Morgunblaðið - 14.09.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
máltíðum þar sem krafist er
kvöldklæðnaðar að grillmat og
pitsum sem hægt er að panta allan
sólarhringinn. Allur matur um
borð er innifalinn í því verði sem
greitt er fyrir ferðina. Þá eru tón-
listarstaðir af öllum toga, allt frá
dynjandi diskótekum til rólegri
staða þar sem klassísk tónlist er
leikin.
Gengið í það heilaga um borð
Leiðsögumaðurinn upplýsir að
skipið sé vinsælt hjá nýbökuðum
hjónum sem gjarnan fara í brúð-
kaupsferðir með skipinu. Sumir
ganga jafnvel skrefinu lengra og
láta pússa sig saman í lítilli kap-
ellu sem er að finna um borð og
slá þannig saman brúðkaupinu
sjálfu og brúðkaupsferðinni. Í
skipinu er einnig að finna eins
konar ævintýraland fyrir börn
sem gengur undir nafninu Örkin
hans Nóa en þar er að finna af-
þreyingu af ýmsum toga fyrir litla
fólkið.
Þrjár sundlaugar eru um borð,
hver með sínu sniði. Nefndi leið-
sögumaðurinn sérstaka barna-
sundlaug með leiktækjum annars
vegar og hins vegar eins konar
bar-sundlaug þar sem lifandi tón-
ÞAÐ fyrsta sem fangar athyglina
þegar gengið er um borð er ör-
yggisgæslan, sem hvaða alþjóða-
flugvöllur gæti verið stoltur af.
Gestir eru beðnir um að skilja eft-
ir skilríki við landganginn og
skannaðir í bak og fyrir með
málmleitartækjum auk þess sem
töskur og annar handfarangur er
gegnumlýstur áður en haldið er í
skoðunarferð um innviði hins æv-
intýralega skemmtiferðaskips
Carnival Legend.
Skipið átti viðdvöl hér í gærdag
á jómfrúarsiglingu sinni til New
York og af því tilefni gafst fjöl-
miðlafólki kostur á að skoða það.
Óhætt er að segja að ekki er um
neina smásmíði að ræða því skipið
er 292 metrar að lengd, tæplega
86 þúsund brúttótonn og með tólf
dekk. Það tekur 2.600 farþega og
þjónustuliðið er um 1.000 manns.
Fólk sem heimsækir skipið er
reyndar fljótt að gleyma þurrum
staðreyndum um rými og þyngd
því um borð tekur hvert glæsirým-
ið við af öðru sem einkennast öll
af miklum íburði, stærð og þæg-
indum.
Fullbúið leikhús og spilavíti
Fyrsti viðkomustaðurinn á skoð-
unarferðinni er leikhúsið sem er
af þvílíkri stærðargráðu að erfitt
er að skilja að slíkt geti verið að
finna um borð í skipi. Það tekur
1.100 manns í sæti og leið-
sögumaðurinn upplýsir að á snún-
ingssviðinu bak við þung leik-
hústjöldin eru settar upp stórar
sýningar í „Vegas“-stíl og kostar
hver uppfærsla um hálfa milljón
Bandaríkjadala.
Næst er komið við í Sal eldfugls-
ins eða The firebird room. Þetta
er skemmtistaður sem innréttaður
er í rússnesk-asískum stíl þar sem
boðið er upp á lifandi tónlist og
skemmtiatriði af ýmsum toga.
Þaðan er farið yfir í einn af mörg-
um veitingastöðum skipsins og á
leiðinni þangað er gengið fram hjá
lokuðum herbergjum sem upplýst
er að séu fyrir spilafólk sem „vill
fá næði“. Gestir geta ekki síður
fengið útrás fyrir spilagleði sína í
stóru spilavíti sem er að finna um
borð og er að sögn leiðsögumanns-
ins opnað um leið og lagt er úr
höfn.
Fjöldi veitingastaða er um borð
í Carnival Legend og má þar fá
allt frá margréttuðum kvöld-
list er leikin og áfengir drykkir
eru framreiddir.
Fullbúin líkamsræktarstöð er
um borð og heilsulind með nudd-
stofum, snyrtistofu, hárgreiðslu-
stofu og gufubaði. Þá eru ótaldar
verslanir af ýmsum toga, tölvu-
herbergi þar sem gestir geta kom-
ist á Netið, bókasafn og svo mætti
lengi telja. Raunar má segja að
Carnival Legend sé fljótandi þorp
eða öllu heldur stórborg því úrval
afþreyingar um borð minnir helst
á það sem gerist í stærstu borgum
erlendis.
Carnival Legend er nýjasta
skipið í flota Carnival-skipafélags-
ins í Bandaríkjunum en alls er fé-
lagið með 18 skemmtiferðaskip í
siglingum í Karíbahafinu og með-
fram ströndum Ameríku en það er
Heimsklúbbur Ingólfs-Príma sem
er tengiliður skipafélagsins hér á
landi og selur ferðir í skipið.
Fljótandi stórborg í Sundahöfn
Eitt af stærstu skemmtiferðaskipum
sem komið hafa hingað til lands lagðist
að bryggju í Sundahöfn í gær. Bergþóra
Njála Guðmundsdóttir og Þorkell Þor-
kelsson kynntu sér innviði skipsins.
Morgunblaðið/Þorkell
Mikið er lagt í allar innréttingar í skipinu, meðal annars í aðalveit-
ingastaðnum um borð. Auk hans er fjöldi annarra veitingastaða en allur
matur er innifalinn í því verði sem greitt er fyrir ferðina.
Morgunblaðið/Þorkell
Þrjár sundlaugar eru um borð, bæði úti á dekki og innandyra, auk
heitra potta. Þá er fullbúin líkamsræktarstofa og heilsulind í skipinu.
Morgunblaðið/Þorkell
Móttakan í skipinu er mikilfeng-
leg en þar er gríðarlega hátt til
lofts eins og sést af þessari mynd
þar sem horft er niður í hana af
níunda þilfari skipsins.
EYÞÓR Arnalds og viðskiptafélagar
hans í hlutafélaginu Lífsstíl ætla að-
opna nýja hágæða líkamsræktarstöð
og heilsulind á grunni Planet City í
Austurstræti innan nokkurra vikna,
en þeir taka við rekstri stöðvarinnar
1. október. Nýja stöðin verður rekin á
sama stað í Austurstræti og verður
opnuð undir nýju heiti, Planet
Reykjavík.
Nýir eigendur munu stækka stöð-
ina úr 800 fermetrum í 1.100 og
hyggjast kaupa að liggjandi húseign
við Austurstræti 6 þar sem nú er vín-
veitingastaðurinn Diablo.
Hugmyndir um yfirtökuna hafa
verið uppi síðan í sumar og er kaup-
verð trúnaðarmál.
Í hinni nýju Planet Reykjavík verð-
ur líkamsræktartækjarýmið stækkað
og tækin flutt yfir í húsrýmið þar sem
nú er Diablo og opnað á milli. Hyggj-
ast Eyþór og félagar bjóða upp á víð-
tæka þjónustu í líkamsrækt, s.s.
einkaþjálfun, jóga og hnefaleika, lyft-
ingar og heilsulindir.
„Við ætlum að efla þjónustuna,
bæði í heilsulindunum og ekki síst í
einkaþjálfun. Við munum tryggja að
hér verði bestu einkaþjálfarar lands-
ins og hver gestur verði tekinn í
markmiðagreiningu og þess gætt að
hann nái settum markmiðum með
heilsurækt sinni. Kjörorð stöðvarinn-
ar hingað til hafa verið ánægja og af-
slöppun en við viljum bæta við þriðja
kjörorðinu; árangri.“
Viðskiptafélagar Eyþórs eru Árni
Þór Vigfússon, sjónvarpsstjóri Skjás
eins, og Kristján Ra Kristjánsson,
fyrrverandi fjármálastjóri sjónvarps-
stöðvarinnar, auk Sveinbjörns Krist-
jánssonar. Þeir munu endurráða
flesta starfsmenn auk þess að hafa
lagt drög að ráðningu einkaþjálfara.
Kveðst sjá sóknar-
færi í miðborginni
Eyþór segist sjá sóknarfæri í því að
hefja fyrirtækjarekstur í miðborginni
á sama tíma og verslanir þar hafa ver-
ið að leggja upp laupana undanfarið.
„Verslunin hefur átt undir högg að
sækja en „lífið eftir vinnu“ sem er við-
skiptahugmynd okkar, hefur verið
þeim mun öflugra í miðborginni. Við
teljum það ekki sjálfsagðan hlut að líf-
ið eftir vinnu felist eingöngu í
skemmtanahaldi, heldur geti líkams-
rækt orðið sterkur hluti þess lífs.
Starfsfólk vinnustaðanna hérna í
kring ætti eð geta notið þess að hafa
líkamsræktarstöð í göngufæri. Við
trúum því líka að miðborgin rétti úr
kútnum með því að fyrirhuguð eru
200 bílastæði undir Tjörninni. Fram-
tíðarmöguleikar miðborgarinnar eru
einnig miklir með tilkomu nýs íbúðar-
hverfis í Skuggahverfinu að
ógleymdu hafnarsvæðinu.“
Eyþór Arnalds og við-
skiptafélagar taka yfir
rekstur Planet City
Morgunblaðið/Golli
Eyþór Arnalds, framkvæmda-
stjóri hlutafélagsins Lífsstíls.
SPRENGJUSÉRFRÆÐINGAR
Landhelgisgæslunnar fjarlægðu
nýlega og eyddu sprengju frá því á
tímum síðari heimsstyrjaldarinnar
sem fannst í sandi í grennd við
golfvöllinn í Þorlákshöfn.
Um var að ræða sprengju sem
notuð var til þess að merkja stað-
setningu kafbáta í seinni heim-
styrjöldinni. Inniheldur sprengjan
efnablöndu sem hefur þá eigin-
leika að gefa frá sér ljós og reyk
þegar sprengjan springur, að því
er fram kemur á vef LHG.
Þar kemur fram að sprengjum
sem þessum var varpað úr flug-
vélum. Þegar þær lentu á hafinu
gáfu þær frá sér hvítan reyk og
gulan loga í um það bil sex mín-
útur til að merkja staðsetningu
kafbáta svo hægt væri að varpa
sprengjum á þá venjulega úr öðr-
um flugvélum. Efni í þessum
sprengjum geta við vissar aðstæð-
ur kviknað sjálfkrafa og gefa frá
sér eitrað fosfórgas þegar þær
brenna.
Sprengju-
sérfræð-
ingar LHG
eyða
sprengju
GÆSLUVARÐHALD var fram-
lengt yfir tveimur bræðrum í gær
sem grunaðir eru um alvarlega lík-
amsárás á ungan mann við Eiðistorg
í byrjun ágúst.
Gæsluvarðhaldið var framlengt til
25. október en ekki var krafist fram-
lengingar gæsluvarðhalds yfir föður
mannanna og var honum því sleppt
úr haldi, þar sem ekki þótti ástæða
til að halda honum lengur. Feðgarnir
þrír hafa setið í gæsluvarðhaldi frá
því um verslunarmannahelgina
vegna rannsóknar málsins hjá lög-
reglunni í Reykjavík.
Faðirinn laus
en synirnir
áfram í gæslu
♦ ♦ ♦