Morgunblaðið - 14.09.2002, Síða 45
lit og hringirnir fá nýjan stað eitt
augnablik áður en þeir halda áfram
á ferlinum.
Guðmunda var hæglátur lista-
maður. Guðmundu þótti vænt um
myndirnar sínar. Þær voru hennar
börn. Guðmundu þótti nóg um hrað-
ann þegar ég ættleiddi myndirnar
en hafði þó ánægju af þegar hún
sagði vinum sínum frá.
Nú málar Guðmunda ekki meira,
hún málaði fram í rauðan dauðann,
en þó aldrei landslagsmynd! Við
sem eftir lifum njótum þess sem hún
skapaði.
Megi minningin um mikla lista-
konu lifa.
Vilhjálmur Bjarnason.
Það eru næstum því 50 ár síðan
Skautafélag Reykjavíkur flutti
grænan geymsluskúr niður að
Reykjavíkurtjörn á hverjum vetri. Í
skúrnum var tekið við skóm skauta-
fólks til geymslu, að mig minnir, og
leikin dægurtónlist í gjallarhorn á
kvöldin, til mikillar armæðu fyrir
íbúa húsanna við tjörnina en
ánægjuauka fyrir unga fólkið. Þó
var ánægjan ekki söm þegar leið á
kvöldið og „Ama Pola“ var leikið í
þrítugasta sinn. Þó kvartaði enginn!
Eldra fólkið, það er að segja þeir
sem komnir voru yfir tvítugt, skiptu
sér lítið sem ekkert af okkur ung-
lingunum.
Einstaka sinnum kom þó fyrir að
einn af fastagestunum rabbaði við
okkur. Hún var ákaflega góð á
skautum hún Guðmunda. Hún gat
rennt sér afturábak og búið til tölu-
stafinn átta á svellið. Svo var hún
alltaf með þennan líka fína trefil um
hálsinn, sem sveiflaðist út í loftið
þegar hún lauk við áttuna.
Það var gaman að fylgjast með
Guðmundu renna sér á skautum.
Einbeitingin var mikil og hún
gafst ekki upp á æfingum fyrr en
hún hafði náð þeirri leikni sem hún
stefndi að. Það var ekki fyrr en ára-
tugum seinna, þegar leiðir okkar
lágu saman á ný, að ég gerði mér
grein fyrir því hve einbeitingin var
ríkur þáttur í lífi hennar og starfi.
Guðmunda Andrésdóttir var mik-
ill listamaður. Hún var ákveðin í list-
sköpun sinni þrátt fyrir það að
margir „kollegar“ hennar og list-
fræðingar létu hana svo að segja af-
skiptalausa. Í ritum um íslenskar
listir og listamenn gleymdist oft að
geta hennar og verka hennar. Upp-
hefð hennar kom að miklu leyti er-
lendis frá. Það var ekki óalgengt að
erlendir listunnendur létu hafa eftir
sér að Guðmunda Andrésdóttir væri
einn athyglisverðasti íslenski list-
málari samtímans.
Guðmunda hlaut 12 mánaða
starfslaun ríkisins árið 1971 og var
valin borgarlistamaður Reykjavík-
urborgar árið 1995. Þrátt fyrir að
hún væri að verða áttræð voru verk
hennar framsækin og ung í anda.
Hún fylgdist náið með ungum list-
málurum og verkum þeirra. Og nú
þegar hún hefur horfið frá okkur
skilur hún eftir myndarlegan sjóð til
styrktar ungum myndlistarmönn-
um.
Guðmunda var ekki einungis ein-
beitt. Hún var líka ákaflega passa-
söm og hélt vel utan um sitt. Það er
ekki langt síðan hún rukkaði mig
um trefilinn sem hún lánaði mér nið-
ur á Reykjavíkurtjörn fyrir tæpum
fimmtíu árum! Blessuð sé minning
sérkennilegs listamanns. Verk
hennar munu halda nafni hennar á
lofti um ókomin ár.
Ólafur Stephensen.
Vorið beð þinn vökvar tárum,
vakir sól á yztu bárum,
greiðir hinzta geislalokkinn,
grúfir sig að brjóstum hranna.
Moldin að þér mjúk skal hlúa,
móðurleg um þig búa,
rétta þér á rekkjustokkinn
rós úr lundum minninganna.
(M.Á.)
Unnur og Klara.
Þulur, 1972. Olía á striga, 115 x 130 sm. Eign Listasafns Háskóla Íslands.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 45
✝ Jafet Sigurðssonfæddist í Reykja-
vík 1. maí 1934. Hann
lést á Landspítalan-
um við Hringbraut 6.
september síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru hjónin Sigurður
Jafetsson, verslunar-
maður, f. 1905, d.
1952, og Ásta Guð-
mundsdóttir, f. 1910,
d. 1983. Af fyrra
hjónabandi átti Jafet
eina dóttur, Svan-
hildi, f. 11. september
1955.
Hinn 15. september 1958
kvæntist Jafet Ingunni Emmu
Þorsteinsdóttur ljósmóður, f. 2.
febrúar 1926. Foreldrar hennar
voru Þorsteinn Þorsteinsson, f.
1899, d. 1959, og Indíana Jóns-
dóttir, f. 1903, d. 1962. Börn Jafets
og Emmu eru: 1)
Þorsteinn S., f.
31.10. 1959. 2) Ingi-
björg G., f. 3.7.
1960. 3) Indíana M.,
f. 22.11. 1962. d.
22.10. 2001. Jafet
starfaði um tíma við
verslunarstörf í
Ólafsvík. Síðar hóf
hann nám við öld-
ungadeildina við
Hamrahlíð og út-
skrifaðist þaðan
1979. Að loknu stúd-
entsprófi hóf hann
nám við Háskóla Ís-
lands og lauk þaðan BA-prófi í
sagnfræði og kennslufræðum.
Síðustu árin starfaði hann sem yf-
irkennari við Valhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi.
Útför Jafets fór fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð.
Lifðu sæll á ljóssins friðarströnd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Einstakur! Það er það orð sem
mér finnst lýsa pabba best. Hann var
hæglátur, hlýr og góður en jafnframt
mjög jarðbundinn maður. Hann var
ekki sú manngerð sem setti sig í
dómarasæti heldur kom eins fram
við alla. Pabbi var kennari að mennt
og kenndi í mörg ár við Valhúsaskóla
á Seltjarnarnesi. Þar naut hann sín
best við kennslu í stærðfræði, enda
snillingur í þeirri grein. Honum féll-
ust stundum hendur þegar hann
hjálpaði mér við heimanámið í stærð-
fræðinni enda vildi hann að dóttirin
sýndi meiri snerpu. Ég minnist sér-
staklega skemmtilegra viðhorfa
hans til lífsins t.d. þegar hann sagði
mér að ég ætti bara að gera það sem
mér þætti skemmtilegast í lífinu og
aðeins borða þann mat sem mér lík-
aði best. Takk, elsku pabbi, fyrir
þessar góðu leiðbeiningar um lífið.
Aðaláhugamál pabba var golf-
íþróttin og eignaðist hann marga
góða félaga við golfvöllinn á Korp-
úlfsstöðum. Á sl. ári lék pabbi golf
325 daga og þá varð mér að orði:
„Hvað varstu að slæpast hina dag-
ana?“ Þá brosti hann sínu breiðasta
og svaraði hæglátlega: „Það var ekki
stætt úti hina dagana.“ Þarna er
kímnigáfu hans rétt lýst.
Pabbi, ég hef góðar fréttir handa
þér, elskan: Það eru mjög góðir golf-
vellir í himnaríki og kylfurnar eru úr
hvítagulli og eitt frétti ég: Það er
auðveldara að fara holu í höggi í
himnaríki og þá rætist stóri draum-
urinn þinn!
Pabbi gantaðist með það að Aron
læknir hefði lagað sig svo vel að golf-
sveiflan hefði orðið frábær og höggin
enn lengri en áður var. Hafðu þökk
fyrir Aron að gera pabba að þessari
„golfstjörnu“ á efri árum. Þannig ert
þú, pabbi, í dag, úrvals golfleikari og
kennari í þokkabót svo nú þegar þú
kemur til himna og hittir Indu syst-
ur, þá kennir þú henni listina að leika
golf, enda sýndi hún hér áður góða
takta.
Megir þú og Inda systir njóta dýr-
legra samvista á himnum. Elsku
pabbi minn, ég kveð þig með söknuð í
hjarta. Í þínum anda vil ég ljúka
þessum kveðjuorðum með æðruleys-
isbæninni góðu:
Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það,
sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
Elsku mamma mín, megi góður
Guð styrkja þig og vernda um
ókomna tíð.
Þín dóttir
Ingibjörg.
Nú þegar ég hugsa um elsku afa
minn er svo margt sem kemur upp í
huga mér en samt svo erfitt að koma
því á blað. Mínar helstu minningar
um afa eru tengdar golfi og hans
brennandi áhuga á íþróttinni og öllu
sem henni tengdist. Einnig var
kennslan honum afar hjartfólgin, var
hann meðal annars oftar en einu
sinni kosinn kennari ársins og það
þótti honum afar vænt um.
Ég bið guð að geyma elsku afa
minn og vona að honum líði vel á nýj-
um stað.
Auðunn Ófeigur Helgason.
JAFET
SIGURÐSSON
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
!"#$ %& "'( $
! ')""$$
' * $ ""$$
+ * "$$
! , * "$$ $' -
#.( /
! "
#
# "
.
00 1*
*.. &
(#'22
3) 4#3
$ #
%"
!
///
! $ 5/
*33 6(/
*'5/
! 1"( "$$ 7 8
0 4" 1"(
0) $ '
' '$ /
0.1-
$ ! +9
& '
!
(
) *
+
, !
): 0 3 3 !3
;$0 3 "$$
- 0 3 "$$
#< 0 3 "$$ * 1/ ! $
<= 0 3 ' *$$ "$$
! !: ! ! !: /
-
"
! #
5
.. > 1
.
*.. ! $?
$)
& %
! .
/ +
, !
1"( / 4"$$
$) $
3 ) $
1") $ /
@@
) ( A
B =3(:
& '
!
-
) / +
, !
0 $# 0 "$$
#' ' "$$ '
- C ' "$$ 4
0 $# ' "$$
! !: /