Morgunblaðið - 14.09.2002, Qupperneq 40
UMRÆÐAN
40 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Magnea J. Matthías-dóttir, rithöfundur ogþýðandi meðal annars,sendi þættinum eft-
irfarandi bréf:
„Það er mikið tilfinningamál,
þetta með kanínurnar í Öskjuhlíð-
inni, að ég nefni ekki þegar þær ráð-
ast inní kirkjugarðinn. Kannski eru
þar líka andar á sveimi og setjast í
dýrin og gera þau mennskari, a.m.k.
skrifaði „Lesandi“ í Velvakanda
18.08.02 „… en sá nýverið kanínu
látna í hlíðinni …“ Það má mikið
vera, að kanínur séu „yndisleg dýr,
sem auðga annars fátæklega flóru
dýra hér á landi“ (hefði samt frekar
haldið að það væri faun-an) og sæti
sama „ofstæki og hefur stundum
borið á gegn lúpínunni og öspinni“.
En hver er hér að skrifa? Er þetta
einhver sem sat ekki í réttum tím-
um í dýra/grasafræði? Heldur
sumsé að allt utan stofuveggjanna
séu plöntur? Eða sannur dýravinur
sem sér mennska eiginleika í öllu
sem skríður á jörðinni, hvort sem
það eru kanínur, lúpína eða ösp, og
sér kannski „örendar“ plöntur í
garðinum sínum á haustin? Að vísu
man ég eftir „dýraharmleik“ þegar
„vanfærar hreinkýr fórust“ í Mogg-
anum mínum hér um árið. En einu
sinni voru dýr nú bara dauð þegar
þau voru dauð.“
Umsjónarmaður þakkar Magneu
bréfið og tekur heils hugar undir at-
hugasemdir hennar. Því má bæta
við að Árni heitinn Böðvarsson seg-
ir í bók sinni Íslenskt málfar:
„deyja, andast, látast er sagt um
fólk, einnig gefa upp andann (önd-
ina). Þessi orð eru hins vegar ekki
við hæfi í máli fullorðinna um dýr.
Um þau er sagt drepast og fylgir
því engin óvirðing.“ Hann hefur
ekki kunnað að meta einfalt mál, sá
sem komst svo að orði um nokkrar
bröndur sem drápust í fúlum pytti í
Brasilíu: „Þar atvikuðust mörg
fiskandlát.“
– – –
Fyrir nokkru var í þessum dálk-
um fjallað um það hvernig sögnin
látast í merkingunni deyja væri
smám saman að ryðja burt öðrum
sögnum og orðasamböndum sömu
eða svipaðrar merkingar. Líkt er
farið um sögnina slasast og lýsing-
arorðið slasaður. Fólk slasast í
slysi og slasaður er sá sem orðið
hefur fyrir slysi. Því er undarlegt
að sjá fyrirsögn sem þessa: „Tugir
manna slasaðir eftir slagsmál“ –
ætli þeir hafi ekki verið meiddir,
auk þess sem orðin áflog, átök eða
handalögmál, jafnvel ryskingar,
eru á bókum tal-
in betri íslenska
en slagsmál.
„Maður vopn-
aður hnífi réðst
til atlögu við
börn á leikskóla
… og slasaði
tíu,“ stóð í
Morgunblaðinu
fyrir skömmu. Það mun vera
sönnu nær að árásarmaðurinn hafi
sært tíu og þeir verið sárir eða
særðir eftir. Nema atlagan hafi
verið slys, sem er hæpið.
Hér sem annars staðar verður
ekki ofbrýnt fyrir mönnum, allra
síst þeim sem vinna á fjölmiðlum,
að nýta blæbrigði málsins í þágu
auðugra tungutaks og fjölskrúð-
ugri stíls. Orðafátækt af því tagi,
sem lýsir sér í sífelldri notkun áð-
urnefndra orða, rýrir málið smám
saman. Til verður vítahringur –
fjölmiðlar staglast stöðugt á sömu
orðunum og hver étur upp eftir
öðrum, þeir sem hlusta á fjölmiðla
eða lesa þá gefa sig smám saman
þessari einhæfni á vald og þegar
þeir koma síðan til starfa við sjón-
varp, útvarp eða blöð lokast hring-
urinn. Virkur orðaforði málsins er
orðinn fátæklegri og ýmis góð og
gild orð ekki öðrum töm en örfáum
sérvitringum og skringimönnum.
Það er miður.
– – –
Ungur var eg forðum,
fór eg einn saman,
þá varð eg villur vega
segir í Hávamálum. Fara villur
vega eða vegar er vel þekkt orðtak
í íslensku máli og mikið notað í
ræðu og riti, meðal annars í fjöl-
miðlum. Villur er hér lýsingarorð,
hefur sömu merkingu og villtur, og
því fer karlmaður villur vegar,
kona vill vegar og barn villt vegar,
til dæmis ef þau villast af þröngum
vegi dyggðarinnar – já, eða gana
bara stefnulaust út í bláinn.
Svo virðist sem fjölmargir geri
sér ekki grein fyrir orðflokknum í
þessu samhengi og haldi að villur
sé fleirtala af kvenkynsnafnorðinu
villa. Þeir segja því eða skrifa eitt-
hvað í líkingu við: „Ég held að
megnið af þessu unga fólki hafi nú
gert sér grein fyrir því að það fór
villur vegar.“ Hér ætti auðvitað að
standa villt í stað villur, lýsing-
arorðið lagar sig að orðinu sem það
stendur með, í þessu tilviki það.
„Þá komum við að því hve fjöl-
miðlar heimsins hafa farið alveg
ótrúlega villur vegar í fréttaflutn-
ingi.“ Hér væri villir rétt, fjöl-
miðlar hafa farið villir vegar.
Ef einhver er í vafa um hvernig
orðið beygist gæti gagnast að setja
lýsingarorðið illur í staðinn, það
beygist eins og villur. Röng notk-
un orðtaka er miðlungi góður vitn-
isburður um vandvirkni.
– – –
Úr dagbók lögreglunnar –
Þann vetur voru stuldir miklir á
Reykjahólum. Hurfu mönnum
gripir margir úr hirslum og var
svo mikill gangur að því að nálega
úr hvers manns hirslum hvarf
nokkuð hversu rammlegur lás sem
fyrir var en þó var engi lás brotinn.
[Fóstbræðra saga.]
Virkur orða-
forði málsins er
orðinn fátæk-
legri og ýmis
orð ekki öðrum
töm en örfáum
sérvitringum
keg@mbl.is
ÍSLENSKT MÁL
Eftir Karl Emil Gunnarsson
ÉG hef rætt við
margar konur um
fyrstu kynlífsreynsl-
una þeirra og komist
að því að fyrir mjög
margar konur var það
óþægileg lífsreynsla
sem hefur jafnvel áhrif
á kynlíf og líf þeirra
mörgum árum seinna.
Fyrir margar vegna
þess að þær voru of
ungar eða vegna þess
að þær voru ekki að
hlusta á sig sjálfar,
voru að láta undan
þrýstingi, vegna þess
að þær þekktu ekki
sjálfar sig nóg eða vissu ekki hvar
mörkin lágu.
Píkusögur
Leikritið Píkusögur hefur verið
mjög vinsælt og sýnir þörfina fyrir
umræðu um hin margvíslegu „tabú“
sem snúa að konum og kynferði
kvenna. Við þráum að heyra talað op-
inskátt um það sem aldrei mátti segja
upphátt áður. Og þessi hlátur sem því
fylgir að segja fyndnar sögur sem
tengjast kynferði kvenna er hlátur
feginleika, hlátur sem losar um eitt-
hvað ævagamalt og
hrærir við því dýpsta í
okkur. Að minnsta
kosti var það þannig
með mig þegar ég fór
að sjá Píkusögur. Hlát-
urinn kom neðan úr
maga og beint út úr
hjartanu. Hann kom
neðan frá og leitaði
upp. Og hann leysti
upp aldagömul höft
sem héldu einhverju í
skorðum sem átti ekki
að vera í skorðum. Mig
langaði að gráta og
hlæja á sama tíma og
ég gekk út full af orku.
Selakonan og sálin
Margir þekkja söguna um sela-
konuna sem kastaði af sér selshamn-
um á Jónsmessunótt til að dansa í
konulíki. Selurinn hefur löngum haft
yfir sér þennan töfrablæ og sagt er að
selurinn hafi mannsaugu. Selurinn er
í sögum oft tákn fyrir sálina. Konan í
sögunni gleymdi sér í dansinum og
gáði ekki að sér fyrr en búið var að
stela af henni selshamnum. Clarissa
Pinkola Estés túlkar þessa sögu í bók
sinni Konur sem hlaupa með úlfum á
þann hátt að sagan fær enn meiri
dýpt. Í hennar umfjöllun er þetta sag-
an um konuna sem lét stela frá sér
sálinni. Hún gleymdi sér í villtum
dansi, og gáði ekki að sér fyrr en það
var um seinan. Konan í selshamnum
er þannig tákn fyrir hina heilsteyptu
konu sem er í snertingu við villta eðlið
í sjálfri sér. Þannig kona er fullkom-
lega með sjálfri sér í stað þess að
standa fyrir utan sig – veltandi því
fyrir sér hvort hún sé að hegða sér
samkvæmt reglunum.
Kona sem er farin að heiman frá
sjálfri sér – frá sálinni – verður fljótt
þreytt og vannærð andlega. Það eru
ótal leiðir til að missa af sálinni. Hjá
flestum okkar gerist það á aldrinum
7–18 ára. Það getur verið í tilraun
okkar til að vera góða stelpan og falla
inn í hópinn, með því að vera með of
mikla fullkomnunaráráttu, með því að
leggja ofuráherslu á frama eða með
því að vera mjög lengi óánægð með
sjálfa sig og lífið án þess að gera neitt
í því. Hjá sorglega mörgum konum
gerist það við kynferðislega misnotk-
un, oft meðan þær eru kornungar.
Þegar sálinni hefur verið stolið þann-
ig þá getur verið erfitt að finna sels-
haminn sinn aftur.
Konan í sögunni giftist manninum
sem stal af henni selshamnum og átti
með honum börn. En að sjö árum
liðnum var hún orðin aðframkomin. Í
grænlenskri útgáfu af sögunni var
hún farin að þorna upp, augnlokin
voru að hrynja af henni og hún var
farin að sjá illa. Hún grátbað mann-
inn að færa sér haminn en hann ótt-
aðist að hún myndi yfirgefa sig og
fara frá börnunum. Að lokum stakk
hún sér í hafið klædd selshamnum.
Þannig finna flestar konur aftur sál
sína og tilgang fyrr eða síðar.
Unglingsárin
Unglingsárin eru fyrir margar
stelpur tími sem einkennist af mikilli
pressu frá umhverfinu. Þá er svo mik-
ilvægt að falla inn í hópinn og vera
meðtekin. Þess vegna eru unglinsárin
líka tími sem auknar líkur eru á að við
missum af okkur sjálfum. Við förum
jafnvel að yfirgefa okkar eigin gildi og
hafna því sem nærir okkur og fyllir
okkur gleði í skiptum fyrir viðurkenn-
ingu umhverfisins.
Villt í þoku
Konur sem hafa lent í því að vera
misnotaðar kynferðislega eða hafa
misboðið sjálfum sér á því sviði ganga
oft með reiði í maganum, sorg yfir að
hafa glatað sakleysinu og oft fylgir
líka skömm og/eða sektarkennd.
Skömm getur verið mjög lamandi til-
finning. Tilfinning sem gleypir okkur
eins og þoka. Það er fátt eins yfir-
þyrmandi einmanalegt eins og að
vera villt í þoku uppi á heiði. Skömm
getur fengið okkur til að lifa lífinu í
felum, hún minnir okkur stöðugt á að
við séum ekki nógu góð, hún getur
sannfært okkur um að við séum skít-
ug og ekki þess virði að góðir hlutir
komi inn í líf okkar. Þannig getur hún
litað öll okkar samskipti og það sem
við gerum við líf okkar. En skömm er
eins og allar tilfinningar, bara það
sem hún er; tilfinning en ekki veru-
leiki. Tilfinning sem er bara að biðja
okkur um að hlusta á söguna sem hún
hefur að segja svo við getum sleppt
henni. Það er hægt að vinna úr
skömm eins og öllum öðrum tilfinn-
ingum.
Alda tilfinninganna
Það kallar á bæði þolinmæði og
kærleika að vinna úr sterkum tilfinn-
ingum. Stundum þurfum við líka dá-
lítinn kjark til að byrja. Þegar við
frestum því of lengi að horfast í augu
við tilfinningar sem hafa safnast upp
eða höfum keyrt lengi á varaorkunni
án þess að næra andann – þá verðum
við dofin – hættum að vita hvernig
okkur líður og lífið verður flatt og lit-
laust. Allar tilfinningar eru eins og
alda. Þær rísa, eiga sinn hápunkt og
svo dvína þær – af sjálfu sér, ef við
gefum okkur tíma til að hlusta á þær.
Við þurfum ekki að óttast þær. Bara
að læra að lifa með þeim, hlusta á þær
og kunna leiðir til að veita þeim í
ákveðinn farveg ef þær verða of yf-
irþyrmandi.
Að halda selskinninu
Selakonan í áðurnefndri sögu
gleymdi sér svo í dansinum að hún
tapaði selskinninu – sálinni. Til þess
að halda selshamnum þurfum við að
vera vakandi, okkur meðvitandi um
tilfinningar okkar, líðan og þá sem
eru í kringum okkur. Og við þurfum
að taka okkur tíma til að næra okkur
sjálf, gera það sem okkur finnst
skemmtilegt, eiga hljóðar stundir og
fara út í náttúruna. Þannig nærum
við andann svo að við getum auðveld-
ar tekist á við erfiðu dagana og sömu-
leiðis notið sólríku daganna.
Að glata selshamnum
og fjarlægjast sálina
Guðrún Arnalds
Konur
Konan í selshamnum er
þannig tákn, segir
Guðrún Arnalds, fyrir
hina heilsteyptu konu
sem er í snertingu við
villta eðlið í sjálfri sér.
Höfundur er hómópati, nuddari og
leiðbeinandi í líföndun.
SAGT er að menn beiti mismun-
andi aðferðum við að læra. Þar
koma einkum tvær aðferðir til
greina, að hlusta eða lesa. Sumir
læra best með því að hlusta á annan
mann mæla fram fróðleikinn; öðr-
um hentar betur að lesa námsefnið.
Hallgrímur Helgason rithöfund-
ur skrifaði grein í gær í Morgun-
blaðið. Í henni er einkum fjallað um
opinberu rannsóknina, sem núna
fer fram á meintum sökum fyrir-
svarsmanna Baugs. Þessi Höfund-
ur Íslands veit svo sem ekki mikið
um hana. Hann hefur ekki, fremur
en aðrir, neinar upplýsingar, svo
heitið geti, um að hverju þessi
rannsókn beinist. Samt talar hann
um hana eins og allt sem henni við-
kemur liggi ljóst fyrir honum.
Hann talar um ofsókn lögreglunn-
ar, segir að hún hafi verið vel tíma-
sett (til að koma í veg fyrir viðskipti
fyrirtækisins í London!), en röng
að öllu öðru leyti. Rannsóknina tel-
ur hann eiga rót að rekja til sam-
særis gegn þessu fyrirtæki. Sam-
særinu stjórni forsætisráðherrann.
Undirritaður, sem gegnir lög-
mannsstarfi fyrir kærandann, er
talinn þátttakandi í samsærinu,
verandi „einkavinur forsætisráð-
herra“. Einhverjir fleiri eru nefnd-
ir til sögunnar. Samsæriskenning-
ar eru vinsælar kenningar. Þær
henta best, þegar menn vita minnst
um það sem þeir tala um.
Ljóst er að Höfundur hefur ekki
lært um staðreyndir málsins með
þeim hefðbundnu aðferðum sem
aðrir menn nota við að læra, að
hlusta eða lesa. Einfaldlega vegna
þess, að enginn, sem til málsins
þekkir, hefur talað við hann eða
skrifað honum. Hann beitir annarri
aðferð við að læra. Hann talar.
Hann nemur fróðleikinn úr eigin
munni.
Lögreglurannsóknir fara af stað
samkvæmt lögum, þegar nægilegt
tilefni þykir til að ætla, að menn
kunni að hafa brotið gegn refsilög-
um. Ákvörðun lögreglu um hvort
hefja skuli opinbera rannsókn í
máli getur aldrei ráðist af því,
hvort þeir, sem rannsóknin snertir,
eigi á því augnabliki sem tilefni
kemur upp, í viðskiptum við aðra.
Það væri afar ámælisverð fram-
kvæmd, ef lögregla léti slík sjón-
armið hafa áhrif á ákvarðanir um
að hefja rannsókn. Þegar ákvörðun
hefur verið tekin um að hefja rann-
sókn, ber lögreglu skylda til að
tryggja greiðan framgang hennar,
m.a. með því að hindra möguleika
þess, sem fyrir sökum er hafður, til
að spilla sönnunargögnum. Þeir
sem rannsókn sæta, teljast sak-
lausir meðan á rannsókn stendur
og allt þar til sekt þeirra hefur ver-
ið sönnuð með lögfullri sönnun fyr-
ir dómi, ef því er að skipta. Ákveði
lögregla að hefja opinbera rann-
sókn án nægilegs tilefnis, getur sá
sem fyrir verður leitað réttar síns á
eftir.
Við ættum öll að bíða með að
taka afstöðu til mála, þangað til við
fáum að vita öll málsatvik. Við eig-
um ekki að fella ótímabæra dóma
yfir sökuðum mönnum. Við ættum
heldur ekki að veitast að kærend-
um og lögreglu með ásakanir um
ofsóknir, fyrr en við höfum ein-
hverjar forsendur til að byggja
slíkar ásakanir á. Og við ættum að
reyna að muna vel, að samsæris-
kenningar þeirra, sem vilja spjalla
um þjóðmálin, eru venjulega rang-
ar. Þær eru oftast hafðar uppi til að
sáldra kryddi í hversdagslega til-
veru spjallara.
Þessar ábendingar eiga líka við
um Höfunda sjálfs Íslands, þó að
þeir telji sig kannski hafa ríkari
heimildir en aðrir til að skálda í til-
veruna. Kannski eru þeir orðnir
svo upphafnir af sjálfum sér, að
þeir telji nóg að læra með því að
tala. Ég legg þá til að við hin höld-
um okkur við hinar hefðbundnu að-
ferðir.
Að nema
fróðleik úr
eigin munni
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
Jón Steinar Gunnlaugsson