Morgunblaðið - 14.09.2002, Qupperneq 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 31
Myndlistarsýningar
Sýningar á verkum
Messíönu Tómasdóttur og
Rúnu Gísladóttur
í Húsi málaranna Eiðistorgi, Seltjarnarnesi standa nú yfir.
Opið er fimmtudaga - sunnudaga
til 22. september frá kl. 14.00 - 18.00.
Menningarnefnd Seltjarnarness
galleri@hlemmur.is
Sýningu Jóns Sæmundar
Auðarsonar lýkur á sunnudag.
Verkið ber titilinn „holan mín“
og samanstendur af innsetn-
ingu og myndbandsverki.
Galleríið er opið fimmtudaga
til sunnudags, kl. 14-18.
ReykjavíkurAkademían,
Hringbraut 121
Sýningunni Óður til líkam-
ans lýkur á sunnudag. Þar eiga
verk 32 ungir listarmenn.
Opið er frá kl. 13-17.
Sýningalok
Gallerí nema hvað, Skólavörðu-
stíg 22c Málverkasýningin „Stæl-
ar“ verður opnuð kl 17. Yfirskriftin
fríar listamennina af allri ábyrgð um
innihald hennar.
Listamennirnir eru Árni Bartels,
Davíð Örn Halldórsson, Guðmundur
Thoroddsen og Ragnar Jónasson.
Sýningin stendur til 22. september
og er opin kl. 14–18 alla daga nema á
morgun, en þá er lokað.
Í DAG
„ÞAÐ er næsta algengt, að deilur fari
úr böndunum og málin snúist þá um
aukaatriði. Af þeim sökum tel ég,
undirritaður, nauðsynlegt að undir-
strika eftirfarandi atriði, sem voru
grundvöllur þess að ég
sagði mig úr STEFi,
Tónskáldafélaginu og
Tónverkamiðstöðinni.
Í bréfasafni mínu er
bréf, dagsett 17. júní
1997, sem ég sendi Ei-
ríki Tómassyni, fram-
kvæmdastjóra STEFs,
þar sem ég legg fram
beiðni til STEFs, um að
félagið hlutist til um að
réttur minn sé virtur og
þar tilgreini ég þrjú er-
lend fyrirtæki, eitt kvik-
myndafélag og tvö
hljómplötufyrirtæki,
sem hafi án míns leyfis
notað tónverk eftir mig
og jafnvel endurútsett mína gerð
þess.
Í framhaldi af fyrirspurnum
STEFs og NCB (Nordisk Copyright
Bureau) í Kaupmannahöfn bárust tvö
bréf til mín, frá öðru hljómplötufyr-
irtækinu, það fyrra dagsett 6. júní og
það síðara 9. september 1998, þar sem
fram kemur vilji til að leysa málið
með samningum og þar vísað til
þeirra manna, sem málið varðar. Af-
riti af báðum þessum bréfum var
komið til STEFs, með ósk um að
leysa þetta mál með samningum.
Þrátt fyrir margítrekaðar fyrir-
spurnir af minni hálfu, var ekki haft
samband við tilgreinda aðila en ein-
hver bréfaskipti voru í gangi á milli
skrifstofu STEFs og NCB í Kaup-
mannahöfn en án sjáanlegs árangurs.
Þegar svo hafði gengið fram til ára-
mótanna 2000 og Eiríkur Tómasson,
framkvæmdastjóri STEFs, hafði
neitað mér um aðstoð við að sækja
þetta mál eða að fá erlenda lögfræð-
inga til að sækja það, sem hann taldi
að yrði allt of kostnaðarsamt og að
umrædd hljómplötufyrirtæki væru
ofjarlar STEFs, ákvað ég að reyna
fyrir mér upp á eigin spýtur, án af-
skipta STEFs. Ég náði símasam-
bandi við enska STEF (The Perform-
ing Right Society, hér nefnt PRS) og
þar var mér tjáð, að félagar í PRS
fengju ókeypis lögfræðiaðstoð í slík-
um málum en þar sem því var ekki til
að dreifa í mínu tilfelli, sendu þeir
mér í bréfi, dagsettu 29. febrúar 2000,
lista yfir lögfræðinga, sem eru sér-
fræðingar í höfundarréttarmálum.
Af þessum lista valdi ég einn lög-
mann og eftir endalausar bréfasend-
ingar, símtöl og skýrslugerðir, sem
ýmist þurfti að þýða á ensku og
frönsku, með ærnum tilkostnaði, var
rúmu ári síðar, eða 28. apríl. 2001,
undirritað samkomulag á milli aðila,
þar sem eignarréttur minn var að
fullu viðurkenndur. Málinu, við bæði
hljómplötuútgáfufyrirtækin, var svo
að fullu lokið 3. nóvember 2001.
Tregða þessara aðila í upphafi, sem
var rökstudd í langri greinargerð,
með því að vitna til viljayfirlýsingar
um samninga, með bréfunum frá 1998
og þar sem ekki hafði verið haft sam-
band af hálfu STEFs í nærri tvö ár,
höfðu þeir talið að málið væri úr sög-
unni.
Þar sem mér hafði tekist, með frá-
bærri aðstoð enska lögmannsins, að
ná fram rétti mínum án aðstoðar
STEFs, sem hefði í raun átt að hafa
frumkvæði um að sækja þetta mál,
jafnvel án minna afskipta, eða að
minnsta kosti standa að baki mér,
sem hefði gert stöðu
mína sterkari, komst
ég að þeirri niðurstöðu,
að til lítils væri að vera
félagi í svo gagnslausu
fyrirtæki sem STEF
hafði reynst mér.
Formaður Tón-
skáldafélagsins, Kjart-
an Ólafsson tónskáld,
taldi mig, í viðtali við
Morgunblaðið 11. sept.
sl., hafa verið óþolin-
móðan og má hann hafa
þá skoðun, en að fría
sig ábyrgð á framkomu
STEFs, gengur ekki,
því hann hefur ýmist
setið í formennskusæti
eða verið varaformaður í stjórn
STEFs, á móti fulltrúa tónskálda og
textahöfunda, Magnúsi Kjartanssyni.
Samkvæmt öllum venjum taka
stjórnir fyrirtækja allar ákvarðanir
og felur framkvæmdastjóra að fram-
fylgja vilja stjórnarinnar. Fyrir þá
sök eru Kjartan og Magnús ábyrgir
fyrir hönd STEFs, sem á, umfram
það að vera innheimtufyrirtæki, að
gæta réttar tónskálda og eigenda
flutningsréttar í hvívetna.
Það sem er aðalatriði þessa máls,
er að ég sótti rétt minn án aðstoðar
STEFs og í framhaldi af þeirri vinnu,
ákvað ég að segja mig úr fyrrnefnd-
um félögum, þ.e. STEFi, Tónskálda-
félagi Íslands og Íslenskri tónverka-
miðstöð.
Reykjavík 12. september, 2002.
Jón Ásgeirsson.“
Að gefnu
tilefni
Yfirlýsing vegna
úrsagnar undir-
ritaðs úr STEFi
Jón Ásgeirsson
BÍLL, rúm og þræddur kjallari er
viðfangsefni listamannanna Kimmo
Schroderus og Charlottu Mickels-
son sem opna sýningu í Gallerí
Skugga í dag kl. 17. Á jarðhæð, í
aðalsal og bakatil, sýnir Kimmo
skúlptúra sem bera yfirskriftina
„Tilfinningar“. Þar er annars vegar
um að ræða verkið Sweet Dreams,
járnslegið rúm með klæðningu, og
hins vegar skúplptúrinn If not
Today, then Tomorrow en þar
leggur Kimmo út frá skandinavíska
draumabílnum Volvo PV 544, 62 ár-
gerð. Verkin hefur Kimmo sýnt áð-
ur á stærri sýningum, en þetta er í
fyrsta sinn sem þessi verk eru sýnd
ein saman, en bæði fela þau í sér
járnslegna umgjörð um drauma og
tilfinningar.
Charlotte nefnir verk sitt í kjall-
ara gallerísins Kjallari, en þar um-
breytir hún rýminu með gagn-
sæjum gúmmíþráðum. Í Klefa
gallerísins hefur Charlotte einnig
unnið verk sem varð óvænt til í
samhengi við rýmið.
Kimmo Schroderus býr og starf-
ar í Helsinki í Finnlandi. Hann lauk
meistaragráðu við Listaakadem-
íuna í Helsinki árið 1998. Hann hef-
ur þó starfað að list sinni frá árinu
1989 og hefur haldið fjölda einka-
sýninga og tekið þátt í samsýn-
ingum.
Kimmo vinnur fyrst og fremst
með skúlptúrformið, og fjallar
hann þar um og ögrar viðteknum
viðhorfum til þess sem „karllegt“
og „kvenlegt“ telst í listum.
Í verkunum sem Kimmo sýnir í
Skugga eru umfangsmiklir og járn-
steyptir skúlptúrarnir að mynd-
hverfingum fyrir tilfinningalíf
manneskjunnar. Charlotta Mickels-
son starfar í Stokkhólmi en hún
lauk námi við Listháskólann þar í
borg árið 1999. Hún hefur haldið
sýningar í galleríum og listastofn-
unum á Norðurlöndum og í Þýska-
landi.
Í verkum sínum vinnur hún með
afmörkuð rými, og leitast við að
skapa rof í skynjun áhorfandans
með hárfínum innsetningum, sem
virka á sjónræna skynjun hans.
Sýningin stendur til 29. október
og er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13-17. Aðgangur er
ókeypis.
Járnslegin
umgjörð um
drauma og
tilfinningar
Morgunblaðið/Þorkell
Kimmo Schroderus í verki sínu sem er járnslegið rúm með klæðningu.
MÁLÞING um Halldór Lax-
ness verður haldið í Háskólan-
um í London í dag og er þingið
þegar fullbók-
að með 95
gestum. Þor-
steinn Pálsson
sendiherra
setur þingið en
erindi flytja
Halldór Guð-
mundsson,
Ástráður Ey-
steinsson,
Svanhildur
Óskarsdóttir, Magnús Magnús-
son, Joe Allard, Christopher
MacLehose og Ásta Sighvats
Ólafsdóttir. Það er Skandinav-
íudeild háskólans sem stendur
fyrir þinginu ásamt sendiráði
Íslands í London og er þingið
styrkt af Sjóði Egils Skalla-
grímssonar.
Málþing um
Laxness í
London
Halldór
Laxness
SPÆNSK kvikmyndahátíð stendur
nú yfir í Regnboganum. Morg-
unblaðið kynnir hér sex myndanna
sem þar eru sýndar.
Jóhanna brjálaða
Jóhanna brjálaða (Juana la Loca) er
eftir Vicente Aranda. Sögusviðið er
Laredo 1496. Floti yfirgefur höfn-
ina með stefnuna á Flandur. Til-
gangurinn er að færa prinsessuna
Jóhönnu til hirðarinnar í Brussel,
þar sem hún mun giftast þeim sem
seinna verður kallaður Filippus
hinn fagri. Þeirra fyrstu kynni eru
rafmögnuð. Milli þeirra kviknar
þrá og aðdáun sem verður til þess
að þau gleyma skyldum sínum. Hins
vegar hafa örlaganornirnar spunn-
ið annan vef. Byggð á sönnum at-
burðum.
Aðalhlutverk: Pilar López de
Ayala, Daniele Liotti og Manuela
Arcuri.
Sýnd: 14.9, 16.9, 18.9, 21.9.
Apar eins og Becky
Apar eins og Becky (Monos Como
Becky) er í leikstjórn Joaquíns
Jordá og Núríu Villazán. Fyrir sjö-
tíu árum var portúgalski tauga-
sérfræðingurinn Egas Moniz stadd-
ur á sálfræðiráðstefnu í Lundúnum.
Þar kynnti bandarískur líffræð-
ingur skemmtilegan apa að nafni
Becky og sýndi myndbandsupptöku
af sama dýri, þar sem það hagaði
sér eins og óargadýr. Líffræðing-
urinn útskýrði fyrir skelkuðum ráð-
stefnugestum að hann hefði fjar-
lægt svokallaðan miðgeira úr heila
apans og við það hefði villidýrið
breyst í meinlausa skepnu. Prófess-
or Egas sneri heim til Portúgal
staðráðinn í að beita þessari aðferð
til að lækna geðklofa sjúklinga.
Aðalhlutverk: Joao Maria Pinto
og Marian Varela.
Sýnd: 15.9, 17.9, 19.9, 20.9.
Byggt upp á nýtt
Byggt upp á nýtt (En Construción)
er eftir José Luis Guerin. Gripið er
niður í líf íbúa í blokkahverfi.
Ákveðið er að byggja eina blokkina
enn á svæði sem börnin í hverfinu
spila fótbolta á. Fylgst er með því
hvaða áhrif þessar framkvæmdir
hafa, bæði á landslag og mannlíf.
Helstu hlutverk: Juana Todrígu-
ez, Iván Guzman, Juan López og
Antonio Atar.
Sýnd: 14.9, 16.9, 17.9, 21.9.
Smitaður
Smitaður (Positivo) er eftir Pilar
García Elegido. Myndin lýsir til-
finningum manns sem uppgötvar
að hann er sýktur af alnæmi.
Smitaður er 30 mínútur að lengd
en jafnframt verða sýndar stutt-
myndir í boði spænska kvikmynda-
sjóðsins.
Sýnd: 14.9, 18.9, 20.9.
Elskhugar við heimskautsbaug
Elskhugar við heimskautsbaug
(Los Amantes del Círculo Polar) er
gerð af Julio Medem. Frá átta ára
aldri hafa leiðir Önnu og Ottós leg-
ið saman.
Ferðalagið tekur svo óvænta
stefnu mörgum árum síðar við
heimskautsbaug.
Aðalleikendur: Najwa Nimri og
Fele Martínez.
Sýnd: 15.9, 17.9, 20.9, 21.9.
Pau og bróðir hans
Pau og bróðir hans (Pau I El Seu
Germá) er eftir Marc Recha. Álex
sem vinnur í Barselónu ákveður
einn daginn að halda til Pýrenea-
fjalla. Þegar móðir hans og Pau
bróðir hans fá fréttir um að hann
hafi fyrirfarið sér, fara þau í þorpið
sem hann bjó í til að afla upplýs-
inga.
Við það opnast heimur Álex fyrir
þeim á annan hátt en þau bjuggust
við. Helstu hlutverk: David Selvas,
Nathalie Boutefeu, Marieta Orozco.
Sýnd: 15.9, 17.9, 18.9.
Spænsk kvikmyndahátíð í Regnboganum
Stilltur api,
þrá, fram-
kvæmdir og
alnæmi
Úr kvikmyndinni Jóhanna brjálaða.