Morgunblaðið - 14.09.2002, Side 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 55
VE
GG
SP
JA
LD
AK
EP
PN
IF
ÍT
SKIPULAGSSTOFNUN hefur úr-
skurðað um mat á umhverfisáhrifum
vegna rannsóknaborana á vestur-
svæði við Kröflu og og fallist á fyr-
irhugaðar boranir eins og þeim er
lýst í gögnum framkvæmdaraðila.
Hægt er að kæra úrskurðinn til um-
hverfisráðherra til 16. október næst-
komandi.
Í tilkynningu frá Skipulagsstofn-
un kemur fram að stofnunin telji
unnt að fallast á báða þá kosti sem
framkvæmdaraðili kynnti varðandi
förgun affallsvatns þar sem um tíma-
bundnar aðgerðir verði að ræða sem
muni hafa óveruleg áhrif á umhverf-
ið. Þar sem óvissa ríki um rennsl-
isleiðir grunnvatns á svæðinu og
dreifingu mengunarefna leggi
Skipulagsstofnun áherslu á nauðsyn
þess að framkvæmdaraðili afli frek-
ari upplýsinga um þessa þætti hið
fyrsta. Niðurstöður slíkra rann-
sókna ásamt vöktun á afdrifum og
áhrifum affallsvatns munu að mati
stofnunarinnar geta varpað ljósi á
hvort lífríki Mývatns stafi hætta af
förgun affallsvatns vegna fram-
kvæmda við Kröflu.
Þá kemur fram að Skipulagsstofn-
un telji að framkvæmdirnar muni
hafa óveruleg áhrif á gróður og að
ólíklegt sé að þær muni hafa veruleg
áhrif á fuglalíf enda verði fram-
kvæmdum haldið í lágmarki á varp-
tíma. Stofnunin telur eðlilegt að lok-
að verði fyrir almenna umferð eftir
vegslóð að borsvæðinu a.m.k. á varp-
tíma til að draga úr áhrifum á rán-
fugla.
Þá segir: „Fyrirhugaðar jarðhita-
boranir á vestursvæði Kröflu í
Skútustaðahreppi eru ekki í sam-
ræmi við aðalskipulag Skútustaða-
hrepps og þarf að breyta því. Skipu-
lagsstofnun mælir með að í
breytingu á aðalskipulagi verði af-
mörkuð iðnaðarsvæði vegna jarð-
hitavinnslu í samræmi við kröfur
skipulagsreglugerðar. Fyrirhugaðar
framkvæmdir á vestursvæði eru
háðar framkvæmdaleyfi Skútustaða-
hrepps og starfsleyfi heilbrigðis-
nefndar Norðurlands eystra. Fram-
kvæmdirnar falla einnig undir
ákvæði laga nr. 57/1998 um rann-
sóknir og nýtingu á auðlindum í
jörðu. Bent er á að breytingar á að-
alskipulagi Skútustaðahrepps eru
háðar samþykki Náttúruverndar
ríkisins. Samkvæmt lögum um nátt-
úruvernd skal áður en framkvæmda-
leyfi er veitt liggja fyrir áætlun um
væntanlega efnistöku.
Skipulagsstofnun telur mikilvægt
að unnin verði landnýtingar- og-
verndaráætlun fyrir Kröflusvæðið
áður en leyfi verður veitt fyrir rann-
sóknarboranir á vestursvæði við
Kröflu.“
Skipulagsstofnun ríkisins
Fallist á rannsókna-
boranir við Kröflu
STUÐNINGSFÉLÖG Palestínu á
Norðurlöndunum, þ. á m. Félagið
Ísland–Palestína, hvetja almenning
til þess að sniðganga ísraelskar
vörur og þjónustu. Í fréttatilkynn-
ingu frá Félaginu Ísland–Palestína
kemur fram að félagið muni frá og
með „samnorræna sniðgöngudegin-
um 14. september“ beita sér fyrir
því að ísraelskar vörur verði snið-
gengnar hér á landi af einstakling-
um og fyrirtækjum.
„Bréf hafa verið send til inn-
kaupastjóra og framkvæmdastjóra
helstu verslunarkeðja á Íslandi og
þeir hvattir til að sniðganga ísr-
aelskar vörur að fordæmi norrænna
verslunarkeðja, og taka málið upp á
vettvangi Samtaka verslunar og
þjónustu. Þegar liggur fyrir að mál-
ið verður til umræðu hjá samtök-
unum á næstunni að frumkvæði
eins meðlima þeirra,“ segir í frétta-
tilkynningunni.
Ennfremur segir í ályktun sem
undirrituð er af stuðningsfélögum
Palestínu á Norðurlöndunum að
hernámslið Ísraela verði að hverfa á
brott af hernumdu svæðunum. „Um
Evrópu og allan heim eru sam-
stöðuaðgerðir í fullum gangi til
stuðings hinni þjáðu palestínsku
þjóð. En þessar aðgerður eru ekki
nóg. Palestínska þjóðin hefur lifað
undir hernámi í áratugi; heilli þjóð
er haldið fanginni, hún látin sæta
framkomu sem brýtur í bága við
alla sáttmála og mannréttindalög, á
meðan árásaraðilinn, Ísraelsríki,
fær efnahagslegan og hernaðarleg-
an stuðning frá mesta herveldi
heims, Bandaríkjunum,“ segir m.a.
ályktuninni. Þar segir ennfremur að
viðskiptaþvinganir og það að snið-
ganga vörur, séu mikilvæg skref í
stuðningi við rétt Palesínumanna og
frið á svæðinu. „Við viljum þrýsta á
ríkisstjórn Ísraels með því að neita
að kaupa ísraelskar vörur og þjón-
ustu.“
Félagið Ísland – Palestína
Vörur frá Ísrael
verði sniðgengnar
LAUGARDAGINN 14. september
fer fram Norðurlandamót taflfélaga.
Á mótinu taka þátt sex af sterkustu
taflfélögum Norðurlanda, eitt frá
hverju Norðurlandanna. Fulltrúar
Íslands er Taflfélagið Hellir sem
jafnframt stendur fyrir mótinu en
þetta er í þriðja sinn sem mótið fer
fram. Hellismenn urðu Norður-
landameistarar 2000 en í fyrra sigr-
aði norska félagið Asker.
Mótið fer fram á ICC-skákþjón-
inum á Internetinu og hefst kl. 11:00.
Í liði Hellis er m.a. stórmeistarnir
Hannes Hlífar Stefánsson, nýkrýnd-
ur Íslandsmeistari í skák, og Helgi
Ólafsson en meginuppistaðan í liði
Hellis eru þeir einstaklingar sem
þátt taka í Evrópukeppni taflfélaga
sem fram fer í Halkdiki í Grikklandi
síðar í mánuðinum.
Þátttökuliðin:
Danmörk: Skolernes Skakklub
Færeyjar: Klaksvikar Talvfelag
Finnland: Matinkylän
Shakkikerho
Ísland: Taflfélagið Hellir
Noregur: Asker Schakklub
Svíþjóð: Sollentuna Schackklubb
Lið Hellis (nöfn á ICC-þjóninum
í sviga):
1. SM Hannes Stefánsson
2588 (Stefansson)
2. SM Helgi Ólafsson 2476 (Helgi)
3. FM Sigurbjörn Björnsson
2357 (Czentovic)
4. FM Ágúst Sindri Karlsson
2347 (ASK)
5. FM Ingvar Ásmundsson
2338 (Ingvar)
6. FM Andri Áss Grétarsson
2313 (Aggi)
7. FM Davíð Ólafsson 2300 (Tinni)
8. FM Snorri Guðjón Bergsson
2288 (Morfinus)
Hægt verður að fylgjast með
gangi keppninnar á ICC og á
www.skak.is
Norðurlandamót
taflfélaga á Netinu
FRÆÐSLUHÁTÍÐ Viku símennt-
unar verður haldin í Smáralind í dag,
laugardaginn 14. september. Af því
tilefni mun Félag náms- og starfs-
ráðgjafa bjóða fólki leiðsögn og ráð-
gjöf varðandi náms- og starfsval.
Gestum verður boðið að fylla út
litla áhugasviðskönnun og skoða nið-
urstöður hennar ásamt ráðgjafa í
tengslum við mögulegar leiðir til
náms og starfa. Þá geta einstakling-
ar sest niður í næði með náms- og
starfsráðgjafa, fengið leiðsögn um
upplýsingaleit á Netinu, upplýsingar
um allar almennar námsleiðir, í
framhalds- og háskólum á Íslandi,
forkröfur og inntökuskilyrði auk að-
stoðar við gerð atvinnuumsókna o.fl.
Ráðgjafarmiðstöð FNS verður á
neðstu hæð Smáralindar, nálægt
Hagkaupum og þjónar fólki frá
kl.11:00–18:00 á laugardag, segir í
fráttatilkynningu.
Félag náms- og starfsráðgjafa
hvetur alla til að nýta tækifærið og
víkka sjóndeildarhringinn varðandi
frekari möguleika til náms og starfa,
segir í fréttatilkynningu
Ráðgjafarmiðstöðin nýtur styrkja
frá menntamálaráðuneytinu og
fræðslu- og menningarsviði Kópa-
vogsbæjar.
Náms- og
starfsráðgjöf
í Smáralind
MÁNUDAGINN 16. september
hefur Leikmannaskóli kirkjunn-
ar starf sitt með námskeiði um
Tómasarguðspjall.
Námskeiðið hefst kl. 20 og er
kennt í Háskóla Íslands, aðal-
byggingu. Á námskeiðinu verð-
ur stuðst við bókin Tómas-
arguðspjall sem kom út í flokki
Lærdómsrita Bókmenntafélags-
ins. Kennari á námskeiðinu er
dr. fil. Jón Ma. Ásgeirsson pró-
fessor en hann þýddi guðspjall-
ið og ritaði inngang og skýr-
ingar.
Skráning fer fram á vef Leik-
mannaskólans http://www.kirkj-
an.is/leikmannaskoli.
Leikmannaskóli kirkj-
unnar hefur starf sitt
STARFSGREINASAMBAND Ís-
lands heldur vinnufund á Húsavík
13.–15. september n.k. Fundað
verður á Hótel Húsavík. Fundurinn
er undirbúningsfundur fyrir árs-
fund sambandsins í október.
Helstu umræðuefni fundarins
verða starfsmenntamál, kjaramál,
útbreiðslumál og fiskvinnslu- og
sjávarútvegsstefna sambandsins.
Hlé verður gert á fundarhöldum
um hádegi á laugardag. Þá verður
Verkalýðsfélag Húsavíkur með sér-
staka móttöku fyrir fundarmenn,
maka og starfsfólk sambandsins.
Farið verður m.a. í sjóferð um
Skjálfanda, söfn verða skoðuð og
kynning verður á húsvískri mat-
vælaframleiðslu. Um 25 til 30 gestir
koma til Húsavíkur vegna fundar-
ins.
Framkvæmda-
stjórn SGS fundar
á Húsavík
Í DAG, laugardag, fer fram mál-
þing um sameiginlega fiskveiði-
sögu Íslendinga og Þjóðverja. Á
þinginu, sem haldið verður í
Goethe-Zentrum á Laugavegi 18,
3. hæð, og hefst kl. 10, munu ís-
lenskir og þýskir sérfræðingar
halda erindi um árekstra Íslend-
inga og Þjóðverja og Íslendinga og
Englendinga í fiskveiðisögunni svo
og um verslun með fisk í sögu og
samtíð. Í lok þingsins, kl. 16, verð-
ur sýnd heimildarmyndin „Das
Männerschiff“ sem Klemens Lind-
enau gerði 1951. Málþingið, sem
fer fram í tengslum við afhjúpun
minnismerkis um þýska sjómenn í
Vík í Mýrdal sunnudaginn 15.
september, verður haldið á ensku
og er öllum heimil þátttaka.
Stjórnandi er dr. Ingo Heidbrink
frá Þýska siglingasafninu í Brem-
erhaven.
Málþing um
fiskveiðisögu
Í ÁR eru 90 ár liðin síðan skáta-
starf hófst á Íslandi, Skátar héldu
eitt stærsta og glæsilegasta lands-
mót sitt á Akureyri í sumar og um
þessar mundir er vetrarstarfið að
hefjast, öflugara en áður.
Gilwell skátar kallast þeir sem
lokið hafa alþjóðlegri Gilwell-for-
ingjaþjálfun en það er æðsta for-
ingjaþjálfun skátaforingja.
Í dag, laugardag kl.18, verða
Gilwell-endurfundir með helgi-
stund í Úlfljótsvatnskirkju og síð-
an verður eldfjörug kvöldvaka í
Gilwellskálanum og kvöldinu lýkur
með spjalli í skálanum yfir kakó-
bolla.
Þátttökugjald er kr. 1.000 og er
minjagripur innifalinn. Hugmyndir
hafa verið uppi um að endurlífga
Gilwellhringinn og því eru eldri
Gilwell skátar sérstaklega vel-
komnir.
Gamlir Gilwell-
skátar hittast
GRASAGARÐUR Reykjavíkur
stendur fyrir fræðslu um safn-
hauga laugardaginn 14. september
kl. 11. Á hverju sumri fellur til
mikill lífrænn úrgangur í heim-
ilisgörðum sem hægt væri að nota
í jarðgerð.
„Grasagarðurinn hefur verið að
prófa nokkrar gerðir af safnköss-
um en einnig mismunandi lífrænt
efni, bæði úr garðinum og eldhús-
inu. Safnhaugsmold er næringar-
rík, bætir jarðveginn og er eft-
irsóknarverð í trjábeð og
matjurtagarðinn. Mæting er í
hvíta lystihúsinu, aðgangur er
ókeypis og boðið er upp á jurtate
eftir fræðsluna,“ segir í frétt frá
Grasagarðinum.
Fræðsla um
safnhauga
DREGIÐ hefur verið í póstkorta-
leik ESSÓ og Íslandspósts. Hrafn-
hildur Hallgrímsdóttir í Búðardal
vann Coleman-fellihýsi. Tíu fengu
gasgrill eða flugfar innanlands fyr-
ir tvo. Þá fengu 20 þátttakendur
bensínúttektir. Nöfn vinningshafa
má sjá á www.esso.is. Erna Krist-
insdóttir, starfsmaður í kynning-
ardeild ESSÓ, afhendir hér Hrafn-
hildi Hallgrímsdóttur vinninginn.
Vann fellihýsi
í póstkortaleik