Morgunblaðið - 14.09.2002, Blaðsíða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HRAFNISTA í Hafnarfirði fagnar
25 ára afmæli í dag og mun af því til-
efni kynna gestum og gangandi nýtt
leiguhúsnæði, alls 64 íbúðir í tveimur
húsum, sérhannaðar með þarfir eldri
borgara í huga.
Nýju íbúðirnar eru flestar tveggja
og þriggja herbergja og í fjórum
mismunandi stærðum. Í tilkynningu
frá Hrafnistu segir að þær séu bjart-
ar og rúmgóðar með gott aðgengi
fyrir hreyfihamlaða. Í báðum húsum
er lyfta og úr bílageymslu er inn-
angengt í bæði húsin sem og í Hrafn-
istuheimilið. Á jarðhæð húsanna er
samkomusalur til afnota fyrir íbúa
og snýr hann að skjólgóðu útivist-
arsvæði.
Hrafnista tók til starfa 2. júní 1957
og tveimur áratugum síðar var dval-
arheimilið í Hafnarfirði opnað.
25 ára afmæli
Hrafnistu
64 nýjar
íbúðir
kynntar
í dag
Hafnarfjörður
FJÖLBÝLISHÚS sem reisa á við
Suðurhlíð 38 í Reykjavík er hærra
samkvæmt samþykktri byggingar-
leyfisumsókn en tilgreint er um í
deiliskipulagi. Þá er húsið 1,7 metr-
um hærra en gefið var til kynna í
skýringarmyndum sem kynntar
voru á sínum tíma. Til stendur að
kynna málið fyrir íbúum í hverfinu.
Í bréfi sem Helga Guðmundsdótt-
ir, arkitekt byggingarfulltrúa, og Ív-
ar Pálsson, forstöðumaður lögfr. og
stjórnsýslu, rita fyrir hönd skipu-
lags- og byggingarsviðs til yfir-
manna stofnunarinnar og fulltrúa í
skipulags- og byggingarnefnd, kem-
ur fram að samkvæmt samþykktu
deiliskipulagi mátti húsið vera 12 m
hátt. Samkvæmt byggingarleyfis-
umsókn sem búið er að samþykkja
er gólfkóti 1. hæðar 13,70 og hæð
hússins 12,4 m frá henni eða um 40
cm hærri en deiliskipulagið gerði ráð
fyrir. Í bréfinu segir að kóti 1. hæðar
sé hins vegar ekki nema 13,40 þar
sem byggjendur höfðu salarhæð
kjallarans 30 cm lægri en samþykkt
byggingarnefndar gerði ráð fyrir og
er húsið því um 10 cm of hátt sam-
kvæmt samþykktum uppdráttum.
Fram kemur í bréfinu að bygging-
arleyfishafa hafi verið gert að lækka
bygginguna um 10 cm og skila inn
nýrri og breyttri umsókn.
Ekki bindandi þar sem um
skýringarmynd er að ræða
Á skýringaruppdráttum sem
kynntir voru á sínum tíma með deili-
skipulaginu eru fjölbýlishúsið og
Suðurhlíðaskóli sýnd saman í mæli-
kvarða 1:1000. Af þeirri mynd má
lesa að þakmænir Suðurhlíðaskóla
nær í hálfa hæð 4. hæðar fjölbýlis-
hússins. Miðað við samþykkta aðal-
uppdrætti er myndin hins vegar óná-
kvæm og verður húsið í reynd 1,7 m
hærra en skýringarmyndin sýnir. Í
bréfinu segir að þarna hafi deili-
skipulagshöfundar gert mistök sem
embættið hafi ekki tekið eftir. Mynd-
in sé þó ekki bindandi þar sem um
skýringarmynd sé að ræða.
„Þetta er auðvitað afar slæmt og
hefur gefið þeim sem kynntu sér til-
löguna á kynningartíma hennar sem
og embættinu ranga mynd af hæð
hússins,“ segir enn fremur í bréfinu.
Hönnuðir boðaðir á
fund í næstu viku
Að sögn Ívars Pálssonar, hjá
skipulags- og byggingarsviði, var
málið kynnt á fundi skipulags- og
byggingarnefndar í vikunni og var í
framhaldinu ákveðið að boða hönn-
uði til fundar hjá skipulags- og bygg-
inganefnd í næstu viku þar sem þeir
munu gera grein fyrir því hvernig
þessi mistök áttu sér stað. Þá segir
hann að stefnt sé að því að skýra
málið með einhverjum hætti fyrir
íbúum svæðisins.
„Hér er um mannleg mistök að
ræða sem eru sem betur fer afar
sjaldgæf,“ segir Ívar Pálsson.
Fjölbýlishús í Suðurhlíð 38 er 1,7 metrum hærra en sam-
kvæmt skýringarmynd sem áður hafði verið útbúin
Málið verður kynnt
íbúum í hverfinu
Hlíðar
GRAFARVOGSDAGURINN verður
haldinn hátíðlegur á laugardaginn
með fjölbreyttri dagskrá víða um
hverfið. Í ár verður lögð áhersla á
að vekja Grafarvogsbúa til vit-
undar um sögu svæðisins en þótt
byggðin sé ung má rekja sögu
svæðisins allt aftur til landnáms-
mannsins Ketils gufu, að því er seg-
ir í tilkynningu frá aðstandendum.
Helgistund verður haldin á forn-
um kirkjureit Maríukirkjunnar í
Gufunesi þar sem þjónað verður
við altari gömlu Gufuneskirkj-
unnar.
Í Borgarholtsskóla verður opið
hús milli kl. 11 og 15, en þar munu
listamenn, félög og fyrirtæki í
Grafarvogi kynna starfsemi sína.
Grafarvogsskáldin Einar Már
Guðmundsson og Gyrðir Elíasson
lesa úr verkum sínum, harm-
onikusveit og skólahljómsveit spila,
svo fátt eitt sé nefnt.
Gleði- og glaumganga leggur
upp frá Spönginni um kl. 15. Geng-
ið verður undir stuðstjórn eldg-
leypa og ýmissa kynjavera úr Götu-
leikhúsinu Agon, en göngunni
lýkur við Gufunesbæ.
Við Gufunesbæ verður grillað,
sungið og dansað. Sýrupolkasveitin
Hringir leikur fyrir dansi og lýkur
hátíðinni með flugeldasýningu.
Grafarvogsdagurinn verður haldinn
í fimmta sinn um helgina
Morgunblaðið/Þorkell
Myndin var tekin á æfingu fyrr í vikunni þegar eldgleypar úr Borgarholtsskóla sýndu listir við Gufunesbæ.
Gleðiganga og eldgleyp-
ar á slóðum Ketils gufu
Grafarvogur
„MJÖG oft er fjallað um unglinga
á neikvæðan hátt,“ segir Kolbrún
Tara Friðriksdóttir og félagar
hennar úr efri bekkjum grunn-
skóla Reykjavíkur taka undir með
henni, þ.e. þau Lovísa Anna Finn-
björnsdóttir, Sigurbjörg Jóhanns-
dóttir, Lára Hafliðadóttir, Einar
Aðalsteinsson og Grétar Karl Ara-
son.
Þau tóku í gær öll þátt í verk-
efni sem ber heitið Unglingar
þinga ásamt um þrjátíu öðrum
unglingum úr grunnskólum
Reykjavíkur. Þátttakendurnir hitt-
ust í Gerðubergi í gærmorgun, en
þar hlýddu þeir á fyrirlestra, um
m.a. auglýsingar og fleira, tóku
þátt í hópvinnu og enduðu daginn
á pallborðsumræðum.
Markmið verkefnisins er m.a. að
hjálpa unglingunum að líta á sam-
félagið og umfjöllun í samfélaginu
um t.d. kynlíf, kynhegðun og
klámvæðingu gagnrýnum augum.
Þátttakendurnir eru allir í nem-
endaráðum grunnskólanna í
Reykjavík og er gert ráð fyrir því
að þeir segi félögum sínum frá því
sem rætt hafi verið um á þinginu í
Gerðubergi; hjálpi þeim að líta
gagnrýnum augum á samfélagið. Í
tilkynningu um verkefnið segir:
„Eitt af markmiðum verkefnisins
Unglingar þinga er að styrkja
unglingana í að hafa áhrif innan
jafningjahópsins í sínum skólum.“
Það sem þeim Einari, Grétari
Karli, Kolbrúnu, Lovísu, Sig-
urbjörgu og Láru var efst í huga
þegar Morgunblaðið ræddi við
þau í gær var hve miklir for-
dómar virtust vera í garð ung-
linga. Fjölmiðlar til dæmis fjalla
mjög oft um unglinga á neikvæð-
an hátt. Þessu vilja þau breyta;
þau minna á að stærstur hluti
unglinga er að fást við upp-
byggileg verkefni.
Þeir aðilar sem standa að verk-
efninu Unglingar þinga eru:
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur,
Menningarmiðstöðin Gerðubergi,
Íþrótta- og tómstundaráð Reykja-
víkur, Félagsþjónustan í Reykja-
vík, SAMFOK, Lögreglan í
Reykjavík, Neyðarmóttakan og
Landlæknisembættið.
Unglingar úr efri bekkjum grunnskóla Reykjavíkur þinga í Gerðubergi
Morgunblaðið/Sverrir
Unglingar þinguðu í Gerðubergi í gær. F.v.: Grétar Karl Arason, Einar
Aðalsteinsson, Kolbrún Tara Friðriksdóttir, Lovísa Anna Finnbjörns-
dóttir, Sigurbjörg Jóhannsdóttir og Lára Hafliðadóttir.
Of oft er fjallað um unglinga
á neikvæðan hátt að þeirra mati
Breiðholt
Í FRÍSTUNDABLAÐI Grafavogs,
sem dreift hefur verið inn á hvert
heimili í hverfinu, er að finna sam-
antekt á ensku. Að sögn Þráins Haf-
steinssonar, íþrótta- og tómstunda-
fulltrúa Miðgarðs, er þetta gert til að
koma til móts við börn og unglinga af
erlendu bergi brotin sem nýflutt eru
í hverfið. „Með þessu viljum við gera
þeim kleift að kynna sér hvað er í
boði í tómstundastarfinu og auka og
bæta þjónustu við nýbúa,“ segir Þrá-
inn. „Með útgáfunni viljum við
kynna jákvæða starfsemi fyrir sem
flestum.“
Frístundablaðið inniheldur upp-
lýsingar um íþrótta-, félags- og tóm-
stundastarf sem fram fer í Grafar-
vogi. Blaðið kemur nú út í fyrsta
skipti.
Í inngangi blaðsins segir að því sé
ætlað að bæta úr brýnni þörf fyrir
upplýsingar um tómstundastarf í
Grafarvogi yfir vetrartímann. Leitað
var eftir upplýsingum frá félögum,
stofnunum, fyrirtækjum og einstak-
lingum sem bjóða upp á frístunda-
starf í hverfinu.
Frístundablaði dreift á
hvert heimili í Grafarvogi
Samantekt
á ensku fyrir
nýbúa
Grafarvogur
BÆJARRÁÐ Mosfellsbæjar hefur
samþykkt að vísa til bæjarverkfræð-
ings til skoðunar athugasemdum frá
íbúa um að lýsingu verði komið fyrir
við hjóla- og göngustíg sem tengir
saman Mosfellsbæ og Reykjavík.
Að sögn Tryggva Jónssonar, bæj-
arverkfræðings í Mosfellsbæ,var
stígurinn sem um ræðir malbikaður í
fyrra en hann liggur að hluta fyrir
neðan svokallaðan Arnartanga,
Leirutanga og Holtahverfi og til-
heyrir að stofninum til eldri stíg sem
liggur um bæjarfélagið.
Í bréfi sem íbúi sendi bæjaryfir-
völdum er kvartað undan því að alla
lýsingu vanti við stíginn og er bent á
að það hljóti að vera skýlaus krafa að
stígurinn sé lýstur upp þar sem
börnum sé ætlað að nota hann vetr-
arlangt.
Að sögn Tryggva hefur engin
ákvörðun verið tekin varðandi lýs-
ingu við stíginn.
Göngustígur milli
Reykjavíkur og
Mosfellsbæjar
Kvartað
undan því
að lýsingu
vanti
Mosfellsbær
♦ ♦ ♦