfarþegum
GARÐAR Bergendal, bóndi í Hríf-
unesi í Skaftártungum, áformar að
virkja Hólmsá, sem rennur fyrir
framan bæinn, en hann á landið
beggja megin árinnar. Garðar ætlar
að stífla ána á nokkrum stöðum, en
hver stífla mun gefa um 7,5 MW.
Þannig telur hann að virkjunin gæti í
heild gefið 40 MW, jafnvel meira. Til
samanburðar má nefna að Laxár-
stöðvarnar í S-Þingeyjarsýslu gefa
samanlagt 28 MW. Garðar segir að
það eigi eftir að koma í ljós hversu
margar stíflurnar verði.
Ætlar hann að leggja rafmagns-
línu til Kirkjubæjarklausturs og
tengja virkjunina þannig raforku-
kerfi Landsvirkjunar og selja
orkuna. Fyrsta hagkvæmniathugun
bendi til þess að um mjög hagkvæm-
an virkjunarkost sé að ræða. Garðar
segist telja að hann þurfi ekki að fara
með virkjunarframkvæmdirnar í
mat á umhverfisáhrifum, þar sem
hver stífla verði undir 10 MW og
landið er í hans eigu. Þó þurfi lagn-
ing raflínunnar líklega að fara í slíkt
mat. Garðar segir ómögulegt að
segja til um hvenær virkjunin gæti
verið tilbúin, það fari t.d. mikið eftir
því hvort frumvarp til raforkulaga,
sem verður lagt fyrir Alþingi að nýju
á komandi þingi, verður samþykkt.
Ef allt gangi að óskum gætu fram-
kvæmdir við fyrstu stífluna þó hafist
næsta vetur.
Garðar segir að um rennslisvirkj-
un sé að ræða og því fari ekkert land
undir uppistöðulón, vatni verði ekki
safnað fyrir ofan stíflu. Stíflan verði
13 metra há og nýtanleg fallhæð 11
metrar. Gljúfrið sem áin rennur í
fyllist af vatni en ekkert umframland
fari undir. „Það verða engin um-
hverfisspjöll, hér er engu landi sökkt
undir vatn. Ég vil ekki skemma land-
ið heldur láta náttúruna halda sér
sem mest,“ segir Garðar. Ferðaþjón-
usta er veitt í Hrífunesi og eru m.a.
fljótasiglingar stundaðar á ánni, sem
Garðar telur að geti farið vel saman
með virkjun árinnar.
Ekkert hefur verið ákveðið um
fjármögnun framkvæmdarinnar. Er
heildarfjárþörf til fyrstu stíflunnar
áætluð um 860 milljónir króna og
ráðgert að nýtingartími virkjunar-
innar yrði ríflega 7.500 stundir. Stífl-
an sem áætlað er að reisa fyrst yrði
um 100 metra löng. Í arðsemismati
sem Íslensk orkuvirkjun hefur gert
fyrir landeigendur í Hrífunesi er lagt
til að virkjað rennsli verði í hámarki
88 m3/sek. Í flóðum nær rennsli ár-
innar á annað hundrað rúmmetra á
sekúndu.
Virkjun Hólms-
ár talin hag-
kvæmur kostur
Hver stífla gæfi 7,5 MW
Ljósmynd/Garðar Bergendal
Áætlanir gera ráð fyrir því að fyrsta stíflan, sem verður um 100 metra
breið, muni rísa á þessum stað í ánni.
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða
dæmdi í gær tvítugan mann í fjög-
urra mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir líkamsárásir á síðasta ári.
Ákærði var fundinn sekur um lík-
amsárásir gegn sex manns, mönn-
um, konum og börnum, auk þess sem
hann var sakfelldur fyrir brot gegn
valdstjórninni með því að hindra lög-
reglumenn í starfi.
Þá var ákærði sakfelldur fyrir um-
ferðarlagabrot vegna ölvunarakst-
urs og sviptur ökurétti í ár og sekt-
aður um 60 þúsund krónur. Var hann
einnig dæmdur til að greiða einum
brotaþolanna 21.900 krónur í skaða-
bætur.
Við ákvörðun refsingar var litið til
þess að ákærði hefur bætt ráð sitt og
farið í fíkniefnameðferð.
Erlingur Sigtryggsson dómstjóri
kvað upp dóminn.
Fjögurra
mánaða
fangelsi fyrir
líkamsárásir
♦ ♦ ♦
LÖGREGLAN á Ísafirði
stöðvaði á fimmtudag bifreið í
Hestfirði og fann í henni lít-
ilræði af amfetamíni og um
200 sveppi.
Grunur hafði vaknað um að
ökumaðurinn hefði fíkniefni í
fórum sínum og hefði stundað
fíkniefnadreifingu á norðan-
verðum Vestfjörðum.
Maðurinn er um þrítugt og
hefur komið við sögu fíkni-
efnamála áður. Hann neitaði
lögreglu um aðgang að bif-
reiðinni þegar hún ætlaði leita
í henni og fékk þá lögreglu-
stjórinn á Ísafirði leitarheim-
ild í Héraðsdómi Vestfjarða.
Maðurinn, sem er búsettur á
Ísafirði, var yfirheyrður af
lögreglu og sleppt að yfir-
heyrslum loknum. Telst málið
upplýst.
Lögreglan hvetur þá sem
hafa minnsta grun um fíkni-
efnameðhöndlun að gera lög-
reglunni viðvart. Fyllsta trún-
aðar og nafnleyndar er gætt.
Stöðvaður
með am-
fetamín
og 200
sveppi