Morgunblaðið - 14.09.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI
14 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
SKÓLASKRIFSTOFAN er eins
konar miðstöð fyrir skólastarfið á
Suðurlandi,“ segir Kristín Hreins-
dóttir, forstöðumaður skrifstofunn-
ar, sem er til húsa hjá Samtökum
sunnlenskra sveitarfélaga á Austur-
vegi 56 á Selfossi. Öll sveitarfélög á
Suðurlandi hafa fulla aðild að skrif-
stofunni nema tvö sem nýta hluta
þjónustunnar auk þess sem Vest-
mannaeyjar eru með eigin skrif-
stofu.
„Það er núna komin sex ára
reynsla á starfsemina og okkur
finnst að kominn sé tími til að festa
skrifstofuna enn frekar í sessi og
auka á sveigjanleika hennar til að
bregðast við nýjungum,“ segir
Kristín ennfremur og leggur
áherslu á að sveitarfélögin nýti sér
vel þá þjónustu skrifstofunnar sem í
boði er.
Starfsemi Skólaskrifstofu Suður-
lands tók við af Fræðsluskrifstofu
Suðurlands og starfar samkvæmt
stofnsamningi sem sveitarfélögin
gerðu um starfsemina. Kristín segir
starfsemina skiptast í sálfræðisvið,
kennsluráðgjöf og almennan hluta
sem er gagnasafn, endurmenntun
og ráðgjöf til skólanefnda og sveit-
arstjórna. Á skrifstofunni vinna sex
starfsmenn auk Kristínar, þrír sál-
fræðingar, tveir kennsluráðgjafar
og einn talkennsluráðgjafi.
Góð samvinna
„Þannig koma margir sérfræðing-
ar oft að sama málinu og það gerir
okkur sterk hérna hvað starfsmenn
vinna vel saman. Það er mikil teym-
isvinna þar sem fólkið vinnur saman
og kemur með mismunandi sjónar-
horn og reynslu að hverju máli sem
á þátt í að gera lausnina betri og
grundvallaðri. Þrátt fyrir þessa
samvinnu getur hver og einn verið
með sitt sérsvið svo sem varðandi
einelti, hagnýta atferlismótun og á
fjölskyldusviði.
Hver einasti skóli á Suðurlandi
hefur tengilið á skrifstofuna sem
þekkir vel til sinna skóla. Þetta
skapar að okkar mati gott trúnaðar-
traust sem byggist á góðum kynn-
um. Engu að síður er ákveðin fjar-
lægð milli aðila sem einnig er
nauðsynleg þegar veita á ráðgjöf,“
segir Kristín og leggur áherslu á að
það sé tvímælalaust styrkur skrif-
stofunnar að innan hennar hefur
skapast ákveðið og örvandi starfs-
umhverfi fyrir þá sérfræðinga sem
þar vinna, en það væri ekki fyrir
hendi ef á skrifstofunni væri ekki sú
fjölbreytni sem þar ríkir.
Vilja sinna leikskólunum betur
„Mér finnst við geta sinnt leik-
skólanum betur en við gerum, enda
skylda sveitarfélaganna hvað það
varðar skýr í lögum. Leikskólaráð-
gjafi yrði góð viðbót við sérfræð-
ingahópinn og leikskólarnir njóta
góðs af því. Leikskólaráðgjafinn
myndi þá hafa yfirsýn yfir alla leik-
skólana á Suðurlandi, veita ráðgjöf á
faglega sviðinu og varðandi rekst-
ur,“ segir Kristín sem hvatti sveit-
arstjórnarmenn á aðalfundi SASS
um mánaðamótin síðustu til þess að
auka þjónustu skrifstofunnar á sviði
leikskóla. „Þetta myndi hjálpa sveit-
arfélögunum að uppfylla lagalegar
skyldur sínar, efla samstarf leikskól-
anna og styrkja þá faglega. Full
ástæða er til að reyna að koma auga
á þau börn sem hugsanlega þurfa
aukna aðstoð sem allra fyrst, helst
áður en inn í grunnskólann er kom-
ið, og hefja markvisst starf með
þeim strax í leikskóla. Okkur á að
bera gæfa til að hlúa að því sem
reynst hefur vel. Skrifstofan hefur
reynst vel þau sex ár sem hún hefur
starfað og með því að efla hana
styrkjum við það sem hefur reynst
vel. Óhætt er að segja að þetta fyr-
irkomulag er að svínvirka,“ sagði
Kristín Hreinsdóttir, forstöðumaður
Skólaskrifstofu Suðurlands.
Skólaskrifstofan er
miðja skólastarfs
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Kristín Hreinsdóttir, forstöðumað-
ur Skólaskrifstofu Suðurlands.
Selfoss
LAUGARDAGINN 31. ágúst var
haldið upp á 10 ára afmæli sund-
laugar Stokkseyrar. Af því tilefni
ákváðu starfsmenn laugarinnar
að bjóða sundlaugargestum upp á
grillaðar pylsur og ís. SS bauð
upp á pylsurnar, Másbakarí pylsu-
brauðið og Kjörís bauð upp á ís-
inn.
Ágætis mæting var og komu
meðal annars 70 þýskir læknar
sem voru í kajakferð með ferða-
þjónustunni Suðurströnd á
Löngudæl, en sund er innifalið í
þeirra ferðum. Hafa sundlaugin
og Suðurströnd með sér gott sam-
starf og leggur Suðurströnd með-
al annars til einn starfsmann í
laugina yfir sumarmánuðina sam-
kvæmt samningi þar um.
Sundlaug Stokkseyrar 10 ára
Stokkseyri
Morgunblaðið/Gísli Gíslason
Börn njóta sín í vaðlauginni, en sundlaugin er orðin tíu ára.
ÓLAFUR Áki Ragnarsson, sem verið
hefur sveitarstjóri á Djúpavogi í sex-
tán ár, hefur tekið við starfi bæjar-
stjóra í Sveitarfélaginu Ölfusi. Hjör-
leifur Brynjólfsson, oddviti
bæjarstjórnar, afhenti honum lykla
að skrifstofum bæjarfélagsins til
merkis um að hann hefði tekið form-
lega við starfi.
Ólafur Áki fæddist á Djúpavogi
1955 og ólst þar upp. Hann er vél-
fræðingur að mennt, útskrifaðist úr
Vélskóla Íslands 1978 og lauk sveins-
prófi í vélvirkjun 1982.
Ólafur Áki stundaði sjómennsku
frá Reykjavík. Árið 1982 flutti hann
aftur til Djúpavogs og stundaði sjó-
mennsku þaðan.
Ólafur Áki er kvæntur Freyju
Friðbjarnardóttur, kennara og fyrr-
verandi skólastjóra á Djúpavogi, hún
starfar í dag hjá Rauða krossi Ís-
lands. Þau eiga þrjár dætur; Regínu,
22 ára, og 18 ára tvíbura, Rögnu og
Höllu. Fjölskyldan flutti til Danmerk-
ur og bjó þar í á annað ár frá 1984–
1986.
Árið 1986 var Ólafur Áki efstur á
lista óháðra við sveitarstjórnarkosn-
ingar á Djúpavogi og náði listinn
hreinum meirihluta, sem hann hefur
haldið síðan. Ólafur hefur þar til nú
starfað sem sveitarstjóri á Djúpavogi.
Ólafur sagði þegar hann tók við
starfinu að hann hefði fengið viku til
að kynnast starfinu og staðnum í
sumar og sér litist mjög vel á sig,
staðurinn væri aðlaðandi, íbúarnir
vingjarnlegir og samstarfsfólkið hefði
tekið sér vel þannig að hann hlakkaði
til að takast á við verkefnin framund-
an. Ólafur sagðist koma frá stað þar
sem aðhald hefði verið í peningamál-
um og bæjarfélagið ekki skuldsett, að
því leyti væru þessir tveir staðir
áþekkir. Hann sagði að þegar menn
hefðu verið sextán ár í svona starfi á
sama stað væri kominn tími til að
reyna eitthvað nýtt og því hefði hann
ákveðið að sækja um stöðu í Þorláks-
höfn þegar hann sá auglýsinguna.
Hann sagðist þakklátur fyrir það
traust sem sér hefði verið sýnt með
því að velja hann til starfsins, um-
sóknir um það voru fjörutíu.
Nýr bæjarstjóri tekur til starfa
Morgunblaðið/ Jón H. Sigurmundsson
Hjörleifur Brynjólfsson, oddviti
Sveitarfélagsins Ölfuss, afhend-
ir Ólafi Áka Ragnarssyni, ný-
ráðnum bæjarstjóra, lyklana að
skrifstofum bæjarins.
Ölfus
ÍSLANDSBANKI tekur við rekstri
innlánsdeildar Kaupfélags Eyfirð-
inga í næstu viku, eða 20. september.
Samkomulag þessa efnis var undir-
ritað í gær milli KEA, Kaldbaks og
Íslandsbanka.
Ingi Björnsson, útibússtjóri Ís-
landsbanka á Akureyri, sagði að við-
skiptavinum innlánadeildar KEA
yrði boðið að koma og nýta sér þjón-
ustu bankans, en þeir hafa frest til að
gera upp hug sinn til 1. febrúar
næstkomandi. Alls eru um 1.110 við-
skiptavinir hjá innlánsdeild KEA nú
og nemur innstæða þeirra um 470
milljónum króna. „Ég vona að sem
flestir eigendur sparifjár í innláns-
deildinni muni þiggja okkar boð,“
sagði Ingi. Í samkomulaginu kemur
fram að Íslandsbanki muni bjóða
eigendum innlánanna sambærileg
kjör og þeir hafa notið hjá KEA.
Benedikt Sigurðarson, stjórnar-
formaður Kaldbaks, sagði að inn-
lánastarfsemi hefði í um 90 ára skeið
verið mikilvægur hluti af starfsemi
KEA, en þess konar starfsemi væri
ekki lengur í takt við hlutverk félags-
ins. „Bankastarfsemi er ekki lengur
hluti af okkar starfsemi,“ sagði
Benedikt.
Starfsemi Íslandsbanka á Akur-
eyri er umfangsmikil og hefur vaxið
umtalsvert á síðustu árum. Bankinn
rekur útibú á tveimur stöðum, í
Skipagötu og Hrísalundi, en veitt er
alhliða bankaþjónusta fyrir einstak-
linga, fyrirtæki og félög, s.s. inn- og
útlánastarfsemi, verðbréfaviðskipti,
gjaldeyrisviðskipti, fjárfestingalán
og fleira. Jafnframt því sem fulltrúar
Íslandsbanka, KEA og Kaldbaks rit-
uðu undir umrætt samkomulag hafa
Íslandsbanki og Kaldbakur einnig
gert með sér samning um langtíma-
lán.
Morgunblaðið/Kristján
Samningur Íslandsbanka og KEA undirritaður, f.v. Jón Þórisson, Ingi
Björnsson, Benedikt Sigurðarson og Halldór Jóhannsson.
Íslandsbanki
tekur við inn-
lánsdeildinni
ÞAÐ verður mikið um að vera hjá
knattspyrnumönnum Þórs næstu
daga en þrír flokkar félagsins eru að
fara spila úrslitaleiki á Íslandsmóti og
í bikarkeppni, í dag, laugardag, á
morgun, sunnudag, og á mánudag.
Fimmti flokkur Þórs leikur til úrslita
um Íslandsmeistaratitilinn gegn
Breiðabliki í dag í Kópavogi, meist-
araflokkur félagsins leikur gegn
Grindavík í Símadeildinni á morgun á
Akureyrarvelli og annar flokkur leik-
ur til úrslita í bikarkeppni KSÍ á
mánudag, gegn KR á Akureyrarvelli.
Í fimmta flokki mætast bæði A- og
B-lið Þórs og Breiðabliks en í þeirri
baráttu ræður sameiginlegur árang-
ur úrslitum, þar sem 2 stig fást fyrir
sigur í B-liðum en 3 stig fyrir sigur í
A-liðum. Leikirnir fara fram á Kópa-
vogsvelli og hefst leikur B-liðanna kl.
12.00 í dag en leikur A-liðanna kl.
12.50. Þetta mun vera í fyrsta skipti
sem Þór leikur til úrslita um Íslands-
meistaratitilinn í þessum aldurs-
flokki.
Úrvalsdeildarlið Þórs mætir liði
Grindavíkur í Símadeildinni á morg-
un á Akureyrarvelli kl. 14.00 og er
þarna um úrslitaleik að ræða fyrir
Þór. Með sigri á liðið enn möguleika á
að halda sæti sínu í deildinni, svo
framarlega sem öðrum liðum í botn-
baráttunni hlekkist á. Tapi Þórsarar
leiknum eru þeir fallnir í 1. deild.
Annar flokkur Þórs mætir KR í úr-
slitum bikarkeppni KSÍ og fer leik-
urinn fram á Akureyrarvelli á mánu-
dag kl. 17.15. Leikið verður um
farandbikar sem verið hefur í gangi
frá því keppnin fór fyrst fram árið
1964. Þórsarar hafa aldrei leikið til
úrslita í þessum aldursflokki en KR-
ingar hafa þrisvar hampað bikarnum,
síðast 1988.
Lokabarátta á knattspyrnumótunum
Þrír flokkar
Þórs í eldlínunni
ÞRÍR kórar starfa við Akureyrar-
kirkju og taka virkan þátt í helgihald-
inu auk þess að koma fram á tónleik-
um.
Inntökupróf fyrir Kór Akureyrar-
kirkju verður 16. september, kl. 17–
19, en Björn Steinar Sólbergsson gef-
ur nánari upplýsingar. Vetrarstarf
Barnakórs Akureyrarkirkju hefst 19.
september. Inntaka nýrra félaga
verður kl. 15.30 í Safnaðarheimili.
Börn á aldrinum 8–11 ára eru velkom-
in. Nánari upplýsingar gefur stjórn-
andi kórsins, Petra Björk Pálsdóttir.
Unglingakór Akureyrarkirkju hefur
sína starfsemi sama dag. Inntaka
nýrra félaga verður kl. 16.30 í Safn-
aðarheimili. Stjórnandi kórsins í vet-
ur verður Eyþór Ingi Jónsson.
Kórar við
Akureyrarkirkju
Vetrar-
starfið hefst
♦ ♦ ♦