Morgunblaðið - 14.09.2002, Qupperneq 18
Sumarblíða í Skaftholtsréttum
MENN voru léttklæddir í blíðviðr-
inu í Skaftholtstréttum í Gnúp-
verjahreppi í gær enda fór hitinn
hátt í tuttugu stig um hádaginn.
Bændur í hreppnum muna vart
aðra eins blíðu og svitinn bogaði af
þeim sem harðast gengu fram við
að draga féð í dilka á meðan
skyldulið og gestir nutu veðurblíð-
unnar á réttarveggjunum og létu
fleyga og sögur ganga.
Ungviðið var hins vegar upptekn-
ara af ferfætlingunum, bæði innan
og utan réttar. Og allt fór fram í
spekt og gleði enda hefur ekki ver-
ið slegist í Skaftholtsréttum í meira
en tuttugu ár að sögn kunnugra.
Engin hætta á að
menn verði innkulsa
„Ég hef aldrei áður verið í svona
góðu veðri hér, þetta er óvenjulegt.
Menn verða ekki innkulsa þótt þeir
fái sér of mikið neðan í því og deyi
úti undir vegg,“ sagði Bjarni Ein-
arsson, fyrrum oddviti og bóndi á
Hæli, en hann var um ríflega
tveggja áratuga skeið réttarstjóri í
Skaftholtsréttum, síðast í fyrra.
„Ég á engar skepnur lengur og er
því algerlega áhrifalaus. Dóttir mín
og tengdasonur hafa tekið við af
mér, ætli þau séu ekki með um 250
fjár af fjalli núna. Jú, það er alltaf
færra og færra fé, ætli hér sé ekki
rekið að um fimm þúsund fjár því
við fáum að draga úr austurleitinni
svokallaðri eða Skeiðasafninu, ætli
séu ekki svona 2.500 fjár í hvoru
safni.
En það kemur fleira og fleira fólk
þannig að þetta er engan veginn al-
slæmt. Fyrir tveimur áratugum var
þetta allt öðruvísi og féð hefur þá
verið hátt í þrisvar sinnum fleira.
Stærsta búið nú í Gnúpverjahreppi
er kannski með svona hátt í 300 ær.
Sauðfjárbúskapur er eiginlega
hvergi aðalatvinnugreinin hjá
mönnum.“
Elstu réttir sem vitað er um
Bjarni segir meðalaldur bænda í
sveitinni vera frekar lágan þannig
að búskapur sé fráleitt að leggjast
af. „Hér er mjög öflugur kúabú-
skapur. Ég efast um að það sé að
finna nokkurs staðar í annarri sveit
eins marga unga kúabændur sem
hafa byggt eins mikið upp og hér.
Þeir spjara sig bara vel sýnist mér.“
Bjarni segir Skaftholtsréttir vera
elstu réttir á Íslandi, sem vitað sé
um, þ.e. elsta réttarstæðið. „Það er
vitað að hérna var réttað á tólftu
öld. Réttirnir voru miklu stærri,
það er búið að teikna þetta upp. Allt
hérna megin Hvítár var réttað
hérna á sínum tíma. En réttirnar
hrundu í skjálftanum í fyrra og það
er búið að hlaða upp aftur en bara
innri hringinn.“
Meira rekið af þrjósku en viti
Eiríkur Eiríksson, bóndi í Sand-
lækjarkoti, var að búa sig undir að
draga í sinn dilk. Hann segist vera
með aðeins fleira fé en í fyrra, eða
um hundrað kindur og hann ætli
ekki að fækka sínu fé en reyni
svona að halda í horfinu.
Eiríkur segir að raunar hafi ver-
ið svipað margt fé í Skaftholts-
réttum undanfarin ár en það verði
væntanlega einhver fækkun nú.
„Þetta er nú meira rekið af þrjósku
en viti núorðið.
Aukabúgrein? Þetta er nú dálítið
erfið spurning. Menn geta komist
allra sinna leiða á Trabant en sætta
sig ekki við það ef þeir vilja vera á
dýrum Benz. En þau eru orðin fá
búin hér þar sem sauðfjárræktin er
aðalatvinnugreinin.“
Eiríkur segist telja svipað margt
af fólki við réttirnar nú, því fjölgi
þó frekar en fækki. „Ég er fæddur
hérna þannig að ég hef komið í
þessa rétt frá því elstu menn núlif-
andi muna. Það er alls konar fólk
sem kemur hingað, vinir og vensla-
fólk.“
Færi ekki félaus í réttirnar
Eiríkur segist ekki myndu fara í
réttir ef hann ætti ekki kindur.
„Það er alveg á hreinu, mér fyndist
það svo tilgangslaust. Ég hugsa að
ég færi bara upp á Heklu og yrði
þar þann daginn. Ég myndi gera
það að árlegum réttardegi að vera
á Heklu. Annars er náttúrlega rétt-
arball í Árnesi í kvöld og á Hesta-
kránni á laugardagskvöldið. Rétt-
arböll hafa verið haldin hér á
hverju ári í áratugi, það er líklega
talið í mannsöldrum samanber
Skeiðaréttarballið forðum daga
sem haldið var nóttina fyrir rétt-
irnar. Ég veit ekki betur en sýslu-
mannsembættið hafi gengist fyrir
því að það yrði lagt niður.
Nei, það gekk ekkert illa að
draga, það var ýmislegt annað sem
ekki var ætlast til að fólk væri að
gera í réttunum sem skilaði sér eft-
ir ákveðinn tíma.“
Eiríkur segir að menn hafi vissu-
lega áður fengið prýðisdaga í rétt-
unum. „En það er óvenju hlýtt
núna. Það er búið að vera svona
veður síðustu fjóra daga eða allt
upp 18 stiga hita og þurrt að mestu
leyti. Það er óskapar blíða núna.
Þetta hlýtur að boða eldgos eða
eitthvað, það er svo gott veður.“
Það var tilkomumikil sjón þegar féð rann inn í réttina enda mikill fjöldi á ferð.
Morgunblaðið /RAX
Menn voru léttklæddir í blíðviðrinu og sumir höfðu brjóstbirtu við hönd.
Gnúpverjahreppur
Laust eftir hádegi hófu menn upp raust sína eins og alsiða er í réttunum.
LANDIÐ
18 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ